Morgunblaðið - 18.07.1982, Side 30
78
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ1982
Hafnarrjarðarbíó býður uppá
hasarmynd ársins, Ránið á týndu
örkinni, sem nú hefur runnið
KlæsileKt skeið á enda í Háskóla-
bíói.
Iláskólabíó hvílir nú ofbeldis-
fullt afkvæmi Bronsons og
Winners, Death Wish II á 7 og 9
sýningum, þar má segja að sé
kominn björn í ból katta — hinn
þrekvaxni „trinity-bróðir" Bud
Spencer í enn einni ítalskri
slagsmála- og gamanmynd,
Ixiggan gefur á’ann.
Laugarásbió frumsýnir í dag
bandaríska gamanmynd, Sturtað-
ur niður, sem undirr. þekkir
hvorki haus né sporð á. Á 11.
sýningum má enn berja augum
hina bresku brjóstaballöðu Paul
Raymonds, Eroticu.
I Nýja bíói er verið að sýna kl.
11 hina hálf-klassísku „cult“-
mynd Rocky Horror Picture Show,
sem engan svíkur sem gaman
hefur af móðursýkislegum,
snargjeggjuðum försum, blönd-
Kíkt við í kvikmyndahúsunum
uðum bráðhressu rokki. Kl. 5, 7
og 9 er hinsvegar verið að sýna
framhald hennar sem ber nafnið
Stuð meðferð, (Shock Treatment).
Hér er gamanið ekki eins grátt
og hamslaust, en vafalaust
ágætt fyrir þá sem ekkl hafa séð
fyrri myndina.
Margir af sömu leikurum
koma fram í báðum myndunum
og tónlistin er samin af Richard
O’Brian, að sjálfsögðu í dúndr-
andi Dolby stereo.
Regnboginn sýnir i A sal glæ-
nýja Agöthu Christie mynd, Sól-
in ein var vitni, sem undirr. hefur
enn ekki haft tækifæri til að sjá.
Hér kemur fram herskari
breskra úrvalsleikara en mynd-
inni leikstýrir Guy Hamilton,
sem leikstýrði Funeral In Berlin
og nokkrum af bestu Bond-
myndunum.
I B sal er verið að endursýna
hasarmyndina SæúJfarnir, með
rosknum en þreyttum görpum:
David Niven, Roger Moore og
Greg Peck. í sal C er verið að
sýna eitt síðasta verk hins
merkilega leikstjóra Fassbinder,
Lolu, en Regnboginn hefur unnið
gott verk við að kynna myndir
hans hérlendis. Þær verða því
Jerry Lewis í Travoltagervi i nýj-
ustu mynd sinni. Hrakfallabálkur-
inn í Bíóbæ.
Sæbjörn Valdimarsson
Ekki hefur verið ýkja hátt ris-
ið á sýningum kvikmyndahús-
anna það sem af er sumrinu. Yf-
ir sjónvarpsþyrstan lýðinn hefur
flætt þungur straumur miðl-
ungsmynda og endursýninga
með nokkrum heiðarlegum und-
antekningum. Einn af ljósari
punktunum var hin franska
kvikmy ndavika Fjalakattarins.
Kvikmyndahússtjórum til
málsbóta skal þess getið að
sumarið er tími skemmti- og
hasarmynda. Á þessum árstíma
er tilgangslítið að bjóða gestum
uppá annað en léttvæga afþrey-
ingu.
Ef við rennum yfir hvað á
l>odstólum er í kvikmyndahúsun-
um á Stór-Reykjavíkursvæðinu í
dag, (15. júlí), kemur í ljós að þar
kennir margra grasa.
Austurbæjarbíó er tvímæla-
laust að sýna bestu myndina um
þessar mundir, Hörkutólið, en
auglýsingatextinn er nokkuð
villandi hvað efni hennar varðar
og óaðlaðandi.
Hörkutólið, (The Great Santini),
er hörkumynd um orrustuflug-
mann og fyrrv. stríðshetju sem
hvergi á í bardögum lengur ann-
ars staðar en á heimavígstöðv-
unum. Mannleg, einstaklega vel
leikin mynd um kúgað heimilis-
líf, krýdduð fyndni og góðum
sprettum hjá handritshöfundi.
Bióbær virðist nú vera að
hrista af sér slenið og býður
uppá nýja mynd með Jerry karl-
inum læwis, er nefnist Hrakfalla-
bálkurinn og er fyrsta mynd
hans um langt árabil. Er hún í
nákvæmlega sama anda og þær
myndir sem Lewis gerði á sjötta
og sjöunda áratugnum. Tíu ára
hvíld virðist ekki hafa víkkað
skopskyn leikarans. Hinn mið-
aldra æringi þekkir bersýnilega
takmörk sín mæta vel og þegar
karli tekst upp þarf engum að
leiðast.
í blöðum uppá síðkastið hefur
mátt sjá villandi fréttir af hr.
Lewis, en sannleikanum sam-
kvæmt þá virðast vera upp-
gangstíma hjá þessum hálf-
gleymda grínfugli um þessar
mundir. Hefur hann m.a. nýlokið
við að fara með aðalhlutverk á
móti Robert De Niro í nýjustu
mynd Scorsese, King Of Comedy
og fyrir skömmu hóf hann að
leikstýra sjálfum sér í myndinni
Smorgasbord, fyrir Warner Bros.
Bíóhöllinbýður upp á marg;
breytilega skemmtun, að venju. I
sal 1 er frumsýnd í dag mynd
með þeirri krassandi nafngift
Píkuskrækir. í auglýsingatexta
stendur skýrum stöfum að hún
sé bæði djörf og fyndin auk þess
sem hún komi öllum á óvart!
í sal 2 er verið að sýna hina oft
meinfyndnu gamanmynd Amer-
ískur varúlfur í l.ondon, en gálga-
húmor hennar hefur fallið vel í
kramið hjá mörlandanum. Salur
nr. 3 hefur á boðstólum hasar-
myndina Airport SOS Hijack, sem
mig minnir að hafi einhverntím-
an verið jólamynd í Keflavík.
I sal 3 er einnig verið að sýna
nýlcga mynd með barnastjörn-
unni Ricky Schroder, sem
bræddi hjörtu margra í The
('hamp Heitir hún Jarðarbúinn
og var ein síðasta mynd hins
ágæta leikara William Holden. I
sal 4 er svo verið að hreyta síðu
dropana úr Going Steady og
hinni vinsælu mynd Peters Sell-
ers, Being There.
Gamla bíó sýnir nú alfarið
kvikmyndir á meðan Operan er í
fríi. Þessa dagana er verið að
sýna nýlega Disney-mynd, Litlu
hrossaþjófanrir og endursýna am-
erískan reyfara, Kvennafangels-
ið, með Pam Grier. Litlu hrossa-
þjófarnir fja.Ha um nokkra ungl-
ingskrakka sem ræna hrossum
sem á að þræla út í púlsvinnu í
límverksmiðju. Ádeila á illa
meðferð á dýrum.
Hafnarbíó hefur tekið ofan
menningarsvipinn um skeið og Al-
þýðuleikhúsið lagt á flakk. Hér er
nýbyrjað að sýna Kassöndrubrúna
og grunar mig ískyggilega að hér
sé um endursýningu að ræða, án
þess að það komi fram í auglýs-
ingu. Það er afleitur trassaskap-
ur sem því miður virðist vera að
færast t vöxt.
Hér syngja þau Patricia Quinn, Manning Redwood, Jessica Harper, Barry Humpries, Darlene Johnson og Nell
Campell óð til dýrðar stuðmeðferð, í samnefndum söngleik í Nýja bió.
Kvikmyndir
f KAUPMENN- VERSLUNARSTJÓRAR
AVEXTIR
IKUHNAR
EGGERT KRISTJANSSON HF
Sundagörðum 4, sími 85300
Bláber — Bananar Dole — Appelsínur
Outspan — Klementínur Outspan — Epli rauö
— Stæröir 100 — 113 — og 125 — Epli græn
Grammy Smith — Epli gul — Greip Outspan —
Sítrónur Outspan — Vínber blá — Vínber græn
— Melónur Hony Dew — Vatnsmelónur —
Ferskjur — Nektarínur — Plómur rauöar —
Plómur gular — Perur — Kirsuber — Mangó
— Kiwi — Ananas — Kókoshnetur.
miður ekki nema tvær til viðbót-
ar. Kvikmyndaunnendum skal á
það bent að Lola er að Ijúka
göngu sinni.
I sal D standa yfir sýningar á
í eldlínunni, dæmigerðri „A
Michael Winner Film“.
Og í E sal á annarri hæð gefur
að líta Sólcy, hennar Rósku.
Þeim mörgu sem áttu erfitt með
að botna í textanum, skal á það
bent að myndin er nú sýnd með
enskum texta ...
I Stjörnubíói gleðja nú augað
tvær afbragðsgóðar endursýn-
ingar sígildra sumarmynda. Á
tjaldinu í A sal er hin gamal-
kunna Byssurnar frá Navarone og
í hinum nýja B sal fer Lee Marv-
in á kostum í Cat Ballou.
I Tónabíói er verið að sýna
sverða- og særingamyndinga
Sverðið og seiðskrattinn, sem enn
hefur ekki verið frumsýnd í
flestum nágrannalöndunum.
Gott framtak það. Þetta er
hressileg mynd með déskolli góð-
um förðunarbrellum. Og Önnu
Björns.
LITMYNDIR SAMDÆGURS!
Filman inn fyrir kl. 11 — Myndirnar tilbúnar kl. 17.
Verzlið hjá fagmanninum
)SMYNDAÞJÓNUSTAN S.F.
LAUGAVEGI 178
REYKJAVIK
SIMI8S811