Morgunblaðið - 30.07.1982, Blaðsíða 48
Síminná QQfiQQ
afgretðslunni er OOUOO
|H0r0wtÞUbib
wgunlifftfeifr
Þú manst’eftir
MDMITED
4. ágúst á Laugardalsvelli
SHARP * VALUR
FÓSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1982
Litlar horfur á samkomulagi innan ríkisstjórnarinnar:
Tillaga um afiiám
verðbóta 1. september
INNAN RÍKISSTJÓRNARINNAR hefur verid rædd tillaga
um algjört afnám vísitöluuppbótar á laun hinn 1. september
næstkomandi. I>essi tillaga mun vera runnin undan rifjum dr.
Gunnars Thoroddsen forsætisráöherra, en tillögur Framsókn-
arflokksins hafa beinzt að því að fækka veröbótatímabilum
úr fjórum í tvö á ári, hinn 1. september og hinn 1. marz.
Tillögur þessar hafa lítinn hljómgrunn fengið innan ríkis-
stjórnarinnar, þar sem þar er enn ekki samkomulag um neitt
og afskaplega litlar horfur á samkomulagi.
Stólpi brotnaði í brúnni yfir Kvíi og hangir brúarendinn nánast í lau.su lofti, eins og sést á minni myndinni. A
sUerri myndinni sést hvernig umhorfs var við Svínafellsá í gær. Ljósmvnd Br*ei KarUson.
Austurlandsvegur lokaður vegna vatnaskemmda
Talsverðar skemmdir hafa orðið á Austurlandsvegi í kjölfar mikilla vatnavaxta. Samkvæmt upplýsingum Mbl. nam
úrkoma þar eystra 193,6 millimetrum á timanum frá kl. 10 til 21 í fyrradag. Verið er að gera við skemmdir og
fyrirsjáanlegt að vegurinn verður lokaður í dag og á morgun.
Sigurður Hauksson vegaeftirlitsmaður kvað skemmdirnar vera á veginum milli Skaftafellsár og Kvíár í
Öræfasveit. Við Skaftafellsá hefði einn af þremur stöplum brúarinnar horfið i vatnsflauminn og Svínafellsá hefði
brotið sér leið í gegnum veginn vestan við brúna þar sem hún gerði mikið skarð í veginn. Þá sagði Sigurður að við
Kvíá hefði áin brotið iandstólpa og héngi því brúarendinn svo að segja í lausu lofti.
Að sögn Sigurðar eru víða á veginum minniháttar skemmdir og var í gærdag unnið að því að draga vélar á
vettvang svo opna mætti veginn hið fyrsta. Kvað hann líklegt að unnt yrði að opna veginn um eða eftir helgi. Nær
öruggt væri að hann yrði lokaður í dag og á morgun.
12—23% hækkanir á
opinberri þjónustu
Póstur og sími 18% - Rafmagn 23% - Hitaveita 12—20% - Dagvistun 15%
TiHögur Framsóknarflokksins,
sem Steingrímur Hermannsson,
sjávarútvegsráðherra og formað-
ur flokksins, lagði fram í ríkis-
stjórn hinn 21. júlí síðastliðinn
ásamt endurskoðuðum tillögum
um aðgerðir vegna erfiðleika út-
geröarinnar, gera ráð fyrir því, að
gengi krónunnar verði lækkað um
10—15 af hundraði og að áhrif
gengislækkunarinnar verði tekin
út úr verðbótavísitölu, þó ekki 1.
septcmber nk. umfram það, sem
samið er um í kjarasamningum.
Síðan er gert ráð fyrir, að verð-
bótatímabil verði lengt úr þremur
í sex mánuði og að verðbætur á
laun, fiskverð og búvöruverð verði
ákveðið á sama tíma, 1. marz og 1.
september ár hvert.
Framsóknarflokkurinn gerir
ráð fyrir, að breytingar á útgjöld-
um ríkissjóðs vegna félagsmála,
þar með talin samgöngumál, heil-
brigðismál, menntamál o.fl., verði
tekin til greina við útreikning á
verðbótavísitölu. Ráðstafanir til
að jafna orkukostnað landsmanna
hafi jafnframt ekki áhrif á verð-
bótavísitölu. Þá er einnig gert ráð
fyrir, að kaupmáttur tekna barna-
fólks verði aukinn með hækkun
barnabóta og að leitað verði samn-
inga um lækkun launatengdra
gjalda, þannig að meira komi til
útborgunar til launþega.
I tillögum Framsóknarflokksins
er gert ráð fyrir, að fjárfesting og
útgjöld hins opinbera verði sam-
rýmd markmiðum um viðskipta-
jófnuð. Þá segir og að draga þurfi
úr innflutningi vegna fjárfest-
ingar og útgjalda hins opinbera,
spornað verði við útþenslu og auk-
in áherzla lögð á sparnað í opin-
berum rekstri. Erlendar lántökur
verði takmarkaðar til samræmis
við markmið um viðskiptajöfnuð.
„ÉG VIL ekki kalla núverandi
ástand kreppu, ég tel að það sé of
sterkt til orða tekið, en það hefur
orðið mikill samdráttur því er ekki
að leyna,“ sagði Guðlaugur Berg-
mann, forstjóri Karnabæjar, i sam-
tali við Morgunblaðið í gær, er
hann var spurður hvort hann hefði
orðið var við samdráttareinkenni í
viðskiptum og verslun hér á landi
að undanfórnu. Sagði Guðlaugur
þjóðina hafa lifað um efni fram, en
nú væri komið að skuldadögum.
Fleiri þeirra er Morgunblaðið
ræddi við í gær og fyrradag tóku
í sama streng.
Þá gera framsóknarmenn einnig
tillögu um að dregið verði úr inn-
flutningi með óbeinum aðgerðum,
t.d. með því að takmarka mjög lán
til vörukaupa og kaupa á vélum og
tækjum og að launaskattur á iðn-
að og fiskvinnslu lækki um eitt
hundraðshlutastig. Tillaga er gerð
um að draga úr framleiðslu kinda-
kjöts í samræmi við tillögur
Framleiðsluráðs landbúnaðarins
og veittar allt að 30 milljónir
króna í því skyni á fjárlögum 1983.
Loðdýrarækt verði efld sem bú-
grein til aukningar þjóðarfram-
leiðslu og til að sporna gegn
byggðaröskun.
Þá er og gert ráð fyrir að tekið
verði svokallað „sveiflujöfnunar-
lán“ hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðn-
um til að létta greiðslubyrði við
útlönd vegna viðskiptahalla.
Framsóknarflokkurinn leggur
síðan til umfangsmiklar aðgerðir
til aðstoðar útgerð í erfiðleikum
hennar. Þær tillögur eru fjórar
vélritaðar síður og segir þar m.a.,
að lagt sé til að bæta útgerð %
hluta þess halla, sem varð á
rekstri hennar fyrstu 5 mánuði
ársins, en hann er sagður hafa
numið 126 milljörðum króna.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun enginn hljómgrunn-
ur innan Alþýðubandalagsins við
tillögum um aðgerðir til að létta
undir með útgerðinni, né heldur
hafa menn fallizt á tillögu dr.
Gunnars Thoroddsen um afnám
verðbóta á laun hinn 1. september
næstkomandi, enda telja sumir að
tillaga Gunnars sé fremur póli-
tískur leikur en efnisleg tillaga —
til þess ætluð að fá menn til þess
að ræða mildari ráðstafanir í
efnahagsmálum, sem að gagni
mættu verða.
Örnólfur Ornólfsson fasteigna-
sali segir í viðtali við Morgun-
blaðið, að mikill samdráttur hafi
orðið í fasteignasölu, og að verð á
fasteignum standi í stað.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips, segir að vandamál
varðandi vanskil og greiðslur
fyrir flutninga séu vaxandi, og þó
ínnflutningur sé enn verulegur
hafi dregið úr honum síðustu vik-
ur. Þá segir hann mikinn og veru-
legan samdrátt hafa orðið í út-
flutningi. Sigurður Helgason for-
stjóri Flugleiða telur að ástandið
muni versna þegar á árið líði og
HEIMILUÐ hefur verið 18% hækkun I
póst- og símaþjónustu frá og með 1.
ágúst og 1. september. Símaþjónusta I
hann segir greinilegt að fólk hafi
minna fé handa milli en áður. Jón
H. Karlsson í Teppalandi segir
aukningu hafa orðið í sölu fyrir-
tækisins vegna nýrra vara sem
nú sé boðið upp á, en óneitanlega
setji ugg að mönnum við fréttir
úr bankakerfinu, og verið geti að
sala að undanförnu sé vegna
gengisfellingarhræðslu fólks.
Af hótelum er svipaða sögu að
segja. Wilhelm Wessman, aðstoð-
arhótelstjóri á Hótel Sögu, segir
júlímánuð hafa verið lakari en
búist hafði verið við og mikið hafi
verið um afpantanir. Guðrún
hækkar nú, en póstþjónusta mánuði
síðar. Þá hefur gjaldskrárnefnd ríkis-
stjórnarinnar heimilað 23% meðal-
Sveinbjarnardóttir, viðskipta-
fræðingur hjá Flugleiðum, segir
herbergjanýtingu á Hótel Loft-
leiðum verri en gert var ráð fyrir
og Einar Olgeirsson, hótelstjóri á
Hótel Esju, segir um greinilegan
samdrátt að ræða. I hótelvið-
skiptum eins og flugi og fleiri
þjónustugreinum koma til sam-
dráttaráhrif frá útlöndum, sem
síðan auka um leið á samdrátt
hér innanlands.
Sjá viðtöl við ýmsa aðila í
þjónustu- og verslun á mið-
opnu Morgunblaðsins í dag.
talshækkun á gjaldskrám rafveitna
og heitt vatn má hækka um 12—20%,
en siðastnefnda prósentan er sú, sem
nemur hækkun á gjaldskrá Hitaveitu
Keykjavíkur.
Stofngjald síma kostar eftir
hækkun með söluskatti 2.172 krón-
ur, en notandinn greiðir siðan fyrir
talfæri og uppsetningu. Hvert um-
framskref hækkar í 0,83 krónur og
afnotagjald af heimilissíma á
ársfjórðungi er nú með söluskatti
tæplega 352 þúsund krónur. Þá er
venjulegt flutningsgjald síma milli
húsa á sama gjaldsvæði 1.086,18
krónur með söluskatti.
Þá hefur verið heimiluð 15%
hækkun á gjöldum á dagvistar-
heimilum frá 1. ágúst nk. Gjald
fyrir fjögurra tíma vist barna á
leikskólum hækkar úr 580 krónum í
667 krónur, gjaldið fyrir 4,5 tíma
vist hækkar úr 655 krónum í 753
krónur og gjaldið fyrir 5 tima vist
hækkar úr 725 krónum í 834 krón-
ur.
Þá hækka gjöld fyrir börn for-
gangshópa á dagheimilum úr 1.090
krónum í 1.254 krónur og gjaldið
fyrir börn annarra úr 1.635 krónum
í 1.880 krónur.
Tregari fasteignaviðskipti, færri
flugferðir, afpantanir á hótelum