Morgunblaðið - 27.07.1982, Blaðsíða 38
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1982
Virkjun Deildartunguhvers lokið:
Hverinn nú
aðgengilegur
ferðafólki
NÚ ER framkvæmdum að
mestu lokið við virkjun Deild-
artunguhvers fyrir Hitaveitu
Akraness og Borgarfjarðar.
Vörðufell hf., sem sá um bygg-
ingu stöðvarhússins við Deild-
artunguhver, virkjun hversins og
frágang svæðisins, skilaði
verkinu formlega af sér í síðustu
viku. Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Vörðufells hf.,
sagði í samtali við Mbl., að Hita-
veitan hefði staðið vel að þessari
framkvæmd og lagt sig fram um
að ganga sem best frá landinu.
Vatninu úr hvernum, en
hverinn samanstendur af
mörgum sjálfstæðum hvera-
laugum, hefur verið safnað
saman inní veituþrær og renn-
ur nú allt í gegnum stöðvar-
húsið sem reist var skammt
frá hvernum. Hverinn gefur
um 200 sekúndulítra af 100
gráðu heitu vatni og eru um
125 lítrar virkjaðir, það sem
afgangs er, rennur framhjá.
Steingarður sem afmarkar
hverinn hefur verið reistur og
svæðið tyrft og sáð í það.
Malarbornir göngustígar
liggja síðan að hvernum.
Sigurður Jónsson sagði að
með þessu móti væri hverinn
aðgengilegri fyrir fólk til
skoðunar, hann hefði reyndar
ekki verið beint augnayndi áð-
ur en framkvæmdir hófust.
Kristján Benediktsson,
garðyrkjubóndi í Víðigerði er
nýkjörinn oddviti Reykholts-
dalshrepps og er hann jafn-
framt einn af næstu ná-
grönnum Deildartunguhvers.
Kristján sagði í samtali við
Mbl. að nágrannar hversins
væru í stórum dráttum
ánægðir með frágang hvers-
ins, þetta yrði bara þokkalegt
þegar búið væri að ganga frá
svæðinu að fullu. Reynt hefði
verið að ganga frá sárunum
Deildartunguhver. Reistur hefur verið garður aem afmarkar hverinn og minnkar slysahættu. Svæðið hefur verið tyrft
og malarbornir göngustígar liggja að hvernum. Ljósm. unj.
Stöðvarhús Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar við Deildartunguhver.
Góð stemmning á „Revlon-open“
ÞAÐ FOR vel um þá sem fylgdust
með „Revlon“-mótinu sem haldið
var í blíðskaparveðri á laugardag-
inn. Þátttaka var mikil í öllum
greinum nema unglingakeppni tólf
ára og yngri, þar voru keppendur
aðeins fimm. Góður andi ríkti á
mótinu og var það ekki síst að
þakka frábærum þul, Olafi Erni
Péturssyni, sem jafnframt er for-
maður íþróttadeildar Fáks. Margir
kunnir hestar voru i keppni og má
þar nefna hesta eins og Sóta sem
var á meðal tíu efstu á A-flokki á
nýafstöðnu landsmóti og Fjölnir
sem var annar í sömu keppni.
Frami og Glæsir mættu einnig til
leiks. Frægir skeiðhestar voru
þarna bæði í kappreiðum og gæð-
ingaskeiði og ber fyrst að nefna
afrekshestinn kunna, Fannar, en
Aðalsteinn Aðalsteinsson sat hann
og hreppti fyrstu verðlaun í gæð-
ingaskeiði.
Tveir fljótustu kappreiðavekr-
ingar landsins í dag, þeir Villingur
og Börkur, mættu til leiks og
keppti Kagnar Tómasson á Berki í
fimmgangi og rekur undirritaðan
ekki minni til þess að hann hafi
verið reyndur í slíkri keppni áður.
Að síðustu má svo geta þess að
hinn síungi Sigurður Olafsson
mætti í gæðingaskeiðið á Kulda
sínum.
Framkvæmd keppninnar gekk
vel fyrir sig og stóðust tímasetn-
ingar með ágætum. Vert er að
minnast á eitt atriði er varðar
úrslitakeppnina. Lengi vel var sá
háttur hafður á í úrslitum, að
raðað var í sæti en ekki gefnar
einkunnir. Síðan var reglunum
breytt og farið að gefa einkunn-
ir. Frá sjónarhorni áhorfandans
er þessi breyting stórt skref aft-
ur á bak, því mikill tími fer í að
gefa einkunnir fyrir öll atriði. Af
þessu leiðir að öll spenna dettur
niður auk þess sem röðun í sæti
gerir áhorfendum auðveldara að
fylgjast með gangi mála.
Að lokinni verðlaunaafhend-
ingu fyrir íþróttagreinar hófust
keppreiðarnar og voru þær
drifnar áfram í hvelli án þess þó
að um flaustursgang væri að
ræða. Voru það lokin á vel
heppnuðu móti og ánægjulegum
degi hjá hestaunnendum á Víði-
völlum.
Annars urðu úrslit sem hér segir:
1. Trausti Þór Guðmundsson á Goða frá Ey. 88,25.
2. Olil Amble á Fleyg frá Kirkjubæ. 86,25
3. Þorvaldur Ágústsson á Snækolli frá Eyvindarmúla. 85,25
Fjórgangur:
1. Trausti Þór Guðmundsson á Goða frá Ey. 59,16
2. Sigurbjörn Bárðarson á Bjarma frá Kirkjubæ. 57,29
3. Olil Amble á Fleyg frá Kirkjubæ. 55,93
Fimmgangur:
1. Sigurbjörn Bárðarson á Sóta frá Kirkjubæ. 66,14
2. Tómas Ragnarsson á Fjölni frá Kvíabekk. 65,29
3. Trausti Þór Guðmundsson á Funa frá Dæli. 61,14
Tölt unglinga 13—15 ára:
1. Sigurður Kolbeinsson á Flugari frá Stóra-Hofi. 81,0
2. Þórir Ásmundsson á Tralla. 80,5
3. Þórunn Þórarinsdóttir á Svarta-September. 72,0
Tölt unglinga 12 ára og yngri:
1. María Magnúsdóttir á Tígli. 76,75
2. Birta Jóhannsdóttir á Glað. 76,50
3. Guðmundur Snorri Ólafsson á Mugg. 61,50
Gæðingaskeið:
1. Aðalsteinn Aðalsteinsson á Fannari frá Eiríksstöðum. 91,50
2. Sigurbjörn Bárðarson á Ása-Þór frá Kirkjubæ. 90,00
3. Tómas Ragnarsson á Fjölni frá Kvíabekk. 86,00
150 metra skeið:
1. Fjölnir frá Kvíabekk. Knapi og eigandi: Tómas Ragnarsson. Tími:
15,3 sek.
2. Ása-Þór frá Kirkjubæ. Eigandi: Fríða H. Steinarsdóttir. Knapi:
Sigurbjörn Bárðarson. Tími: 15,6 sek.
3. Frigg frá Kirkjubæ. Eigandi Hörður G. Albertsson. Knapi:
Trausti Þór Guðmundsson. Tími: 16,2 sek.
250 metra skeið:
1. Villingur frá Möðruvöllum. Eigandi: Hörður G. Albertsson.
Knapi: Aðalsteinn Aðalsteinsson. Tími: 22,2 sek.
2. Börkur frá Kvíabekk. Eigandi: Ragnar Tómasson. Knapi: Tómas
Ragnarsson. Tími 23,8 sek.
3. Jón Haukur frá Tyrfingsstöðum. Eigandi: Haraldur Siggeirsson.
Knapi: Sævar Haraldsson. Tími: 23,8 sek.
VK
Trausti Þór Guðmundaaon var siguraæll á þesmi móti, en hann
sigraði i bæði fjórgangi og tölti og varð auk þess í þriðja sæti í
fimmgangi. Hér situr hann hestinn Goða en hann keppti á
honum í fjórgangi og tölti.
Verðlaunahafar í fjórgangl fara hér mikinn að lokinni verð-
launaafhendingu en þeir eru fri vinstrí: Trausti á Goða, Sigur-
björn á Bjarma og Olil Amble á Fleyg.
Gunnar Arnarson keppti á hestinum Glæsi frá Glæsibæ og eru
þeir hér á yfirferðartöfti I úralitum töltkeppninnar.
Ljódin. Valdimar Krutinwon.