Morgunblaðið - 08.07.1982, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLI 1982
45
Þessir hringdu . . .
Farfuglaheimil-
ið eins og
draugahöll
þannig að maður er sífellt í vafa
um það, hvert þeir ætla sér. Þó
finnst mér, að þeir ættu fremur en
hitt að vera okkur hinum til fyrir-
myndar í umferðinni.
Vantar útskot
á Reykjanes-
braut
Þriðja atriðið sem ég ætla að
drepa á er að útskot vantar á
Reykjanesbrautina, þar sem vegu-
irinn þrengist á Arnarneshæðinni
og beygt er yfir á nýju Bæjar-
brautina sem liggur til Garðabæj-
ar. Þegar ekið er þarna um í tvö-
faldri röð skapast hætta þegar
ökumenn á vinstri akreininni ætla
að hægja á sér eða nema staðar til
þess að komast út á Bæjarbraut-
ina. Þeir eiga sífellt á hættu að fá
næsta bíl í röðinni aftan á sig. Ég
nefndi þetta á fundi þar sem vega-
málastjóri var staddur. Sagði
hann þá að til stæði að ráða bót á
þessu, en ekkert hefur gerst í allt
sumar. Ég vona að þeir bíði ekki
svo lengi með úrbætur, að slys
hljótist af þessu áður. Það er lítið
mál að bæta úr þessu nú, en getur
orðið stórmál, þegar slys er orðið.
Steinar Waage hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Mér
blöskrar alveg hversu lítið Far-
fuglaheimilinu við Laufásveg er
haldið við. Þangað koma fjölmarg-
ir útlendingar og hlýtur þeim að
bregða í brún, því að húsið er á að
líta líkast draugahöll. Farfuglar
hljóta að hafa efni á því að gera
húsi sínu eitthvað til góða að utan,
þó ekki væri nema að mála það.
Stefnuljósin
óvirk hjá leigu-
bílstjórum?
Annað sem mig langaði að
nefna er í sambandi við leigubíl-
stjórana okkar. Þetta eru ágæt-
ismenn, en ég held að þeir séu
haldnir ákveðinni leti eða a.m.k.
tregðu, þegar nota skal stefnuljós.
Þó að ekki þurfi annað en að ýta
við einum taka til þess að gefa
samferðarmönnum í umferðinni
merki um væntanlega breytingu á
akstursstefnu, þá held ég að það
heyri nánast til undantekninga að
sjá leigubílstjóra nota stefnuljós,
Heiður
sé Dönum
I.H. skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Mig langar að koma á fram-
færi þeirri ósk til íslendinga, að
þeir hætti að flytja inn þennan
útlenska pakkamat, sem er að
tröllríða þjóðinni. Sum ung börn
líta ekki orðið við góðum mat
hjá foreldrum sínum, sem eiga í
vök að verjast gagnvart þessum
pakkamat.
Svo er eitt í lokin sem mig
langar að komi fram, en það er
lofsvert framtak frænda okkar
Dana í þessum efnum. Ég held
nefnilega að það sé rétt sem ís-
lenskur ferðalangur, nýkominn
frá Danmörku, sagði mér, að
þeir flyttu ekki inn Cheerios eða
Cocoapuffs. Heiður sé þeim fyrir
það.“
Skrifíð eða hringið
til Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum
um hvaðeina sem þeim liggur á hjarta — eða hringja
milli kl. 10 og 12 mán’^daga til föstudaga. Bréf þurfa
ekki að vera vélrituð. Þeir, sem ekki koma því við að
skrifa, slá þá bara á þráðinn og Velvakandi kemur
orðum þeirra áleiðis. Nöfn, nafnnúmer og heimilis-
föng þurfa að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að
höfundur óski nafnleyndar.
GÆTUM TUNGUNNAR
Rétt er að segja: Mig langar, þig langar, drenginn langar,
stúlkuna langar, barniö langar, drengina langar, stúlkurnar
langar, börnin langar. (Ath.: mig langar eins og mig lengir.)
ALVÖRU
brennsluofnar
með hitahringrás.
Til afgreiðslu strax
Timburverzlunin
Völundur hf.
KLAPPARSTÍG 1 S. 18430
RÍNARLÖND
— fariö um blómleg
héruö Þýskalands
SVEFN
— rannsóknir á
mismunandi svefnvenjum
KNATTSPYRNA
— kynning á íslenskum
knattspyrnuliöum
Föstudcigsbladid ergott forskot ú helgina