Morgunblaðið - 27.08.1982, Page 32
*SSi 83033 Mjr
jWorennbtohitt
J Simiáritstjóm iniHn
og skrifstofu: lw IvU
FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1982
Allir krakkar hlakka til þess tíma, er þau ná því marki að mega taka bílpróf og aka bifreið. En nú á meðan
Heimilissýningin stendur yfir geta menn tekið svolítið forskot á sæluna og ekið bíl, þótt ungir séu. Þessar litlu
hnátur nutu þess svo sannarlega í „tívolíinu" í gær, er Kristján Einarsson smellti þessari mynd af í bílasalnum.
Afstaðan til bráðabirgðalaganna í neðri deild:
20 þingmenn stjórnarand-
stöðunnar andvígir þeim
„Það er alveg Ijóst að enginn þingmaður Sjálfstæðisflokksins, að ráðherr-
unum bremur undanskildum, mun greiða bráðabirgðalögunum atkvæði,"
sagði Olafur G. Einarsson formaður þingflokks sjálfstæðismanna í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins í gærkveldi. Sighvatur Björgvinsson formað-
ur þingflokks Alþýðuflokksins sagði einnig í samtali við blm. í gær, að
enginn þingmanna Alþýðuflokksins mvndi greiða lögunum atkvæði. Sam-
kvæmt því er Ijóst að 20 þingmenn flokkanna í neðri deild Alþingis munu
greiða atkvæði gegn bráðabirgðalögunum. í fréttatíma Ríkisútvarpsins í
gærkveldi sagði dr. Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra, að hann tryði ekki
öðru en bráðabirgðalögin næðu frara að ganga á Alþingi.
Sykurhamstur í gær:
10 tonn seldust
í einni verzlun
IIM EITT tonn af sykri seldist i
Hagkaupum og átta tonn í Fjarð-
arkaupum í Hafnarfirði, eftir að
Ijóst var að sykur myndi hækka
nálægt 60% eftir efnahagsað-
gerðir ríkisstjórnarinnar. í einni
verzlun var komið nýtt verð á
sykri og var hækkun úr 6,50 kr. í
10,25 kr., sem er um 58% hækk-
un.
Strax í gærmorgun seldist
sykur upp í sumum verzlunum,
magn sem hefði dugaö að öllu
jöfnu í um 2—3 vikur. Sagði
einn viðmælenda, að það væri
unnt að fjárfesta í fleiru en
steinsteypu. Dæmi væri um
það, að sumir hefðu farið með
sinn hvorn 50 kg sekkinn heim.
Ekki merktu viðmælendur
Morgunblaðsins hamstur á
fleiri tegundum matvöru, nema
þá einna helzt á hveiti og mat-
arolíu.
„Við gerðum um það ályktun í |
byrjun vikunnar,“ sagði Ólafur G. [
Einarsson, „að nauðsynlegt er að
efna nú til kosninga. Því fyrr sem
það gerist, því betra. Því fyrr sem
ríkisstjórnin viðurkennir þá stað-
reynd að hún hefur ekki starfhæf-
an meirihluta á Alþingi, því fyrr
er von um að nýr meirihluti geti
tekið við. Núverandi ríkisstjórn1
getur ekki ráðið fram úr vandan-
um og það getur Alþingi ekki eins
og það er nú saman sett. En verði
fljótlega boðað til kosninga gæti
ný ríkisstjórn tekið við í nóv-
ember. Þjóðarnauðsyn ber til þess
að þegar í stað verði boðað til
nýrra kosninga."
Ólafur G. Einarsson sagði, að
núverandi ástand væri vanvirðing
við Alþingi og hættulegt þingræð-
inu. Með sama áframhaldi mætti
ætla að ríkisstjórnin hygðist
stjórna með bráðabirgðalögum
fram á vor, og ef til vill mætti
búast við nýjum bráðabirgðalög-
um í jólaleyfi þingmanna, en ekki
væri látið reyna á fylgi við lögin í
þinginu. „Stjórnin getur að vísu
varist vantrausti," sagði ólafur
„en öllu meira getur hún ekki gert.
Forsætisráðherra talar um að
reynt verði að ná samningum um
samþykkt þessara bráðabirgða-
laga, en við erum ekki til viðræðu
um slíkt. Það hefur ekkert samráð
verið haft við okkur um þetta mál,
en nú á að fara að stilla okkur upp
við vegg, frammi fyrir gerðum
hlut. Við kunnum ekki að meta
„samningaumleitanir" af þessu
tagi. Stjórnin ber alla ábyrgð á því
hvernig nú er komið, og þingmenn
Sjálfstæðisflokksins munu ekki
veita henni lið, ekki einn einasti
þingmaður. Þetta liggur fyrir og
nauðsynlegt er að þegar í stað
verði efnt til kosninga," sagði
ólafur að lokum.
Sighvatur Björgvinsson, for-
maður þingflokks Alþýðuflokks-
ins, sagði í gærkveldi, að þing-
flokkurinn væri búinn að álykta
um málið og óþarft væri að bæta
nokkru þar við. „Við höfum lýst
yfir ótvíræðri andstöðu við bráða-
birgðalögin og ef forsætisráðherra
skilur það ekki skilur hann ekki
mælt mál,“ sagði Sighvatur.
„Þessi bráðabirgðalög verða felld í
neðri deild, það veit forsætisráð-
herra og það veit þjóðin,“ sagði
Sighvatur að lokum.
Bensín hækkar
um 12 til 15%
Verðlagsráð mun koma saman til
fundar árdegis í dag, og verða væntan-
lega ýmsar verðhækkanir afgreiddar á
fundi ráðsins. Þar á meðal er hækkun
á verði bensíns og gasoliu, og er búist
við að hækkunin nemi milli 12 og 15%,
í kjölfar nýgerðrar gengisfellingar.
Ýmsar aðrar hækkunarbeiðnir liggja
fyrir ráðinu, en fundur þess verður sem
fyrr segir haldinn nú fyrir hádegi í dag,
föstudag. Nýtt verð á bensíni og fleiri
vörum verður því væntanlega tilkynnt
síðdegis.
Þrjár fisk-
mjölsverk-
smiðjur
hafa lokað
„ALMENNT er ástandið mjög
slæmt hjá fiskmjölsverksmiðjunura í
landinu, allir vita um loðnuna, sjá-
anlegt er að við fáum ekkert af
henni á þessu ári a.m.k. og ef til vill
ekki heldur á næstu árum, þannig að
ekki er bjart framundan hvað hrá-
efni snertir og einnig er óvenjulega
daufur markaður og það litla sera
verksmiðjurnar framleiða hefur að
mestu safnast hér upp í birgðum,"
sagði Jón Reynir Magnússon, for-
maður Félags íslenskra fiskmjöls-
framleiðenda, í samtali við Morgun-
blaðið þegar hann var spurður
hvernig ástandið væri hjá fiskmjöls-
verksmiðjunum. Jón Reynir sagði
einnig: „Ég man ekki eftir svona
lágu verði á mjöli. Verðið hefur fallið
úr 7,20 dollurum sem fengist hefur á
próteineininguna og í 5 dollara sem
nú fæst, ef á annað borð er þá hægt
að selja vöruna.
Ástandið er afskaplega erfitt
hjá hinum einstöku verksmiðjum,
það getur reyndar ekki öðru vísi
verið. Verksmiðja Lýsis og Mjöls í
Hafnarfirði og verksmiðjan í Þor-
lákshöfn sögðu upp sínu starfs-
fólki og byrjuðu ekki eftir sumar-
leyfi og verksmiðjan í Keflavík
var hætt áður, þó af öðrum ástæð-
um væri. Ég veit ekki um að fleiri
verksmiðjur hafi hætt, þær eru
með lágmarksmannskap til að
vinna úrganginn frá frystihúsun-
um.
Síldarverksmiðjur ríkisins eru
með verksmiðjur í gangi á 5 stöð-
um og hafa brugðist við sam-
drættinum með því að skera niður
framkvæmdaáætlun, dregið úr öll-
um framkvæmdum ,“ sagði Jón
Reynir Magnússon
40 krakkar leika í
kvikmynd í Skaftafelli
AUSTUR í Skaftafelli er 50—60
manna flokkur við kvikmynda-
töku. Eru þar af um 40 krakkar,
sem eru leikendur í myndinni.
Fjailar þessi kvikmynd um kenn-
ara, sem kemur úr Reykjavík og
fer út á land í heimavistarskóla í
einangruðu umhverfi. Lýsir mynd-
in samskiptum nemenda við þenn-
an kennara, sem leikinn er af
Þórhalli Sigurðssyni.
Að sögn Hrafns Gunnlaugs-
sonar, leikstjóra myndarinnar,
er kvikmyndahandritið eftir
Þorstein Marelsson. Gerði hann
handritið fyrir þremur árum á
höfundanámskeiði, sem sjón-
varpið gekkst fyrir. Astæða þess,
að ekki var tekist fyrr á við verk-
efnið, var fjármagnsleysi sjón-
varpsins. Heitir myndin „Hver
er...“ Sagðist Hrafn hafa próf-
að um 300 krakka á aldrinum
13—15 ára og valið þessa 40 úr
hópnum. Æskulýðsráð Reykja-
víkur benti á krakka. Börnin
hefðu fengist við leikstarf í skól-
unum og víðar. Stelpa að nafni
Ylfa Edelstein leikur veigamesta
hlutverkið af krökkunum. Senni-
lega verður myndin þriggja
stundarfjórðunga til klukku-
stundar löng, líklega sýnd sem
páskamynd sjónvarpsins. Upp-
tökum lýkur væntanlega um
2.-3. september austur í Skafta-
felli.
„Þegar löggurnar eru orðnar
táningar, þá sést bezt, hversu
gamall maður er. En þetta hefur
verið dásamleg lífsreynsla fyrir
mig að skrifa með krökkunum og
opnað margt fyrir mér sem ég
hafði ekki hugleitt áður,“ sagði
Hrafn.
Um framtíðina sagði Hrafn,
að hann væri mjög bjartsýnn á
lífið og tilveruna, sérstaklega
þegar hann frétti það hingað
austur, að „Okkar á milli...“
væri að slá öll aðsóknarmet.