Morgunblaðið - 26.08.1982, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1982
31
Jón Sigurðsson kaup
maður — Sextugur
RKÍ styrkir
RKÍ-deildir
Jón Sigurðsson, kaupmaður í
Straumnesi, er sextugur í dag.
Svona líður tíminn, þótt Jón sjálf-
ur breytist lítið í tímans rás. Allt-
af er hann sami áhugasami
Frammarinn — og áhugasami
kaupmaðurinn, í þess orðs bestu
merkingu. Ég hygg, að bæði
Knattspyrnufélagið Fram og
Kaupmannasamtökin geti verið
stolt af Jóni Sigurðssyni, því að
tryggari félagsmann er vart hægt
að hugsa sér — og ímynd kaup-
mannsins á horninu birtist í hon-
um gagnvart ungum sem öldnum,
er leið eiga í glæsilega verzlun
hans í Breiðholtinu, sem hann hef-
ur byggt upp af mikilli eljusemi. Á
tímum ópersónulegra stórmark-
aða, þar sem lífið virðist eitt færi-
band, hefur aldrei verið brýnni
þörf á mönnum á borð við Jón í
Straumnesi. Mönnum finnst jafn-
an skemmtilegt að fá tækifæri til
að ræða við kaupmanninn um
landsins gagn og nauðsynjar, eða
síðustu íþróttaviðburði. Sumir
viðskiptavina hans ræða líka um
alvarlegri málefni lífsins, og er
áreiðanlegt, að mörgum þykir gott
að leita ráða hjá Jóni kaupmanni.
þegar erfiðleikar steðja að. I kaup-
mannastéttinni finnast býsna
margir ólaunaðir félagsráðgjafar
og er Jón einn þeirra.
En að þessu slepptu, þá kemur
glampinn fyrst í augu Jóns, er lax-
veiði ber á góma. Og þar er ekki
komið að tómum kofanum. Við
Miðfjarðará og Vatnsdalsá dvelur
hugur hans löngum, að öðrum
laxveiðiám ólöstuðum. Við þessar
ár á hann griðastað frá erli og
önnum. Sumir segja, að hann sé
Ijónheppinn veiðimaður vegna
aflasældar sinnar. En gilda ekki
sömu lögmál í laxveiði og öðrum
íþróttum? Þar nær enginn langt,
nema færni og áhugi sé fyrir
hendi. En mest nýtur Jón þess
áreiðanlega, þrátt fyrir góðan
feng, að vera í snertingu við nátt-
úruna sjálfa, þar sem elfan rennur
um gróna dali, í góðum félagsskap.
Sjálfur er maðurinn hrókur alls
fagnaðar. Ekki spillir fyrir, að
hans ágæta kona, Kristín Sig-
tryggsdóttir, hefur sama áhugann
á veiðimennsku og bóndinn og
njóta þau því bæði þess að hverfa
á vit náttúrunnar með veiðistöng í
hönd.
Vinir og kunningjar Jóns senda
honum og fjölskyldu hans ham-
ingjuóskir á þessum tímamótum.
Hlýjar kveðjur streyma einnig frá
fjölmörgum viðskiptavinum hans,
sem kunna vel að meta kaup-
manninn sinn.
Alfreð Þorsteinsson
STJORN Rauða kross íslands sam-
þykkti á fundi sínum laugardaginn
21. ágúst að veita samtals
1.079.000,00 krónur úr sérverkefna-
sjóði félagsins til 12 deilda RKÍ.
Þrjár deildir fengu fé til kaupa á
fjórum sjúkrabifreiðum og ein til
þess að reisa skýli fyrir sjúkrabif-
reið, alls 679.000,00 krónur. Átta
deildir Rauða krossins fengu fé til
þess að verja í þágu aldraðra, alls
400.000,00 krónur.
Eftirtaldar deildir fengu fé til
neðangreindra verkefna:
Reykjavíkurdeild fékk 362.000
til kaupa á tveimur sjúkrabifreið-
um. Strandasýsludeild fékk 92.000
til kaupa á sjúkrabifreið. Húsa-
víkurdeild fékk 175.000 til kaupa á
sjúkrabifreið. Árnessýsludeild
fékk 90.000 v/dagvistunar fyrir
aldraða. A-Skaftafellssýsludeild
fékk 50.000 v/elliheimilisins á
Höfn. Eskifjarðardeild fékk 50.000
fyrir bættri aðstöðu fyrir aldraða.
Siglufjarðardeild fékk 50.000
v/lyftubúnaðar í Siglufjarðar-
kirkju. Grundarfjarðardeild fékk
50.000 til kaupa á húsbúnaði fyrir
aldraða. Ólafsfjarðardeild fékk
70.000 til þjónustumiðstöðvar
fyrir aldraða. Rangárvallasýslu-
deild fékk 50.000 v/smíði bílskýlis
fyrir sjúkrabíl. Súgandafjarðar-
deild fékk 20.000 til kaupa á leik-
tækjum fyrir börn. Rauða kross-
deildir á Vestfjörðum fengu sam-
an 20.000 v/orlofsdvalar aldraðra.
Stjórn Rauða kross Íslands
hafði fyrr á þessu ári samþykkt
fjárframlög til deilda úr sérverk-
efnasjóði félagsins fyrir alls
694.000 krónur og hefur því á ár-
inu verið veitt úr sérverkefnasjóði
RKÍ fjárhæð að upphæð ein millj-
ón og sjö hundruð sjötíu og þrjú
þúsund krónur samtals.
Nú eru síðustu forvöð
að gera góð kaup á
stórútsolunni!
Sérstök auka-verðlækkun siðustu dagana
Herrabolir 9,95 Dömukvartbuxur 19,95
Herrajakkar ^egrtfo 199,00 Denimbuxur 99,95
Herraskyrtur 29,95 Æfingaskór ^L&9r0T3 49,95
Dömubolir 19,95 Strigaskór 9,95
Dömublússur 59,95 Barnastígvél 19,95
Anorakkar ^egrffo 259,00 Eldhúshandklæöi 5 19,95
Pils ^349^30 99,95 Strandhandklæöi 33,95
Kjólar ^-segrtfö 99,95 Rúmteppi 129,00
Sloppar ^409^30 49,95
Barna-rúllu- IKEA kringlótt borö
kragapeysur ^egrt3o 69,95 60 sm 149,00
Drengja- IKEA furuborö
prjónavesti ^H-grtíö 34,95 180X90 sm 595,00
Regn-anorakkar ^4^rt3o 69,95 IKEA baömullarteppi
Ungbarna- 140X200 sm 0 995,00
frottegallar 39,95 LP hljómplötur frá 19,95
Verslanir í Reykjavík eru í Skeifunni 15, Lækjargötu og
Kjörgarði og á Akureyri að Norðurgötu 62.
Sími póstverslunar er 30980.
HAGKAUP
A