Morgunblaðið - 20.08.1982, Blaðsíða 20
20
1500 km rallkeppnin á að hefjast í dag:
Ljómarall ’82,
ein erfiðasta
rallkeppni Evrópu
KIN erfiAasta rallkeppni Evrópu, Ljómarall ’82, átti aó hefjast
klukkan sex í murgun. 15 keppendur voru skráðir til leiks og þar
af fjórir ítalskir keppendur. Ljómarallið er alþjóðleg keppni, sem
gefur stig til íslandsmeistara, en staðan í íslandsmcistarakeppn-
inni er mjug jöfn. í tengslum við rallið verður upplýsingamiðstöð
að Ilótel Loftleiðum. I'aðan áttu keppendur að halda af stað
klukkan sex í morgun og Albert
keppendur af stað.
Það verður erfiður dagur fyrir
keppendur í dag. Áætlað er að
aka 14 sérleiðir og þar á meðal
Kjalve}; fram og til baka. Kjölur
mun væntanlena reynast mörK-
um erfiður ofj kæmi ekki á óvart
að nokkrir keppnisbílanna féllu
úr á þeirri leið, en leiðinni verð-
ur skipt niður í fjóra leiðarhluta.
Allar nánari upplýsingar um
keppnisleiðina og refsitíma á
sérleiðum fást á Hótel Loftleið-
um. Þar fæst jafnframt áhorf-
endaleiðarbók, sem sýnir m.a. á
hvaða tíma bílarnir eru ræstir
inná sérleiðirnar. I heild er áætl-
að að Ljómarallið verði rúmir
1500 km ok tæpur helminfíur
sérleiðir. Keppnisbílarnir koma í
bæinn í kvöld um ellefu leytið or
lefjKja síðan af stað strax klukk-
an sex í fyrramálið. Munu því
viðfjerðarmenn standa í strönfíu
í nótt of< næstu nætur, verður
keppnin ekki síður erfið fyrir þá
en ökumenn. Þurfa flestir þeirra
að vaka í nær þrjá sólarhringa.
Italskir kvikmyndatökumenn
munu fylgjast með Ljómarallinu
og er ætlun þeirra að gera þátt
um það, sem sýndur verður í ít-
alska sjónvarpinu. Enskur
blaðamaður var væntanlegur til
landsins til að fylgjast með rall-
inu. Heitir hann Hugh Bishop og
er þekktur um allan heim fyrir
skrif og myndir um rallakstur.
Má búast við því að það komi
íslandi til góða í framtíðinni að
Bishop kemur, en það er undir
því komið hvort rallið heppnast
vel. Er ekki ólíklegt talið að það
muni hafa áhrif á hvort íslenska
alþjóðarallið geti orðið liður í
Evrópu eða Heimsmeistara-
keppninni í rallakstri.
Slaðan í Islandsmeistara-
keppninni í rallakstri
, . stig
1. Óskar Ólafsson 27
2. Omar Ragnarsson 20
Hafsteinn Aðalsteinsson 20
4. Birgir Bragason 15
5. Logi Einarsson 13
6. Ævar Hjartarsson 12
7. Matthías Sverrisson 12
Bragi Guðmundsson 10
9. Jóhann Hlöðversson 8
luðmundsson alþm. átti að ræsa
LJOMAi
1#RALLy82v3|
óvart að ítalarnir stæðu sig vel,
því velflestir íslensku ökumann-
anna stefna á sigur, sem gæti
leitt til þess að afföll verði mikil.
Fyrsti dagurinn skiptir miklu
máli í rallinu. Þó svo að öku-
menn hafi í spjalli við Morgun-
blaðið sagst ætla að aka rólega
fyrsta daginn, þá er ólíklegt að
svo verði. Ef einhver slakar á í
byrjun þá er hætta á að sá hinn
sami dragist það langt aftur úr
að ekki reynist unnt að vinna
upp tímann á næstu tveimur
dögum keppninnar. Líklegt er að
Hafsteinn Hauksson og Jóhann
Hlöðversson muni pressa upp
hraðann, sem aðrir verða síðan
að fylgja, ef þeir ætla að halda í
möguleikann á toppsæti. Hins-
vegar eru svo margir góðir öku-
menn og bílar að í rauninni er
ómögulegt að segja hver kemur
til með að ná forystu, en ofan-
taldir ökumenn eru mjög líkleg-
ir.
Spurning sem brennur á allra
vörum er hvað ítölunum takist
að sýna, fæstir íslensku öku-
mannanna hafa trú á að þeir
velgi landanum undir uggum.
Búnaður Opel bíla þeirra er
hinsvegar mjög góður og eru
þeir með kraftmestu bílum
keppninnar. Það má því segja að
það sé undir hæfni ökumanna og
vilja komið hvar þeir lenda, en
útbúnaðinn hafa þeir sannar-
lega. Eggert Sveinbjörnsson á
ágæta möguleika á að blanda sér
í toppbaráttuna og einnig þeir
Birgir Bragason og Bragi Guð-
mundsson, sem báðir eru færir
ökumenn. En ef bílarnir setja
strik í reikninginn gætu t.d.
Óskar Ólafsson eða Þorsteinn
Ingason náð góðri stöðu á fyrsta
degi. Enn er eftir að telja öku-
mennina Birgi Vagnsson, Ævar
S. Hjartarsson og Eirík Frið-
riksson. Þeir eru ekki á nægilega
vel búnum bílum til að ógna
verulega toppunum, a.m.k. ekki á
Rásröð keppenda í Ljómaralli
1. Mario Cavalleri/ Snadro Cavalleri, Opel Kadett.
2. Ómar Ragnarsson/Jón Ragnarsson, BMW 315.
3. Aldo Pereno/ Franco D’Angelo, Ford Escort RS 2000.
4. Aldo Pereno/ Franco D’Angelo, Opel Kadett.
5. Bruno Penna/ Gianfranco Brizio, Opel Ascona.
6. Cesare Giraudo/ Edue Magnano, Opel Kadett.
7. Birgir Bragason/ Magnús Árnarsson, Skoda 130 RS.
8. Flggert Sveinbjörnss./ Guðmundur Guðjónsson, Ford Escort 1600.
9. Jóhann Hlöðversson/ Jóhann S. Helgason, Ford Escort 2000.
11. Bragi Guðmundsson/ Bjarni Haraldsson, Lancer 1600.
12. Þorsteinn Ingason/ Sighvatur Sigurðsson, BMW 2002.
13. Eiríkur Friðriksson/ Halldór Sigdórsson, Ford Escort 1600.
15. Birgir Vagnsson/ Hreinn Vagnsson, Ford Cortina 2000.
16. Ævar S. Hjartarsson/ Bergsveinn J. Ólafsson, Lada 1500.
17. Óskar Ólafsson/ Árni Óli Friðriksson, Ford Escort 2000.
Tveir keppendur, sem til- fyrsta degi. Öllum keppnisbílum
kynntu þátttöku munu ekki í Ljómaralli er búið að breyta og
hefja keppni. Bíll númer 10. Úlf-
ar Hinriksson á Suzuki Alto og
bíll númer 13. Auðunn Þorst-
einsson á Escort 1300. Þessir
keppendur hafa þegar verið
teknir út af ráslistanum að ofan.
Það er ljóst að um hörku-
keppni verður að ræða í Ljóma-
rallinu. Nær allir keppendur
eiga möguleika á verðlaunasæti í
keppninni. Það kæmi ekki á
bæta að einhverju leyti og er
engin „standardbíll" meðal
þeirra. Við skulum Ijúka þessu
spjalli á orðum föður Ómars og
Jóns Ragnarssona, Ragnari Eð-
valdssyni: „Þetta verður hörku-
keppni. Það er ekki hægt að bóka
neinn sigurvegara fyrirfram.
Það er víst best að fylgjast með
þessu."
G.R.
Óskar Ólafsson og Árni Óli Friðriksson viö rallbíl sinn
„Stefnum á íslands-
meistaratitilinn“
RALLKAPPARNIR Óskar Ólafs-
son og Árni Óli Friðriksson hafa
slegið við sér reyndari mönnum á
þessu ári. Þcir félagar hafa á sínu
fyrsta ári i keppni i rallakstri náð
forystu í íslandsmeistarakeppn-
inni. Eru þeir með töluverða for-
ystu á þá Omar og Jón Ragnars-
syni ásamt Hafsteini Aðalsteins-
syni og Birgi V. Halldórssyni. Það
var því vel við hæfi að spjalla við
þá félaga.
„Við ætlum að reyna að hanga
í toppunum. Það hefur gefið
góða raun hingað til. Við reynum
að þrýsta örlítið á þá, sem verða
í efstu sætunum, en aðalmálið er
að Ijúka keppninni," sagði Árni
Óli.
— Er ekki mikill kostnaður
samfara rallinu?
„Jú, við verðum með þrjá við-
gerðarbíla og sex viðgerðar-
menn. Ef bensín og annað er tek-
ið með þá kostar hvert rall um
30.000 krónur. Smíði bílsins
kostaði 100.000 krónur og er þá
kaupverð bílsins tekið með,“
svöruðu þeir Árni og Óskar.
— Þið hafið náð góðum árangri
á árinu, kemur hann ykkur á
óvart?
„Já, við erum mjög hissa. Að
vissu leyti er þetta ekkert annað
en heppni. Við höfum stefnt að
því að ljúka keppni hingað til og
gerum það áfram. Hinsvegar
stefna margir ökumenn ætíð á
verðlaunasæti og hver toppöku
maðurinn dettur úr af öðrum,
sem skilur eftir autt sæti fyrir
okkur. Við ökum eftir okkar
getu, en ekki annarra og það hef-
ur gefið góða raun,“ sögðu Óskar
og Árni að lokum.
Líklegt má telja að þeir félag-
ar nái langt, því í Ljómarallinu
stefna mjög margir á verðlauna-
sæti, sem þýðir að afföll verða að
öllum líkindum mikil. Afstaða
þeirra Óskars og Árna er því
hárrétt og hefur leitt til forystu
þeirra í íslandsmeistara-
keppninni, sem þeir hyggjast
halda með þessu móti.
„Líkamlegt erfiði að
keppa í rallakstri“
Jóhann Hlöðversson og Jóhann S. Helgason.
„DRAIIMIIRINN er að ná verð-
launasæti, en ég geri mig ánægðan
með 1.—5. sæti í keppninni, alls
ekki ncðar,“ sagði Jóhann Hlöð-
vcrsson í spjalli við Morgunblaðið
um Ljómarallið. Hann ekur Ford
Excorl 2000, sem telst með betur
búnum bílum hér á landi og þegar
blm. spjallaði við Jóhann var verið
að koma fyrir betri demparabún-
aði.
Aðstoðarökumaður Jóhanns er
Jóhann S. Helgason, en þeir hafa
staðið nokkuð vel að vígi í röllum
til þessa. „Við erum með verr bú-
inn bíl, en margir, en við reynum
allt hvað við getum til að vera í
toppbaráttunni. ítalina ætlum
við að taka, og verður væntan-
lega erfitt fyrir þá að vinna ís-
lendingana," sagði Jóhann þegar
hann var spurður hvort bíll hans
byði upp á akstur til sigurs.
„Fyrsta daginn tökum við ró-
lega, en stöndum hann annan og
þriðja daginn. Vegna þess
hversu bíllinn er kraftmikill
þarf ég ekki að taka áhættur yfir
hæðir og í erfiðum beygjum,
beinu kaflarnir munu bæta það
upp.“
„Hvað er það sem gefur rallinu
gildi?“
„Maður fær svona „smá kick“,
sagði Jóhann alsæll á svipinn,
„þetta er alveg sérstök utrás. Ég
veit ekki, þetta er algjör vit-
leysa, þetta er gaman, undirbún-
ingurinn er rosalegur og þú
kynnist mörgum."
„Er þetta likamlegt og andlegt
erfiði?"
„Já, rallakstur er líkamleg
áreynsla, ef svo má segja. Þreyta
segir til sín á löngum leiðum. í
byrjun keppni er ég alltaf
spenntur, en þegar undir stýri er
komið hverfur spennan. Undir
stýri líður mér eins og heima í
stofu."
„Bitnar þetta áhugamál á fjöl-
skyldulífinu?"
„Ef það fer að bitna verulega á
fjölskyldunni, þá hætti ég.
Áhugamál mega ekki koma
niður á fjölskyldunni, fyrr hætti
ég.“
„Hvaða aðferðum ætlar þú að
beita til að ná verðlaunasæti í
Ljómarallinu?"
„Hugsanlega að aka upp á
áföll annarra með því að aka ró-
lega á fyrsta degi. Baráttan
verður hvað hörðust í byrjun,
það hefur sýnt sig hingað til,“
sagði Jóhann að lokum.
Þess má geta að Jóhann
hyggst fara til útlanda í vetur og
kaupa tilbúinn rallbíl í Eng-
landi. Telur hann ódýrara að
gera slíkt en að standa í smíði
bíla hérlendis, sem er gífurlega
kostnaðarsamt.