Morgunblaðið - 27.07.1982, Blaðsíða 22
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1982
Flugstödvarbyggingin er
löngu gengin sér til húðar“
segir Grétar Haraldsson aðstoðarstöövarstjóri á Keflavíkurflugvelli
FLESTIR íslendingar kannast við
flughörnina á Keflavíkurvelli og
þekkja aðstöðu fyrir farþega og
starfsfólk. Mbl. fór til Kefla-
vikurflugvallar á föstudagin. En þá
voru um 1.000 manns staddir þar
samtímis siðdegis. Var þröngt á
þingi. Hiðraðir við alla staði þar sem
vænta mátti einhverrar fyrirgreiðslu.
Fólk stóð í hverjum krók og kima og
reyndi að tylla sér á hvern þann stað
sem sjáanlegur var.
Að sögn Grétars Haraldssonar,
aðstoðarstöðvarstjóra, þá fóru um
morgunin 760 manns út og 2 flug-
vélar höfðu stutta viðdvöl voru
einnig. Þannig voru um 1.000
manns inni í biðsalnum í einu.
Síðan aftur sama dag, síðdegis, þá
kom upp sama staða, um 1.000
manns voru á staðnum í einu. Það
hefði getað farrð enn verr ef einni
til tveimur vélum hefði seinkað.
Þá hefðu verið á annað þúsund
manns á staðnum. En á þriðja
þúsund manns hafði farið um
flugstöðina þennan dag.
„Vinnuaðstaðan er ömurleg.
Þetta hús er ekki byggt, sem
flugstöðvarbygging. Hér eru um
1.000 manns, en mega vera um
800. Síðan ef hreyfill spryngi í
þotu hér fyrir utan, þá myndi
kvikna í þessum útgöngudyrum
sem eru út á völlinn. Rafmagn
færi af flugstöðvarbyggingunni og
aðrar dyr sem eru til útgöngu í
austur eru rafmagnsknúnar svo
það gæti reynzt erfitt að opna
þær. Er þetta ekki forsvaranlegt
eins og það er í dag.“
Grétar Haraldsson sagði, að
stundum yrði hitinn óbærilegur
inni í þessari byggingu. „Núna er
góður sunnanvindur, svo þetta er
þoianlegt. En ef það er 15 stiga
hiti úti og logn þá er ekki verandi
hérna inni. Fólkið bókstaflega
ryðst á okkur og við verðum að
hleypa því út á grasflöt hér fyrir
utan sem við höfum ekki leyfi til
að gera. Þaðan getur fólkið farið
út á flugbrautina. En hvað eigum
við að gera? Það líður yfir fólk í
þessum hita sem verið hefur hér í
sumar. Og þá er kallað á læni, því
við vitum ekki hvort þetta er
eitthvað alvarlegt. En þá verðum
við að biðja fólk að standa upp og
leggja fólkið á sætin. En 100 sæti
eru til staðar. Loftræstingin getur
engan veginn nægt fyrir þetta."
Grétar sagði, að eftir að fólkið
væri farið, væri salurinn eins og
eftir loftárás, þar sem ruslakörfur
gætu ekki tekið við öllu ruslinu.
Enda kæmist fólk ekki að rusla-
fötum til að setja ruslið í. Um
morgunin var grenjandi rigning
og fólkið þurfti að ganga langa
leið til að komast út í flugvél. Það
var orðið hundblautt, þegar það
komst út í vél og ekki þægilegt
fyrir það að sitja í flugi í blautum
fötum. „Þetta er svo mikið veðra-
víti hér á Vellinum, að það er svo
sem sama hvort það er rigning eða
snjókoma á veturna. Við höfum
enga „fingur" eins og er erlendis
vmi
A
MITSUBISHI
._MOTORS__
Komið og skoðiö MITSUBISHI PAJERO
á sjónvarpsskermi í sýningarsal Heklu hf. að Laugavegi 170
Sjón er sögu ríkari.
172.
gSöíi#
FhIhekiahf
Laugavegi 170-172 Sími 21240
GréUr Haraldsson
Biðröð fólks, sem er að koma að utan. Nýlega var hálfur metri tekinn af
horni hjá bankanum til að auðvelda umgang. En í þessari röð, þá komust
þeir varla framhjá, sem ekki ætluðu í bankann heldur í vegabréfsáritunina,
og urðu að bíða eftir viðskiptavinum bankans.
til þess að láta flugvélina aka að
svo fólk geti gengið beint út í
flugvélina."
Grétar sagði einnig að 11 sinn-
um á síðasta vetri hefði hitastig
farið niður í 2 gráður, þar sem
„tékkun" farþega fer fram. Fólk
skammaði starfsfólk fyrir þetta.
Það væri með 2ja—3ja mánaða
gömul börn og þessar skammir
lenda á starfsfólkinu.
„Þessi bygging er löngu gengin
sér til húðar. Við erum yfir okkur
stressuð við að vinna við þessar
aðstæður hér. Menn eru að velta
því fyrir sér, hvort það þurfi að
reisa nýja flugstöðvarbyggingu.
Það á nú að taka þetta fyrir í rík-
isstjórninni í næstu viku. En það
mætti ætla það, að þeir hefðu ekki
komið hingað til þess að kynna sér
þetta. Það er verið að ræða um það
hversu það sé mikil skömm fyrir
menn að þurfa að sjá braggadrasl-
ið frá hernum hérna, þegar þeir
fara úr landi. En þetta er miklu
verra. Það er engin flugstöðv-
arbygging á alþjóðaflugvelli á
norðurhveli jarðar, sem er eins
aum og þessi. Við verðum að vinna
hér undir mikilli pressu. SAS tel-
ur sig þurfa 90 sekúndur til að
afgreiða hvern farþega. En við
verðum að gera hið sama við
miklu verri aðstæður á 14 sekúnd-
um. Það yrði um 1—1 tíma
seinkun á hverri vél, ef hver far-
þegi væri afgreiddur á 90 sek. En
það er erfitt að lýsa þessu. Menn
verða að hafa upplifað þetta til að
skilja þetta," sagði Grétar Har-
aldsson að lokum.
— PÞ.
Mikil veðurblíða hefur verið á Austurlandi undanfarna daga og hefur hitinn
daglega verið á milli 20 og 30 gráður í forsælu. í Neskaupstað komst hitinn í
gær upp i 30 gráður og nota Norðfirðingar sér blíðuna til útivistar og sólbaða.
Mikill fjöldi fólks hefur að undanförnu notfært sér sólbaðsaðstöðu við
sundlaugina í Neskaupstað, eins og sjá má á þessari Ijósmynd Jóhanns
Kristinssonar.