Morgunblaðið - 08.07.1982, Síða 48
Síminn á afgreiöslunni er
83033
* JttorjjimWafoib
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1982
Fólksstreymi til
Vindheimamela
\ armahlíA, 7. júlí.
Mikill fjöldi manns strejmir nú til Vindheimamela úr öllum áttum, bæði
akandi og riðandi. Um kl. 16.00 á miðvikudag höfðu um 1500 manns keypt
sig inn á svæði Landsmóts hestamanna, en byrjað var að selja inn á svæðið á
laugardag. Talið er að um 900 hross séu nú á svæðinu, en þeim á enn eftir að
fjölga. í dag hófust dómstörf og var byrjað á dómum á klárhestum með tölti
og stóðhestum.
Stöðugt streyma að hópar ríð-
andi manna og kom stærsti hópur-
inn frá Hestamannafélaginu
Herði, Mosfellssveit, upp úr mið-
nætti á þriðjudagskvöld. Alls eru í
hópnum 30 manns með á annað
hundrað hross. Það vakti athygli
að í einum hópnum, sem kom að
sunnan, var gömul kempa á nír-
æðisaldri, Þorlákur Björnsson frá
Eyjarhólum, og var hann annar af
tveimur leiðangursmönnum, sem
aldrei fóru í bíl er fylgdi hópnum
alla leiðina.
Yfirleitt hafa hópferðir þessar
gengið vel og slysalaust með ör-
fáum undantekningum.
I hópi sem kom úr Borgarfirði
féll stúlka af baki og handleggs-
brotnaði, en að sögn var hún kom-
in á bak aftur eftir tvo daga og
reið á áfangastað. Einn mun hafa
orðið viðskila við hópinn og villst
af leið, en félagar hans fundu
hann eftir nokkurra tíma leit.
Nú er unnið að gróðursetningu trjáa i Elliðaárhólma,
en í sumar verða þar gróðursettar um 15 þúsund
trjáplöntur. Borgarráð samþykkti nýlega sérstaka
aukafjárveitingu vegna sumarvinnu skólafólks og
vinnur hluti ungmennanna að gróöursetningu á þessu
svæði. í sumar er ráðgert að gróðursettar verði um 60
þúsund trjáplöntur víðsvegar í borgarlandinu. Þessar
ungu stúlkur voru að stinga fyrir trjáplöntum í Klliða-
árhólma, þegar Kristján Örn Eliasson, Ijósmyndara
Morgunblaðsins, bar þar að.
Vandi togaraútgerðarinnar:
Uppsafnaður söluskattur
fiskvinnslu greiði niður tap
Fiskverð hækki um 6% og olía verði greidd niður um 30%
ÞKÁIT fyrir að nú sé meira en vika liðin síðan starfshópur sá sem sjávarút-
vegsráðherra skipaði til að gera tillögur til lausnar á vanda togaraútgerðar-
innar skilaði þeim til ríkisstjórnar, hafa stjórnvöld ekki tekið neina afstöðu
til þeirra. Morgunblaðinu er kunnugt um að starfshópurinn gerir ráð fyrir í
tillögum sínum að ríkissjóður komi togaraútgerðinni til hjálpar og er jafnvel
rætt um 200 til 300 milljónir króna.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur aflað sér
þá er gert ráð fyrir að uppsafnaö-
ur söluskattur fiskvinnslunnar frá
því á síðastliðnu ári verði notaður
til þess að greiða niður tap togar-
anna fyrstu 5 mánuði ársins, en
tapið á þeim tíma er talið hafa
verið um 120 milljónir króna.
Uppsafnaður söluskattur fisk-
vinnslunnar í fyrra var rúmar 100
millj. kr. Það má geta þess að upp-
safnaður söluskattur er endur-
greiddur til allra iðngreina nema
fiskvinnslunnar.
Ennfremur er gert ráð fyrir að
ríkissjóður greiði olíuna niður um
30% og í tillögum starfshópsins
segir, að því Morgunblaðinu hefur
verið tjáð, að olíuverð sé um 30%
lægra í nágrannalöndunum, og því
sé eðlilegt að sambærilegt olíu-
verð sé á íslandi. Einnig er gert
ráð fyrir að fiskverð hækki strax
um 6%. Af þessum 6% er gert ráð
fyrir að 4% komi frá uppsöfnuð-
um söluskatti yfirstandandi árs,
1% af hækkuninni verði þannig
til, að það 1% gjald sem fisk-
vinnslan hefur greitt til Fisk-
Auglýsingatekjur greiða
kostnaðinn af útsendingu
„Sættum okkur ekki við afar-
kosti Efnahagsbandalagsins“
Mótorinn í
gang eftir
ársveru á
sjávarbotni
„V H) höfum farið nokkrar ferðir
niður að togaranum og hann virtist
með öllu óskemmdur. Hann er á
38 metra dýpi, sem er na‘(»ilegt lil
þess að súrefni í vatninu veldur
ekki tæringu eða skemmdum á
lækjum eða skrokk skipsins. Sem
dæmi um það má nefna, að i einni
ferðinni fundum við utanborðs-
mótor í brú skipsins og tókum
hann með heim. Mótorinn gang-
settum við svo án þess að þurfa að
skipta um eitt einasta stykki i hon-
um. Þetta sannar að mest allt er
óskemmt í skipinu," sagði Ásgeir
Einarsson, í samtali við Morgun-
blaðið, en hann er einn þremenn-
inganna á Patreksfirði, sem
keyptu grænlenzka rækjutogar-
ann, sem sökk út af Blakksnesi
fyrir rúmu ári og liggur enn á hafs-
botni.
Ásgeir sagði ennfremur, að
ætlunin væri að ná togaranum
þannig upp, að sjó yrði dælt úr
frystilestum skipsins og myndi
þá framendi hans lyftast. Lest-
irnar væru fremst í skipinu og
þar sem togarinn væri 52 metrar
á lengd, en lægi aðeins á 38
metra dýpi, ætti stefnið að koma
upp úr sjónum. Síöan myndu
belgir eða loftsængur verða fest-
ar við togarann, þær fylltar lofti
og skipinu lyft upp. Ef allt gengi
að óskum yrði togarinn kominn
til hafnar á Patreksfirði fyrir
haustið. Færi hins vegar þannig,
að ekki tækist að ná honum upp
fyrir haustið, myndu þeir bíða
næsta sumars.
VINNUNEFND Alþjóðahafrannsókn-
arráðsins hefur lagt til, að engar veið-
ar úr íslenzka loðnustofninum verði
heimilaöar fyrr en nákvæm úttekt hef-
ur verið gerð á stofninum, en áætlað
er að kanna stærð stofnsins í október-
mánuði næstkomandi. Næstkomandi
þriðjudag verða viðræður Norðmanna,
Islendinga og Efnahagsbandalagsins
um loðnustofninn i Osló og á þeim
fundi á að taka ákvörðun um hvort
veiðar verði leyfðar. íslendingar hafa
lagt á það mikla áherslu að ekki verði
veitt úr stofninum að sinni.
„Þessi tillaga vinnunefndar Al-
þjóðahafrannsóknaráðsins er stað-
festing á tillögum íslenzkra fiski-
fræðinga og LÍÚ hefur samþykkt að
fara eftir og veiða ekki loðnu fyrr en
rannsóknum á stofninum lýkur í
október," sagði Kristján Ragnars-
í dag verða hryssur dæmdar og
alhliða gæðingar. í kvöld hefst svo
Evrópumótið svokallaða, og ríkir
mikil eftirvænting meðal útlend-
inga. Mótssvæðið hér á Vind-
heimamelum er til fyrirmyndar í
alla staði og ef veðurguðir verða
hliðhollir hestamönnum er útlit
fyrir að landsmótsgestir muni
eiga hér góða daga.
— segir Kristján
Ragnarsson form. LÍÚ
son, formaður Landssambands ísl.
útvegsmanna, þegar Morgunblaðið
bar tillögur vinnuhópsins undir
hann.
„Það er mjög þýðingarmikið að
aðrar þjóðir fari einnig eftir tillög-
um Alþjóðahafrannsóknaráðsins og
um það verður rætt á fundinum í
Osló. Við höfum fulla ástæðu til að
ætla að Norðmenn fari eftir tillög-
unum og við höfum einnig ástæðu
,til að ætla að Færeyingar fari eftir
okkar óskum í þessu efni, þar sem
þeirra hagsmunir hér við land væru
ella í mikilli hættu. Við gætum
aldrei unað því að þeir veiddu úr
stofni, sem er í hættu.
Þá eru aðeins eftir Danir með 2 til
3 skip og Irar með eitt skip og það
kemur í ljós á fundinum í Osló hvort
Efnahagsbandalagið vill fara að
ráðum Alþjóðahafrannsóknaráðsins
eða ekki. Ef EBE hefur ekki veiðar,
þá þýðir það hins vegar að þeir hafa
ekki möguleika til að veiða úr þess-
um árgangi, sökum þess að þeir geta
aðeins veitt utan íslenzkrar lögsögu
og loðnan er alltaf gengin inn í ís-
lenzka lögsögu þegar kemur fram í
nóvember. Samningur okkar við
Norðmenn gerir hins vegar ráð fyrir
því hvaða afleiðingar þetta getur
haft í för með sér. Þetta getur veitt
þeim aukin réttindi á næsta ári, en
hins vegar eigum við inni hjá þeim
nærri 200 þúsund tonn, sem við
megum veiða án þess að þeir hefji
veiðar, sökum þess að þeir fóru
veiðasjóðs verði afnumið og þess í
stað notað til þess að halda uppi
fiskverðinu og 1% komi frá fisk-
vinnslunni sjálfri. I tillögum
starfshópsins segir, að staða Fisk-
veiðasjóðs sé nú það góð að hann
þurfi ekki á þessu 1% gjaldi að
halda, enda öll lán úr sjóðnum nú
verðtryggð.
,,/ETLA má að auglýsingatekjur
sjónvarpsins vegna beinna útsend-
inga frá HM i knattspyrnu borgi
allan kostnað af útsendingu þeirra.
Nú hafa verið seldar auglýsingar í 31
langt fram yfir kvótann á síðast-
liðnu ári.
Mér finnst hins vegar ekki koma
til greina að fallast á neina afar-
kosti af hálfu EBE, möguleikar
þeirra til að nýta stofninn eru
hverfandi, sökum þess hve fjarri
löndunarhafnir eru,“ sagði Kristján
Ragnarsson.
„Sjómannasamband Íslands og
önnur sérsambönd sjómanna styðja
tillögur Alþjóðahafrannsóknarráðs-
ins, enda eru þær í samræmi við
þær tillögur sem við studdum og ís-
lendingar lögðu fram á fundinum í
Brussel fyrir skömmu. Okkur er það
brýnt, að stærð loðnustofnsins verði
athuguð vel áður en veiðar úr hon-
um hefjast á ný,“ sagði Öskar Vig-
fússon, forseti Sjómannasambands-
ins.
Þegar Ragnar Arnalds fjár-
málaráðherra var að því spurður
hvort ríkissjóður gæti tekið þátt í
að leysa vanda togaraútgerðarinn-
ar sagði hann: „Eg tel að góð af-
koma ríkissjóðs á fyrri hluta
þessa árs feli ekki í sér, að það sé
það mikið afgangs, sem hægt sé að
skipta."
mínútu vegna útsendingarinnar á
sunnudag. en auk þess hafa auglýs-
ingar verið seldar vegna beinnar út-
sendingar hinna tveggja leikjanna,
sem áður hafa verið sýndir," sagði
Hörður Vilhjálmsson, fjármálastjóri
Kíkisútvarpsins, í samtali við
Morgunblaðið i gær.
„Auglýsingatekjur sunnudags-
ins nema um 34.000 krónum og
tekjur vegna hinna tveggja leikj-
anna gætu numið um 200.000
krónum. Við höfum hins vegar
greitt um 450.000 krónur fyrir
sýningarrétt á leikjum heims-
meistarakeppninnar, en þá er enn
ótalinn sendingarkostnaður um
fjarskiptahnöttinn, sem er nálægt
50.000 krónum á leik. Þá er enn
ekki ljóst hvort í þessu tilfelli er
um tilfærslu auglýsinga að ræða,
en líklega hefur hér að mestu leyti
verið um hreina viðbót að ræða,“
sagði Hörður.
Þá má geta þess, að á sunnudag
mun útsending hefjast með leik
Ítalíu og Brasilíu um klukkan
16.00 og síðan tekur bein útsend-
ing frá úrslitaleiknum við. Eins og
stendur verður úrslitaleikurinn
ekki sendur með því sjónvarps-
kerfi, sem notað er hér á landi og
víðast í Vestur-Evrópu. Verður úr-
slitaleikurinn því sýndur í
svart/ hvítu en fyrri leikurinn í
lit.