Morgunblaðið - 21.08.1982, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUQARDAGUR 21. ÁGÚST 1982
Fjallamaraþonkeppni
LHS hófst í morgun
FJALLAMARAI»()N Landsambands hjálparsveita skáta og
Skátabúðarinnar fer fram nú um helgina, en keppendur voru
ræstir við skólahúsið í Krísuvík í morgunsárið. I keppninni
reynir m.a. á þolrif keppenda bæði hvað varðar þrek og
rötunarþekkingu, en þeir koma úr hinum ýmsu björgunar- og
hjálparsveitum landsins, þ.e. hjálparsveitum skáta, björgun-
arsveitum Slysavarnarfélags íslands og flugbjörgunarsveitun-
um.
Eggert Lárusson, félagi í Hjálp-
arsveit skáta í Reykjavík, sem
stjórnar keppninni, sagði í samtali
við Mbl., að fyrri dagurinn yrði
fyrst og fremst helgaður rötunar-
þættinum, þ.e. keppendur ættu að
fara ákveðnar leiðir eftir áttavita
og landakorti.
„Keppendur munu gista í tjöld-
um, sem þeir bera með sér og
reyndar má skjóta því að, að hver
keppandi verður að vera með
ákveðinn lágmarksbúnað til ferða-
laga og við könnum búnað hvers
og eins.
Snemma morguns á sunnudag
verður svo haldið áfram og þá fer
hin eiginlega göngukeppni fram,
þ.e. keppendur munu ganga
ákveðna vegalengd á sem
skemmstum tíma, auk þess að
leysa ákveðin verkefni á leiðinni,"
sagði Eggert Lárusson ennfremur.
Það kom fram hjá Eggert, að
Landsamband hjálparsveita skáta
myndi starfrækja upplýsinga-
miðstöð meðan á keppninni stend-
ur í kjallara Ármúlaskóla. „Þessi
upplýsingamiðstöð er starfrækt
fyrir þá sem hafa áhuga á að
fylgjast með keppninni, m.a. geta
aðstandendur keppenda haft sam-
band og fengið fréttir, en upplýs-
ingamiðstöðin verður í beinu sam-
bandi við stjórnstöð keppninnar,
sem verður í Bláfjallaskála. Thor
B. Eggertsson verður í síma upp-
lýsingamiðstöðvarinnar, sem
verður 86177 allan tímann, sagði
Eggert Lárusson ennfremur.
Þess má svo geta, að sú vega-
lengd, sem keppendur munu
leggja að baki í keppninni er um
50 kílómetrar. Þetta er í annað
sinn, sem slík keppni er haldin, en
í fyrra gengu keppendur frá Land-
mannalaugum í Þórsmörk fyrri
dag keppninnar, en þann seinni
var gengið yfir Fimmvörðuháls
milli Eyjafjallajökuls og Mýr-
dalsjökuls yfir að Skógum.
Við tökum þátt í
Heimilssýningunni í Laugurdal
í samhandi við sýninguna bjóðum við sérstakt
fjölskylduvcrð um helgar.
Gómsætir rcttir í hádeginu og á kvöldin.
hríréttuð máltíö í hádeginu á kr. 110. og á kvöldin kr.130.
Hlaðið horð af Ijúffengum kökum í kaffitímanum.
Skálafell opið öll kvöld. Lítið inn á heimleiðinni.
STORGLÆSILEG FJOLSKYLDUHATIÐ
„Eitthvað fyrir alla“ ©
á Kaplakrikavelii á morgun kl. 14.00—18.00.
Reviuhópurinn Úllen Dúllen Doff og
Hljómsveit Björgvins Halldórssonar aöeins í
þetta eina skipti á höfuðborgarsvæöinu fyrir
Rússlandsferðina.
Modelbílarall frá Tómstundahúsinu.
Kimewasa flokkurinn.
Hljómsveitin Sonus Futurae.
Modelsamtökin sýna sportfatnaö.
Keppt verður í bananakasti.
Trúðar skemmta börn-
unum.
Flugvél dreifir glaðningi
frá Sælgætisgeröinni
Góu og margt fleira.
t
Þar sem hátíðin er í Karnival stíl, er ekki
lakara aö samkomugestir, einkum þeir yngri
komi grímuklæddir t.d. í gervi trúöa, álfa
o.þ.h.
Veitt verða verölaun fyrir frumlegustu bún-
ingana.
Aðgangseyrir í algjöru lágmarki aðeins kr.
50.00 fyrir fullorðna og 25.00 kr. fyrir börn.
Sjáumst öll á Kaplakrikavelli á morgun á
glæsilegustu fjölskylduhátíð sumarsins.
Knattspyrnudeild F.H.
Tómstundahúsið Laugavegi
Sælgætisgerðin Góa.
BLÓMABÚÐIN
Hugleiðingar um
ofdrykkjuvarnir:
— eftir Steinar
Guðmundsson
Hér hefst sjötti og næstsíðasti
pistill minn um ofdrykkjuvarnir
í þetta skiptið.
Tilgangurinn með þessum
skrifum er sá, að gera tilraun til
að vekja menn til umhugsunar
um eðli ofdrykkju og vara við
þeirri lúmsku hættu, sem felst í
því, að rugla saman drykkjuskap
og alkóhólisma.
Við verðum að gera okkur
ljóst, að alkóhólismi er ekki
drykkjuskapur, heldur afleiðing
drykkjuskapar. í ört vaxandi
mæli drekka menn út á það, að
þeir ráði ekki við drykkjuskap
sinn því hér sé um sjúkdóm að
ræða. Gegn þessari villu verður
að sporna, því afsakanir og rétt-
lætingar á drykkjuskap eru
nægar fyrir þótt þessi bætist
ekki við.
Áfengi fylgir mannkyninu og
við því er ekkert að segja. Því
verður varla breytt. Úr því
frummaðurinn komst upp á lag
með að láta lífræn efni gerja og
naut jæss síðan að sötra af þeim
seyðið stöðvast sú þróun varla úr
þessu. En undirstaða tilverunn-
ar var og er sjálfsábyrgð hvers
einstaklings og ef þjóðfélag á að
halda velli má sú staða ekki
breytast að neinu ráði. Sjálfs-
ábyrgð verður að standa fyrir
sínu og neysla hverskonar
hugbreytandi lyfja fyrir sínu.
Félagsleg tilvera okkar býr við
marga frumþætti, suma nota-
lega aðra síður. Tveim þeirra eru
gerð nokkur skil í þessum pistl-
um. Annar snertir neysluvenjur
mannsins, hinn sjálfsábyrgð
hans. Ef jafnvægi á að ríkja í
tilveru einstaklingsins verður
hann að taka þjóðfélagið og
sjálfan sig sem eina heild, þótt
hann haldi persónufrelsi sínu.
Hann verður að búa við kosti
sambýlisins og galla og hann
verður að standa ábyrgur gjörða
sinna, njóta afraksturs og þola
mistök. Að átta sig á mistökum
er ábending um hvernig vinna
skuli á þeim. Af mistökum lær-
um við, eða ættum að læra.
Menn leika sér að gæludýrum,
en losa sig við þau ef þau verða
þeim til ama. Sá sem leikur sér
,að því að flækja einn af sterkari
þáttum félagslegrar tilveru, sá
sem leikur sér að ástandinu sem
kalla má fram með jurtajukkinu
görótta, uppgötvar oft of seint
að hann getur ekki leyst þá
hnúta sem hann hnýtti nema
hann leggi vímuvaldinn til hlið-
ar fyrst. En það vill hann ekki
skilja vegna þess að hann getur
ekki sætt sig við það.
í áfenginu finnur hann eitt-
hvað sem hann ekki vill sleppa.
Hann vill engu fórna. Hann met-
ur vandræðin og hann metur
hagræðið og kýs svo að halda
leiknum áfram. En ruglukollur-
inn hans fattar ekki öll þau
vandræði sem leikur hans veltir
yfir á samferðafólkið. Dæmið er
því skakkt út reiknað og ofneyt-
andinn heldur áfram að búa í
öðrum heimi og við aðrar við-
miðanir heldur en algáð sam-
ferðafólk hans.
En vegna þess að honum verð-
ur ekki skilað aftur eins og
hverri annarri sýktri skjald-
böku, eða skutlað upp að Keldum
þegar í óefni er komið, þá sætta
menn sig við hann og gera úr
honum sjúkling. í skjóli sjúk-
dómsins þjálfar hann svo átekið
dundur við bokkuna, en fjarlæg-
ist sjálfan sig meir og meir.
Stefnan að alkóhólisma er tekin.
Stundarfriður næst, og þeir sem
algáðir eru dæsa, hinir korra.
Alkóhólismi er sjúklegt
ástand, sem hægt er að lagfæra
með utanaðkomandi aðstoð.
Ástæðan til þess að aðstoðar er
þörf er sú, að alkóhólistinn, eða
hinn verðandi aikóhólisti, er
ekki dómbær á ástand sitt. En
vegna þess að alkóhólisti er ekki
„ga-ga“ er hann fyllilega dóm-
bær á alkóhólisma amnarra
manna. Og sé honum bent á ein-
l|9 Frá Fjölbrautaskól-
'I' anum viö Ármúla
Nemendur komi í skólann fimmtud. 2. sept. kl. 13. Þá
verða afh. stundaskrár og bókalistar gegn greiöslu
nemendagjalda kr. 400. Föstudaginn 3. sept. verður
skólinn kynntur fyrir nýnemum.
Kennsla hefst samkv. stundaskrá mánud. 6. sept.
Miövikudaginn 1. sept. kl. 9 verður deildastjórafund-
ur og sama dag kl. 13 kennarafundur.
Skólameistarinn.
llllllllllllllllllllllllllllllllM^
SýtuH
Opið 10—3
Diskótek