Morgunblaðið - 18.07.1982, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 18.07.1982, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 1982 55 ist eiga að lesa hana í enskukennslu. Eg lét hana vita, að ef hún kærai aftur með slikan viðbjóð inn í húsið, myndi ég umsvifalaust kasta honum í eldinn. Svo kærði ég auðvitað kennarann hennar fyrir skólastjór- anum. Það væri margt öðruvísi í heimin- um, sagði ég, ef foreldrar hugsuðu svolítið meira um það sem börnin þeirra lesa. Jæja, það er of seint núna, sagði Linda, George er búinn að lesa „Bjargvættinn í grasinu". Hvað get ég gert? Fylgstu vandlega með honum, ráðlagði Frannie Huff: Leitaðu í herberginu hans og ef þú finnur bækur eftir John Steinbeck eða James Baldwin undir rúminu hans, þá veistu, að hann er í alvarlegum vanda. Ég myndi taka af honum bókasafnsskírteinið til að reyna að forða frekari vandræðum. Ég vildi óska, að ég hefði gætt betur að syni mínum, sagði Extrom dapurlega. Ég leyfði honum að lesa „Og sólin kemur upp“ eftir Hem- ingway, þegar hann var aðeins 15 ára, og vissi svo ekki fyrr en hann var niðursokkinn í „The Fixer“ eftir Malamud. En hvernig veit maður, hvaða bækur eru vondar bækur? spurði Linda. Það eru samtök um allt landið sem segja okkur það, sagði ég. Þau rannsaka bækurnar og útbúa lista yfir hættulegar bækur. Við hjónin fáum hjálp frá gömlu vinafólki í Texas, sem ritskoðar bækur þar. Hvað er George að lesa núna? spurði Reilly alvarlega. „Birting" eftir Voltaire, ansaði Linda í grandaleysi sínu. Mér þykir fyrir því að segja þér þetta, sagði Frannie Huff, en þú ert með sjúkt barn í höndunum. J.F.Á. sneri. — Hann hefur verið að vinna að þessu í þrjá mánuði, svo ég býst við að hann viti hvað hann er að segja. Hvað er langt þangað til hann birtir söguna? — Tvær, þrjár vikur. Verktakarnir hafa ekkert sagt okkur um þetta. — Af hverju? — þeir vonast til að selja ykkur mikla steypu! Heldurðu að ég ætti að segja ráðherranum frá þessu? — Já, en ekki hvar þú fréttir þetta. Þeir eru vinir mínir hjá Wall Street Journal og ég gæti komist í klandur. Nokkra hugmynd um hvað A1 Haig er að bralla þessa dagana? (skrifað fyrir afsögn hans). — Ja, það hefur heyrst, að hann sé að reyna að koma af stað nýjum viðræðum milli Egypta og ísraela um sjálfstætt ríki Palestínuaraba. Hann hefur hugmyndir uppi um að fórna jafnvel Gólanhæðunum í því skyni. Hann hefur ekki sagt Weinberger af þessu. — Nei, hann fór með þetta beint til forsetans til að vera ekki settur út af laginu. Þú ert sannarlega í essinu þínu í dag. Get ég notað þetta? — New York Times-maður sagði fulltrúa í Hvíta húsinu frá þessu, svo þetta er ekki sjóðheitt lengur. Jæja, ég verð að þjóta, sagði ráðu- neytisstjórinn: Þakka þér kærlega — ráðherrann metur þetta mikils. — Minnstu ekki á það vinur. Mér hefur alltaf fundist, að í frjálsu þjóðfélagi eigi þeir, sem vinna hjá stjórnvöldum, fullan rétt á að vita hvað er að gerast á þeirra eigin skrifstofum ... J.F.Á. sneri. Alvörusvelnpokar frá K, r A utiuf Glæsibæ, sími 82922. í úrvali. Norsk gæðavara. fyrir þá sem vilja vera svolítid „spes” Alfa Romeo verksmiðjurnar hafa frá upphafi framleitt bíla sem þurft hafa að ganga í gegnum hinar erfiðustu raunir á kappakstursbrautum um allan heim. Hin fjölmörgu gullverðlaun sem Alfa Romeo hefur sótt á þessar brautir eru ótvíræð sönnun þess að vel hefur til tekist. Við framleiðslu á fólksbflum fyrir almennan markað hafa verksmiðjurnar gætt þess fullkom- lega að viðhalda hinum ótrúlega góðu aksturs- eiginleikum kappakstursbílanna, kraftinum og öryggisbúnaði. Ennfremur vekur hin sérstæða og fallega ítalska teikning þessa bíls alls staðar verðskuldaða athygli. Verð aðeins frá kr. 131.702 Þú ert svolítið mikið „Spes“ ef þú ekur á Alfa Romeo JÖFUR Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600 rti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.