Morgunblaðið - 20.08.1982, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 20.08.1982, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1982 Hefur Purrkur Pillnikk sunglð sitt síðasta? HEFUR Purrkur Pillnikk sungid sitl síðasta? Þessari spurningu velta menn nú fyrir sér í kjölfar oröróms þess efnis, að hljómsv- eitin væri aó hætta. Eigi alls fyrir löngu, á tónleik- um sveitarinnar á Hótel Borg, kom þetta umræöuefni upp. Fátt var um svör, utan hvaö réttur var fram miði, sem á stóö P.P.R.I.P. (reyndar var stæröfræöitákniö pí notað fyrir pé-in tvö i klausunni). Eins og gefur að skilja vakti þessi stafaröö nokkra undrun manna. Fæstir fengu nokkurn botn í hana en kunnugir segja aö hér hafi þeir félagar verið að storka eigin endalokum í góölát- legu gríni (Purrkur Pillnikk Rest In Peace). Einar Örn Benediktsson, söngvari/raddari sveitarinnar, sagöi fyrst er hann var spuröur hvort rétt væri aö hljómsveitin væri að fara í hundana: „No comment.” Án þess aö segja nokkuö með berum oröum lét hann í það skína, aö ekki væri allt eins og á væri kosiö í sveit- inni. Vitaö er meö vissu, aö bæöi Ásgeir, trommuleikari, og Friörik, gítarleikari, eru önnum kafnir viö sína vinnu. í óformlegu sþjalli viö Járnsíöuna lét Ásgeir þess getiö, að þaö gæti allt eins fariö svo aö hljómsveitin hætti, a.m.k. hann og Friðrik, og raunar væri þaö alls ekki ólíklegt. Fjórða plata Purrksins, og þá væntanlega sú síöasta, er um það bil aö líta dagsins Ijós. Veröi sú ákvörðun ofan á, að hljóm- sveitin hætti störfum, er þessi fjóröa plata þeirra veröugur minnisvaröi. Einar Örn og Bragi, brosmildir é þasaari mynd, an veröa kannski þungbúnari ef Purrkur Pillnikk hættir. Smáfréttir að utan SVEINARNIR vinsælu í Bee Gees hafa nú tilkynnt, aó þeir hyggist taka sér hlé frá störfum, a.m.k. fram til ársins 1984. Barry Gibb og bróðir hans Robin hyggjast báðir gefa út sólóplötur á næst- unni, en ekkert slíkt hefur frést af þeim þriðja, Maurice. Fjórði bróö- irinn, Andy, grætur enn konu- missinn. MAN einhver ennþá eftir Johnny nokkrum Logan? Hann bar sigur úr býtum í Eurovision-sönglaga- keppninni 1980 meö laginu „What’s Another Year". Ný plata hans „Oriental Eyes" er nýveriö komin út. RAY Charles er söngvari feiki- vinsæll og hefur verið í þrjá ára- tugi. Þessi blindi blökkumaöur er nú 51 árs, en lætur ekki aldurinn aftra sér frá tónleikalífinu. Heldur hann enn hátt í 300 tónleika á ári og teílir þess á milli. Segist ekki geta hugsaö sér aö fara aö slappa af strax. Leiðrétting OKKUR varð aöeins á í mess- unni hér á Járnsíöunni á sunnu- dag. Þar sögöum við lagið „Drowning in Berlin" vera meö Spliff. Þaö er alls ekki rétt. Lag- iö er eign Mobiles. Hins vegar var ætlunin að vekja athygli á lagi Spliff „Heute nacht". Ger- um það hér meö. SSv. Tónleikar Eyeless in Gaza í vikunni TONLEIKAR þeirra augnlausu, Eyeless in Gaza, verða nú í víkunni. Dúettinn kemur til lands í dag, miövikudag, og efnir til tónleika á ísafiröi á morgun kl. 21. Samhliöa tón- leikunum verður myndlistar- sýning opnuð í bókasafninu á staðnum. Siöari tónleikar þeirra Mart- yn Bates og Peter Becker verða í Tjarnarbíói á sunnudag. Hefjast þeir einnig klukkan 21. Verð aðgöngumiöa á þessar uppákomur er kr. 120. Forsala miöa er þegar hafin. Á isafirði geta menn höndlað miöa í versluninni Eplinu, en í höfuö- borginni eru þaö Fálkinn, versl- unin Stuö og Gramm, Vestur- götu 53, sem sjá um miöasölu. „Heimabakaðar" plötur með AC/DC væntanlegar Angus Young, gítarleikari og höf- uðpaurAC/DC. ADDAENDUR AC/DC ættu að gleðjast viö þessa frétt. Steinar hafa ákveðið aö hefja framleiðslu á eldri plötum sveitarinnar og verður líkast til hafist handa meö Back in Black og Highway to Hell. Sú fyrrnefnda, fyrsta framlag nýja söngvarans Brian Johnson í sveitinni, er af flestum aödáend- um AC/DC talin besta plata þeirra til þessa. Highway to Hell inniheldur m.a. samnefnt lag, sem náði feikivinsældum. Síðasta plata hljómsveitarinnar, To Those About to Rock, hefur selst í hátt á annaö þúsund eintök- um hér á landi, þannig aö sýnt þykir að aödáendur hljómsveitar- innar eru fjölmargir. Ekkert hefur enn frést af nýrri breiöskífu frá AC/DC, en vænta má plötu frá þeim ööru hvoru megin viö áramót ef aö líkum lætur. Gægst inn í hugmyndaheim þýsku nýbylgjunnar: „Mér mjög finnst þetta vera gáfulegur texti“ Svo virðist, sem þýskar hljómsveitir séu óðum að ná fót- festu á heimavelli eftir áralanga einokun bandarískra og breskra rokksveita. Til marks um þaö má nefna, að fyrir nokkru var efnt til rokkhátíð- ar, sem eingöngu bauð upp á þýskar hljómsveitir. Rúmlega 14.000 manns sóttu hana, en aöeins 8.000 komu til að sjá Status Quo, sem hafa átt óhemju velgengni að fagna hjá Þjóðverjum, og Joan Jett, sem tróð upp sama kvöldið. Vinsælustu hljóm- sveitirnar á þessum vettvangi eru D.A.F., Deutsche Amerik- ansche Freundschaft (Þýsk-ameríska vin- áttusambandiö) og Das Wirtschaftswund- er (Efnahagsundriö). Lögin eru einföld og sömuleiðis textarnir. Sumir segja að þeir endurspegli afstööu unglinganna til þess þjóðfélags, sem for- eldrar þeirra byggöu upp eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar 1945. Gott dæmi um ein- falda textagerö er text- inn viö lagið „Da, da, da“. Hann er ekki ann- ar en framangreind orö ef undan er skilinn kafli þar sem meðlimir hljómsveitarinnar Trio syngja: „lch liebe dich nicht, du liebst mich nicht” (Ég elska þig ekki og þú elskar mig ekki). Höfundur lagsins og textans, Stefan Remmler, segir aö hann hafi fengiö hug- myndina aö hluta til frá sjónvarpsauglýsingum og aö hluta hafi þaö oröið til er hann velti fyrir sér samskiptum fólks nú á dögum. „Mér finnst þetta vera mjög gáfulegur texti.“ Þýska tvigengisvélin, D.A.F., nýtur mikillar hylli jafnt í heimalandi sinu sem annars stað- ar i Evrópu. Hvaö sem þeirri yfir- lýsingu líöur þarf hann ekki aö kvarta. Lítil plata meö þessu lagi hefur selst í 1,1 milljón eintaka í V-Þýskalandi. Enska útgáfa lagsins komst upp í 4. sæti enska vinsældalistans og ekki ber á ööru en þaö hafi náö aö skjóta rótum hér á Fróni. Eftir aö hafa hlustaö á breska og banda- ríska popptónlist í ára- raöir hafa v-þýskir unglingar fundiö eitthvaö viö sitt hæfi og það meira aö segja innlent fyrirbrigöi, sem þeir nefna Tevtóna- pönk, þýsku nýbylgj- una. í einu vinsælustu laganna í V-Þýskalandi i dag má heyra viölög á borö viö „Dance the Adolf Hitler“ og „Dance the Mussolini". Þótt pönkiö hafi aö mestu leyti sungið sitt síðasta í Englandi og víöar, a.m.k. veröur blómskeiöi þess aö teljast lokið fyrir nokkru, er því ekki þannig fariö. Þýskir unglingar kunna greini- lega vel viö aö heyra texta á móöurmálinu viö hina grófu pönk- tónlist, sem fellur vel aö þýskum grófyrðum. poppfréttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.