Morgunblaðið - 27.07.1982, Blaðsíða 40
Þú manst’eftir
MJNITED
4. ágúst á Laugardalsvelli
SHARP * VALUR
JMQQBIttflIllfrlfr
munið trúlofunarhringa
litmvndalistann fffl)
#ttll Sc ái>ilfur
Laugavegi 35
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1982
Atta ára stúlka
drukknaði í Glerá
Akureyri, 26. júlí.
ÁTTA ára stúlkubarns, sem var í
dvöl á vistheimilinu Sólborg, var
saknað um klukkan 16 í gær.
Starfsfólk vistheimilisins fór þeg-
ar að svipast um eftir barninu og
fann stúlkuna í Glerá hálftíma
síðar og var stúlkan þá látin. Hún
hét Hrefna Björg Júlíusdóttir til
heimilis í Kjarrhólma 38, Kópa-
vogi. _ Sv.P.
Stefnir í 3.300
milljóna króna
viðskiptahalla
VKGNA þeirrar þróunar, sem átt
hefur sér stað í gengisskráningu
frá fvrri hluta ársins 1981, hefur
innflutningur verið mjög mikill að
undanlornu, segir m.a. í skýrslu
Verzlunarráðs Islands um stöðu
atvinnulífs og efnahagsmála á
miðju ári 1982.
Innflutningur vara og þjón-
ustu hefur aukizt um 8,5% á ár-
inu 1981 og á sama tíma hefur
aukningin í útflutningi og þjón-
ustu verið um 2,1%, sem leiddi
til þess, að viðskiptahallinn í
lok ársins var liðlega eitt þús-
und milljónir króna.
Fyrstu fimm mánuði þessa
árs hefur innflutningur svo vax-
ið um 53,4% á ársgrundvelli, en
útflutningur hins vegar aðeins
um 33,7%.
— Ef ekkert lát verður á
þessari þróun gæti hallinn á
utanríkisviðskiptum í árslok
orðið um 3.300 milljónir króna,
Auglýsendur athugið
SÍÐASTA blað fyrir verzlunar-
mannahelgi kemur út laugar-
daginn 31. júlí. Auglýsingar sem
birtast eiga í því blaði þurfa að
hafa borizt auglýsingadeildinni
fyrir kl. 18, fimmtudaginn 29.
júlí. Fyrsta blað eftir verzlun-
armannahelgi kemur út mið-
vikudaginn 4. ágúst.
sem jafngildir verðmæti 37
nýrra skuttogara, segir enn-
fremur í skýrslu Verzlunarráðs
Islands.
í skýrslunni kemur fram, að
um 17% aukning varð á gjald-
eyrissölu fyrstu sex mánuði árs-
ins á föstu gengi, og hefur
gjaldeyrisstaðan farið ört
versnandi að undanförnu, sem
að sjálfsögðu stafar einnig af
minnkandi útflutningi.
27 stiga hiti
á Neskaup-
stað í gær
Nt .skaupstaður, 26. júlí.
í DAG er hér 27 stiga hiti í forsælu
og alveg logn, svartur sjór og hitinn
á kvöldin og næturnar undanfarið
hefur verið 18 til 20 stig.
Þann 14. júlí breyttist veðrið
hér og snerist áttin í suðvestan og
allar götur síðan þá hefur verið
hér logn og miklir hitar, 20 til 27
stiga hiti. Einn dag síðan 14. júlí,
fór hitinn niður í 10 til 12 stig og
fannst fólki þá kalt. í gærkvöldi
fór hitinn ekki niður fyrir 18 stig.
Hey eru hér rýr, en segja má að
heyið þorni af ljánum. Sprettan er
talin helmingi minni en í fyrra.
Hins vegar eru heyin góð vegna
þurrkanna.
— Ásgeir
ísbjörn með gapandi gin. Myndin var tekin i Sædýrasafninu í gær, en nú
er allt á huldu um framtíð og rekstur safnsins. í samtali við Morgunblað-
ið sagði Jón Gunnarsson að í athugun væru hugmyndir um fyrirgreiðslu
vegna safnsins. Sagði hann að safnið myndi ekki verða opið í sumar, og
að allt væri óljóst um framhaldið. Ljósm. Mbl. kök
Mótmælir
hugmyndum
um hækkun
fiskverðs ut-
an hlutaskipta
STJÓRN Sjómannafélags ísfirðinga
hélt í gær fund þar sem samþykkt
var ályktun þar sem mótmælt er
hugmyndum um hækkun fiskverðs
framhjá hlutaskiptum og segir í
ályktuninni að fundurinn minni
sjávarútvegsráðherra á gefin loforð
um niðurfellingu olíugjalds í tveimur
áróngum. Ályktunin er svohljóðandi:
„FUNDUR í stjórn Sjómannafé-
lags ísfirðinga, 26. júlí 1982, mót-
mælir harðlega þeim hugmyndum
sem hafa komið fram í fjölmiðlum
um hækkun fiskverðs framhjá
hlutaskiptum, þar sem þegar séu
17% utan skipta. ísfirskir sjó-
menn vilja minna sjávarútvegs-
ráðherra á gefin loforð frá apríl
1980 um niðurfellingu olíugjalds í
tveimur áföngum. Einnig viljum
við benda á að minnkandi tekjur
útgerðar þýða að sama skapi
minnkandi tekjur sjómanna. Þar
sem fiskiskipaflotinn er orðinn
allt of stór teljum við að nýta
mætti stofnfjársjóðinn til að leysa
þennan vanda. Fundurinn skorar
á alla sjómenn að beita öllum til-
tækum ráðum til að koma í veg
fyrir framangreindar aðgerðir,
sem munu leiða til aukinnar
kjaraskerðingar sjómanna."
Ekki gripið til aðgerða, er
hindra útflutning á fiski
— segir Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson um við
varanir Bandaríkjastjórnar vegna hvalveiða
„ÞAÐ getur aldrei komið til, að
við grípum til neinna þeirra að-
gerða, sem hindra myndu útflutn-
ing okkar á frystum fiskafurðum
til Bandaríkjanna. ísienzka þjóð-
in myndi aldrei þola slíkt," sagði
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, for-
stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna, í samtali við Mbl., er
hann var inntur álits á fréttum
þess efnis, að Bandaríkjamenn
hyggist setja innflutningsbann á
fiskafurður þeirra þjóða, sem
ekki virði algert hvalveiðibann
eftir árið 1986.
„Því er auðvitað ekki að
neita, að hvalaafurðir hafa gef-
ið okkur miklar tekjur í gegn-
um árin, en þær vega þó lítið í
samanburði við útflutning
okkar á frystum afurðum til
Bandaríkjanna," sagði Eyjólfur
ísfeld Eyjólfsson ennfremur.
Það k^m ennfremur fram hjá
Eyjólfi ísfeld, að það þyrfti að
sjálfsögðu ekki að fjölyrða um
þetta. Mikilvægi útflutnings ís-
lendinga á frystum fiskafurð-
um til Bandaríkjanna lægi al-
veg Ijóst fyrir.
Fímm hollenskar stúlkur
í reiðileysi í óbyggðum
FÉLAGAR úr Flugbjörgunarsveitinni á Hellu björguðu i fyrrinótt fimm
hollenskum stúlkum sem voru í reiðileysi i svonefndum Dalakofa sem
stendur skammt frá Laufafelli við upptök Markarfljóts.
Stúlkurnar voru á bakpoka-
ferðalagi í 16 manna hópi á veg-
um Dick nokkurs Philips, sem
mun reka ferðaskrifstofu í
Fljótshlíð. Stúlkurnar ákváðu að
verða eftir við Markarfljót, þar
sem þrjár þeirra voru orðnar
sárfættar og þrekaðar eftir
ferðalagið, eins mun þeim ekki
hafa litist á að fara yfir Mark-
arfljót sem var í vexti en ein-
hverjir úr hópnum munu hafa
reynt að vaða yfir en misst fót-
ana og farið í ána en borist uppá
eyrar. Stúlkurnar fóru í Dala-
kofann áðurnefnda, sem er í
einkaeign, á fimmtudag og voru
þar enn þegar fólk kom þangað á
laugardagskvöldið. Kofinn er
óupphitaður og þurftu þær hol-
lensku að vera í svefnpokunum
mest allann daginn og voru þær
einnig orðnar matarlitlar. Ekk-
ert virtist hafa verið gert í því að
sækja þær og tók fólkið sem
fann þær til þess ráðs að láta
lögregluna á Hvolsvelli vita. Fé-
lagar úr Flugbjörgunarsveitinni
á Hellu tóku síðan að sér að ná í
ferðalangana sem þeim tókst í
fyrrinótt, þá höfðu stúlkurnar
dvalið þarna í reiðileysi eitthvað
á fjórða sólarhring.
Mbl. hafði samband við Kjart-
an Jóhannsson, alþingismann,
sem var í hópnum sem fann
stúlkurnar og leitaði álits hans á
þessu atviki. Kjartan sagði að
það ylli sér þungum áhyggjum
að hlutir sem þessir gætu átt sér
stað, að menn væru að senda
ferðahópa inná hálendið sem
ekki væru í neinu sambandi við
byggð ef eitthvað kæmi fyrir og
full ástæða væri fyrir íslensk yf-
irvöld að grípa í taumana áður
en verr færi.
Húsavík:
Leitað lyfja
í gúmmíbát
Ifúsavík, 26. júlí.
GÚMMÍBÁTUR, 6 manna, hvarf
fyrir hálfum mánuði af mb. Fann-
ey sem lá við bryggju á Húsavík.
Báturinn fannst sl. laugardag
suður í Aðaldalshrauni og voru
sýnileg merki þess að leitað hafði
verið lyfja í honum og var hann
töluvert skorinn og skemmdur.
Mál þetta er óupplýst, en
spurningin er hvort fíkniefna-
neytendur séu farnir að leita
lyfja á fjarlægum stöðum, eða
eru fíkniefnaneytendur hér, en
svo hefur ekki verið talið.
— Fréttaritari