Morgunblaðið - 15.08.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1982
31
„Elsie og álfadvergurinn" var þessi mynd gjarnan nefnd.
Hundraðstölur svarenda sem telja tilveru:
Huldufólks og álfa Álagabletta
Óhugsanlega 10 5
Ólíklega 18 12
Mögulega 33 35
Líklega 15 21
Vissa 7 16
Hafa enga skoðun 17 11
Taflan sýnir niðurstöður könnunar Erlends Haraldssonar gagnvart álfum og
álagablettum. Sennilegt þykir að hundraðstölurnar gefi hugmynd um viðhorf
íslendinga almennt til þessara mála.
Hin fræga skopmynd Bernard Part-
ridges af hinum aldna Conan Doyle.
Þótt hann sé traustlega hlekkjaður við
hina frægu sögupersónu sína, leyni-
lögreglumanninum Sherlock Holmes, í
augum almennings, er höfuð hans í
skýjum spíritismans.
Kristmann Guðmundsson. Myndin er
tekin um það leyti er hann skrifaði
fyrsta bindi ævisögu sinnar „Isold hin
svarta".
ÁLAGABLETTIR
Samkvæmt könnuninni virðist
trú á álagabletti vera almennari
en álfatrúin. 13 þeirra, sem í úr-
takinu lentu, töldu sig hafa orðið
fyrir erfiðleikum sem þeir álitu að
stöfuðu af raski álagabletta. „í sex
tilvikum hafði hann (álagablettur-
inn) verið sleginn, í fjögur skipti
ruddur eða sprengdur, en í þrjú
skipti virðist hafa verið um aðra
röskun að ræða. Og hvers eðlis
voru erfiðleikar þeir sem svarandi
varð fyrir? í flestum tilvikum var
um missi eigna að ræða, þrír urðu
fyrir veikindum, einn fyrir slysi
sem hann áleit vegna slíkra álaga
og fimm fyrir öðrum erfiðleikum".
Það kemur fyrir að í dagblöðum
birtast fréttir af óhöppum sem
menn rekja til álagabletta. Ein
slík birtist t.d. í Morgunblaðinu 9.
janúar 1977, en fyrirsögn hennar
er: „Búinn að fá mig fullsaddan á
óhöppum tengdum álagablettinum
— Lóð í Ytri-Njarðvíkum skilað
aftur vegna undarlegra óhappa." í
fréttinni segir m.a. „Handhafi lóð-
arinnar, Helgi Sigvaldason, hefur
haft hana í tvö ár, en ávallt þegar
eitthvað átti að fara að vinna í
lóðinni, henti óhapp, slys og fleira
hjá fjölskyldu hans. í samtali við
Morgunblaðið kvaðst Helgi ekki
vilja tjá sig um þá hlið málsins, en
hins vegar sagðist hann hafa farið
að gruna eftir þriðja óhappið að
ekki væri allt með felldu í málinu
og eitthvað engt umræddri lóð.
Við könnun málsins, m.a. á mið-
ilsfundi, kom í ljós að mjög gamall
álagablettur er á lóðinni...
„Mér er ljúft að taka fram,“
sagði Helgi, „að ég hef ekki verið
trúaður á neitt þessu líkt, en eftir
þessá reynslu er ég annarrar skoð-
unar og ég er búinn að fá mig full-
saddan af óhöppum tengdum
álagablettinum. Eg vona að þess-
ari lóð verði ekki úthlutað aftur
nema þá að viðkomandi viti um
forsögu málsins á lóðinni."
ÁLFAUÓSMYNDIR
Sannast sagna hafa vísindin að
mestu látið álfana i friði og hið
sama er að segja um sálarrann-
sóknamenn. Um eitt skeið stóð þó
til að beita þeim fyrir vagn spírit-
ista — þegar mikið fjaðrafok varð
í Bretlandi útaf álfaljósmyndum
sem tvær stúlkur, 10 og 16 ára
gamlar, tóku árið 1917. Varðandi
þetta mál kom Sir Arthur Conan
Doyle, höfundur leynilögreglu-
sagnanna um Sherlock Holmes,
töluvert við sögu, en hann gerðist
á efri árum fanatískur spíritisti
og prédikaði hið nýja fagnaðarer-
indi víða um lönd.
Stúlkurnar, sem myndirnar
tóku, heita Elsie Wright og Franc-
es Griffitns, en þær eru báðar enn
á lífi. Myndirnar tóku þær við læk
skammt frá íbúðarhúsi foreldra
Elsie í Cottingley í Yorkshire.
Fyrsta álfaljósmyndin var tekin í
júní 1917. Elsie hafði fengið
myndavél föður síns að láni til að
taka mynd af Frances frænku
sinni, sem dvaldi hjá þeim. En
þegar faðir hennar framkallaði
myndirnar um kvöldið, varð hon-
um ekki um sel er hann sá hvíta
sveipi birtast kringum stúlkuna á
myndinni — fyrst hélt hann að
þetta væru fuglar, en Elsie, sem
var hjá honum í myrkraherberg-
ir.u, fullyrti strax að það væru álf-
ar. Það kom ekki á óvart, því Elsie
talaði oft um að hún sæi álfa, en
það var ekki tekið alvarlega.
Frances taldi sig líka sjá þá og
höfðu þær báðar mikinn áhuga á
þessu.
Seinna um sumarið fengu þær
myndavélina aftur og tóku þá
fleiri álfamyndir, mun skýrari.
Arthur Wright, faðir Elsie, hafði
stúlkurnar grunaðar um græsku
og neitaði að lána þeim myndavél-
ina aftur. Hann og kona hans leit-
uðu vandlega í svefnherbergi
stúlknanna af afklippum, sem
hugsanlega hefðu gengið af við
fölsun álfanna á myndunum, en
fundu ekkert er vitnaði um svik.
ÁLFAR Á HVERJU STRÁI
Atvikin höguðu því þannig að
álfamyndirnar lentu í höndum Sir
A.C. Doyle, sem sýndi þeim áhuga
vegna þess að hann hafði tekið að
sér að skrifa grein um álfa fyrir
tímarit. Myndirnar voru skýrðar
upp með sérstakri tækni til að álf-
arnir sæjust betur, áður en þær
voru birtar, — en þær þóttu enn
ótrúlegri fyrir bragðið.
Svo virðist sem Sir A.C. Doyle
hafi í fyrstu verið fremur van-
trúaður á þessar myndir. Hann
sýndi þær Sir Oliver Lodge, sem
var einn af frumkvöðlum sálar-
rannsókna og taldi hann myndirn-
ar falsaðar. Doyle vildi þó kanna
málið nánar, og kom því svo fyrir
að stúlkunum voru sendar 20
ljósmyndaplötur og þær hvattar
til að taka fleiri ljósmyndir. Þá
var miðill gerður út á staðinn og
sá hann álf á hverju strái, en
seinna hafa Elsie og Frances við-
urkennt að þær hafi „spilað með
hann“.
Þær Elsie og Frances tóku nú
fleiri álfaljósmyndir og voru þrjár
þeirra mjög skýrar. Viðbrögðin
við þessum nýju myndum voru
svipuð og við þeim fyrri. Flestir
töldu að um falsanir væri að ræða.
Bent var á, að hárgreiðsla og
klæðnaður álfanna væri mjög í
samræmi við „Parísartískuna" og
virtust þeir helst vera klipptir út.
Þær Elsie og F’-ances, sem nú
eru báðar orðnar ömmur, hafa
hins vegar aldrei fengist til að við-
urlenna að um svik hafi verið að
ræða. Elsie hefur sett fram þá til-
gátu að álfarnir á myndunum
gætu hugsanlega verið komnir til
fyrir ímyndun hennar (?) því í
æsku hafi hún hugsað mikið um
álfa og séð þá. Frances tók sterkar
til orða er hún var spurð fyrir
skömmu hvort þær Elsie hefðu
falsað álfaaa. „Auðvitað ekki“,
sagði hún. „Hvernig hefðu við átt
að geta það — munið að við vorum
aðeins krakkar, hún 16 ára og ég
10 ára. Hefðuð þið getað þagað yf-
ir slíku leyndarmáli árum saman
á þeim aldri?“
(Samantekt: — bó)
+
Eiginmaður minn,
MAGNÚS INGIMUNDARSON
frá Bœ, til heimilis að Hagamel 35 Rvik,
lést á Borgarsjúkrahúsinu 13. þessa mánaðar.
Fyrir hönd barna og annarra vandamanna
Borghildur Magnúsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og jarðarför
móöur okkar og tengdamóður,
ELÍNAR BJARNADÓTTUR.
Kristín Jóhannsdóttir,
Pétur Jóhannsson,
Oddbjörg Jóhannsdóttir,
Elín Jóhannsdóttir,
Rafn Hafnfjörð,
Kristín Guðmundsdóttir,
Jón Norömann,
Kristinn Ragnarsson.
+
Þökkum af alhug auösýndan hlýhug, samúö og stuöning veittan
vegna andláts eiginmanns míns, fööur, sonar og bróður,
JÓNS ÞRASTAR HLÍÐBERG.
Arndís Björg Smáradóttir, Smári Jónsson,
Unnur Magnúsdóttir, Haukur Hlíðberg,
systkini og aörir aðstandendur.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR ÞÓRÐARSON,
veggf.meistari,
frá Staöarhrauni,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 16. ágúst, kl.
1.30.
Edda Þórz, Magnús Valdimarsson,
Sif Þórz, Valgarð J. Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Inniiegar þakkir fyrir auösýnda samúð og vinarhug viö andlát og
útför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
HALLDÓRU MARfU ÞORVALDSDÓTTUR,
Túngötu 40, Siglufiröi.
Jónas Tryggvason,
Ásgrímur Pétursson,
Eyrún Pétursdóttir, Þormóður Birgisson,
Þorsteinn Þormóösson, Halldóra María Þormóösdóttir,
systkin hinnar látnu og aörir vandamenn.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför tengdafööur, afa og langafa,
JÓNS JÓHANNESAR ÁRMANNSSONAR,
stýrimanns.
Sérstakar þakkir til hjúkrunar- og starfsfólks DAS aö Hrafnistu.
Guölaug Guömundsdóttir,
Elín Jónsdóttir, Halldór Christensen,
Ármann Jónsson, Anna Benediktsdóttir,
Guömundur Jónsson, Jóna Gróa Siguröardóttir.
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför fööur okkar,
afa og langafa,
KARLSÞORVALDSSONAR,
húsasmíöameistara,
Bergstaöastresti 61.
Þórhildur R. Karlsdóttir,
Karlotta Karlsdóttir,
Magnea Gróa Karlsdóttir,
Þorvaldur Ó. Karlsson,
Magnús Karlsson,
barnabörn
Þorsteinn Sigurösson,
Einar Ásgeirsson,
Erla Jónsdóttir,
Bára Guðmannsdóttir,
og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
móöur okkar og tengdamóöur,
SIGRÍÐAR BJARGAR ÞORSTEINSDÓTTUR,
Hóli viö Raufarhöfn.
Þakkarkort ekki send, en minningargjöf gefin í Orgelsjóö Raufar-
hafnarkirkju.
Þorsteinn Steingrimsson,
Friögeir Steingrímsson,
Þorbjörg Steingrímsdóttir,
Friöný Steingrímsdóttir,
Þóra Steingrímsdóttir,
Guðný Steingrímsdóttir,
og aör
Margrét Eiríksdóttir,
Jónas G. Jónasson,
Lúövík Jónasson,
Þórir H. Ottósson,
Matthías Friöþjófsson,
aöstandendur.