Morgunblaðið - 26.08.1982, Page 1

Morgunblaðið - 26.08.1982, Page 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI 186. tbl. 69. árg. FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Síberíuleiðslan: Bandaríkja- stjórn mun beita refsi- aðgerðum Washington, París, Bonn, 25. ágúst. AP. BANDARÍKJASTJÓRN hefur ikveð- ið að beita refsiaðgerðum gegn fyrir- ta'kinu Dresser Industries ef franska stjórnin heldur fast við fyrirskipun sína til dótturfyrirtækis Dressers í Krakklandi um að skipa upp búnaði í gasleiðsluna frá Síberíu i sovézkt skip, sem nú liggur í höfn í Frakk- landL John Hughes formælandi banda- ríska utanríkisráðuneytisins sagði í dag að afstaða stjórnar sinnar í þessu máli væri alveg skýr og fyrir lægi að gripið yrði til einhvers kon- ar aðgerða ef Dresser fer ekki að fyrirmælum Bandaríkjastjórnar. Kkki væri þó ákveðið til hvaða að- gerða yrði gripið. Heimildir í Washington telja líklegt að Dress- er geti átt á hættu að verða neitað um útflutningsleyfi í framtíðinni eða jafnvel átt beinar sektir yfir höfði sér. Dómstóll í Washington hefur staðfest að Bandaríkjastjórn hafi rétt til íhlutunar í starfsemi bandarískra fyrirtækja með þess- um hætti, jafnvel þótt þau starfi erlendis. Alls staðar í Vestur-Evrópu hef- ur afstaða Bandaríkjastjórnar í máli þessu mætt mikilli mótstöðu. Gaston Thorn formaður fram- kvæmdastjórnar EBE sagði í dag, að allir yrðu að leggjast á eitt til að koma í veg fyrir viðskiptastríð milli Bandaríkjanna og V-Evrópu. Vestur-þýzka stjórnin hefur sent þeim fyrirtækjum bréf sem samið hafa um verkhluta í gasleiðslunni og hvatt þau til að uppfylla pant- anir frá Sovétríkjunum og skeyta ekki um bann Reagans Bandaríkja- forseta. í bréfinu er lögð áherzla á að vestur-þýzk stjórnvöld geti ekki beinlínis skipað fyrirtækjunum að uppfylla þessar pantanir eins og stjórnvöld í Bretlandi og Frakk- landi geta gert. Pravda, málgagn Sovétstjórnar- innar, skýrir frá því í dag, að ýmis mikilvæg vandamál hafi komið upp við lögn gasleiðslunnar, en engu að síður sé búizt við að hún verði tekin í notkun 1984 eins og áætlað hafi verið. Kosningar á Spáni? Madrid, 25. ágúst AP. LEOPOLDO Calvo Sotelo, forsætis- ráðhcrra Spánar, er nú sagður hugleiða að boða til nýrra kosninga í landinu innan tíðar. Sotelo hefur aflýst fyrir- hugaðri ferð sinni til Danmerkur og ætlar að nota tímann til að ræða við samflokksmenn sína og kanna grund- völl fyrir nýjum kosningum meðal sam- starfsaðila i rikisstjórninni. Sotelo hafði ráðgert að vera í Kaupmannahöfn í byrjun september en hann hefur í hyggju að heim- sækja allar höfuðborgir Efna- hagsbandalagsríkjanna til að fylgja eftir umsókn Spánar um aðild að bandalaginu. Heimildir innan stjórnarliða í Madrid herma að Sotelo vilji rjúfa þing og boða til nýrra kosninga til að koma í veg fyrir að þeir sem yfirgef- ið hafa flokk hans að undanförnu, þ.á m. Suarez, fyrrum forsætisráð- herra, geti skipulagt stjórnarand- stöðu sína fyrir kosningar. Símamynd AP. Hópur bandarískra landgönguliða þrammar eftir „grænu línunni" svonefndu í Beirút. Á vinstri hönd er hverfí kristinna manna, en til hægri hverfí múhameðstrúarmanna. Flestar byggingarnar eru ílla leiknar, eins og sjá má. Bandarískir gönguliðar í „Samstöðumenn undirbúa blóðbað44 — segir innanríkisráðherra Póllands V»raji, 25. ágúst AP. UM 200 þúsund Pólverjar tóku þátt í göngu í borginni Czes- tochowa í dag til að minnast þess aö nú eru liöin 600 ár frá því ein dýrmætasta helgimynd þjóðarinnar, Svarta Madonn- an, kom til Póllands. Talið er að mannsöfnuðurinn í borginni sé hinn mesti, sem heimilaður hefur verið í landinu frá þvi herlög tóku gildi fyrir átta mánuðum. Pólverjar höfðu gert sér vonir um að Jóhannes Páll páfi 2. myndi taka þátt í hátíðahöldun- um, en af því gat ekki orðið vegna andstöðu pólskra yfir- valda. Páfi sagði í dag í Róm, að hann væri með löndum sínum í huganum á þessum merkisdegi. Innanríkisráðherra Póllands, Czeslaw Kiszczak hershöfðingi, sakaði forvígismenn Samstöðu, sem fara huldu höfði, um að und- irbúa blóðbað í tilefni tveggja ára afmælis samtakanna í næstu viku. Sagðist ráðherrann sann- færður um að pólsk stjórnvöld réðu yfir nægilegu afli til að halda uppi lögum og reglu í land- land- Beirút inu þrátt fyrir áform framá- manna í Samstöðu. Fulltrúi Samstöðu í Briissel segir í viðtali við málgagn al- þjóðasamtaka frjálsra verkalýðs- félaga, að allsherjarverkfall kunni að vera eina leiðin til að knýja pólsku stjórnina til að virða rétt verkafólks. Rakowski aðstoðarforsætis- ráðherra Póllands sagði í Ham- borg í dag, að Lech Walesa gæti vel haft hlutverki að gegna við að byggja upp ný verkalýðsfélög í Póllandi í samræmi við hug- myndir yfirvalda þar um. Sagði Rakowski að Walesa gæti ef hann vildi tekið þátt í uppbygg- ingu þjóðlegra verkalýðsfélaga í landinu. Pólskri farþegaflugvél á leið frá Búdapest til Varsjár var rænt í kvöld og henni snúið til Múnchen. Með vélinni, sem var af sovézkri gerð, voru 65 farþeg- ar og 8 manna áhöfn. Engan sak- aði og flugræningjarnir, sem voru tveir vopnaðir Pólverjar, gáfu sig fram við lögreglu þegar við komuna til Múnchen. Fjármálaráðherra Breta; Efnahagsstefnan verður óbreytt þrátt fyrir aukið atvinnuleysi London, 25. ágúst AP. BREZKA ríkisstjórnin mun ekki breyta um stefnu í efna- hagsmálum þótt 13,8% vinnufærra manna gangi nú atvinnu- lausir, að því er sir Geoffrey Howe fjármálaráðherra landsins sagði í dag. Howe sagði að atvinnuleysið hefði smám saman aukist á tímum margra ríkisstjórna og það mundi taka langan tíma að koma því aftur niður á við. Beirut, 25. ágúst AP. UM EITT þúsund skæruliðar PLO héldu í dag sjóleiðis frá Beirut til Sýrlands og Súdan nokkru eftir að bandarískir landgönguliöar, sem hafa eiga auga með brottflutningi PLO-manna, hófu að koma sér fyrir í Beirut. Stuðn- ingsmenn skæruliðanna í röðum vinstrisinna í borginni hleyptu af fallbyssum og vélbyssum í heiðursskyni, þegar skæruliðarnir héldu á brott. Tvö ítölsk herskip lögðust við akkeri utan við höfnina í Beirut í kvöld og munu hermennirnir sem þar eru um borð væntan- lega ganga á land og taka við skyldustörfum á morgun, m.a. á alþjóðaflugvellinum í Beirut. Hætt var við að flytja skæru- liða landleiðina til Sýrlands en sýrlenzkir hermenn í Beirut verða þó fluttir þá leið á næstu dögum. Hani El-Hassan, sem er pólitískur ráðgjafi Arafats leið- toga PLO og var jafnframt að- alsamningamaður PLO í við- ræðum undanfarinna vikna um brottflutning PLO, sagði að Philip Habib, sendimanni Bandaríkjastjórnar, hefði ekki tekizt að tryggja öryggi PLO- mannanna hefðu þeir farið landleiðina. El-Hassan var einn þeirra sem fór með skipi til Sýrlands í dag og er hann hæstsetti PLO-maðurinn sem enn hefur farið frá Beirut. Howe sagði að ekki kæmi til greina að slaka á þeirri efna- hagsstefnu sem fylgt hefði verið og veita meira fjármagni út í efnahagslífið. Hann sagði að ýmislegt hefði áunnizt í efna- hagsmálum í Bretlandi, m.a. væri verðbólgan nú komin niður í 8,7% úr 21,9% fyrir tveimur árum. óábyrg peningamálastefna nú myndi aðeins verða til að auka verðbólguna og ekki koma af stað Tveir ísbirnir deyja úr hita Stokkhólmi, 25. ápiíst. AP. TVEIR hvítabirnir í dýragarðin- um í Stokkhómi hafa látið lífíð með stuttu millibili af völdum mikils hita, að því er dagblaðið Expressen skýrir frá í dag. í bæði skiptin var hitinn yfír 30 stig, þegar dýrin drápust. Dauði ís- bjarnanna hefur leitt til umræðna í Stokkhómi um það, hvort rétt sé að hafa slík dýr í dýragarðinum í borginni, en starfsmenn garðsins hafa viður- kennt, að birnirnir hafí of lítið svigrúm í garðinum. auknum hagvexti. Stjórnarandstæðingar og verka- lýðsleiðtogar í Bretlandi hafa gagnrýnt stjórn Thatchers forsæt- isráðherra mjög harkalega í dag eftir að nýjar atvinnuleysistölur voru birtar. David Owen, einn af leiðtogum hins nýja jafnaðarmannaflokks, sagði að atvinnuleysistölurnar yrðu grafskrift ríkisstjórnarinnar og Eric Varley, talsmaður verka- mannaflokksins, sakaði stjórnia um „ómannúðlega þrjózku“. Símamynd AP. Skæruliðar PLO á leið til Suður-Yemen um Súez skurð veifa til lands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.