Morgunblaðið - 27.07.1982, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1982
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ1982
25
Lltgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 120 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 8 kr. eintakiö.
„Flóðgáttir
óstjórnarinnaru
Ikjölfar kosningaósigurs og versnandi sambúðar á stjórn-
arheimilinu hefur Alþýðubandalagið tekið að stíga í
vænginn við Alþýðuflokkinn. Svavar Gestsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, bregst svo við kosningaósigri flokks síns,
að krefjast vinstri samfylkingar, undir forystu kommúnista,
gegn Sjálfstæðisflokknum. AlþýðubandalagTÓ birtist nú dag
eftir dag — í forystugreinum Þjóðviljans — í gervi unga-
hænu, sem heimtar Alþýðuflokk og Framsóknarflokk undir
vængi sína, eftir að kjósendur hafa reitt af henni stélfjaðr-
irnar.
Það fer ekki fram hjá neinum, sem fylgist með hræringum
íslenzkra stjórnmála, að óformlegar áþreifingar hafa átt sér
stað milli A-flokkanna. Þeir biðu sameiginlegt skipbrot í
sveitarstjórnakosningunum — og kjósa báðir flest fremur en
að ganga til nýrra kosninga á næstunni.
Þegar horft er um öxl í íslenzkum þjóðmálum er og
skammt í samleiki A-flokkanna. Þeir stóðu saman að póli-
tískri herför árið 1978, á hendur þáverandi ríkisstjórn, undir
kjörorðunum: „kosningar eru kjarabarátta" og „samningana
í gildi“. Þeir vóru báðir viðriðnir misbeitingu verkalýðssam-
taka á þeirri tíð, sem endaði í ólöglegum verkföllum og
útflutningsbanni á sjávarafurðir. Þeir tvímenntu á
sameiginlegum kosningasigri það ár inn í nýja vinstri stjórn.
Hvorugur gat að vísu unnt hinum stjórnarforystunnar, en
framsóknarmaddaman hljóp þá í skarðið, eins og ævinlega
þegar kóróna þarf „vinstra samstarf".
Ríkisstjórn sú' sem vinstri flokkarnir þrír mynduðu 1978,
var nákvæmlega það stjórnarmynstur, er vakir fyrir Alþýðu-
bandalaginu og Svavari Gestssyni nú, ef lasburða ríkis-
stjórnin leggur upp laupana. Þessi vinstri samfylking sprakk
með miklum látum og leikaraskap 1979, eftir aðeins 13 mán-
aða stjórnarferil. Benedikt Gröndal, þáverandi formaður Al-
þýðuflokksins, lýsti reynslusögu hennar með þessum orðum:
„Þessari ríkisstjórn hefur ekki tekizt að koma sér saman
um nein þau meginatriði sem varða stjórnsýslu landsins.
Henni hefur ekki tekizt að koma sér saman um úrlausn
efnahagsmála, ekki um óðaverðbólgukolldýfurnar og ekki
um fjárlög, sem er þó algjört lágmark við stjórnun lands-
ins ... Það sem gert hefur verið á ferli þessarar ríkisstjórnar
hefur valdið bæði okkur og öðrum stjórnarflokki miklum
vonbrigðum."
Alþýðublaðið sagði í leiðara í leiðarlok ríkisstjórnarinnar
1979:
„Kjarni málsins er sá, að innan núverandi ríkisstjórnar
hafa menn ekki einu sinni getað komið sér saman um sam-
eiginlega skilgreiningu á eðli vandamálanna. Menn tala þar
ekki sama tungumálið, þegar fjallað er um efnahagsmál. Þar
togar hver í sinn skækil ...“
Enn sagði Alþýðublaðið: „Óðaverðbólgan á íslandi, sem nú
er fimmföld á við það sem gerizt í viðskiptalöndum okkar, er
búin til í fjármálaráðuneytinu," en þar réði Tómas Árnason,
núverandi verðlagsmálaráðherra, húsum. „Þetta er gert með
pólitískum ákvörðunum meirihluta Alþingis og ríkisstjórn-
ar. Verðbólgan á íslandi er ríkisfjármögnuð. Ef ekki verður
þegar í stað skrúfað fyrir þessar flóðgáttir óstjórnarinnar
munu allar svokallaðar viðnámsaðgerðir ... renna út í sand-
• _ U
ínn.
Þannig lýsir einn samstarfsaðilinn stjórnarferlinum.
Þetta var samskonar stjórnarmynstur og óformlegar áþreif-
ingar eiga sér nú stað um, hvað sem úr verður. Það er þessi
„uppákoma", sem Svavar Gestssonar eygir, ef fjarar undan
núverandi ríkisstjórn, til að viðhalda ráðherrasósíalisma Al-
þýðubandalagsins, án þess að þurfa að leggja hann undir
almannadóm í snemmbornum kosningum. Það er ómaksins
vert fyrir þjóðina að kalla fram í huga sínum reynsluna af 13
mánaða „vinstri stjórn“ 1978—1979, sem fyrrum formaður
Alþýðuflokksins sagði réttilega hafa valdið „miklum von-
brigðum".
Vel heppnaður flugdagur
á Akureyri um helgina
Flugáhugamannarélag á Akureyri
hélt NÍðastliðinn laugardag „flugdag
’82“ og tókst hann með ágætum þótt
rignt hafi eftir hádegið. Mikill fjöldi
smá flugvéla sótti „flugdaginn" og
mikill fjöldi fólks kom tii þess að
horfa á. Varnarliðið sendi bæði Hercu-
les-tankvél og þyrlu á staðinn og
Landhelgisgæzlan sendi TF-RÁN sem
m.a. var notuð til þess að sýna fallhiíf-
arstökk og stukku fallhífastökkvarar
úr henni og niður á flugvöllinn.
Varnarliðið sýndi björgun, hífði
menn upp í þyrlu sína og ennfremur
var sýnt flug á svifdreka sem búinn
var vél. Allmargar svifflugur sýndu
flugleikni sína.
I dagskrárlok „flugdagsins" voru
flugvélar og tækjabúnaður til sýnis
fyrir almenning^jg sýndu margir
áhuga á að skoða flugvélar og tæki.
Flugdagurinn er haldinn árlega. í
fyrra var hann haldinn á Selfossi og
þar áður í Reykjavík. Að þessu sinni
voru það eins og áður segir flug-
áhugamenn á Akureyri sem gengust
fyrir deginum. Samkvæmt upplýs-
ingum Mbl. var vel að flugdeginum
staðið öllum aðkomumönnum á
flugvélum var boðið í kaffi og máls-
verð um kvöldið í Sjallanum, þar
sem stiginn var dans fram eftir
nóttu. Flestir þeir sem tóku þátt í
„flugdeginum" og voru aðkomnir,
gistu á Akureyri um nóttina og
héldu á brott á sunnudeginum.
Fólk skoðar þyrlu varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli
Fallhífarstökk á Akureyri.
Flugvélar sem þátt téku f „ftagdeginum *82„. Yflr flýgur Hercules frá varnarlið-
inu. Ljóm. Árni Sæberg.
Síkorsky-þyrla Landhelgisgæzlunnar TF-RÁN
Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf.:
Aðild að alþjóðahvalveiðiráð-
inu gengur kaupum og sölum
EINS og fram hefur komið í fréttum
samþykkti alþjóðahvalveiðiráðiö alls-
herjarbann við hvalveiðum frá og með
árinu 1986 á fundi sínum, sem lauk nú
um helgina. Þá voru einnig samþykkt-
ir veiðikvótar fyrir næsta ár. í íslands
hlut komu 167 langreyðar í staö 194
nú. Þá var hrefnuveiðikvótinn við ís-
land skorinn niður um 20 dýr, úr 320 í
300, en sá kvóti skiptist milli íslend-
inga og Norðmanna. Á hinn bóginn
var samþykktur sami hámarksafli af
sandreyði eða 100 dýr. Þá var heild-
arkvoti hvalveiða i heiminum lækkað-
ur talsvert.
Morgunblaðið ræddi við Kristján
Loftsson, framkvæmdastjóra Hvals
hf., sem sæti átti á fundi alþjóða-
hvalveiðiráðsins: „Ég sé ekki fram á
annað en að íslendingar verði að
mótmæla þessari samþykkt alþjóða-
hvalveiðiráðsins og fylgja þannig
væntanlegu fordæmi Japana og
Norðmanna og annarra hvalveiði-
ríkja, annars leggjast hvalveiðar
hja okkur niður innan þriggja ára.
Þessi samþykkt er fullkomlega í
mótsögn við stofnskrá alþjóða-
hvalveiðiráðsins, en þar segir að
stuðla skuli að því að vernda hvala-
stofna og byggja upp veiðar í sam-
ræmi við vísindalegar rannsóknir,"
sagði Kristján meðal annars.
„Þetta virkar nú þannig að
hvalfriðungarnir eru komnir með
fulltrúa í vísindanefndina eins og í
hvalveiðiráðinu. Þar leggja þeir til
fáránlega lága kvóta eða algjört
bann við veiðum og rökstyðja það
með því að upplýsingar um stofn-
stærðir vanti og ýmsu fleiru, sem
varla er hægt að segja að eigi sér
visindalega stoð. Með því tekst þeim
að skera niður kvótana og draga úr
veiðunum. Með svona vinnubrögð-
um er hreinlega verið að eyðileggja
alþjóðahvalveiðiráðið og sem dæmi
um ástandið má nefna að nú gengu
inn 9 ríki og ekkert þeirra stundar
hvalveiðar. Þessi ríki eru Egypta-
land, Antigua og Barbuda, Belize,
Costa Rica, Vestur-Þýzlaland,
Kenýa, Mónakó, Filippseyjar og
Senegal. Fulltrúar sumra þessara
ríkja eru alls ekki íbúar í þeim,
heldur búa til dæmis þrír þeirra í
Flórída og einn í Kaliforníu í
Bandaríkjunum. Það virðist því
vera að aðild að hvalveiðiráðinu
gangi kaupum og sölum og með
slíkri hegðun eru friðunarsinnar að
eyðileggja hvalveiðiráðið. Því er það
ekki óeðlilegt að samþykktum þess
sé mótmælt af hvalveiðiþjóðunum,
því með því að mótmæla eru við-
komandi þjóðir ekki bundnar af við-
komandi samþykktum ráðsins.
Ef þessu heldur fram sem horfir
væri ekkert óraunhæft að fara þess
á leit við ríkisstjórn Mónakó, að hún
lánaði eitt rúlettuborðið úr spilavít-
inu í Mónakó svo meðlimir alþjóða-
hvalveiðiráðsins gætu spilað um
veiðikvótana á þann hátt og yrðu þá
öll störf ráðsins einfaldari í sniðum
á eftir,“ sagði Kristján.
Önnur tveggja Júmbóþota Cargolux.
Cargolux hefur náð samkomulagi við stéttarfélögin um tilhögun niöurskurðar:
Bjartsýnni á framhald-
ið eftir endurfjármögn-
un Júmbóþotanna
segir Einar Ólafsson, forstjóri félagsins
fremur til fleiri deilda félagsins,
sagði Einar Ólafsson ennfremur.
„OKKUR hefur nú tekizt að fjár-
magna báðar Boeing 747, Júmbóþot-
ur félagsins í japönskum yenum á
föstum vöxtuiu, en fjármögnun
þeirra hefur verið okkur mjög erflð á
undanförnum misserum, þar sem
míkill hluti lánanna hefur verið í
dollurum á háum vöxtum. Þetta
ásamt ýmsu öðru gerir okkur því
mun bjartsýnni á framhaldið,” sagði
Einar Ólafsson, forstjóri Cargolux, í
samtali við Mbl., en eins og kunnugt
er hefur félagið átt í nokkrum
rekstrarerflðleikum að undanförnu.
Einar Ólafsson sagði, að hin
nýju lán væru til langs tíma með
9,1% og 9,3% vöxtum, en dollara-
lánin hafa verið með um 20%
vöxtum síðustu misserin.—Þessi
breytta fjármögnun breytir okkar
stöðu því gífurlega til betri vegar,
sagði Einar ennfremur.
—Við náðum síðan samkomu-
lagi við stéttarfélögin um hvernig
haga beri málum í sambandi við
uppsagnir og fleira. Þar er gert
ráð fyrir, að niðurskurður
starfsmanna yrði takmarkaður
við 115 manns í stað 150 eins og
Einar Olafsson, forstjóri Cargolux.
talað hafði verið um. Síðan koma
til ýmsar hliðarráðstafanir, m.a. í
formi launalækkunar í ákveðinn
tíma, eða nokkurs konar lán í sex
mánuði sem er hlutfallslegt eftir
launum starfsmanna.
Viðhaldsdeild félagsins verður
mest fyrir barðinu á þessum
niðurskurði, en hann nær enn-
Einar Ólafsson sagði aðspurður,
að væntanlega þyrfti ekki að
leggja annarri Boeing 747, Júmbó-
þotu félagsins, eins og rætt hefur
verið um, en hins vegar hefði verið
ákveðið að leggja einni DC-8-þotu
félagsins tímabundið. Það má hins
vegar gera ráð fyrir minni umsvif-
um með Júmbóþotunum í sumar,
en við gerum ráð fyrir, að ástandið
skáni með haustinu. Júmbóþot-
urnar fljúga tvö flug á viku til
Austurlanda fjær og tvö flug á
viku vestur um haf, en síðan koma
til ýmis konar verkefni fyrir Átt-
urnar, sagði Einar Ólafsson.
Einar Ólafsson sagði ennfrem-
ur, að væntanlega myndi Cargolux
taka að sér flutninga á pílagrím-
um frá Nígeríu til Saudi-Arabíu,
en gert væri ráð fyrir, að þeir
flutningar hæfust 28. ágúst nk.
Þar er gert ráð fyrir flutningi á
um 13 þúsund pílagrímum og það
tekur þrjár vikur að flytja hópinn
til Saudi Arabíu og sama tíma til
baka með vikuhléi á milli, sagði
Einar Ólafsson, forstjóri Cargolux
að síðustu.
VEIÐIN hefur gengið vel í Norð-
urá og Elliðaánum, samkvæmt
upplýsingum sem Mbl. fékk hjá
Friðrik Stefánssyni, fram-
kvæmdastjóra Stangaveiðifélags
Reykjavíkur í gær. Sagði Friðrik
að veiðin í Norðurá hefði dottið
niður í um 2 daga í vatnavöxtun-
um miklu fyrir síðustu helgi, en
menn hefðu ekki látið það á sig
fá, en áin óx mjög mikið eins og
aðrar ár í Borgarfirði. Nú hafa
veiðst yfir 8 laxar í Norðurá.
Enn er góð laxaganga í Elliða-
árnar og hafa þar nú veiðst
nokkuð yfir 600 laxar, en tæp-
lega 3.000 fiskar hafa gengið í
gegnum teljarann, sem er um
900 löxum fleira en á sama tíma
í fyrra. Einnig er veiðin í ár
betri en í fyrra, þó hún hafi byrj-
að seinna en þá. í fyrra hagaði
þannig til að veiðin byrjaði vel,
en minnkaði eftir því sem á
sumarið leið. í ár tóku árnar
seint við sér, en síðan hefur veið-
in verið góð og göngur tíðar.
Tregt í Grímsá
Enn er veiðin treg í Grímsá í
Borgarfirði og hafa þar nú veiðst
á milli 250 og 260 laxar, sam-
kvæmt upplýsingum sem Mbl.
fékk í veiðihúsinu við ána. Nú
eru útlendingar að veiðum í
ánni, en þeir eru þeir síðustu
sem þar verða í sumar, því um
mánaðamót taka íslendingar
við. Töluvert af fiski hefur sést í
Grímsá, en hann er smár og tek-
ur illa. Foráttuvöxtur hljóp í ána
fyrir helgi, eins og aðrar ár í
Borgarfirði og víðar, og var
Grímsá óveiðandi um tíma.
Tæplega 600 úr
Laxá í Aöaldal
í Laxá í Aðaldal hafa nú veiðst
tæplega 600 laxar, en þar er blíð-
viðri þessa dagana og var 25
stiga hiti þar í gær. Síðasta
„holl“ sem veiddi í ánni fékk 72
laxa, og er það með því besta
sem verið hefur, samkvæmt upp-
lýsingum sem Mbl. fékk við ána.
Stærsti laxinn sem veiðst hefur
vó 27 pund, eins og frá hefur ver-
ið skýrt. Laxinn hefur verið
heldur vænn, en nú er smálax
farinn að ganga og veiðast nú
margir fiskar af stærðinni 5 til 8
pund.
Milli 30 og 40 í Lýsu
Á milli 30 og 40 laxar hafa
veiðst á vatnasvæði Lýsu, sam-
kvæmt heimildum Mbl., og í
fyrradag veiddust 7 laxar á
svæðinu. Hafa flestir laxanna
veiðst í Vatnsholtsá, á stað sem
kallaður er Hópið, en einnig hef-
ur fiskur fengist neðan Lýsu-
vatns. 10 stengur eru á þessu
svæði, en þar er mikil silungs-
veiði og er það aðallega bleikja
sem veiðist, en hún er heldur
smá.