Morgunblaðið - 18.07.1982, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ1982
63
Guðbjörg Jónsdóttir við bílinn sem hún vann sigur sinn á.
„Við erum með þannig bíla, að
þeir eiga éinfaldlega að vera í
þessum flokki, þeir eiga þar
heima."
Bjóstu við sigri, þegar þú
ákvaðst að taka þátt í keppn-
inni?
„Nei, nei. Ég ætlaði nú reynd-
ar í upphafi ekkert að vera með.
Ég kom uppeftir og ákvað þetta
þar, þegar skorað var á mig.
Þess vegna var bíllinn ekki al-
mennilega undirbúinn fyrir
keppnina, það var ekkert búið að
vinna í honum. Annars finnst
mér aðalmálið að vera með, ekki
það að sigra. Það eru svo margir
sem hugsa þannig, að maður geti
ekki verið með nema til þess að
sigra og koma þess vegna ekki.
En aðalatriðið er að vera með.
Það er auðvitað alltaf gaman að
vinna og allir reyna það, en það
geta ékki allir verið sigurvegar-
ar.“
Hefurðu verið lengi í kvart-
míluklúbbnum?
Vann sína fyrstu keppni
„Já töluvert, og ég var ritari
hans núna síðasta ár og maður-
inn minn varaformaður. Arið
þar áður var bróðir minn, Hálf-
dán Jónsson, formaður, svo mað-
ur veit svona hvað er helst að
gerast í þessum málum.“
Hvað með aðrar bílaíþróttir,
rall til dæmis?
„Það er ábyggilega gaman að
því, en þetta er það eina sem ég
hef farið útí. Kannski er ástæð-
an meðal annars sú að við eigum
þannig bíla og svo þekkjum við
marga í þessu.“
Hvernig bíll var þetta sem þú
kepptir á?
„Camaro 350 ’68. Honum hefur
ekki verið mikið breytt. Hann er
með millihedd, flækjur, og svo
hefur verið settur í hann
karborator, sem ekki er stand-
ard. Svo er einnig í honum yl-
volgur knastás."
Hyggstu halda áfram að
keppa?
„Já, ætli maður stefni ekki að
því.“
Viltu segja eitthvað að lokum?
„Ég vil bara skora á alla að
taka þátt í keppnum og svo væri
gaman að fá fleira kvenfólk til
að keppa.
Það vakti athygli að í kvartmílu-
keppni, sem haldin var um síðustu
hclgi, var stúlka sigurvegari í ein-
um flokknum, og sigraði hún eig-
inmann sinn í keppninni, en þau
voru einu keppendurnir í
svonefndum „Modified Stand-
ard“-flokki, og munu vera bílar
sem eitthvað er búið að breyta
fyrir keppni í kvartmilu. Við slóum
á þráðinn til hennar, en hún heitir
Guðbjörg Jónsdóttir, til að fræðast
nánar um keppnina og spurðum
hana fyrst hvenær hún hefði fengið
áhuga á bílaiþróttum
„Þegar ég var lítil held ég. Það
byrjaði með því að ég fór að
skoða bílablöðin hjá bróður mín-
um. Síðan tók ég bílpróf strax
þegar ég varð 17, og hef verið
með hálfgerða bíladellu síðán,
alla vega alltaf verið á einhverj-
um svona bil.“
Er langt síðan þú byrjaðir að
keppa?
„Nei, þetta er í fyrsta skipti
sem ég keppi. Annars var bíllinn
ekki í nógu góðu standi. Ég hefði
getað náð betri árangri. Bíllinn
hefur gert betur en þetta."
Hvernig viltu þá skýra þennan
árangur þinn?
„í undanúrslitum þá klikkaði
kúplingin í hinum bílnum, sem
maðurinn minn, Ágúst Hinriks-
son, ók. Við gátum því aldrei
keppt saman.“
Afhverju kepptuð þið bæði í
sama flokknum?
Við heimilisstörf í eldhúsinu hjá sér. Myndir Mbl. Guðjón.
CITROEN^ CX-2000 REFLEX
CX-2000 REFLEX. En ekki nóg meö þaö. Vegna sérstakra samninga viö verksmiöjuna og
hagstæös gengis á frankanum, þá bjóöum viö takmarkaöan fjölda bíla á kynningarveröi,
kr. 202.000.-
Þessi glæsilegi, nýi CITROÉN^ bíll er til sýnis í nýjum,
glæsílegum sýningarsal að Lágmúla 5.
Gigbusi! Komið - skoðið - sannfærist
LAGMULA 5, SIMI 81555
CITROÉN^