Morgunblaðið - 26.08.1982, Page 30

Morgunblaðið - 26.08.1982, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1982 ESAB Rafsuðutæki vír og fylgihlutir Nánast allt til rafsuðu. Stæró ESAB og eftirspurn eftir ESAB vörum um allan heim sannar gæöin. Allar tækni- upplýsingar fyrirliggjandi. = HÉÐINN = VÉLAVERSLUN,SELJAVEGI 2, SfMI24260 ESAB Athugasemd frá einum „rakka“ Eftir Kolbein Þorleifsson Mig langar til þess, að eftirfar- andi athugasemd verði birt frá mér í Mbl. í tilefni af grein Skúla Magnússonar ritstjóra: Brjóstvörn- in, sem birt var í síðasta laugar- dagsblaði. Eg hefi að athuguðu máli ákveð- ið að svara þessari grein Skúla, en vegna augnkvilla get ég ekki geng- ið frá svarinu strax til birtingar. En mig langar til að biðja ykkur um að gera mér smá greiða. Undir lok greinar herra ritstjórans Skúla Magnússonar hafa fallið Staðarhólskirkja 1 notkun á ný MENN rekur vafalaust minni til þess, að aðfaranótt 17. febrúar í fyrra gekk fárviðri yfir landið og olli víða verulegum skemmdum. I*á fauk Staðarhólskirkja i Saurbæ af grunni sínum og skemmdist mikið. Söfnuðurinn ákvað strax að hefjast handa við endurbyggingu kirkjunnar, og sést nú brátt fyrir endann á því verki, en ákveðið er að kirkjan verði tekin í notkun á ný með hátíðarguðsþjónustu sunnudaginn 5. september nk. kl. 2 e.h. Þar mun biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, prédika, en sóknarpresturinn, sr. Ingiberg J. Hannesson, prófastur á Hvoli, flytur ávarp og þjónar fyrir altari. Á eftir verða veitingar í Tjarnar- lundi í boði sóknarnefndar. Er þess vænst, að velunnarar kirkjunnar, bæði heima og heiman, sæki þessa kirkjuhátíð og samfagni söfnuðinum með þennan merka áfanga í sögu kirkjunnar. niður tvær línur, að mér sýnist. Það er á þeim stað, þar sem herra ritstjórinn líkir mér af góðsemi sinni við rakka (þ.e. hund). Mér þætti vænt um, að höfundurinn fengi Mbl. til þess að endurprenta þennan texta, eins og hann gekk frá honum, svo að ég geti svarað honum, án þess að gera honum upp orð. Eg vil taka það fram, að mér finnst þessi líking ritstjórans skemmtileg og tek hana ekki sem persónulega móðgun. Þessa dag- ana er ég að kynna mér frægustu lærdómsmenn 13. aldar í Evrópu, þá dómíníkanana Albertus Magn- us og Thomas Aquinas. Allegóría fyrri alda kallaði þessa menn „Drottins hunda". Enda þótt ég búist alls ekki við að komast nokk- urn tíma með tærnar, þar sem þessir menn höfðu hælana, þá snertir það hégómagirnd mína að vera alls óverðugur hafinn upp í þeirra stand með laukréttum að- ferðum miðalda-allegóríunnar, sem Skúli ritstjóri beitir þarna eins og henni var beitt í íslenskum hómilíum á miðöldum. Morgunblaðinu er núna skylt, að vera opið fyrir stanslausri um- ræðu um fræði Einars Pálssonar, því að það hleypti henni af stað með þeim árangri, að nú eru í Nor- egi í undirbúningi útvarpsþættir um málið. Fyrir nokkrum vikum voru hér á ferð útvarpsmenn, sem tóku upp mikið efni í slíka þætti. Væri það ekki ráð, að íslenskir fjölmiðlar tækju sig nú til og reyndu að hefja umræðu um ís- lensk miðaldafræði, sem væri á hærra plani en þetta leiðinda pex, sem umræður um fræði Einars Pálssonar verða óhjákvæmilega að, þegar hann einn er látinn ráða ferðinni. Væri það ekki keppikefli fyrir blað eins og Morgunblaðið, að stuðla að því, að kennarastörfum og rannsóknarstörfum yrði fjölg- að svo í íslenskum fræðum og guð- fræði við háskólann, að íslend- ingar gætu látið eitthvað eftir sig liggja í sinni eigin menningar- sögu. Virðingarfyllst, Kolbeinn Þorleifsson Staðarhólskirkja eftir óveðuranóttina 17. febrúar 1981. raðauglýsingar — radauglýsingar — raðauglýsingar Rakarastofa Til sölu góð rakarastofa á besta stað í bæn- um. Tilboð merkt: „Rakarastofa — 3469“ leggist inn á augl.deild Mbl. fyrir 1. sept. Bókhaldsvél KIENZLE 700 til sölu. Upplýsingar gefur undirritaður í síma 94-3722. Bæjarstjórinn á ísafirði. Akranes — verkamannabústaöur Til sölu er 3ja herb. eldri íbúð í verkamanna- bústað. íbúðinni fylgir bílskúr. Skilyrði fyrir úthlutun er m.a. a. lögheimili á Akranesi, b. eiga ekki eign fyrir c. hámarkstekjur samkvæmt reglum Hús- næöisstofnunar. Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofuna fyrir 3. sept. 1982, á eyöublöðum, sem þar fást. Stjórn verkamannabústaöa. húsnæöi óskast íbúðareigendur ath. Okkur vantar 2ja—3ja herb. ibúö strax í 1—114 ár, helst á Melaskóla- svæðinu Allt annaö kemur þó tll greina. Þrennt í heimili. Meömaeli ef óskaö er. Ef þér er annt um íbúöina þína skaltu hafa samband. Viö munum ganga vel um hana. Nánari uþþlýsingar í símum 84791 og 81582. Húsnæði óskast Mig vantar 2ja—3ja herb. íbúð til leigu í 1 ár fyrir dóttur mína og kærasta hennar, sem er í námi. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Uppl. í síma 39187 eftir kl. 7 á kvöldin.__ Einhleyp miðaldra kona óska eftir að taka á leigu góða tveggja her- bergja íbúð í Reykjavík. Reglusemi og góöri umgengni heitið. Upplýsingar í síma 10925 eftir kl. 17 á kvöldin. Iðnfyrirtæki óskar eftir aö taka á leigu 100 til 200 fm húsnæði strax. Innkeyrsludyr skilyrði. Uppl. í símum 84446 og 78727. tilkynningar Matsveinafél. SSÍ Framboöslistum til kjörs fulltrúa á sjómanna- sambandsþing í haust sé skilaö á skrifstofu félagsins fyrir 7. sept. Stjórnin. Frá Flensborgarskóla Flensborgarskóli verður settur miðvikudag- inn 1. september kl. 10 árdegis. Stundatöflur nemenda verða afhentar að lokinni skólasetningu og jafnframt innheimt nemendagjöld kr. 400. Kennarafundur verö- ur í skólanum þriðjudaginn 31. ágúst kl. 9 árdegis. Endanleg innritun í Öldungadeild skólans fer fram 2. og 3. september kl. 2—6 báöa dag- ana og jafnframt veröa innheimt skólagjöld vegna Öldungadeildar væntanlega kr. 1000 fyrir önnina. Kennsla í Öldungadeild hefst mánudaginn 6. september. Skólameistari. Evrópuráöið býður fram styrki til framhaldsnáms starfandi og verðandi verkmenntakennara á árinu 1983. Styrkirnir eru fólgnir í greiöslu fargjalda milli landa og dvalarkostnaöar (húsnæði og fæði) á styrktímanum, sem get- ur orðið frá 2 vikum og upp í sex mánuði. Umsækjendur skulu helst vera á aldrinum 26—50 ára og hafa stundaö kennslu við verkmenntaskóla eða leiðbeiningarstörf hjá iðnfyrirtæki í a.m.k. þrjú ár. Sérstök umsóknareyöublöö fást í mennta- málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykja- vík. Umsóknir skulu hafa borist ráðuneytinu fyrir 15. september 1982. Menntamálaráöuneytið 22. ágúst 1982.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.