Morgunblaðið - 27.07.1982, Blaðsíða 1
162. tbl. 69. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Bandaríkjastjórn sendir hvalveiðiþjóðum viðvörun:
Hótar að banna allan
innflutning á fiski
Yasser Arafat, leiðtogi
PLO, í hópi bandarískra
þingmanna úr flokki repú-
blikana í Beirút á sunnu-
daginn. Við hlið Arafats
stendur Mary Rose Oakar
frá Ohio, síðan kemur
Paul McCloskey, sem er
frá Kaliforníu, og loks
Nick Rahall frá V-Virg-
iníu.
AP-símamynd.
„Höfum þrjá mánuði
til að athuga málið“
— segir Steingrímur Hermannsson
sjávarútvegsráðherra
YY&shington, 26. júlí. AP.
BANDARÍKJASTJÓRN lýsti því yf-
ir í dag að varðandi fískinnflutning
til Bandaríkjanna og fiskveiðar við
Bandaríkin kynni að verða gripið til
refsiaðgerða gegn þeim þjóðum sem
héldu áfram að veiða hval eftir að
allsherjar hvalveiðibann gengi í gildi
árið 1986. John V. Byrne, aðal-
fulltrúi Bandaríkjanna hjá Alþjóða-
hvalveiðiráðinu, sagði þetta i Wash-
ington í dag og tók fram að í Banda-
ríkjunum væru í gildi lög sem heim-
iluðu bann við fiskinnflutningi frá
landi sem ekki hlítti slíku banni sem
hér um ræðir, svo og allt að helm-
ings skerðingu á fiskveiðikvóta sem
viðkomandi þjóð hefði leyfi fyrir á
miðum Bandaríkjamanna.
„Við höfum þrjá mánuði — níutíu
daga — til að athuga máiið," sagði
Steingrímur Hermannsson, sjávar-
útvegsráðherra þegar Morgunblaðið
leitaði álits hans á þessari aðvörun
Bandaríkjastjórnar, „og það eru
mörg meira aðkallandi mál sem
bíða en þetta. Það sér hver maður að
við mundum ekki þola að lokað yrði
fyrir fiskútflutning okkar til Banda-
ríkjanna. Enn sem komið er hef ég
aðeins haft tækifæri til að ræða
málið við formann íslenzku hval-
veiðinefndarinnar, en bíð eftir að
geta kallað hana alla saman til að fá
fullnaðarskýrslu um málið."
* *
Iran — Irak:
John V. Byrne kvaðst í dag vera
þess fullviss að allar þjóðir mundu
virða hvalveiðibannið, enda þótt
Japanir og Norðmenn hefðu þegar
lýst því yfir að þeir hyggðust hafa
það að engu og halda áfram hval-
veiðum. Yrði hinsvegar um brot á
banninu að ræða kvað hann „mjög
líklegt að um refsiaðgerðir yrði að
ræða. Hann benti á að ríki sem and-
víg væru banninu hefðu níutíu daga
frest til að koma á framfæri mót-
mælum sínum og kvaðst hann viss
um að á þeim tíma yrði haldið
áfram samningaviðræðum í því
skyni að hjálpa hvalveiðiþjóðum til
að laga sig að breyttum aðstæðum
og sjá til þess að Alþjóðahvalveiði-
ráðið haldi virðingu sinni. Næstu
níutíu dagar verða jafnmikilvægir
og síðustu þrír dagar," bætti hann
við og vitnaði þar til ráðstefnunnar
í Brighton i síðustu viku þar sem
hvalveiðibann var samþykkt með 25
atvæðum gegn sjö, en fimm þjóðir
sátu hjá og voru íslendingar í þeim
hópi. Aður en atkvæðagreiðsla fór
fram höfðu Japanir og Norðmenn
lýst því yfir að þeir mundu virða
bann að vettugi vegna ónógra vís-
indalegra upplýsinga um réttmæti
hvalveiðibanns, en ásamt Sovét-
mönnum sem einnig greiddu at-
kvæði gegn banninu, veiða Norð-
menn og Japanir um 90% af öllum
hval sem veiddur er í heiminum.
Síður hætt við að
átökin breiðist út
— aö dómi bandarísku leyniþjónustunnar
\Ya.shington, 26. júlí. AP.
BANDARÍSKA leyniþjónustan telur nú síður ástæðu til að hafa áhyggjur af
því að styrjöld írana og íraka breiðist út, en að undanförnu hefur hvorki
gengið né rekið í átökum þeirra, að því er fram kom í Washington í dag. Um
helgina kom einungis til minni háttar átaka í jaðri víglínunnar suðaustast í
írak, en íranir sem réðust inn í írak fyrir tveimur vikum hafa enn á valdi
sínu ræmu meðfram landamærum ríkjanna og er þessi ræma hvergi breiðari
en þrír kílómetrar, að sögn heimildarmanna innan bandarísku leyniþjónust-
unnar.
Fyrst eftir að Iranir gerðu inn-
rás þessa komust þeir um 15 kíló-
metra inn fyrir landamærin, í átt
að takmarki sínu, Basra, sem er
mikilvægasta olíuhöfn íraka.
Samkvæmt sömu heimild tókst ír-
ökum síðan að flæma innrásarlið-
ið til baka að landamærunum, og
alla síðustu viku hefur staðið í
stappi án þess að til meiriháttar
átaka kæmi.
í augum bandarísku leyniþjón-
ustunnar mun þetta vera hagstæð
þróun, þar sem líkur minnka á því
að írönum takist að koma sér svo
fyrir að öðrum löndum við Persa-
flóa standi ógn af þeim. Athygli
vekur að síðustu daga hafa íranir
í auknum mæli beitt vopnum sem
geta greitt fótgönguliði Ieið, en ír-
önsku fótgönguliði varð verulega
ágengt við að reka íraka á flótta
eftir innrás þeirra í íran 1980.
Engar áreiðanlegar tölur um
mannfall liggja fyrir, en banda-
ríska leyniþjónustan áætlar að í
bardögum í þessari lotu kunni um
8 þúsund íranir að hafa fallið og
eitt þúsund írakar. Talið er að ír-
akar og íranir hafi á að skipa um
100 þúsund manna liði, hvorir um
sig, á ófriðarsvæðunum.
Líbanon:
Mannfall mikið eftir tvær
árásarlotur úr lofti og návígi
Beirút, Tel A»i», 26. júli. AP.
ELDUR gaus upp í bækistöó Frelsis-
samtaka Palestínumanna þar sem
Yasser Arafat var staddur eftir að
ísraelskar herþotur gerðu loftárásir á
Beirút fimmta daginn í röð. PLO-
samtökin segja að 54 hafi látið lífið
eða særzt í árásunum i dag og sé
trúlegt að tala látinna eigi eftir að
hækka verulega þvi að björgunar-
sveitir séu önnum kafnar við að grafa
fólk undan rústum húsa sem hafi
eyðilagzt. Loftárásirnar, sem
stórskotalið fylgir eftir, voru i tveim-
ur lotum í dag. Fyrstu israelsku þot-
urnar voru komnar yfir V-Beirút kl.
12.42 að íslenzkum tíma, en síðari
árásin hófst kl. 19.
Fréttaritari AP segir að ísraelskt
stórskotalið hafi haldið uppi linnu-
lausri skothríð meðan á loftárásum
stóð og hafi eldur komið upp víða í
borginni. Hvor árásarlota um sig
stóð klukkustundum saman.
Palestínumenn skutu fjölda loft-
varnaeldflauga að þotum ísraels-
manna en þoturnar hafa sjálfvirkan
útbúnað sem breytir stefnu slíkra
flauga þannig að þær missa marks.
ísraelsmenn segja að allar þotur
þeirra hafi skilað sér aftur úr leið-
angrinum.
Lundúnum, 26. júlí. AP.
PHILIP Habib, sérstakur sendimaður
Bandaríkjaforseta, er farinn aftur áleið-
is til Miðausturlanda eftir fundahöld
með Hussein Jórdaníukonungi og
Francis Pym utanríkisráðherra Breta í
Lundúnum í dag. Hussein lýsti þvi yfir
við fréttamenn í kvöld að viðræður
þeirra Habibs hefðu verið mjög gagn-
íegar, en varðist frekari frétta. Hussein
vildi hvorki játa þvi né neita að hann
væri reiðubúinn til að veita viðtöku
hluta þeirra átta þúsund l’alestínu-
manna sem eru í herkvi í Beirút.
ísraelskur höfuðsmaður
hættir
Eli Geva, háttsettur foringi í her
ísraels í Líbanon, baðst í dag lausn-
ar þar sem hann kvaðst ekki treysta
sér til að horfast í augu við harmi
lostna foreldra og segja þeim að
synir þeirra hefðu fallið í átökum
sem hann teldi að unnt hefði verið
að komast hjá. Geva er af frægri
hermannaætt, en í yfirlýsingu
ísraelshers um málið er þess getið
að afstaða hans hafi vakið mikla
reiði undirmanna hans. Geva
stjórnaði árásum á borgina Sídon á
dögunum en hermenn hans eru með-
al þeirra sem nú sitja um Beirút.
Enn styrkist staða Begins
Menachem Begin forsætisráð-
herra ísraels hefur nú öruggan
meirihluta á þingi, eftir að þrír
þingmenn mjög eindreginna þjóð-
ernissinna gengu til liðs við hann í
dag. Þetta er í fyrsta sinn síðan í
kosningunum í fyrra að Begin styðst
við öruggan meirihluta á þinginu,
þar sem 120 eiga sæti og stjórnin
hefur nú 64 til að styðjast við í stað
61 áður.
Fundur Habibs og Husseins stóð í
tæpa klukkustund en síðan fór Habib
að hitta Pym. Brezka utanríkisráðu-
neytið segir að Pym hafi óskað eftir
upplýsingum Habibs um gang til-
rauna hans til að leysa deiluna um
hina umkringdu Palestínumenn í
Beirút.
Ekki er vitað hvert för Habibs frá
Lundúnum er heitið, en haft er eftir
ónafngreindum heimildarmönnum
að hann sé á leið til ísraels.
Hvíta húsid um
yfirlýsingu Arafats:
„Fullnægir
ekki skilyrðum
Bandaríkjanna“
Washinglon, 26. júlí. AP.
TALSMAÐUR HvíU hússins, Larry
Speakes, kvað upp úr með það i
kvöld að skrifleg yfirlýsing Yasser
Arafats, leiðtoga PLO, um „viður-
kenningu á öllum ályktunum Sam-
einuðu þjóðanna varðandi Palest-
ínumenn", fullnægði ekki skilyrðum
Bandaríkjastjórnar fyrir viðurkenn-
ingu hennar á Frelsissamtökum Pal-
estínumanna. Speakes sagði að
Bandaríkin mundu ekki viðurkenna
PLO fyrr en samtökin féllust á til-
teknar ályktanir Sameinuðu þjóð-
anna og viðurkenndu tilverurétt
fsraelsríkis.
„Við höfum gefið til kynna að
þetta þurfi að koma fram á skýran
og óumdeilanlegan hátt og yfirlýs-
ing Arafats nú uppfyllir ekki þessi
skilyrði,“ sagði Speakes um leið og
hann tók fram að af hálfu Banda-
ríkjastjórnar hefði ekkert verið
gert til að fá Arafat til að skýra
ummæli sín frekar, en ef Arafat
sjálfum þætti ástæða til væri ekk-
ert því til fyrirstöðu að hann gæti
komið því á framfæri sem hann
vildi sagt hafa. „Séu skilyrði
okkar uppfyllt þá erum við reiðu-
búnir að ræða við þá,“ sagði
Speakes og lét þess getið að
Bandaríkjastjórn kæmi ekki auga
á neitt nýtt í yfirlýsingunni sem
Arafat lét í té hópi bandarískra
þingmanna sem eru á ferð í Beir-
út.
Sjá nánar á bls. 19.
„Mjög gagnlegar viðræður“
— segir Hussein um fund með Habib