Morgunblaðið - 20.08.1982, Blaðsíða 27
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1982
27
Mac Wilkins i Reykjaviknrleilninnm um irið.
Mac Wilkins nálgast
toppinn á nýjan leik
Mac Wilkins, fyrrum heimsmet-
hafi í kringlukasti, sem keppti i
Reykjavíkurleikunum í frjilsum
fyrir fium árum, er á mikilli uppleið
á nýjan leik. Hann sigraði í vikunni í
kringlukasti á móti einu miklu sem
haldið var i Ziirich i Sviss. Wilkins
kastaði kringlunni 68 metra slétta,
en næsti maður kastaði henni 67,84
metra. Það var landi Wilkins, John
Powell. Art Burn, einnig fri Banda-
ríkjunum, varð þriðji með 66,68
metra kast.
Dave Laut, sem verið hefur afar
sigursæll i kúluvarpinu á þessu
ári, sigraði í greininni, varpaði
21,44 metra. Hann var eini kepp-
andinn sem fór yfir 20 metra, en
næsti maður var Dean Crauser
sem varpaði kúlunni 19,88 metra.
Þá náðist afar góður árangur í
stangarstökkinu, Bandaríkjamað-
urinn Bill Olson vippaði sér yfir
5,70 metra og sigraði, en annar
varð Júrgen Winkler frá Vestur-
Þýskalandi sem fór yfir 5,60
metra.
Coe sigraði glæsilega í
800 metrunum í Zurich
HINN vinsæli millivegalengda-
hlaupari Sebastian Coe frá Bretlandi
kom, sá og sigraði á miklu frjils-
íþróttamóti sem fram hefur farið I
Ziirich síðustu dagana. Coe keppti i
fyrsta skipti opinberlega í meira en
átta vikur, en hann hefur itt við
meiðsli að stríða. Coe sigraði sem sé
í 800 metra hlaupinu og náði næst-
besta tíma sem náðst hefur í grein-
inni. Hann haföi sig litt í frammi
fyrstu 700 metrana, hélt þó í við
fremstu menn. En þegar 100 metrar
voru til stefnu tók kappinn mikinn
sprett og hristi af sér keppinautana.
Tími Coes var 1:44,78, aðeins
0,33 úr sekúndu lakari tími en hjá
Steve Cram, landa Coes, sem á enn
besta tímann í þessari grein á
þessu ári. Detlev Wagenknecht
var annar á 1:45,02 og þriðji varð
James Robinson frá Bandaríkjun-
um á 1:45,06.
Sebastian Coe
Hörkukeppni hjá börnunum
NEÐANTALDIR urðu Reykjavík-
urmeistarar á Reykjavíkurmóti
barnanna 1982. Keppendur voru 413
og luku allir keppni. Áhorfendur
voru rúmlega 3.000.
Snú-snú (yngri)
1. Margrét Valdimarsdóttir
Snú-snú (eldri)
1. Dögg Ármannsdóttir
Sippa (yngri)
1. Laufey Erlendsdóttir
Sippa (eldri)
1. Margrét Árnadóttir
Húla (yngri)
1. Steinunn Blöndal
Húla (eldri)
1. Steinunn Geirsdóttir Waage
100 m hlaup (yngri)
1. Jón Ó. Valdimarsson
100 m hlaup (eldri)
1. Jakob Aðils
Kassabilarallý (yngri)
1. Birgir Árnason og félagi
Kassabílarallý (eldri)
1. Pétur Hannesson og félagi
Skalla bolta á milli (yngri)
1. Sigurður Kári Kristjánsson
1. Geir Sigurður Jónsson
Skalla bolta á milli (eldri)
1. Hilmar Þór Hákonarson
1. Hallgrímur Jónsson
Hitta bolta í mark (yngri)
1. Halldór I. Gylfason
Hitta bolta i mark (eldri)
1. Guðmundur Árni Sigfússon
Halda bolta á lofti (yngri)
1. Geir Sigurður Jónsson
Halda bolta á lofti (eldri)
1. Hilmar Þór Hákonarson
Reiðhjólakvartmíla (yngri)
1. Steingrímur Bjarnason
Reiðhjólakvartmíla (eldri)
1. Garðar Garðarsson
Útsölumörk en jafn-
tefli vel við hæfi
TVÖ mörk af ódýrari gerðinni voru
uppskeran í sanngjörnu jafntefli Ak-
urnesinga og KR-inga i 1. deild ís-
landsmótsins í knattspyrnu er liðin
mættust i Akranesi í gærkvöld. Úr-
slitin, 1—1, í leik þar sem norðan-
garri þvert á leikvöllinn gerði leik-
mönnum lífið leitt, voru vel við hæfi.
KR-ingar voru heldur meira með
boltann, þökk sé sterkum tengilið-
um, en sem fyrr vantaði flest það,
sem flokka má undir tækifærasköp-
un. Skagamenn ollu heimamönnum
vonbrigðum rétt eina ferðina og all-
ar vonir þeirra um meistaratitil
hljóta nú að vera foknar út í veður
og vind. KR-ingar eru hins vegar
með UEFA-sætið í augsýn og ef rétt
er haldið á spilunum á KR að leika í
Evrópukeppni næsta haust í fyrsta
sinn síðan 1969.
Skagamenn fengu óskabyrjun í
leiknum. Eftir aðeins 11 mínútna
leik náðu þeir forystu, en markið
verður líkast til aldrei talið til
glæsimarka. Eftir mikinn darrað-
ardans í markteig KR, þar sem
margir voru á þeirri skoðun að
vítaspyrnu hefði verið sleppt,
a.m.k. einu sinni, var boltinn á leið
í KR-markið þegar einn varnar-
manna hugðist spyrna duglega frá
marki. Til allrar ólukku tókst ekki
betur til en svo, að skot hans small
í brjósti Sigþórs Ómarssonar og
þaðan fór boltinn í netið. Slysa-
mark.
Eftir markið dofnaði mjög yfir
Skagamönnum og KR-ingar tóku
leikinn smám saman í sínar hend-
ur. Færi fengu þeir þó ekki fyrr en
á 39. mín., en Sæbjörn hitti þá
ekki boltann í upplögðu færi. Rétt
á eftir mátti Halldór Pálsson taka
fram sparihanskana til að slá skot
Sigurðar Jónssonar yfir þverslá.
Síðari hálfleikurinn var ekki
nema mínútu gamall þegar KR
jafnaði metin. Eftir aukaspyrnu
Hálfdánar skallaði Jósteinn
áfram inn í teiginn. Þar stökk Ág-
úst Jónsson manna hæst og skall-
aði að marki. Guðjón Þórðarson
ÍA:KR 1 1:1
m
Elías (íuðmundsson lék vel I liði
KR.
LIÐ ÍA:
I)avíð Kristjánsson 6
Guðjón Þórðarson 5
Jón Áskelsson 5
Jón Gunnlaugsson 6
Sigurður Lárusson 6
Sigurður Jónsson 7
Sveinbjörn Hákonarson 5
Árni Sveinsson 6
Kristján Olgeirsson 6
Július P. Ingólfsson 5
Sigþór Omarsson 7
Björn H. Björnsson vm. lék of stutt
Guðbjörn Tryggvason vm. lék of stutt
virtist hafa alla burði til að forða
marki, en „fraus" á línunni og
jöfnunarmarkið var staðreynd.
Eftir markið færðist mikið kapp
í Vesturbæingana, en ekki tókst
þeim að skapa sér nein færi fyrr
en á 76. mínútu. Þá var réttilega
dæmt af þeim mark. Áður höfðu"
Skagamenn tvívegis komist nærri
því að skora. Fyrst átti Sigurður
Jónsson góðan skalla, sem var var-
inn af Halldóri og síðan tókst
Jósteini að komast fyrir Sigþór
áður en hann hleypti af. Þar með
voru minnispunktarnir upptaldir.
Enn eitt jafntefli 1. deildar, það
níunda hjá KR í sumar, var því
staðreynd. KR sýndi það þó í þess-
um leik, að liðið er á réttri leið og
endurkoma Elíasar styrkir það
mikið. Tríóið örvfætta, Elías, Sæ-
björn og Hálfdán, voru bestu
menn KR ásamt Jósteini. Hjá
Skagamönnum var Sigurður
Jónsson bestur ásamt Sigþóri.
Magnús Pétursson dæmdi í
gærkvöld sinn síðasta leik á Akra-
nesi. Var hann leystur út með
blómum, en eitthvað fóru þau illa
í hann. Vafalítið gerir hann sér
manna best grein fyrir því sjálfur,
að þetta var ekki einn af hans
bestu dögum.
LH) KR:
Ilalldór Pálsson 6
Guójón Hilmarsson 6
Ottó Guðmundsson 6
Jósteinn Einarsson 7
Jakob Pétursson 5
Ágúst Jónsson 6
Sæbjörn Guðmundsson 7
Hálfdán Örlygsson 7
Magnús Jónsson 5
Elias Guðmundsson 7
Birgir Guðjónsson 5
— SSv.
Elnkunnaglöfln
Ennþá gerast ævintýr!
ENSKI knattspyrnumaðurinn Kevin
Keegan kom heldur betur á óvart i
gær er hann gerði samning við
enska 2. deildarliðið Newcastle.
Keegan var með liði sínu, South-
ampton, í æfingaferð i Hollandi, og
flaug hann þaðan beint til New-
castle í gær.
Keegan er nú orðinn 31 árs og
átti hann eitt ár eftir af samningi
sínum við Southampton. Gekk
hann undir læknisskoðun í New-
castle í gær og hripaði síðan undir
samninginn. Kaupverðið var al-
gjör tombóluprís, aðeins 100.000
pund, en það segir aldeilis ekki
alla söguna. Hann fór nefnilega
fram á 4.000 pund í vikulaun, en
það eru um 84.000 krónur. Erfitt
er að ímynda sér hvernig New-
castle kemur til með að hafa efni á
slíkum fjárútlátum, þar sem
Manchester United, sem einnig
hafði áhuga á kappanum, tók ekki
í mál að greiða honum slíka upp-
hæð og hætti við allt saman.
Keegan hafði 75.000 pund í árs-
laun hjá Southampton, en kemur
nú til með að hafa rúmlega helm-
ingi meira, eða um 210.000 pund,
eða mjög svipað og hann fór fram
á við United. Keegan útskýrði fé-
lagaskipti sín á þann hátt að hann
þyrfti eitthvað nýtt að keppa að.
Er erfitt að ímynda sér hvers
vegna hann valdi Newcastle til
þess og ekki er ólíklegt (öllu held-
ur mætti telja öruggt) að peningar
hafi ráðið ferðinni. Peter Shilton
er nú kominn til Southampton, og
gæti liðið því í fyrsta skipti komið
verulega sterkiega til greina sem
meistari.
- SN.
Unglingagolf
á Hvaleyrinni
G.P. Þormar-unglingakeppnin í golfi
fer fram á Hvaleyrarholtsvelli á
morgun og hefst kl. 10.00. Er keppn-
in fyrir 16 ára og yngri.
Leiknar verða 18 holur, með og
án forgjafar, og verður keppnin,
eða a.m.k. einhver hluti hennar,
tekinn upp á myndband og sýndur
keppendum.