Morgunblaðið - 20.08.1982, Side 28

Morgunblaðið - 20.08.1982, Side 28
Síminn á afgreiöslunni er 83033 Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 JttflrgnnMíifoifo FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1982 Úrskurðaður í gæsluvarðhald og geðheilbrigðisrannsókn GKÍrrAR Sigurður Árnason, sem ját- aA hefur aA vera valdur aA dauAa annarrar frönsku stúlkunnar og aA hafa misþyrmt hinni, var í sakadómi i gær úrskurAaAur í gæsluvaróhald í 90 daga, eAa til 17. nóvember. Honum var einnig gert aA sæta geAheilbrigð- isrannsokn. Grctar Sigurður situr nú í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg. í gær luku rannsóknarlögreglu- menn störfum í Skaftafelli og var áformað að þeir kæmu til Reykja- víkur síðla í gærkveldi og er störf- um þeirra þar nú lokið. Þau hafa einkum falist í skýrslugerð, auk annarra rannsókna. Grétar Sigurð- ur var ekki yfirheyrður af rann- sóknarlögreglunni í gær, en hins- vegar var tekin af honum skýrsla fyrir dómi. Honum hefur enn ekki verið skipaður verjandi. Hann hef- ur eitthvað komið við sögu lögregl- unnar áður, samkvæmt heimildum Mbl. Búist var við að foreldrar stúlkn- anna og bróðir þeirra kæmu til Is- lands seint í gærkveldi með Flug- leiðavél. Var áformað að þá hittu þau menn úr franska sendiráðinu, en ekki er vitað hvenær Frakkarnir halda utan. Fasteignaverð á Stór-Reykjavíkursvæðinu: Hækkun minni eigna er 95—105% á ári Heldur minni hækkun á stærri eignum MIKII. hækkun hefur orðið á fast eignum á Stór-Keykjavíkursvæðinu á síAustu 12 mánuAum, samkvæmt upplýsingum Mbl., en þó er tölu- verður munur eftir því, hvort um er að ræAa minni íbúAir eða stærri fast- eignir. Hækkunin á minni íbúðum, 2—4ra herbergja, liggur á bilinu 95—105%, en hækkun stærri eigna er á bilinu 75—90%. Sem dæmi um hækkun fast- eigna á Stór-Reykjavíkursvæðinu síðustu tólf mánuðina má nefna, að 2ja herbergja íbúð í Breið- holtshverfi, sem kostaði fyrir ári á bilinu 300—350 þúsund krónur, kostar í dag á bilinu 630—700 þús- und. Annað dæmi er 4ra herbergja íbúð í blokk, sem fyrir um tólf mánuðum kostaði á bilinu 530—600 þúsund. Hún kostar í dag á bilinu 1,0—1,2 milijónir króna. Eins og áður sagði hafa stærri eignir hækkað heldur minna og sem dæmi um þá hækkun má nefna raðhús á þremur hæðum í Breiðholtshverfi. Slíkt hús kostaði t.d. á bilinu 1,1—1,2 milljónir króna fyrir ári síðan. Þetta sama hús væri í dag selt á 1,9—2,1 millj- ón króna. Sýningin HeimiliA og fjölskyldan *82 verAur opnuA í dag klukkan 18.00 í Laugardalshöll og verAur opin til 5. september. Auk sýningarinnar er tívolí á svæAinu og þar munu koma fram akrobatar, töframaAur og eldmaAurinn Roy Frandsen, sem sjá má hér á myndinni, en hann stingur sér logandi ofan úr 16 metra háu mastri í lítiA ker fullt af vatni. Sjá VÍAtÖ) VÍA sýnendur á mÍAopnU. Ljósmynd: Mbl.: Guðjón. Þrír buðu í Ikarus ÞKJII tilboð bárust í strætisvagna af Ikarus-gerA, sem borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti nýlega að selja. Þeir sem buðu í vagnana voru Mosfellsleið hf. með tilboð í alla vagnana upp á 1,2 milljónir, Keflavíkurbær bauð í einn vagn og var upphæðin 310 þúsund og Kópavogsbær var með tvíþætt til- boð. Það var annars vegar í einn tiltekinn vagn, upp á 455 þúsund, eða tvo vagna og hljóðaði það til- boð upp á 550 þúsund. Tilboðin frá Kópavogsbæ voru með þeim ákvæðum að yrði öðru tilboðinu tekið, feildi það hitt niður. Stjómarskrárnefnd: Fundi frestað FOKSÆTISRÁÐHERRA frestaði i fyrradag fundi stjórnarskrárnefndar sem halda átti að Laugarvatni í gær og í dag. Ástæða frestunarinnar er að sögn Gunnars G. Schram ráðu- nauts hennar efnahagssamninga- viðræður ríkisstjórnarinnar, en þær hafa tekið allan tíma forsæt- isráðherra, sem einnig er formað- ur stjórnarskrárnefndar. Að sögn Gunnars G. Schram er reiknað með að boðað verði til fundar í nefndinni í næstu viku. Lítið miðar í samkomulagsátt um vísitölumálin í ríkisstjórn: Alþýðubandalagið að guggna? í GÆR benti ýmislegt til þess, að Alþýðubandalagið væri að guggna á ákvörðunum flokksforystunnar um að standa með öðrum stjórnarliðum að verulegri vísitöluskerðingu og gildistöku nýs vísitölugrundvallar, sem samkomulag var komið um fyrir ríkisstjórnarfundinn í fyrradag. Síðustu sólarhringa hefur gætt vaxandi deilna um þessar ákvarðanir mcðal alþýðubandalagsmanna og innbyrðis sundurlyndi virðist færast í auk- ana. Margt bendir til þess að það séu fyrst og fremst verkalýðsforingjar Alþýðubandalagsins sem eru að herðast i andstöðu gegn ákvörðunum flokksforystunnar. I gær miðaði lítið sem ekkert í samkomulagsátt innan ríkis- stjórnarinnar, þrátt fyrir stöðug fundarhöld ráðherranefndar og efnahagsnefndar. Ráðherranefnd- in lauk fundum sínum á tiunda tímanum í gærkvöldi, og er Mbl. náði sambandi við einn nefndar- manna eftir fundinn sagði hann: „Þetta er í þoku. Þessu lyktaði ekkert, það verður bara haldið áfram í fyrramálið." Nefndin kemur saman á ný kl. 9 árdegis. Ljóst er af viðtölum við stjórn- arliða í gærdag, að alþýðubanda- lagsmenn hafa gengið á bak þess samkomulags sem búið var að gera milli aðila ríkisstjórnarinnar síðdegis á miðvikudag. Það vakti athygli í gær, að Ólafur Ragnar Grímsson sat fundi ráðherra- nefndarinnar í gær í stað Svavars Gestssonar, sem forfallaður var sökum veikinda. Mbl. er kunnugt um að a.m.k. öðrum af hinum tveimur ráðherrum Alþýðubanda- lagsins var ekki kunnugt um „skyndilega innkomu" Ólafs Ragn- ars þingflokksformanns í ráð- herranefndina fyrr en síðdegis i gær. Þá kom í ljós í viðtali við þá sem sátu samningaviðræður ríkis- stjórnarinnar í gær, að ljóst væri að ólafur Ragnar hefði verið „al- gjörlega heimildarlaus" í viðræð- unum í gær. Flestir viðmælenda blaðsins töldu í gærkvöldi að Guðmundur J. Guðmundsson hefði „sett kjark" í verkalýðsarm Alþýðubandalags- ins með yfirlýsingum sínum í gærdag, eins og komist var að orði. Einn stjórnarliða sem Mbl. ræddi við sagðist bjartsýnn á að samkomulag næðist, þó seint yrði. „Það kemur dagur eftir þennan dag,“ sagði hann og gaf hann í framhaldi af því i skyn að hann reiknaði siður með því að málin yrðu afgreidd í dag. Af framansögðu virðist því ljóst, að djúpstæður ágreiningur er enn milli stjórnaraðila, og einn- ig eru menn ekki á eitt sáttir inn- byrðis innan þingflokkanna. Rík- isstjórnin hefur verið boðuð til fundar kl. 15 í dag. Þær voru til fyrirmyndar í alla staði — segir Eggert Guömundsson um frönsku stúlkurnar „ífTlILKlIRNAR voru hjá mér í hálfan mánuð i vor, komu seint í maí og fóru snemma í júní,“ sagAi Eggert GuAmundsson á Melum í Melasveit í samtali viA Morgun- blaAiA, en hann hýsti um tima frönsku stúlkurnar sem ráAist var á á mánudagskvöld. „Þannig var að ég ætlaði að fá norska stúlku til starfa, en þá komu frönsku stúlkurnar í Bún- aðarfélagið og var ég spurður hvort ég vildi lofa þeim að vera einhvern tíma. Þær unnu dálítið hjá mér að tilfallandi störfum, en skoðuðu sig líka mikið um. Stúlkurnar komu okkur ákaflega vel fyrir sjónir, þær voru sér- staklega almennilegar og reglu- samar og gengu vel um. Þær voru til fyrirmyndar í alla staði. Þegar stúlkurnar fóru frá mér, ætluðu þær í kringum Snæ- fellsnes og kannski á Vestfirði og áfram hringveginn," sagði Eggert. „Þetta voru menntaðar stúlk- ur, sú yngri lauk stúdentsprófi í vor. Sú eldri var líka menntuð og vann hún við skrifstofustörf. Hún hafði ferðast mikið og okkur skildist að hún væri að afla sér efnis í bók. Þetta voru sérstaklega almennilegar stúlk- ur og vorum við harmi slegin þegar þetta fréttist," sagði Egg- ert Guðmundsson að lokum. „ÞÆR VORU hér seinnipartinn í júní og dvöldu í þrjár vikur," sagði Jón Sverrir Garöarsson, mjólkur- samlagsstjóri á PatreksfirAi. „Ég sá þær fyrst þegar ég var á leið út í sveit og tók þær upp. Síðar komu þær í heimsókn, en þær hugðust halda áfram ferð- inni fljótlega. Þá lýstu þær áhuga sínum á að komast í fisk- vinnu, og þá benti ég þeim á að leita til hraðfrystihússins hér á staðnum til að fá sér vinnu, sem þær og gerðu. Þær unnu svo hér í þrjár vikur og bjuggu í húsnæði hraðfrystihússins, en komu ann- að slagið í heimsókn til okkar hjónanna," sagði Jón Sverrir. „Stúlkurnar voru prúðar, þær hvorki neyttu áfengis né reyktu og voru reglusamar í hvívetna. Þegar þær dvöldu hér voru dans- leikir haldnir, eins og gengur og gerist og ég held að þær hafi aldrei sótt þá staði. Ég vissi að- eins til þess að þær fóru einu sinni í bíó þessar þrjár vikur. Yngri systirin hafði mikinn áhuga á að koma til Islands. Þær voru mikið að hugsa um að fara til einhvers Norðurlandanna og þá jafnvel til Noregs. En sú yngri vildi fara til íslands og það varð úr að þær komu hingað. Stúlkurnar létu vel af dvöl sinni þegar þær voru hér og sögðust alls staðar hafa fengið mjög góð- ar móttökur og voru þær mjög ánægðar með ferðina. Þær heim- sóttu okkur í þrjú eða fjögur skipti þær þrjár vikur sem þær voru hér. Þær virtust vera reglu- lega vel gefnar stúlkur og vel menntaðar og ræddum við við þær um heima og geima. Sú eldri hafði ferðast víða um heim,“ sagði Jón Sverrir. „Við urðum harmi slegin þeg- ar þetta fréttist og hringdum strax á sjúkrahúsið til að fá staðfestingu á þessu. Allir starfsmenn hraðfrystistöðvar- innar hér á Patreksfirði, auk okkar hjónanna, tóku sig saman og sendu Marie samúðarkveðjur og blóm og sýnir það hug fólks- ins hér á staðnum til stúlkn- anna,“ sagði Jón Sverrir Garð- arsson. Urðum harmi slegin, segir Jón Sverrir Garðarsson á Patreksfirði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.