Morgunblaðið - 20.08.1982, Blaðsíða 1
52 SÍÐUR
181. tbl. 69. árg.
FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sl> fordæma ísrael
og viðurkenna PLO
Borgarlíf í Beirút er óðum
að færast í eölilegt horf og
þar sem ísraelskar þotur
stráðu sprengjum yfir auö-
ar götur og torg fyrir réttri
viku eru kaupahéönar nú
komnir á kreik með varn-
ing sinn.
AP-NÍmamynd.
— með 120 atkvæðum gegn tveim-
ur — 20 ríki tóku ekki þátt
New York, Beirút, 19. áftúst. AP.
AUKAFUNDUR allsherjarþings Sam
einuðu þjóAanna samþykkti i kvöld
med 120 atkvæöum gegn tveimur,
ályktun þar sem fsraelar eru for-
dsmdir, um leið og vidurkenndur er
réttur Palestinumanna til sjálfstæðis.
Litið er á úrslit atkvæðagreiðslunnar
sem tímamótasigur fyrir Frelsissam-
tök Palestínumanna, þrátt fyrir það að
fastafulltrúar tuttugu ríkja hafi verið
fjarverandi atkvæðagreiðsluna, þar af
niu af tíu fulltrúum aðildarríkja EBE.
Bandaríkin og ísrael voru einu ríkin
sem greiddu atkvæði gegn ályktun-
inni.
Fyrstu erlendu gæzluliðarnir sem
eiga að fylgjast með brottflutningi
Mikki mús
og félagar
ganga í verka-
lýðsfélag
Flórída, 19. ápíst. AP.
MIKKI mús og Mína mús, Andr-
és önd og allt það lið er komið í
verkalýðsfélag. 97 leikarar, sem
koma fram í gervi þessara sívin-
sælu soguhetja Walt Disneys,
xamþykktu í gær með 45 atkvæð-
um gegn 41 að ganga í verkalýðs-
félag, en einn sat hjá.
Talsmaður þessara launþega
segir að þeir séu orðnir þreytt-
ir á að vera ekki teknir alvar-
lega í kjaramálum, en á næst-
unni verði gengið frá viðamik-
illi kröfugerð. Ekki fylgir sög-
unni hvar Jóakim frændi
stendur í málinu, en grunur
leikur á að hann sé að seilast
til áhrifa í samtökum vinnu-
veitenda.
PLO-liða frá Beirút, eru væntanleg-
ir til borgarinnar á laugardags-
morgun, en þá síödegis hefst flutn-
ingur hinna 7.100 skæruliða frá
borginni. Fyrstu viðkomustaðir
þeirra verða Kýpur og Sýrland, en
þaðan verður þeim dreift víðsvegar
— til Egyptalands, Jórdaníu, íraks,
S-Yemen, Alsír og Túnis. Ætlunin
er að Yasser Arafat fari til Túnis,
þar sem hinar nýju bækistöðvar
PLO-samtakanna verða væntanlega
í húsakynnum Arababandalagsins,
að því er Butros, utanríkisráðherra
Líbanons, greindi frá í dag.
Butros sagði að í næstu viku hæf-
ust viðræður með þátttöku Banda-
ríkjamanna um að Israelar færu al-
farnir frá Líbanon, ásamt öllu er-
lendu herliði, en í landinu er um 30
þúsund manna sýrlenzkt herlið.
Flestir Sýrlendinganna eru í Bekaa-
dalnum, en í Beirút eru þeir um 3
þúsund.
Sjá ennfremur um Líbanonmálið á
bls. 12 og 13:
Pólland:
Lögreglan herðir tökin
aldrei
jafnbág lífskjör“, segir ráðherra
Varsjá, 19. ágúst AP.
IIERSTJÓRNIN i Póllandi hefur enn
hert á ákvæðum þeim er takmarka
rétt þegnanna til að láta í Ijós skoðun
sina á almannafæri, en í dag leysti
lögreglan upp friðsamlegan mótmæla-
fund í miðborg Varsjár með því að
munda vatnsþrýstislöngur og gera sig
líklega til að beita þeim á mannfjöld-
ann. Mótmælendurnir, sem munu
Víkinga-
hátíð
Mikil víkingahá-
tíð stendur fyrir
dyrum í Skot-
landi, en meðal
atriða þar verður
sviðsetning
orrustunnar við
Largs árið 1263,
þar sem Alexand-
er III konungur
rak norsku vik-
ingana af hönd-
um sér og gerði
þá burtræka frá
Skotlandi fyrir
fullt og allt. í
Largs-bardaga
féll llákon gamli.
Myndin var tekin á Trafalgar-torgi i Lundúnum I gær, þar sem vegfarend-
ur fengu forsmekkinn af þvi sem koma skal i Skotlandi dagana 2.—12.
september, en i fararbroddi er Magnús Magnússon, sjónvarpsmaðurinn
góðkunni, sem öðrum fremur hefur hampað víkingum að undanförnu.
AP-aimamynd.
hafa verið um 200 talsins, höfðu safn-
azt saman við blómakross á litlu torgi
sem er i námunda við Sigurtorg, en
þaðan virðist lögreglunni hafa tekizt
að flæma burt þá sem vilja láta i Ijós
andúð sína á framferði herstjórnarinn-
ar.
Samtímis því sem einkennisklætt
yfirvald beitir þannig valdi til að
halda fólkinu í skefjum lýsir verð-
lagsmálaráðherra landsins, Zdzi-
slaw Krasinski, því yfir í sjónvarpi
að rauntekjur landsmanna hafi
rýrnað um 25% sl. sjö mánuði, og að
aldrei frá stríðslokum hafi lífskjör
þjóðarinnar versnað jafnmikið og
um þessar mundir. Ráðherrann seg-
ir aðalástæðuna fyrir síversnandi
ástandi vera þá að skortur á vinnu-
afli verði æ alvarlegri.
Þegar lögreglan hafði bundið
enda á mótmælaaðgerðirnar í dag
voru handteknir fjórir menn, þar af
einn sem hrópaði að lögreglu-
mönnum: „Eruð þið virkilega Pól-
verjar?" I dag voru þuldar í útvarpi
stöðugar aðvaranir til almennings
um að láta áskoranir og leynimakk
óeirðaseggja úr hinni uppleystu
Samstöðu sem vind um eyru þjóta.
Samstaða hefur sem kunnugt er
hvatt til „óvenju áberandi" frið-
samlegra mótmælaaðgerða fram til
31. ágúst, en þá eru tvö ár liðin frá
því að verkalýðshreyfingin fór að
starfa skipulega. Hinn 31. ágúst hef-
ur Samstaða boðað til víðtækra
fjöldaaðgerða.
Iranir gera loft-
árásir á Basra
*
— segja Irakar
Nikósíu, 19. áfpíst, AP.
ÍRANSKAR orrustuþotur gerðu í dag
loftáráxir á héruð, bæði norðan- og
sunnarlega í írak, að sögn hernaðar-
yfirvalda í írak.
í yfirlýsingu íraka segir m.a. að
meðfram landamærunum hafi
komið til mikilla átaka í kjölfar
loftárásanna og hafi íranskt stór-
skotalið gert harða hríð að íbúð-
arhverfum og olíumannvirkjum í
Basra, sem er helzta olíuhafnar-
borg Iraks, en borgin er syðst í
landinu. Segja írakar að í árásun-
um á Basra hafi sex óbreyttir borg-
arar látið lífið og tíu særst.
Sennilegt þykir að með þessu
hafi íranir viljað hefna árása sem
óvinurinn gerði á olíumannvirki
þeirra á Kharg-eyju í fyrradag, en
Iranir hafa hvorki staðfest, né vís-
að á bug yfirlýsingu íraka frá í
dag.
Selja Israelsmenn
PLO-vopn til írans?
Washington, 19. ígúst, AP.
FRÉTTABRÉFIÐ Aerospace Daily í
Waxhington segir frá því í dag að
þessa dagana selji ísraelsmenn í
stórum stíl til írans þau vopn, sem
þeir hafi náð af PLO-mönnum i
Beirút að undanfórnu.
Frétt þessi er höfð eftir
ónafngreindum heimildarmanni
innan bandarísku leyniþjónust-
unnar, en sá telur að ísraelsmenn
séu þeirrar skoðunar að íranir
muni, áður en langt um líður,
gegna mikilvægu pólitísku hlut-
verki í Miðausturlöndum. Bendi
Israelsmenn á að Iranir séu ekki
af hinum arabíska kynþætti og
því séu þeir líklegustu banda-
mennirnir í þessum heimshluta,
auk þess sem eðlilegt sé að ísra-
elsmenn útvegi vopn til að tryggja
öryggi þeirra Gyðinga sem
búsettir séu í íran.