Morgunblaðið - 20.08.1982, Side 12

Morgunblaðið - 20.08.1982, Side 12
12 Veður víöa um heim Akureyri Amsterdam Aþena Barcelona Berlín BrUssel Chicago Dyflinni Feneyjar Frankfurt Genf Helsinki Hong Kong Jerúsalem Jóhannesarborg Kaíró Kaupmannahöfn Las Palmas Lissabon London Los Angeles Madrid Malaga Mallorca Mexíkóborg Miamí Moskva Nýja Delhi New York Osló París Perth Rio de Janeiro Reykjavik Rómaborg San Francisco Stokkhólmur Sydney Tel Aviv Tókýó Vancouver Vínarborg bórshöfn 7 alskýjaö 20rigning 36 heiöskírt 28 hólfskýjaö 20 skýjaö 20 skýjaö 28 skýjaö 16 rigning 28 heiöskírt 27 heiöskírt 27 heiöskírt 17 skýjaö 27 rigning 27 heiöskírt 22 skýjaö 34 heiöskírt 18 heiöskírt 25 léttskýjað 29 heiöskírt 20 heiðskírt 27 heiöskfrt 35 heiöskírl 25 heiöríkt 30 lóttskýjaö 25 skýjað 30 rigning 18 skýjaö 37 rigning 27 heiöskírt 18 heiöskirt 22 heiöskirt 19 heiöskírt 28 skýjað 9 skýjað 33 heiðskirt 15 heiðskírt 18 skýjaö 19 heiöskirt 30 heiöskírt 30 heiðskirt 24 skýjað 27 heiöskírt 13 skýjaö Sprengingarnar í Lissabon: Óþekkt samtök lýsa sig ábyrg U.Hsabon, I9. ájjúst. Al*. ÁÐIJK óþt'kkt samtök, sem berjast fyrir málstaó Israela, tilkynntu í dag að þau bæru ábyrgð á sprengingum er urðu sl. sunnudag á tveimur stöð- um í borginni, fyrir utan skrifstofur Air France og Lufthansa. Þessum skilaboðum var komið gegnum portúgölsku fréttastofuna ANOP, er þangað hringdi maður er mælti á portúgölsku og kvað samtök þessi ábyrg fyrir spreng- ingunum er urðu engum að fjör- tjóni, en væri hins vegar beint að ríkisstjórnum Frakklands og Vestur-Þýskalands þar sem af- staða þeirra gagnvart Israel væri tvísýn. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1982 Fer hörmungunum í Líbanon að linna? ÍSRAEL.SKA ríkisstjórnin hefur nú fallist á tillögur Philips C. Habibs, sendimanns Bandaríkjastjómar, um brottflutning palestínskra skæruliða frá l.íbanon og virðist nú i fyrsta sinn raunverulegt útlit fyrir að þjáningum líbönsku þjóðarinnar fari að linna, í bili a.m.k. Skömmu eftir að fréttirnar bár- ust frá Tel Aviv tilkynnti Fuad Butros, utanríkisráðherra Líban- ons, að brottflutningurinn frá Vestur-Beirut myndi hefjast á morgun, laugardag, nokkrum klukkustundum eftir komu franskra hermanna til borgarinn- ar, sem eiga ásamt ítölskum og bandarískum hermönnum að skipa alþjóðlegt eftirlitslið með brott- flutningnum. PLO, frelsisfylking Palestínumanna, virðist sem sagt hafa tapað stríðinu og skærulið- arnir verða að láta sér lynda að dreifast um Arabaríkin, yfirleitt víðsfjarri sjálfum erfða- fjendunum, ísraelum. Þar með er þessu máli þó ekki lokið því að meginatriðið, framtíð palestínsku þjóðarinnar, er jafn óráðið sem fyrr. Enginn veit hver framvindan verður í Arabaríkjunum og ekki er ólíklegt, að innrásin eigi eftir að draga meiri dilk á eftir sér fyrir ísraela sjálfa en þá óraði fyrir. ísraelar hafa oft gert herhlaup inn í Líbanon en jafnan skyndi- árásir og hörfað fljótt aftur með her sinn suður fyrir landamærin. Síðasta innrás þeirra, sem hófst 6. júní sL, var með öðrum hætti, sannkallað leifturstríð þar sem beitt var a.m.k. 90.000 hermönn- um, 500 skriðdrekum og á annað hundrað flugvélum. Flestum kom hún á óvart, sem var þó óþarfi, því að þeir, sem vildu vita, vissu, að hún hafði verið i undirbúningi mánuðum saman. Fjórum sinnum hafði Sharon, varnarmálaráðherra ísraels, skipað hernum í við- bragðsstöðu áður en Begin og rík- isstjórn hans þótti rétta stundin upp runnin en það var þegar gerð hafði verið morðárás á sendiherra Israela í London. í fyrstu gáfu ísraelar í skyn, að þeir ætluðu sér að sækja 40 km inn í Líbanon en fljótleg kom þó í ljós, að það, sem raunverulega vakti fyrir þeim, var að uppræta PLO í eitt skipti fyrir öll. í Suður-Líban- on féll hver borgin á fætur annarri í hendur þeim og þótt skæruliðar Palestínumanna veittu þeim víða mótspyrnu máttu þeir sín lítils gegn þrautþjálfuðum hermönnum þessa fjórða mesta herveldis í heimi. Ekki var frammistaða Sýr- lendinga betri, sem hafa þó fjöl- mennan her í landinu og um- fangsmiklar loftvarnir, því að á fyrstu dögum innrásarinnar var loftvarnakerfi þeirra lagt í rúst og allt að 80 MIG-flugvélar skotnar niður í loftbardögum ef marka má fullyrðingar ísraela. Israelar létu ekki staðar numið fyrr en í úthverfum Beirút-borgar og í um þriggja km fjarlægð frá Ariel Sharon, varnarmálaráðherra ísraels, á fundi í Beirút nú í vikunni með Saguy, hershöfðingja og yfírmanni leyniþjónustunnar (til vinstri), og yfír- manni ísraelska hersins í Libanon, hershöföingjanum Amir Drori. ap Brottflutningur skæruliðanna: Endalok PLOs eða upp- hafið að ósigri Begins? þjóðveginum milli Beirút og Dam- askus í Sýrlandi. Síðan hafa þeir haft borgina í herkví og aðal- ástæðan fyrir því að þeir skuli ekki hafa látið endanlega til skarar skriða gegn höfuðstöðvum PLO í Vestur-Beirút er óánægja og þrýstingur frá Bandaríkjastjórn og ríkisstjórnum annarra vest- rænna ríkja. Afsögn Alexanders M. Haigs, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafði einnig sín áhrif en hann dró mjög taum ísra- ela gagnstætt því, sem talið er vera um Schultz, eftirmann hans í embætti. Það sem gerst hefur i Beirút- borg frá því að ísraelsher settist um hana á ekki sinn líka frá því á dögum síðari heimsstyrjaldar. Með reglulegu millibili hafa ísraelar látið sprengjunum rigna yfir varn- arlausa íbúana, matvælaflutn- ingar hafa oft og tíðum verið stöðvaðir og langtímum saman hefur borgin verið án vatns og rafmagns. I sumra augum er Vestur-Beirút gyðingagettóið í Varsjá okkar daga og það er vissu- lega kaldhæðni örlaganna hvert hlutverk ísraelar skipa í þeirri samlíkingu. Philip C. Habib, sendimaður og sáttasemjari Bandaríkjastjórn- ar. ALLT frá stofnun Ísraelsríkis 1948 hafa örlög palestinsku þjóðarinnar verið eins konar samciningartákn fyrir Arabaríkin, scm engin rikis- stjórn í þessum heimshluta hefur þorað að skella skollaeyrum við, í orði a.m.k. Á borði hefur raunveru- leikinn hins vcgar verið nokkur ann- ar. Líklcgt er, að flestum Araba- ríkjunum hafí verið ósárt um það á fyrstu dögum innrásarinnar þótt PLO yrði fyrir umtalsverðu áfalli en til hins máttu þau ekki hugsa, að samtökunum yrði endanlega stillt upp við vegg, þá kæmi nefnilega að því, aö þau yrðu að standa við stóru orðin. Það var þó einmitt það, sem gerðist, og í augum Palestínuaraba féllu Arabaríkin á prófínu. Sumir sérfræðingar í málefnum Miðausturlanda telja, að Palest- ínuarabar muni í örvæntingu sinni snúast gegn ríkisstjórnum Araba- ríkjanna fyrir að hafa brugðist þeim á úrslitastundu og að erfitt sé að gera sér grein fyrir hve alvarlegar afleiðingar það eigi eft- ir að hafa í för með sér. „Palest- ínska þjóðin mun ekki auðveldlega gleyma þessum svikum," sagði Iss- am Sartawi, einn ráðgjafa Ara- fats, leiðtoga PLO, og það hefur líklega verið til að sefa þennan sára sviða í brjóstum Palestínum- anna að sýrlensku stjórninni sner- ist hugur og hún ákvað að taka við nokkrum hluta skæruliðanna. Aðrir eru þeir, sem telja, að til- tölulega hófsöm stefna Arafats muni nú verða ofan á og að sam- tökin muni styrkja stöðu sína á al- þjóðavettvangi með því að viður- kenna tilverurétt Israelsríkis. Meít’ almenningsálitið um allan heim að baki Palestínumönnum muni ísra- elar aðeins eiga einn kost, sem er að taka upp viðræður við PLO. Sannleikurinn er sá, að Begin óttast ekkert meira en að þessi verði þróunin, að PLO viðurkenni Ísraelsríki, því að um leið yrði síð- ustu hindruninni rutt úr vegi fyrir viðurkenningu Bandaríkjastjórnar á PLO-samtökunum. Megintil- gangur innrásar ísraela í Líhanon var að ganga milli bols og höfuðs á PLO og uppræta áhrif þeirra í öðr- um Arabaríkjum og fá þannig tækifæri til að gera eitthvert málamyndasamkomulag við „hóf- sama“ Palestínumenn um „sjálf- stjórn" þeirra á Vesturbakkanum og í Gaza. Begin er ekki aðeins um- hugað að tryggja öryggi ísraelsku þjóðarinnar, hans draumsýn er að innlima þessi tvö svæði til fram- búðar í Eretz Yisrael, ísrael Gamla testamentisins. Ef PLO viðurkennir Ísraelsríki og Bandaríkjastjórn viðurkennir PLO þá hefur innrásin í Líbanon endað með algjörum ósigri fyrir Begin og stefnu hans. Menachem Begin, forsætisráð- herra Israels. Stjórnarmyndun á næstu viku? Italíu í Kóm, 19. á£Úst. AP. ÁLITIÐ er að Giovanní Spadolini, fvrrum forsætisráðherra, takist að mynda 42. ríkisstjórn Ítalíu frá stríðslokum innan fárra daga. Ilann hitti að máli helstu flokksleiðtoga landsins í dag og íhugaöi útnefningar í ráðherraembætti. Spadolini, sem er lýðveldissinni, mun að öllum líkindum afhenda Sandro Pertini, forseta landsins, ráðherralista sinn á mánudag og bera hann undir atkvæði þingsins um miðja þá viku. Ríkisstjórn Italíu féll 7. ágúst síðastliðinn eftir að ráðherrar sósí- alista sögðu sig úr henni vegna ágreinings um skattalöggjöf. Sósíalistar höfnuðu síðan boði um að taka þátt í myndun annarrar ríkisstjórnar sem væri mynduð af sömu flokkum og áður og líktu því við „upphitaða súpu“. Þeim snerist hins vegar hugur er Spadolini til- kynnti að hann hefði í huga að gera gagngerar breytingar á skatta- löggjöf og fleiri málum er þeir höfðu áður sett á oddinn. Þessi stjórnarkreppa virðist því ætla að verða ein sú stysta í sögu landsins og leysast jafn skjótt og hún myndaðist. Giovanni Spadolini Miklar óeirðir Kombay, Indlandi. 19. ágúst. AI*. ÓEIRÐIR og íkveikjur, sem eru afíeið- ing af upprcisn lögreglunnar í gær, brutust út í fleiri hverfum horgarinnar í dag og indverskir hermenn gengu vopnaðir um götur borgarinnar í dag til að reyna að hafa hemil á fólki. Einn mun hafa látist og fjórir menn særst er hermenn og lögregla réðust gegn mannmergð í dag, en út- göngubann ríkti í borginni til klukk- an sex í morgun þar sem erfitt reyndist að binda enda á bardagana í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.