Morgunblaðið - 20.08.1982, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 20. AGUST 1982
Sterkasta
háfjallaskákmótið
Á háfjallahólcli í Gausdal í Nor-
egi eru árlega haldin stcrk opin
skákmót. Ilótel þetta er eitt vin-
sælasta skíóahótel Norómanna á
veturna, en er snjóinn tekur aó
létta og skíðaáhugamönnum fækk-
ar reyna eigendur hótelsins að
hcina vióskiptum sínum á aóra
braut, meðal annars í skákmóta-
hald. Og ekki ber á öðru en allir
séu ánægóir meó þetta fyrirkomu-
lag, því mótið var nú haldió tíunda
árió í röó, dagana 7.—15. ágúst sl.
Að sögn kunnugra var mótið
nú það sterkasta sem haldið hef-
ur verið í Gausdal með sex
stórmeisturum og sextán alþjóð-
legum meisturum meðal kepp-
enda sem voru 56, m.a. fjórir Is-
lendingar, þeir Jón L. Arnason,
sem kom beint frá móti í Sviss,
Helgi Ólafsson, Elvar Guð-
mundsson og Karl Þorsteins, en
við tveir síðarnefndu tefldum á
unglingamóti á sama stað á und-
an þessu móti og vorum því
ágætlega undirbúnir fyrir kom-
andi átök.
Mótið byrjaði þó fullrólega
fyrir okkur. Jón mætti sárþjáður
í fycstu umferð og gerði stutt
jafntefli og á sömu lund fór í
skákum okkar Hplga eftir meiri
baráttu, en Elvar mátti lúta í
lægra haldi fyrir Tisdall frá
Bandaríkjunum og síðan fyrir
Tiller í annarri umferð. Þá fékk
hann góðan byr og vann næstu
þrjár skákir m.a. gegn Iskov frá
Danmörku. En þá sneru heilla-
dísirnar við honum bakinu.
Fyrst lék hann gróflega af sér í
40. leik gegn mun veikari manni
og síðan skildi hann drottning-
una eftir í uppnámi gegn Akeson
frá Svíþjóð í gjörunninni stöðu
og í tímahraki andstæðingsins.
Hann mátti því láta sér lynda
fjóra vinninga en verðskuldaði
mun meira.
Helgi sigraði Burger, sem við
Islendingar þekkjum frá síðasta
Reykjavíkurskákmóti, í annarri
umferð, en fór þá að reykja frið-
arpípur af fullmiklum móð og
vann aðeins eina skák og tapaði
einni í næstu sjö skákum. Þess
má þó geta að andstæðingar
Helga virtust oft gera sér jafn-
tefli að góðu og er oft erfitt að
tefla undir þeim kringumstæð-
um.
Jón var greinilega í ágætri æf-
ingu er mótið fór fram, og var
svo komið að loknum sex um-
ferðum að stórmeistaraáfangi
var ekki svo ýkja fjarlægur
draumur. En þá tapaði hann
fyrir Tisdall og gerði síðan að-
eins tvö stutt jafntefli í síðustu
umferðunum. Hlaut hann því
ásamt Helga fimm vinninga á
mótinu.
Ég byrjaði ágætlega á mótinu
og hafði hlotið 4 vinnigna að 6
umferðum loknum. Þarfnaðist
ég því aðeins tveggja vinninga úr
þrem síðustu umferðunum til að
hljóta áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli. En þá kom slæmt
tap fyrir Defirmian og með jafn-
tefli í næstsíðustu umferð hurfu
möguleikar mínir að sinni. Mér
M T:11
Karl Þorsteins
tókst þó að sigra í síðustu um-
ferð og hlaut því 5'/2 vinning,
sem ég tel ég megi ágætlega við
una auk þess sem ég hlaut
áfanga að Fide-meistara.
Sigurvegarinn á mótinu varð
Dlugy frá Bandaríkjunum með 7
vinninga af 9 mögulegum og kom
þessi sigur mjög á óvart því
hann er aðeins sextán ára gam-
all. Hann tefldi þó af öryggi og
var vel að sigrinum kominn. I
2.-4. sæti urðu þeir Wedberg
(Svíþjóð), Tisdall (Bandaríkjun-
um) og D. Cramling (Svíþjóð)
með 6'/fe vinning. Wedberg tókst
að komast við hlið þeirra með
góðum endaspretti, en Tisdall og
Cramling voru allan tímann á
toppnum. Annars varð staða
efstu manna þessi:
1 Dlugy, Bandaríkjunum, 7 af
9 mögulegum.
2—4 Tisdall, Bandaríkjunum, 6
v. af 9.
D. Cramling, Svíþjóð, 6 v.
Wedberg, Svíþjóð, 6 v.
5—7 Morris, Bandaríkjunum, 6
v.
Rantanen, Finnlandi, 6 v.
Kudrin, Bandaríkjunum, 6
v.
8—13 Karl Þorsteins, 5*/i v.
14—? Jón L. Árnason, 5 v.
Helgi Ólafsson, 5 v.
Elvar Guðmundsson, 4 v.
Að lokum kemur skák mín úr
fimmtu umferð gegn norska al-
þjóðlega meistaranum A.V.
Gulbrandsen.
Hvítt: Arne V. Gulbrandsen
Svart: Karl Þorsteins
Pirc-vörn
1. e4 — g6, 2. d4 - Bg7, 3. Rf3 —
d6, 4. Rc3 — Rf6, 5. Bc4 — Rc6! 6.
d5?!
Eðlilegra var að leika 6. De2
eða einfaldlega hróka.
6. — Ra5
Líklega betri leikur en 6. —
Rb8, því riddarinn stendur ágæt-
lega á a5.
7. Be2 — c5, 8. h3
Stutt hrókun kom einnig til
greina.
8. — 0-0, 9. Bf4 — a6
9. — Rd7 kom einnig til greina
með hugmyndinni að hindra
næsta leik hvíts.
10. e5!? — dxe5, 11. Rxe5 — e6,
12. d6?
Þetta peð verður aðeins veikt í
framhaldinu og tapast raunar að
lokum. Betra var því að leika 12.
Bf3 eða 12. dxe6 með jafnri
stöðu.
12. — Rfd7, 13. Rf3 - Rc6
Svartur er líklega nú þegar
kominn með betri stöðu. Hvítur
sér að hann er að verða undir í
baráttunni og hyggur því á
kóngssókn, en hefði betur leikið
fyrst 14. Dd2, 15. 0-0-0 og síðan
h2-h4.
14. h4?! — I)b6!
Nú á hvitur vart lengur mögu-
leika á að langhróka og tekst því
aldrei að tengja lið sitt saman til
sóknar.
15. Hbl
15. Dcl var betra.
15. — Rd4, 16. h5
16. Re4 strandar á 16. — Dc6,
t.d. 17. Bd3 - c4, eða 17. Dd3 -
e5,18. Be3 — c4.
16. — e5, 17. Be3 — Dxd6, 18.
hxg6 — hxg6, 19. Kfl
Undarlegur leikur, en góðir
leikir lágu ekki á lausu.
19. — Rf6, 20. Rg5 — Bf5.
Svarta staðan er nú gjörunnin,
auk þess sem hvítur átti aðeins
örfáar mínútur eftir á klukk-
unni.
21. Hcl — HadS, 22. f3 — Dc6! 23.
Bd3
Hvað annað? Svartur hótar að
drepa á c2 eða f3.
23. — Rxc2!
Nú hefði hvítur átt að gefast
upp, en hann teflir áfram nokkra
leiki vegna tímahraksins.
24. Bxc2 — Hxdl + , 25. Bxdl —
b5, 26. Be2 — c4,27. Kf2 — e4! 28.
b3? — exf3, 29. gxf3 — He8, 30.
bxc4 — Hxe3!
Einfaldast. Nú er orðið
skammt í vinninginn.
31. Kxe3 — Dc5+, 32. Kd2 —
Dd4+, 33. Kel — De3 og hvítur
gafst upp.
Aldraðir fá Óskarinn
Kvikmyndir
Ólafur M. Jóhannesson
ALDRADIR FÁ ÓSKARINN
Nafn á frummáli: On Golden
Pond.
Sýningarstaður: Regnboginn.
Kvikmyndun: Billy Williams.
Tónlist: Dave Grusin.
Leikstjórn: Mark Rydel.
Handrit: Ernest Thompson.
Þá er að liðka fingurna eftir
sumarleyfið og mæla einhverja
speki um það myndastóð sem
fyrir ber í hinum fjölmörgu
kvikmyndasölum vorrar ágætu
borgar. Það er mér sérstök
ánægja að hefja fingraleikfim-
ina á umfjöllun um nýjustu
kvikmynd Regnbogans „On
Golden Pond“ sem í prógramm-
inu heitir reyndar „Síðsumar" en
ég vil nefna “Við Lómagnúp"
(l,ómar leika nefnilega stórt
hlutverk í myndinni eins og síð-
ar verður vikið að). En hvað er
það þá sem vekur kæti kvik-
myndagagnrýnisins þessa stund-
ina í A-sal Regnbogans? í fyrsta
lagi kemur myndin á óvart. Ég
hafði búist við hreinræktaðri
vasaklútamynd sem vonandi
endaði á einhverju hressilegu
rétt fyrir hlé og svona undir lok-
in svo kartmennskan yrði ekki
fyrir álitshnekki. Það er nú
eitthvað annað.
„Við Lómagnúp" er bráðfynd-
in mynd sem að vísu hreyfir við
tárapokunum stöku sinnum,
(sessunauturinn tók grunsam-
lega oft ofan gleraugun) — en
flýtur yfir táradalina á mein-
fyndnum athugasemdum Henry
Fonda, sem hér er í hlutverki
prófessors á eftirlaunum. Er dá-
lítið kostulegt að fylgjast með
stirðlegu sambandi hins aldraða
prófessors við sína nánustu sem
reyna eftir föngum að gera hon-
um allt til geðs á áttræðisafmæl-
inu sem haldið er hátíðlegt í
sumarbústaðnum við Lómagnúp.
Hér eru við reyndar komin að
öðru atriði sem vakti kæti
kvikmyndaskríbentsins. Hvílík
tilbreyting að sjá loksins á hvíta
tjaldinu ástfangna öldunga.
(Hingað til hafa undurfögur
ungmenni nánast haft einkarétt
á að njóta ásta í kvikmynd, ekki
satt?) I myndinni er sum sé
greint frá þeirri ást sem hinn
aldni prófessor ber til konu sinn-
ar sem Katharine Hepburn leik-
ur og dótturinnar Jane Fonda.
Ég sagði áðan að samband
prófessorsins við fjölskyldumeð-
limina væri stirt. Það má til
sanns vegar færa. Ekki vegna
þess að kulnuð sé glóðin i hjarta
öldungsins og því oft kaldar
kveðjurnar til heimilisfólksins.
Ástæðan er miklu fremur að
gamli maðurinn kann ekki að
búa tilfinningum sínum réttan
búning í formi vinsamlegrar orð-
ræðu. Hann veit sem er að hver
stund er dýrmæt, því hann heyr-
ir Ijá sláttumannsins mikla
skera sefið á tjörninni fyrir
framan sumarbústaðinn, og þeg-
ar þannig stendur á verður
tilfinningasöm orðræða hvim-
leið.
Þá er komið að þriðja atriðinu
sem gerir myndina áhugaverða.
Svo skemmtilega vill til að
Katharine Hej)burn og Henry
Fonda hlutu Óskarsverðlaunin
fyrir þessa mynd. Þar sem hún
fjallar um síðasta spölinn í lífs-
hlaupi tveggja mannvera má
eins segja að þeir í Hollywood
hafi með verðlaunaveitingunni
vilja leggja sitt af mörkum á ári
aldraðra. En þau Fonda og Hep-
burn hlutu ekki bara Óskarinn
vegna aldurs, leikur þeirra er
næsta óþvingaður og stendur
síst að baki leiks yngri
verðlaunahafa. Ætti að sýna
mynd þessa á hverju elliheimili
landsins vistmönnum til uppörv-
unar. Fyrir okkur sem yngri er-
um, er mikil uppörvun að berja
augum hversdagsfólk sem lifir í
dimmum skugga sláttumannsins
með jafn mikilli reisn og þau
Hepburn og Fonda í þessari
mynd. Hér koma lómarnir
reyndar inn í myndina.
Við og við bregður fyrir á
tjaldinu lómahjónum. Fuglarnir
fagna prófessorshjónunum er
þau koma í sumarbústaðinn við
vatnið til sumardvalarinnar en
undir lokin finnur myndaugað
einn þeirra dauðan í vatnsborð-
inu. Með þessum skotum vill
leikstjórinn Mark Rydel tengja
saman líf mannveranna og
fuglaparsins. Hvorttveggja lifir í
samhljómi við umhverfið og þótt
gleymska hrjái mannskepnuna
en vart skynlausa skepnuna þá
er hvorttveggja jafnt fyrir Skap-
aranum. Þjáning mannsins er
bæði bundin líkama hans og sál
en líf dýrsins er að mestu bundið
líkamanum. Maðurinn óttast er
hann finnur dýrið dautt í
vatnsborðinu vegna þess að hann
skynjar bilun eigin sálar og lík-
ama. Dýrið nýtur hins vegar lífs-
ins meðan það varir. Niðurstaða
Mark Rydel er því sú að mínu
mati að mannveran verði að gera
sér ljóst í tíma að allt kvikt nýt-
ur jafn mikillar virðingar fyrir
sjónum skaparans, að þótt sál-
arbúnaðurinn bili hjá mann-
skepnunni og hún glati þar með
tilfinningunni fyrir sérstöðu
sinni í augsýn Guðs þá sé ekkert
að óttast, hinn vitiborni maður
sé raunar bara lífvera, í engu
nákomnari skapara sínum en
lómur sullandi áhyggjulaus á
vatnsfleti. Með því að hverfa á
vit náttúrunnar geti maðurinn
yfirunnið óttann við dauðann
jafnvel gleymt honum eins og
dýrið. Nú finnst kannski hátt-
virtum lesenda kvikmynda-
gagnrýnandinn kominn á full
háspekilegt plan. Orðinn eins og
nýbakaður sveitaprestur að
flytja stólræðu. Ég get bara ekki
að því gert. Nýjasta mynd
Regnbogans vekur svona furðu-
legar hugsanir í kolli mínum. Er
annars ekki einkenni góðrar
kvikmyndar að hún vekur menn
í hita og þunga dagsins?
Oskarsverðlaunahafarnir Hepburn og Fonda brosa framan í heiminn.
FASTEICNA
HÖLUN
FASTEIGNAVIÐSKIPTI
MIOBÆR HÁALEITISBRAUT58 60
SÍMAR ^5300 435301
Dalsel — raöhús
Glæsilegt raöhús á tveim hæöum,
tvennar svalir, mikiö útsýni. Bílskýli.
Húsiö er ekki fullfrágengiö aö innan.
Sumarbústaöir
Höfum til sölu sumarbústaöi á eftirtöld-
um stööum viö Meöalfellsvatn.
Glænýr tvílyftur fallegur bústaöur. Góö
veiöi i vatninu. í Vatnsendalandi. falleg-
ur bústaöur á ræktaöri lóö, ennfremur
bústaöir viö Miödalslandiö og einnig
fyrir austan fjall.
Fasteignaviðskipti:
Agnar Ólafsson, Arnar Sigurösson,
Hafþór Ingi Jónsson hdl.
Hafnarfjörður
Til sölu m.a.:
Miðvangur
6 herb. raöhús á tveim hæöum,
nyrst viö Miövang. Stór bílskúr.
Breiövangur
4ra herb. falleg íbúö á efstu
hæö. Bílskúr. Verö 1,2 mlllj.
Móabarö
4ra herb. efrl hæð í tvíbýlishúsi.
Sérinng. Fallegt útsýni. Bíl-
skúrsréttur. Laus strax. Verö
kr. 1,1 millj.
Flókagata
4ra herb. efri hæö í tvíbýlishúsi.
Verð kr. 1,1 millj.
Öldutún
6 herb. raöhús á tveimur hæö-
um. Bílskúr. Verö kr. 1,6 millj.
Álfaskeið
3ja herb. íbúö á 3. hæö í fjölbýl-
ishúsi á mótum Flatahrauns og
Álfaskeiös. Verö kr. 850 þús.
Miðvangur
6 herb. efri hæö í tvíbýlishúsi.
Bílskúr.
Árnl Gunnlaugsson. hrl.
Austurgötu 10,
HafnarfirÖi, sími 50764
AL'GLÝSINGASLMINN ER:
22480
JR«r0imliInt»ib