Morgunblaðið - 26.08.1982, Side 16

Morgunblaðið - 26.08.1982, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1982 Hugleiðingar um þjóðsöng- inn, höfundaréttarmál o.fl. Eftir Jón Þórarinsson Allmiklar umræður hafa að undanförnu orðið í fjölmiðlum og manna á meðal um notkun þjóð- söngsins „Ó, guð vors lands", í kvikmyndinni „Okkar á milli — í hita og þunga dagsins" og útgáfu hans á hljómplötu með sama nafni. Skömmu eftir að platan var kynnt í útvarpi, spurðist ég fyrir um það í menntamálaráðuneytinu, hvort ráðuneytinu væri kunnugt um plötu þessa og þá meðferð, sem lagið sætti þar. Svo reyndist ekki vera, og var ég beðinn að kynna mér málið nánar og láta ráðuneyt- inu í té skriflegt álit á þessum „út- setningum" lagsins. Þetta gerði ég í bréfi til ráðuneytisstjórans, dags. 20. júlí sl. Ráðuneytið hefur ekki talið ástæðu til aðgerða í máli þessu, a.m.k. að svo stöddu, og var mér tilkynnt sú niðurstaða í bréfi ráðuneytisstjóra, dags. 17. ágúst. Afrit af því bréfi, ásamt álitsgerð minni frá 20. júlí, mun síðan hafa verið sent fjölmiðlum til birt- ingar. Af þessu virðist sú hug- mynd hafa kviknað, að ég sé aðili að þessu máli, en það er vitanlega misskilningur. Afskipti mín af málinu eiga rætur í því fyrst og fremst, að ég tók saman á sínum tíma ævisögu Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, tónskálds, sem er höfundur lagsins við þjóðsöng- inn, og af því tilefni kynnti ég mér eftir föngum sögu lagsins, og má raunar segja, að lagið hafi verið höfuðástæða þess að ævisagan var skrifuð. Ef til vill er mér af þess- um ástæðum sárara um lagið en ella væri. Hitt er ekkert leynd- armál, enda mörgum kunnugt, að ég hef alla tíð verið lítið hrifinn af „popp-útsetningum“ sígildrar tónlistar. Umræðurnar nú virðast mér, eins og stundum áður þegar svipuð efni hefur borið á góma, hafa ver- ið furðu yfirborðslegar og skoðan- Sveinbjörn Sveinbjörnsson ir lítt rökstuddar. Af ýmsum ástæðum þykir mér rétt að láta koma fram nokkur atriði, ef verða mætti til glöggvunar varðandi þetta mál og réttindi höfunda yf- irleitt. Þá er fyrst að líta á stjórn- arskrá lýðveldisins Islands. Þar segir svo í 67. gr.: „Kignarrétturinn er friðhelgur. Kngan má skylda til að láta af hendi eign sina, nema al- menningsþörf krefji; þarf til þess lagafyrirma-li, og komi fullt verð fyrir.“ Enginn greinamunur er hér gerður á mismunandi eðli eignar- réttar „Er ... hér átt við eignar- réttindi í mjög víðri merkingu," segir próf. Gunnar G. Schram í Matthías Jochumsson riti sínu um stjórnarskrána (Rvik 1975) og nefnir í því sambandi höfundarétt sérstaklega. Þetta skilst mér að þýði það m.a. að ef ég t.d. smíða mér stól, þá er hann mín eign, og enginn getur skyldað mig til að láta hann af hendi, nema Alþingi sjálft með lagafyrirmælum, og þó því aðeins að „almenningsþörf krefji ... og komi fullt verð fyrir". Til viðbótar kemur svo það samkvæmt erfða- lögum, að erfingjar mínir eignast stólinn að mér látnum, hafi hon- um ekki verið ráðstafað með öðr- um hætti, og þeirra erfingjar eftir þá og svo koll af kolli. Réttlætiskennd mín segir mér, að hið sama ætti að gilda ef ég set saman lagstúf eða yrki kvæði. Hvorttveggja er, eins og stóllinn, árangur af starfi hugar og handar, þótt stóllinn sé mótaður í áþreif- anlegt efni, en „hugverkin" ekki. En hér hefur löggjafinn litið öðruvísi á. í höfundalögum nr. 73/1972 segir svo í 1. málsgr. 1. gr.: „Ilöfundur að bókmenntaverki eða listaverki á eignarrétt á því með þeim takmörkunum, sem i lögum þessum greinir." Hér er eignarrétt- ur höfundar á verki sínu að vísu staðfestur, og í lögunum er hann skilgreindur nánar, en segja má, að aðalefni laganna sé að tak- marka þennan rétt með ýmsum hætti. Sumar þessar takmarkanir ganga svo langt, að leikmanni í lögum gætu sýnzt þær brjóta í bág við ákvæði stjórnarskrárinnar um friðhelgi eignarréttarins. En í höfundalögunum eru líka ýmis ákvæði til verndar höfundum og verkum þeirra. _T.d. segir í 2. málsgr. 4. gr.: „Óheimilt er að breyta verki höfundar eða birta það með þeim hætti eða í því samhengi, að skert geti höfundarheiður hans eða höfundarsérkenni." Meðan höfundaréttur helzt, eiga rétthafar sjálfir (höfundar, erf- ingjar þeirra eða svonefndur til- sjónaraðili, ef hann hefur verið tilnefndur) að gæta þess að ekki sé misgert við þá í þessu efni eða öðr- um, sem höfundalög taka til. Þannig er höfundaréttur settur skör lægra en annar eignarréttur. Ef einhver stelur stólnum mínum, er það sakamál, sem yfirvöldum er skylt að láta til sín taka. En ef hugverk er tekið ófrjálsri hendi, verður eigandinn sjálfur að reka réttar síns með einkamálssókn. Er þetta eflaust ein höfuðorsök þess, hversu mjög er einatt gengið á þau réttindi, sem höfundalögin eiga að vernda, án þess að misgerðarmenn séu látnir sæta ábyrgð. „Nú deyr höfundur," segir í 31. gr. höfundalaga, „og fer þá um höf- undarétt eftir ákvæðum erfðalaga ...“ Á því eru þó takmarkanir, sem mér er ekki kunnugt að gildi um annan eignar- eða erfðarétt, því að í 43. gr. segir: „Höfundarétt- ur helzt unz 50 ár eru liðin frá næstu áramótum eftir lát höfundar.“ Með þessu lagaákvæði eru hugverk í reynd gerð upptæk $f löggjafans hálfu, án þess að nokkurt verð komi fyrir, eða séð verði, að al- menningsþörf krefjist þess, eins og þó er gert ráð fyrir í sjálfri stjórnarskránni. Einn eftirþanka hefur þó lög- gjafinn haft í þessu sambandi, því að í 53. gr. laganna segir: „Ákvæði 2. málsgr. 4. gr. skulu gilda um bókmenntaverk og listaverk, sem ekki eru háð höfundarétti.“ Sam- kvæmt þessu er óheimilt að breyta verki höfundar, þótt hann hafi verið látinn í 50 ár eða lengur, eða birta það með þeim hætti eða í því samhengi, að skert geti höfund- arheiður hans eða höfundarsér- kenni. Brot gegn þessu (og ýmsum öðrum) ákvæðum höfundalaga geta varðað sektum eða varðhaldi, allt að þremur mánuðum, en mál út af slíkum brotum „skal aðeins höfða eftir kröfu menntamálaráð- herra, enda telji hann þess þörf vegna tillits til almennrar menn- ingarverndar". Ekki er mér kunn- ugt um neina skilgreiningu á því, hvenær slík þörf geti talizt vera fyrir hendi, og hlýtur það að vera háð mati ráðherra hverju sinni. Þessum svonefndu sæmdarréttar- ákvæðum höfundalaganna hefur aldrei verið beitt hér á landi, en í Danmörku, þar sem áþekk laga- ákvæði munu vera í gildi, hefur fallið hæstaréttardómur í slíku máli. Var þar um að ræða tónverk eftir Johan S. Svendsen, sem hafði verið „útsett" í dægurlagastíl, og gekk dómurinn á móti útsetjaran- um. Það var með tilliti til þessara lagaákvæða, sem ég taldi skyldu mína að vekja athygli mennta- málaráðuneytisins á fyrrnefndri hljómplötu. Ég taldi þá, og tel enn, að báðar „útsetningar" þjóðsöngs- ins, sem á plötunni birtast, brjóti ótvírætt í bága við þau lagaákvæði um höfundarheiður og höfundar- sérkenni, sem vitnað hefur verið til hér að framan. Ákvörðun í ráðuneytinu var ekki tekin fyrr en eftir að kvikmyndin var frumsýnd, og þá væntanlega fyrst og fremst með hliðsjón af henni. Var þá lið- inn nærri mánuður frá því að bréf mitt var skrifað, en þar var að sjálfsögðu eingöngu tekið mið af efni hljómplötunnar. Ákvörðun Svíar ganga að kjörborðinu 19. september: Hjartslátturinn eykst í sænsku kosningabaráttunni Krá (.uófinnu Ragnarsdóttur, rrúttaritara Mbl. í Stokkhólmi. Hjartslátturinn verður æ örari í sænsku kosningabaráttunni. Kftir tæpan mánuð velja Svíar sér stjórn til næstu þriggja ára. Ilalda borgaraflokkarnir velli eða ná jafnaðarmenn völdum á ný, eftir sex ára stjórnarandstöðu? Margir spá, en enginn veit. Skoð- anakannanir sýna að jafnaðar- menn hafa aukið fylgi sitt og hafa jafnvel möguleika á að ná meiri- hluta. Kn kannanirnar sýna einnig, að líkur eru á að kommúnistaflokkur- inn nái ekki þeim 4% atkvæða, sem nauðsynleg eru til þess að komast á þing, en það myndi veikja mjög stöðu jafnaðarmanna. Reynsla fyrri kosninga hefur sýnt, að margir jafnaðarmenn kjósa kommúnÍ8taflokkinn til að koma í veg fyrir að hann hverfi af þinginu, en í síðustu kosning- um fengu kommúnistar rúm 5% atkvæða. Báðir stjórnarflokkarnir, Miðflokkurinn undir forystu Thorbjörn Fálldin og Þjóðar- flokkurinn. undir forystu Ulla Ullsten, hafa misst mikið fyigi samkvæmt skoðanakönnunum. Miðflokkurinn, sem fékk um 18% atkvæða við síðustu kosn- ingar, á nú aðeins að fá 11 — 12%, samkvæmt könnunum, Þjóðarflokkurinn, sem fékk 10—11% í kosningunum 1979, á nú aðeins að fá 7—8% atkvæða. Hægri flokkurinn hefur aftur á móti stöðugt aukið fylgi sitt. Við kosningarnar 1979 fékk flokkurinn nærri 21% atkvæða og á samkvæmt skoðanakönnun- um að fá á milli 22 og 25% at- kvæða í komandi kosningum. Hægri flokkurinn hefur að margra áliti Verið stefnufastasti flokkurinn og haldið sínum skoð- unum og kröfum fast fram, und- ir stjórn Gösta Bohman, sem lét af störfum í vor. Stefnufesta flokksins varð líka til þess, að hann sagði sig úr stjórninni 1981, er miðflokkarnir tveir sömdu við jafnaðarmenn um nýtt skattgreiðslukerfi. Það, sem mikinn usla getur gert við kosningarnar þann 19. september, er hinn nýi Umhverf- isflokkur, sem samkvæmt skoð- anakönnunum mun fá 6% at- kvæða. Að Umhverfisflokknum standa m.a. Per Gahrton, fyrr- verandi þingmaður Þjóðar- flokksins. Umhverfisflokkurinn vill m.a. berjast gegn mengun og alls kyns ofnýtingu lands og sjávar. Mikið er nú rætt um hvernig komandi stjórn muni líta út og getgáturnar eru margar. Ein er að jafnaðarmenn nái meirihluta, önnur að jafnaðarmenn vinni kosningarnar án þess að ná meirihluta og myndi þess vegna stjórn með Miðflokknum, Þjóð- arflokknum, eða báðum. Þriðja tilgátan er, að borgaraflokkarnir þrír nái meirihluta og myndi stjórn. Birgit Friggebo, húsnæð- ismálaráðherra Svía, leist mátu- lega vel á að Þjóðarflokkurinn myndaði stjórn með jafnaðar- mönnum. „Þjóðarflokkurinn er ekki til viðræðu um samstarf við jafnaðarmenn, á meðan þeir vilja „sósíalera" landið með launþegasjóðum," sagði hún. Aðalmál kosninganna eru hin- ir svokölluðu launþegasjóðir. Þeir ganga eins og rauður þráð- ur í gegnum alla baráttuna. Jafnaðarmenn hafa lofað að koma á launþegasjóðum ef þeir komast til valda og hinir flokk- arnir nota hvert tækifæri sem gefst til að vara við sjóðunum. „Frelsi eða launþegasjóðir", skrifar Hægriflokkurinn á kosn- ingaauglýsingar sínar, sem blasa Olof Palme við um allan bæ. „Það er núna, sem þú getur stoppað launþega- sjóðina," skrifar Þjóðarflokkur- inn á sínar auglýsingar og Mið- flokkurinn skrifar með stórum stöfum: „Nei, enga launþega- sjóði". „Atvinna og öryggi, þess vegna launþegasjóði", skrifa jafnaðarmenn og lofa óbreyttum eftirlaunum og sjúkradagpen- ingum. Miðflokkurinn lofar styrk handa heimavinnandi foreldrum smábarna og lofar einnig betra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.