Morgunblaðið - 26.08.1982, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 26.08.1982, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1982 Bókaútgáfan Vaka: „Frelsi að leiðarljósi“ — bók með ræðum og ritgerðum dr. Gunnars Thoroddsen „Krelsi art leirtarljósi" nefnist bók eftir dr. (íunnar Thuroddsen forsæt- isráðherra, sem koma mun út hjá Bókaútgáfunni Vöku nú með haust- inu. í bókinni koma fram skoðanir dr. Gunnars á hinum ýmsu mála- flokkum og hugðarefnum, og enn- fremur er að finna í bókinni lýsingar á fjölmörgum samferðamönnum for- sætisráðherra á lífsleiðinni, bæði látnum mönnum og núlifandi. Ólafur Ragnarsson, eigandi Bók- aútgáfunnar Vöku, hefur valið efn- ið í bókina í samvinnu við Gunnar, en það er að mestu leyti byggt á ritgerðum, greinum og ræðum er hann hefur flutt og ritað við hin margvíslegustu tilefni á löngu ára- bili. Olafur hefur síðan búið bókina til prentunar, að því er hann sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, og einnig ritað ýmsar skýringar og bætt við upplýsingum um mál, sem ekki eru eins ofarlega á baugi nú og þegar viðkomandi ræða eða ritgerð var samin. Bókin, sem verður prýdd fjölda mynda, mun sem fyrr segir koma út nú í haust hjá Bókaútgáfunni Vöku. Jakob V. Hafstein lögfrœðingur látinn LÁTINN er í Reykjavík Jakob V. Ilafstein lögfræðingur, 67 ára að aldri. Jakob var fæddur 8. október árið 1914 á Akureyri og voru for- eldrar hans Júlíus Havsteen sýslumaður og Þórunn Jónsdótt- ir Ilavsteen. Jakob lauk lög- fræðiprófi frá Háskóla íslands árið 1938. Hann hefur gegnt ýmsum störfum; var fram- kvæmdastjóri Rauða kross Is- lands, framkvæmdastjóri Lands- sambands ísl. útvegsmanna og var hann þá einnig skrifstofu- stjóri Félags ísl. botnvörpu- skipaeigenda. Hann tók virkan Jakob V. Hafstein þátt í félagsmálum íþróttahreyf- ingarinnar og var um tíma for- maður Iþróttafélags Reykjavík- ur. Hann var heiðursfélagi íþróttaféiagsins Völsungs á Húsavík og hefur hann verið sæmdur heiðurskrossi IR. Jakob hefur gefið út nokkur sönglög og sönglagatexta og einnig gaf hann út bókina „Söng- ur villiandarinnar". Hann hefur stundað myndlist um árabil og haldið fjölmargar myndlistar- sýningar. Jakob gaf út bókina „Laxá í Aðaldal" árið 1965. Hann var einn stofnenda Klak- og eldisstöðvar Húsavíkur og var lengi áhugamaður um fiskiræktarmál og skrifaði hann töluvert um þau efni í blöð og tímarit. Hann var skipaður í Veiði- og fiskiræktarráð Reykja- víkurborgar árið 1974 og sat einnig í nefnd sem endurskoðaði lög um lax- og silungsveiði. Hann hefur átt sæti í stjórn Landssambands stangveiði- félaga og var varaformaður þess um skeið. Hann sat í stjórn Varðar og í stjórn félags sjálfstæðismanna í Austurbæ og Norðurmýri í Reykjavík og um leið í Full- trúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Jakob V. Hafstein var kvænt- ur Birnu Ágústsdóttur Hafstein og lifir hún mann sinn. Davíð Oddsson og Ástríður Thorarensen, kona hans, taka á móti Anker Jörgensen og frú í Höfða í gær. Að baki danska forsætisráðhcrrans má sjá Völu Thoroddsen forsætisráðherrafrú. Anker Jörgensen og frú: Vestmannaeyjar skoðaðar í gær ANKKR Jörgensen forsætisráð- herra Danmerkur og kona hans, Ingrid Jörgensen, fóru ásamt fylgdarliði frá Húsavik í gærmorg- un og héldu til Vestmannaeyja. llm miðjan dag var síðan flogið til Reykajvíkur, en þá hélt borgar- stjórinn í Reykjavík, Davið Oddsson, danska forsætisráðherr- anum hóf í Höfða. Við komuna til Vestmanna- eyja tóku bæjarfulltrúar á móti gestunum, en síðan voru eyjarn- ar skoðaðar, ekið var um og nýja hraunið skoðað. Einnig skoðaði danski forsætisráðherrann hita- veituna í Eyjum. Þá var lunda- pysjum, sem börn höfðu bjargað, sleppt að sið Vestmanneyinga og höfðu gestirnir gaman af, að sögn viðstaddra. Síðan snæddu gestirnir hádegisverð í boði bæj- arstjórnar Vestmannaeyja. Mjög gott veður var í Eyjum á meðan á dvölinni stóð og komu dönsku gestirnir og fylgdarlið seinna til Reykjavíkur en áætlað var. I gærkveldi buðu Anker Jörg- ensen og frú til kvöldverðar, en áformað var að þau héldu utan snemma í morgun. Áfengi og tóbak hækkaði um 12% ÁFKNGI og tóbak hækkaði í verði i gær um 12%. Af verði nokkurra algengra áfeng- istegunda eftir hækkun má nefna að flaska af Smirnoff-vodka kostar nú 375 krónur, en kostaði áður 335 krónur. Flaska af Red Label-viskí kostar 364 krónur, en kostaði áður 325, flaska af innfluttum sénever kostar nú 377 krónur, en kostaði 337 krónur fyrir hækkun. Flaskan af ('ampari kostar nú 222 krónur, en fyrir hækkun kostaði það 198 krón- ur. Af léttum vínum má nefna að þýskt hvítvín, Blue Nun, kostar nú 75 krónur flaskan, en kostaði fyrir hækkun 67 krónur. Franskt rauð- vín, Geisweiler reserve, sem kost- aði 119 krónur flaskan fyrir hækk- un, kostar nú 133 krónur. Algengir amerískir vindlingar kosta nú 26,75 krónur pakkinn, en kostuðu fyrir hækkun 23,90 krón- ur. Vindlar af tegundinni London Docks, sem kostuðu 36 krónur fyr- ir hækkun, kosta nú 40,50 krónur. Reyktóbak af tegundinni Prince Albert kostar nú 22,35 krónur bréfið, en kostaði 19,95 krónur fyrir hækkun. Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra í útvarpsfréttum: 32 þingmenn eru minnsti starf- hæfi meirihluti ríkisstjórnar „Tel mig vera 1 hópi 20 stjórnarandstæðinga í neðri deild,“ segir Albert Guðmundsson alþingismaður „32 ÞINGMENN eru minnsti slarfhafi meirihluti ríkisstjórnar, það er fræðilegt mat á stöðunni. Engin ríkisstjórn getur setið til lang- frama nema geta fengið samþykkt lagafrumvörp," var haft eftir Ólafi Jóhannessyni utanríkisráðherra og fyrrum lagaprófessor við Háskóla Islands í útvarpsfréttum í gærkvöldi i tilefni af yfirlýsingu Eggerts llauk- dal alþingismanns um að hann sé hættur stuðningi við ríkisstjórnina á Alþingi. Síðar i sama fréttatíma var hafi orðrétt eftir Alberti Guð- mundssyni alþingismanni: „Eins og er, á meðan ríkisstjórnin fæst ekki til að ræða efnahagsráðstafanir og önnur mál á Alþingi, tel ég mig vera i hópi 20 stjórnarandstæðinga í neðri deild og ég harðna meira og meira í þeirri afstöðu.“ Fréttamaður segir að Ólafur Jóhannesson hafi fátt viijað segja sem stjórnmálamaður um stöðu ríkisstjórnarinnar á þessari stundu, og leiði hjá sér spádóma um hvað framundan sé, en að sem fræðimaður hafi Ólafur sagt að almennt séð teldist 31 þingmaður nægur meirihluti að baki ríkis- stjórnar, þannig að t. d. fjárlög ættu að geta komist í gegnum þingið. Þá hefur fréttamaðurinn orðrétt eftir Ólafi: „Auðvitað get- ur samt engin ríkisstjórn setið til lengdar án þess að koma laga- frumvörpum í gegnum báðar þingdeildir. 32 þingmenn eru minnsti starfhæfi meirihluti rík- isstjórnarinnar, það er fræðilegt mat á stöðunni. Engin ríkisstjórn getur setið til langframa nema geta fengið samþykkt lagafrum- vörp.“ Fréttamaður hefur síðan beint eftir Ólafi, að ríkisstjorn með ótryggan meirihluta í annarri þingdeildinni gæti ekki einu sinni afgreitt fjárlög almennilega, því oft þyfti að fá ýmis lög til fjáröfl- unar og fleira tengt afgreiðslu sjálfra fjárlaganna. Þá kvaðst Ólafur aðspurður ekki telja að ríkisstjórninni myndi berast óvæntur stuðningur frá stjórnar- andstöðunni. Hann kvaðst ekki hafa nokkra trú á því, en kannski mætti segja að allt ylti á Alberti Guðmundssyni því hann hefði ekki sagt sitt síðasta orð. Fréttamaður segir síðan frá viðtali sínu við Albert Guð- mundsson. Hann hefur eftir hon- um í upphafi, að Gunnar Thor- oddsen forsætisráðherra hefði ekki rætt við hann um stuðning við ríkisstjórnina eða bráða- birgðalögin sérstaklega. Albert kveðst styðja eindregið kröfur þingflokks sjálfstæðismanna um að Alþingi komi saman þegar í stað til að láta á reyna hvort bráðabirgðalögin styðjast við nauðsynlegan meirihluta þing- manna í báðum deildum þingsins. Þá kvaðst hann sjá fleiri nei- kvæða þætti en jákvæða í efna- hagsráðstöfunum ríkisstjórnar- innar. Af neikvæðum þáttum nefnir hann kjaraskerðingu, hækkun vörugjalds, sem myndi leiða til meiri verðbólgu og skerð- ingar á álagningu verzlunarinnar, einnig að gengisfellingin kæmi ekki öll til skila til framleiðend- anna. Af jákvæðum þáttum nefndi hann það að dregið skyldi úr innflutningi fiskiskipa. Þá seg- ir hann tvö önnur mál vega þungt hjá sér í mati á ríkisstjórninni annars vegar ákvörðun stjórnar- innar um að gera samning um efnahagssamvinnu við Sovétrikin fyrr í sumar, sem hann sagðist algjörlega andvígur, hins vegar að ríkisstjórnin skuli ekki hefja byggingu flugstöðvar á Keflavík- Ólafur Albert Jóhannesson Guðmundsson urflugvelli þegar í stað og nota til þess bandarískt fjármagn. Albert er í lokin spurður hvort hann sé þegar allt kemur til alls stjórnarliði eða stjórnarandstæð- ingur. Hann svarar: „Ég varð til þess á sínum tíma að Gunnar Thoroddsen fékk umboð til mynd- unar ríkisstjórnarinnar og ég hef alltaf litið á Gunnar sem afskap- lega hæfan stjórnmálamann. Ég átti ekki þátt í því að búa til mál- efnasamning stjórnarinnar og ber því enga ábyrgð á ríkisstjórninni sem slíkri. Hins vegar lýsti ég því yfir að ég myndi verja stjórnina falli fyrstu mánuðina." Hann seg- ist síðan líta á sig sem einn af 20 stjórnarandstæðingum í neðri deild, eins og að framan greinir. Hann segir í lokin að þegar litið sé á ákveðna þætti bráðabirgða- laganna, efnahagssamninginn við Rússa og flugstöðvarmálið, sé al- veg ljóst að hann muni ekki treysta sér til að verja ríkis- stjórnina falli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.