Morgunblaðið - 26.08.1982, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 26.08.1982, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1982 píi0r0MimMasj»i^» Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 120 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 8 kr. eintakiö. Ríkisstjórn án starf- hæfs þingmeirihluta Frumvarp til staðfestingar á nýútgefnum bráðabirgðalög- um, sem ríkisstjórnin flytur strax og þing kemur saman, mætir andstöðu 20 þingmanna í neðri deild, sbr. ályktanir þingflokka sjálfstæðismanna og alþýðuflokksmanna og yfir- lýsingu Eggerts Haukdal. Samkvæmt því fellur frumvarpið á jöfnum atkvæðum. Meginverkefni hvers þings er að setja ríkisbúskapnum fjárlög. Fjárlög eru afgreidd í Sameinuðu þingi, en ætla má að ríkisstjórnin haldi þar naumum meirihluta. Hliðarfrum- vörp, sem fjárlög grundvallast á, svo sem frumvörp um framlengingu ýmiss konar skattheimtu, sem þingið fram- lengir frá ári til árs, þurfa hinsvegar að hljóta samþykki í báðum þingdeildum. Til þess hefur stjórnin ekki þingstyrk. Þetta eru grundvallarstaðreyndir, sem fram koma í viðtali Mbl. við Geir Hallgrímsson, formann Sjálfstæðisflokksins, í gær. „Það er því lýðum ljóst,“ sagði Geir, „að ríkisstjórnin hefur ekki starfhæfan og nauðsynlegan meirihluta á Al- þingi." Talsmenn ríkisstjórnarinnar fullyrða hið gagnstæða. Við þeskar aðstæður er það þingræðisleg skylda ríkisstjórnar- innar að kalla Alþingi saman nú þegar — og láta á það reyna, hvort þingmeirihluti stendur að baki henni og bráða- birgðalögunum. Samhliða þarf Alþingi að fjalla um stjórn- arskrármálið, þ.e. jöfnun á vægi atkvæða. Ennfremur að taka afstöðu til byggingar nýrrar flugstöðvar á Keflavíkur- flugvelli, sem komin er að tímamörkum, varðandi u.þ.b. 40 milljóna dollara kostnaðarþátttöku Bandaríkjanna. Eðlilegt er að meirihluti þings ráði ferð í því máli sem öðrum, ef ríkisstjórnin treystir sér ekki til að ákveða bygginguna. Reynist þingmeirihluti stjórnarinnar brostinn ber síðan að rjúfa þing og efna til kosninga, svo hægt sé að mynda nýja, starfhæfa ríkisstjórn í samræmi við meirihlutavilja þjóðarinnar. Var forseti lýðveld- isins blekktur? Þegar bráðabirgðalög vóru í burðarlið um áramótin 1980—1981 lék vafi á meirihlutafylgi þeirra á þingi. For- seti lýðveldisins gekk þá úr skugga um, hvort svo væri, að sögn Ólafs G. Einarssonar, formanns þingflokks sjálfstæð- ismanna. „Ég hlýt að álykta að sami háttur hafi verið hafður á nú,“ sagði þingflokksformaðurinn. Þingflokksformaður spyr síðan, hvort forseti lýðveldisins hafi verið blekktur, hvað varðar meintan þingstuðning við nýsett bráðabirgðalög. „Ég hlýt að álykta sem svo,“ segir hann. Það er því ekki einvörðungu efnisatriði bráðabirgðalag- anna og efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar, sem umdeild eru, heldur ekki síður vinnubrögð hennar. Fjórðungsþing Norðlendinga Nálægt 100 sveitarstjórnarmenn og gestir sitja Fjórð- ungsþing Norðlendinga, sem háð verður á Sauðárkróki í þessari viku. Annað meginviðfangsefni þingsins verður at- vinnuþróun á Norðurlandi. Þar ber tvær staðreyndir hæst: 1) Fjögur þúsund ný störf þurfa að verða til í fjórðungnum á þessum áratug, ef mæta á líklegri atvinnuþörf. 2) Vinnutekj- ur Norðlendinga hafa verið undir landsmeðaltali. Ljóst er að nokkur samdráttur hefur orðið í búsetu- og atvinnuþróun nyrðra. Til að snúa vörn í sókn þarf tvennt að koma til. I fyrsta lagi þarf að búa hefðbundnum atvinnuveg- um skilyrði til arðbærs rekstrar, en á það skortir verulega nú. Tekjuþróun nyrðra hlýtur að haldast í hendur við rekstr- arstöðu atvinnugreina. Hefðbundnar atvinnugreinar bæta hinsvegar ekki við sig umtalsverðu vinnuafli. Þess vegna þarf að skjóta nýjum stoðum undir atvinnu- og afkomu með orkuiðnaði. Blönduvirkjun býður upp á möguleika, sem Norð- lendingar kjósa væntanlega, að verði fremur nýttir heima fyrir en annars staðar. Landshlutasamtök, eins og FSN, þjóna jákvæðu samráðs- og samstarfshlutverki. Morgunblaðið árnar Fjórðungsþing- inu farsældar í störfum. „Aflinn reynd vera 40 golfb Fyrir skömmu var staddur hér á landi heimsþekktur stangaveiðimaður, Skotinn Peter Anderson. Er óhætt að segja að ekki eru margir veiðimenn uppi sem eru honum frægari. Peter er fyrst og fremst stangaveiðimaður, en hefur einnig alloft keppt í stangarköstum og náð undraverðum árangri. A hann heimsmet í stangarköstum sem menn deila um hvort að verði nokkurn tíma slegin. Skotinn var hér á landi í fyrsta skipti í júlí, en kom svo aftur í ágúst og renndi þá í fyrsta skipti fyrir lax hér á landi. Hann veiddi þá síðdegis og morguninn eftir í Laxá í Kjós og veiddi fjóra laxa um morguninn. Einn laxanna var honum mjög minnisstæður. „Þetta er það furöulegasta sem ég hef séð, á öllum mínum ferli hef ég aldrei vitað lax kokgleypa flugu eins og þessi tíu-pundari gerði við March Brown-flugu mína númer tíu. Undirritaður tjáði Anderson að þetta væri alls ekki með öllu óþekkt fyrirbæri hér á landi, en þrátt fyrir að hann hafi veitt þús- undir laxa um dagana hafði hann aldrei vitað lax kokgleypa flugu. Það sýnir best hversu margslung- inn fiskur laxinn í raun er. And- erson hélt helst að ef þetta fyrir- bæri væri til hér á Iandi hlyti það að teljast séríslenskt og varla veit nokkur maður það betur, því hann hefur rennt fyrir lax meira og minna i nær öllum þeim löndum þar sem Atlantshafslaxinn er að finna. En látum Anderson segja okkur frá dvöl sinni við íslensku árnar. Gagnrýndi allt sem Nicklaus gerdi — Ég kom fyrst og fremst í júlí í boði Jack Nicklaus golfleikara, en hann var að veiða í Grímsá. Hugmyndin var að ég segði honum til, enda enginn veiðimaður svo snjall að hann viti allt sem vita þarf. Ég gagnrýndi allt sem hann gerði og hann var farinn að spyrja mig hvort hann væri alveg glatað- ur, hvort honum væri gersamlega fyrirmunað að gera eitthvað af viti. Hann meinti þetta reyndar að nokkru leyti í gríni, enda fær veiðimaður, og hann veiddi 12—14 laxa meðan á dvöl hans stóð við Grímsá. Hann var sérstaklega ánægður með að hafa veitt 4—5 fiska á þurrflugur en okkur skilst að þær séu lítið notaðar hér á landi og ekki veiðisælar. Hann ræddi sérstaklega um einn spenn- andi morgun þegar sex laxar risu við þurrflugum hans. Fjórir tóku og hann landaði þeim öllum. En ég fann ýmislegt að því hvernig hann stóð að veiðunum. Ég benti honum til dæmis á að vaða alls ekki út í ána nema brýn nauðsyn bæri til, að kasta ekki of langt niður ána og leyfa flugunni heldur að sveima rétt yfir veiðistaðinn o.fl. o.fl. Veidiþjófar viö veiöihúsið — Það gerðist svolítið skemmti- legt atvik fljótlega eftir aö við renndum í hlað við veiðihúsið við Grímsá. Okkur hafði verið sagt að eftirlit með íslenskum ám sé með því besta sem gerist í heiminum og veiðiþjófnaður þar af leiðandi hverfandi. Þess vegna rak okkur í rogastrans þegar við sáum tvö ungmenni vera að draga stórt net fram og aftur um veiðistað beint fyrir framan veiðihúsið. Þetta voru glókollar og augsýnilega syn- ir Jack Nicklaus. Þeir kipptu sér ekkert upp við það þó við löbbuð- um til þeirra og spurðum hvað þeir væru eiginlega að gera. Og þeir voru brosandi og afslappaðir er þeir drógu net sitt í land og sýndu okkur aflann, sem var um 40 golfboltar sem þeir höfðu slegið út í ána! Annar þeirra spurði okkur skælbrosandi út að eyrum hvort við hefðum haldið þá vera við veiðiþjófnað. Við gátum ekkert • Anderson einbeittur í svip í Luá í Kj sagt, því undir þessum kringum- stæðum var það auðvitað fárán- legt. Langaöi aö hoppa út í hylinn Peter Anderson hefur veitt í flestum þeim löndum sem lax veiðist í, hann hefur veitt mikið í Kanada og Bandaríkjunum, þekk-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.