Morgunblaðið - 18.07.1982, Blaðsíða 1
Sunnudagur
18. júlí
jregtisiMitfrffe
Bls. 49-80
og grnisteínum
„Jæja strákar, áfram með gröftinn og upp með gullið og síðan
kaupum við þessa sjoppu sem er kölluð Island og gerum úr henni
almennilegt fyrirtæki,“ sagði einn af gullgröfurunum á Skeiðarársandi í
léttum dúr þegar stundarhlé varð á greftrinum niður undir sjó einn
daginn fyrir skömmu þegar Morgunblaðsmenn dvöldu hjá hinum
galvösku leitarmönnum.
Það er undarlegur búskapur að
búa á miðjum Skeiðarársandi, en
þar er nú lítið þorp „gullgrafar-
anna“ svokölluðu, manna sem
vilja kanna til hlýtar ákveðna
möguleika sem þeim datt í hug að
snúa sér að og þolinmæði virðast
þeir hafa nóga, enda veitir ekki af
á þessum óskaplegu söndum þar
sem ár hiaupa fram og til baka
eftir sandinum allt eftir því
hvernig vindur blæs hverju sinni.
Leit þessa flokks manna að hol-
lenska seglskipinu Het Wapen
Van Amsterdam, sem fórst á
Skeiöarársandi 1667, er sambland
af ævintýramennsku og þraut-
seigju. Það er skjalfest að mikil
verðmæti voru um borð í þessu
stóra og glæsilega skipi sem
hrakti til ísiands í miklu fárviðri
þar sem það var á leið til Hollands
úr löngum leiðangri til Asíulanda.
Ókunnir demantar áttu að vera
um borð og fleira æsilegt svo sem
gulltunnur sem skiptu nokkrum
tugum. Það er hins vegar ekki
skráð í skjölum að gull hafi verið
um borð, en getið um talsvert
magn af kopar sem var vendilega
frá gengið. Allar líkur eru hins
vegar taldar á því að þar hafi ver-
ið um gulltunnur að ræða, en það
skráð sem kopar til þess að fela
staðreyndirnar, því það er engin
ný bóla að menn leggi mikið á sig
til þess að komast yfir gull.
Talið er að um 300 manns hafi
verið á skipinu, Skjaldarmerki
Amsterdamborgar, en liðlega 200
manns munu hafa farist á
strandstað á Skeiðarársandi og á
söndunum þar sem þeir reikuðu
villtir um vatn og vegleysur í sept-
embermánuði. Einhverju var
bjargað úr skipinu síðan af bænd-
um í nærliggjandi sveitum, en það
var aðallega reki, m.a. mikið af
vefnaði, silki og öðru ættuðu frá
Asíulöndum. Het Wapen Van
Amsterdam fylgdi flota skipa
áleiðis til Evrópu. Vegna styrjald-
arástands í Mið-Evrópu sigldi
flotinn langt norður fyrir Bret-
landseyjar, en þá skall á suðvest-
an fárviðri sem hrakti þessi
grunnsigldu stórskip í átt til ís-
lands. Het Wapen Van Amsterd-
am mun hafa siglt nyrst í þessum
flota og náði ekki að fylgja öðrum
skipum áleiðis til Færeyja. Önnur
skip komust þar ýmist í var eða
höfn utan eitt sem fórst við Fær-
eyjar, en þegar svo var komið að
Skjaldarmerki Amsterdamborgar
hafði hrakið upp undir suðaust-
urströnd íslands og virtist ætla að
komast austur fyrir land án erfið-
leika, þá skipuðust veður skyndi-
lega í lofti og það skall á suðaust-
an fárviðri. Þar með voru öll sund
lokuð og það liðu ekki margir sól-
arhringar unz Skjaldarmerki
Amsterdamborgar var byrjað að
brotna á rifum undan Skeiðarárs
andi í brjáluðu veðri. Síðar valt
skipið inn yfir rifið og þá hefur
ekki liðið á löngu þar til sandurinn
smaug um öll holrúm og gróf hið
glæsta fley hægt og sígandi í hinn
SJÁ NÆSTU SÍÐU