Morgunblaðið - 18.07.1982, Blaðsíða 14
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 1982
lofti. Þær eru algerlega vatnsþétt-
ar og þola verulegt hnjask. Raf-
hlaðan sem drífur þær er af sér-
stakri gerð og ábyrgist framleið-
andinn að þær þoli geymslu í
a.m.k. 10 ár. Hér hefur hins vegar
verið sett í reglugerð af öryggis-
ástæðum, að skipta skuli um
rafhlöðu í stöðvunum á 5 ára
fresti.
Rafeindahluti beggja tækjaona
er settur saman hjá Öryrkja-
bandalaginu en einingar í kass-
ana, sem þau eru byggð inní eru
framleiddar erlendis. Tækin eru
svo sett saman hér hjá fyrirtæk-
inu og prófuð áður en þau fara til
kaupenda."
50 yfirstraumsliðar
á ári
Til hvers er yfirstraumsliðurinn
sem þið framleiðið, notaður hjá
rafveitunum?
„Hlutverk hans er fyrst og
fremst að koma í veg fyrir
skemmdir á rafkerfi rafveitna
verði skammhlaup eða of mikið
álag á kerfinu. Verði skammhlaup
á stofnlínu frá rafveitunni rýfur
tækið strauminn og verður raf-
kerfið þannig ekki fyrir skaða.
Þegar tækið er tekið í notkun hjá
rafveitu, er það stillt á þann
straum sem rafkerfi hennar þolir
með góðu móti. Ljósdíóður framan
á tækinu gefa til kynna hvort tæk-
ið starfar rétt og eins hvort stórt
útslag hafi orðið í kerfinu, sem þó
hefur ekki náð þeirri hæð að tækið
ryfi strauminn.
Fyrsti yfirstraumsliðinn sem
við seldum hefur nú verið í gangi
hjá Rafveitu Neskaupstaðar í
rúmt ár, og hefur gengt sínu hlut-
verki prýðilega. Við höfum þegar
smíðað og selt rúmlega 20 stykki
en eigum enn óafgreidda pöntun
frá Rafmagnsveitum ríkisins sem
hljóðar upp á 17 stykki. Miðað við
þær viðtökur sem þetta tæki hefur
fengið tel ég óhætt að stefna að
því að framleiða um 50 stykki á
ári.“
Nú starfar Rafís hf. einnig sem
innflutningsfyrirtæki, hvaða tæki
eru það, sem þið flytjið inn?
Innflutningur læknin^a-
tækja og fínmælitækja
„Rafís hf. byrjaði eiginlega sem
innflutningsfyrirtæki. Við byrjuð-
um með heyrnar- og hávaðamæla,
og varð það raunverulega upphaf
þess að hávaðamælingar væru
framkvæmdar að ráði hér á landi.
Við urðum að hafa námskeið um
notkun þessara tækja á sínum
tíma, því þessi tæki voru lítt þekkt
hérlendis. Síðan fórum við út í
innflutning á mælitækjum fyrir
sjúkrahús og höfum haldið okkur
við það svið að mestu. Við flytjum
inn tæki s.s. hjartalínuritatæki og
ýmis tæki í sambandi við lækn-
ingar hjartasjúkdóma, gjörgæzlu-
tæki og röntgentæki.
Þá flytjum við inn ýmis ná-
kvæmnismælitæki s.s. straumm-
æla, hitamæla, sýrustigsmæla,
rakamæla, málmleitartæki og
titringsmæla^ Titringsmælar
þessir mæla titring í legum og „af-
balanseringu“ á rafölum, þannig
að sjá má fyrirfram er þessir hlut-
ar fara að gefa sig, en það getur
orðið mjög til sparnaðar. Fyrir-
tækið hefur viðgerðaþjónustu
fyrir öll þau tæki sem það selur og
veitir jafnframt leiðbeiningar um
notkun þeirra.
Fyrir nokkrum mánuðum hóf-
um við innflutning á símaveljara
með minni fyrir 18 númer, sem nú
hefur verið samþykktur af Land-
síma Islands. Er hann hefur verið
tengdur síma þarf aðeins að ýta á
takka og velur hann þá númerið.
Ef viðkomandi númer er á tali,
hringir símaveljarinn með
ákveðnu millibili þar til svarað er.
Að lokum vildi ég gjarnan að
kæmi fram að ýmislegt er í bígerð
varðandi framleiðslu fyrirtækis-
ins á næstu mánuðum. Við höfum
t.d. fullhannað hér aðvörunarkerfi
fyrir heyrnarskerta og er nú í at-
hugun að fara út í framieiðslu á
því. Við höfum framleitt nokkuð
magn tækja af þessu tagi en öll í
fremur litlu magni. Þessi fram-
leiðsla hefur hins vegar gengið
mjög vel og teljum við fulla
ástæðu til að auka hana. Þá höfum
við nýlokið við frumhönnun mjög
viðamikils verkefnis og er þar um
að ræða tækjabúnað sem við bind-
um miklar vonir við, bæði hvað
varðar innanlandsmarkað og
heimsmarkað. Ég tel þó ekki tíma-
bært að greina frá því að svo
stöddu hvað hér er á ferð, en
væntanlega mun það koma í ljós
áður en langt um líður.“
— bó.
Moon fær
18 mánuði
New Vork, IS. júlí. Al’.
SUN MYUNG Moon, stofnandi og
leiðtogi moonista-safnaðarins, var i
dag dæmdur í 18 mánaða fangelsi
fyrir skattsvik. Jafnframt var honum
gert að greiða 25 þúsund dollara
sekt. Moon átti yfir höfði sér allt að
14 ára fangelsi.
Moon, sem er 62 ára, var sekur
að því að skjóta 112 þúsund doll-
ara vaxtatekjum af einkainni-
stæðum sínum undan skatti og
fyrir að skýra ekki frá 50 þúsund
doliara hlutafjáreign, sem honum
áskotnaðist á árunum 1973 til
1975.
HAGKAUP
ÖÐRUM TIL
FYRIRMYNDAR
Það dylst engum að Opel Rekord er lúxus-
bíll. Hvar sem á hann er litið, hvar sem í
honum er setið og hvert sem honum er
ekið þá er ekkert sem hægt er útá að setja.
Opel Rekord er rúmgóður, þægilegur og
eins öruggur og hugsast getur. Aflmikill,
en neyslugrannur og endingin er slík að
við endursölu er bíllinn sem nýr.
Vekur Opel áhuga þinn?
Reiðubúinn i reynsluakstur?
Hringdu og pantaðu tíma.
@VHADHLD
Ármúla3 <& 38900
o
§
O
>
<