Morgunblaðið - 08.07.1982, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 08.07.1982, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ1982 39 Þeir sem til þekkja vita að Carmina MA kemur út á hverju vori og hefur að geyma í máli og myndum oft spaugsama lýsingu á sjöttubekkingum hvers tíma og lærifeðrum þeirra. Við síðari lest- ur — oft aldarfjórðungi síðar — kemur í ljós að sú skaphöfn sem hverjum nemanda er ætluð hefur lítið breyst og minnir á að lengi býr að fyrstu gerð. Það var siður þá, og er vafalaust enn, að menn rituðu kveðjur hver til annars á ýmsum tungumálum s.s. latínu eða frönsku. Ein kveðjan — dæmi- gerð frönsk — var höfð að upp- hafsorðum í þessum kveðjuorðum til þeirrar góðu vinkonu sem kvödd er í dag: „Að kveðja er að deyja örlítið“. Eins og sagt var í upphafi þessara orða er það gang- ur lífsins að hver og einn gengur á hólm við skapanornir sínar þegar skóla og skemmtun lýkur. Því er ekki að leyna að Ragnheiður háði oft erfiða hildi við sínar skapa- nornir og varð þar bæði sorg og gleði. En svo að vitnað sé aftur til hinna frönsku upphafsorða er það huggun harmi gegn að þó að Ragnheiður hafi nú kvatt og henn- ar sé sárt saknað, eigum við þó minninguna um ógleymanleg ár, vináttu og tryggð sem nær langt út yfir landamæri lífs og dauða. Að því leyti eru frönsku kveðju- orðin enn í fullu gildi þó að merkingin fái annan blæ. Ekki eru nema fáar vikur síðan við norðan- menn hér syðra héldum hátíð. Vegna veikinda var ekki von á Ragnheiði en öllum að óvörum birtist hún brosandi — en fáir áttu von á að því að þar væri hinsta kveðjan. A þessari kveðjustund þakka bekkjarsystkinin liðna tíð og votta eiginmanni og vandamönnum dýpstu samúð. Ör fjarlægð berast hlýjar kveðjur frá þeim er þetta ritar með þakklæti fyrir tryggð og vináttu. Blessuð sé minning Ragnheiðar Aradóttur. Heimir Hannesson Vinkona mín, Ragnheiður Ara- dóttir, lést að heimili sínu hinn 1. júlí sl. í lífi sínu háði hún langa og stranga baráttu við sjálfa sig og sérlega hin síðari árin. En oft komu skin eftir skúri og vonirnar glæddust á ný og Ragnheiður birt- ist okkur jafn falleg og áður með hlýja brosið sitt og glampann í augunum. Það er þyngra en tárum taki að horfa upp á einlægan og tryggan vin þurfa að líða eins og hún gerði. Kýnni okkar Ragnheiðar hófust í Frakklandi þar sem við vorum ungar stúdínur við nám. Margt var brallað á þeim árum þó að peningapyngjan væri létt, enda lífsgleðin óþrjótandi. Ég minnist endalausra rökræðna um lífið og tilveruna og ansi komumst við langt í að ráða lífsgátuna. Margar smámyndir frá ýmsum árum skapa heildarmynd af lífi einnar persónu. Þannig var það með Ragnheiði. Ég kynntist smátt og smátt uppvaxtarárum hennar á Brekku í Fljótsdal og á Egilsstöð- um, þar sem faðir hennar, Ari Jónsson, var önnum kafinn hér- aðslæknir og móðir hennar, Sig- ríður Soffía Þórarinsdóttir, ein af Valþjófsstaðasystkinum, stóð fyrir gestkvæmu heimili. Á þetta heimili komu fjölskylda og vinir aldrei svo saman að húsfreyja settist ekki við hljóðfærið og allir tækju lagið. Erna, einkasystir Ragnheiðar, tveimur árum eldri, var skýr dráttur í þessari æsku- mynd. Systurnar voru nánast full- gildir starfskraftar þessa gest- kvæma heimilis þegar á barnsár- unum og unnu þá jafnframt á sjúkraskýlinu sem ævinlega fylgdi héraðslæknisembætti föður henn- ar. Erna var henni eldri systir til dauðadags. Frá Egilsstöðum lá svo leiðin til Akureyrar þar sem hún stundaði nám í Menntaskólanum og lauk þaðan stúdentsprófi 1955. Önnur yndisleg æskumynd. Ragnheiður giftist Sigurði Þ. Guðmundssyni lækni hinn 14. jan. 1959 og fluttist með honum til Bandaríkjanna þar sem Sigurður stundaði framhaldsnám. Þar dvöldust þau í 5 ár og starfaði Ragnheiður sem meinatæknir á ýmsum sjúkrahúsum og síðar rit- ari á skrifstofu Loftleiða í New York. Þegar heim kom, hóf hún störf á skrifstofu Loftleiða og þótti frábær starfsmaður. Þó þótti mér Ragnheiður aldrei njóta sín betur en þegar hún stóð í hlaði og tók á móti gestum. Heimili þeirra hjóna var sann- kallaður listareitur og blátt var hennar eftirlætislitur. Sigurður eiginmaður hennar deildi með henni gleði og þraut og stóð áveðra við hana uns yfir lauk. Á meðan Ragnheiður dvaldist erlendis var hún allan þann tíma ötull bréfritari og fór á kostum í bréfum sínum sem aldrei voru styttri en 20 síður, full af kímni og alvöru. Hún hafði glöggt auga fyrir öllu sem fyrir bar og var sér- stakur mannþekkjari. Góð sendi- bréf eru oft einkennandi fyrir dul- ar manneskjur sem ekki lætur að tjá sig í tali. Ragnheiður var ein af þeim, enda fór það einatt svo, að í nánum viðræðum varð hún hlust- andinn, en bláu augun hennar, sem voru svo ótrúlega mælsk, sögðu oft meira en orð. Kristrún Eymundsdóttir í dag kveðjum við góða vinkonu, Ragnheiði Aradóttur. Ragnheiður var fædd hinn 23. september 1933 að Brekku í Fljótsdal, dóttir sæmdarhjónanna Sigríðar Soffíu Þórarinsdóttur og Ara Jónssonar, læknis á Héraði. Hún ólst upp í foreldrahúsum ásamt Ernu, eldri systur sinni, til 19 ára aldurs, að hún hóf nám í Menntaskólanum á Akureyri 1952 og lauk þaðan stúdentsprófi 17. júní 1955. Ragnheiður var einn sérstæð- asti persónuleiki sem ég hefi kynnst, hún var mjög góðum gáf- um gædd, hrókur alls fagnaðar í vinahópi, með heillandi framkomu sem allir sem kynntust, hrifust af. Að loknu stúdentsprófi frá MA vann Ragnheiður skrifstofustörf í Reykjavík um hálfs annars árs skeið. 1957 stundaði hún frönsku- nám í París, en hinn 13. janúar 1959 giftist hún eftirlifandi eig- inmanni sínum, Sýjurði Þ. Guð- mundssyni lækni. A árunum 1959 til 1964 bjuggu þau hjónin í Bandaríkjunum þar sem Sigurður stundaði framhaldsnám í grein sinni. Þann tíma allan stundaði Ragnheiður ýmis störf við þau sjúkrahús þar sem maður hennar var við framhaldsnám, en síðustu árin í Bandaríkjunum vann hún hjá Loftleiðum hf. í New York. Með þessari eljusemi og dugnaði gerði hún eiginmanni sínum kleift að stunda námið af fullu kappi meðan nauðsyn krafði. Fyrstu kynni okkar Ragnheiðar hófust þegar hún kom til náms á Akur- eyri og héldust alla tíð síðan, þótt leiðir skildu um tíma meðan á Ameríkudvölinni stóð. Skömmu eftir heimkomu þeirra hjóna frá náminu í Bandaríkjunum, endur- nýjuðust kynnin þó að nánust og best hafi þau orðið eftir að við báðar bjuggum fjölskyldum okkar bú, hlið við hlið á sjávarbakka við Barðaströnd á Seltjarnarnesi árið 1968. Og það var eins með vinátt- una meðan hennar naut við og víð- sýnið frá Barðaströnd, að þar bar aldrei skugga á. Oft höfum við í minni fjölskyldu þurft til þeirra hjóna beggja að leita með hin ýmsu vandamál og ávallt fengið skjóta og góða úr- lausn, alltaf sjálfsagt að leysa úr vandræðum sem að steðjuðu, auk þess að síðan Sigurður hóf lækn- ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í siðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. f minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. isstörf hér heima, hefur hann alla tíð og á öllum tímum séð okkur hjónum og þremur börnum okkar fyrir þeirri læknisaðstoð sem þurft hefur á okkar heimili. Vin- átta milli okkar hefur því verið mér og fjölskyldu minni ómetan- leg alla tíð. Ragnheiður lést að heimili sínu, Barðaströnd 1, á Seltjarnarnesi hinn 1. júlí síðastliðinn. Það er sárt að þurfa að horfast í augu við þá staðreynd, að Ragnheiður sé frá okkur farin, en eins og í upp- hafi kynna okkar þegar leiðir skildu um sinn en lágu svo saman síðar, er það eitt víst, að leiðir okkar eiga eftir að liggja saman að nýju. Erna mín, ég sendi þér og fjöl- skyldu þinni okkar dýpstu samúð- arkveðjur við missi einkasystur þinnar. Elsku Sigurður minn, mig skortir orð til að lýsa því sem ég vildi svo gjarnan segja, en megi algóður Guð gefa þér og fjölskyldu þinni styrk í harmi ykkar vegna fráfálls elskulegrar eiginkonu þinnar. Sólveig Sigurðardóttir Leiðrétting í minningargrein um Diðrik Helgason hér í blaðinu í gær var sagt að hann hefði verið atkvæða- mikill verktaki á fimmta og sjötta áratug þessarar aldar. Hér átti að standa á fjórða og fimmta áratug þessarar aldar. Þetta leiðréttist hér með og er höfundur beðinn af- sökunar á mistökunum. í DAG VERÐUR KYNHING Á BOOTS SNTRTIVÖRUM Snyrtistofan HóteC Esju DÍSELLA Miðvangij Hafnarfvrði ROADSTAR Nú er rétti tíminn til að velja sér gott bíltæki. Úrval- iö hefur aldrei verið meira. Radíóbúöin, 8.: 29800. ísetning samdægurs. Hreinar jurtavörur rct LÁTTU PAÐ BESTA EFTIR ÞÉR í PRISMA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.