Morgunblaðið - 26.08.1982, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1982
Bændaskólinn
á Hólum 100 ára
Avarp Jónasar Péturssonar fyrr-
verandi alþingismanns
„Þó að margt hafi breytzt, síð-
an byggð var reist, geta börnin
þó treyst sinni íslenzku móður".
Þetta segir Davíð Stefánsson í
Alþingishátíðarljóðum. Ég efa
ekki að mæður okkar eigi þetta
hrós, þessa auðmjúku aðdáun
frá hjarta Davíðs. En ég legg
tvennan skilning í þessa kveðju
til mæðra. Það er einnig átt við
ættjörðina — átt við Island. í
þeim skilningi hef ég valið þetta
upphaf máls míns.
Kllefu hundruð ára búseta í
landinu á í minningu sögunnar
skin og skugga. Árferðið er misr
jafnt, nú um stundir nokkuð erf-
itt, — en líka var svo og í annál-
um haft fyrir hundrað árum,
þegar Hólaskóli var stofnaður.
Þá áttu brautryðjendur kjark og
framsýni, treystu eins og Davíð
segir sinni íslenzku móður! Hóp-
urinn á Hólum á 100 ára afmæl-
ishátíð gerir það líka!
En um þessar mundir eru
freistingar víða. Talsmátinn um
gull og græna skóga er við lýði.
Tölvan hefir hæsta rödd í loftinu
um skeið! Mér finnst hún koma
úr draugs barka! Velferð ís-
lenzkrar þjóðar í bráð og lengd
er í því að byggja allt þetta land,
í sveitalífi og strjálbýli landsins,
Jónas Pétursson
í þeim sífelldu tengslum við
náttúru landsins, veðráttu þess,
gróður og búfé, þar sem brjóst-
vitið fær notið sín. Þar sem tölv-
an er þjónn en ekki herra!
Skáldið segir um ísland: „Það
agar oss strangt með sín ísköldu
él, en ásamt til blíðu það meinar
allt vel.“ Og í sálminum segir
þetta: „Já, sérhvert blað á blómi
jarðar smáu er blað, sem margt
er skrifað á um þig.“ Lífsspeki
utan við hagkvæmnissvið tölv-
unnar.
Bændaskólarnir hafa fjölþætt
starfssvið. Ég veit að Hólamenn
gera sér það ljóst!
Um leið og ég færi Hólaskóla
þakkir fyrir veganestið er ég
hlaut fyrir 50 árum, já, innilegar
þakkir, þá óska ég honum af
hjarta heilla og farsældar næstu
hundrað árin, já, allri búnaðar-
fræðslu í landinu. Á hennar sviði
og í starfi og hugsun bænda og
húsfreyja sveitum landsins er
fínn og sterkur strengur tauga-
kerfis þjóðarinnar! Þetta brenn-
ur í mínu brjósti! Ég finn hvöt
hjá mér til að styðja á nokkrar
nótur í „ísland! farsælda Frón“.
Heill Hólum,
Lauk framhaldsnámi
í tannréttingum
NVLEGA lauk Gisli Vilhjálmsson fram-
haldsnámi i tannréttingum við háskólann
í SL Louis í Bandarikjunum.
Hlaut hann svonefnd Marshall-verð-
laun fyrir bestan samanlagðan árangur
í bóklegu og verklegu námi þau tvö ár
sem hann hefur dvalið við háskólann.
Gísli er fæddur árið 1954. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Hamrahiíö árið 1974. Sama ár hóf hann
nám við Háskóla íslands og lauk þaðan
tannlæknaprófi árið 1980. Fór hann þá
til Bandaríkjanna í framhaldsnám.
Gísli er sonur hjónanna Nönnu
Gunnarsdóttur og Vilhjálms Gislason-
ar í Keflavík. Kona hans er Kristín
Jónsdóttir.
Gísli vinnur nú að vörn master-rit-
gerðar sinnar og kemur síðan heim til
starfa.
Hjónin Margrét Guðfinnsdóttir og Sigurgeir Sigurðsson.
Gjöf til vangefinna
HJÓNIN Margrét Guðnnnsdóttir og
Sigurgeir Sigurðsson fyrrum skip-
stjóri, Völusteinsstræti 8, Bolungar-
vík, hafa nýverið afhent gjafir til
Styrktarfélags vangefinna á Vest-
fjörðum kr. 25 þúsund og Styrktarfé-
lagi vangefinna í Reykjavík, sömu
upphæð, eða samtals 50 þúsund.
Gjafir þessar eru gefnar i tilefni átt-
ræðisafmælis Sigurgeirs, hinn 22.
júli sl. segir í frétt frá Styrktarfélagi
vangefinna.
Sigurgeir Sigurðsson fæddist að
Markeyri í Skötufirði 22. júlí árið
1902. Hugur hans hneigðist
snemma að sjómennsku og hóf
hann sjóróðra, fyrst í Tjaldtanga,
síðar í Hnífsdal og Bolungarvík. I
frétt Styrktarfélagsins segir:
„Árið 1926 kvæntist hann Mar-
gréti Guðfinnsdóttur og fluttu þau
hjón til Bolungarvíkur árið 1934
og hafa búið þar síðan. Sigurgeir
átti um margra áratuga skeið bát
sjálfur. Hann var einhver ötulasti
sjósóknari á sinni tíð og sótti allt-
af fast og aflaði vel. Þó hann hafi
nú fyllt átta áratugi vinnur hann
dag hvern og lætur ekki bilbug á
sér finna. Margrét og Sigurgeir
eignuðust 10 börn og eru 8 þeirra á
lífi.
Eru þessum heiðurshjónum
þakkaðar þessar rausnarlegu gjaf-
ir til vangefinna og þann hlýhug
til málefnisins er að baki býr og
þeim árnað allra heilla."
Sýning Ásgeirs Smára
framlengd í Asmundarsal
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fram-
lengja sýningu Ásgeirs Smára
Einarssonar í Ásmundarsal, en
henni átti upphaflega að ljúka 23.
ágúst, tíi laugardags 28. þ.m.
vegna mikiilar aðsóknar. Sýningin
er opin kl. 14—21 virka daga, en
föstudag og laugardag kl. 14—22.