Morgunblaðið - 03.09.1982, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1982
Gunnar Björnsson, stjórnarmaöur Sambands almennra lífeyrissjóða, Pétur Blöndal, formaður framkvæmda-
stjórnar Landssambands lífeyrissjóða, Eðvarð Sigurgeirsson, stjórnarmaður í SAL, Bjarni Þórðarson, formaður
Landssambands lífeyrissjóða, og Hermann Þorsteinsson, varaformaður Landssambands lífeyrissjóða, kynna
blaðamönnum bæklinginn. Ljósmjnd Mbi.
Lífeyrissjóðirnir gefa út upplýsingabækling:
Leiðrétta þarf misskilning
og vanþekkingu fólks á verð-
tryggðum lífeyrissjóðalánum
— segja forvígismenn llfeyrissjóðanna
sjóða.
„ÞAÐ hefur tilfinnanlega vantað
upplýsingar um lífeyrissjóðalán,
greiðslubyrði þeirra og annað, sem
þeim viðkemur og því hafa lífeyr-
issjóðasamböndin gefið út upplýs-
ingabækling. Okkur finnst nauð-
synlegt að fólk geri sér grein fyrir
því að nú þarf það að greiða lánin
að fullu og með vöxtum og það
reisi sér ekki hurðarás um öxl er
það tekur lán. Við höfum orðið var-
ir við dæmi um það nýlega,“ sagði
Pétur Blöndal, formaður fram-
kvæmdastjórnar Landssambands
lífeyrissjóða, á blaðamannafundi
þegar kynntur var upplýsingabækl-
ingur Landssambands lífeyrissjóða
og Sambands almennra lífeyris-
Þá kom það fram á fundinum
að tilgangur með útgáfu bækl-
ingsins væri m.a. sá að hafa
áhrif á eftirspurn eftir lánunum,
sem nú er mjög mikil og hefur
aukizt verulega síðasta ár.
Vegna þessa hefur ekki reynzt
unnt að hækka lánin til að koma
á móti ungum húsbyggjendum
eins og vilji er fyrir hendi. Því
vara lífeyrissjóðirnir við því að
lánin eru verðtryggð og því þarf
að greiða þau að fullu með vöxt-
um gagnstætt því sem áður var.
Vegna þess er talið mjög
óhagkvæmt að nota þau til ann-
ars en fjárfestingar í fasteign-
um. Þá var bent á það, að nú
geta menn sparað með því að
leggja fé sitt inn á banka þar
sem það brennur ekki lengur upp
á verðbólgubálinu og með því að
ávaxta fé sitt á þann hátt gerir
það öðrum kleift að taka lán.
í bæklingnum, sem dreift
verður um allt land, er svarað 12
spurningúm, sem talið er að
vakni meðal almennings og
þannig útskýrð helztu atriði um
lánin. Þá er í bæklingnum sýnd
greiðslubyrði af 100.000 króna
verðtryggðu láni til 10 og 20 ára
miðað við mánaðarlaun og er þá
gert ráð fyrir að vísitala og laun
hækki um 45% á ári.
Flokksstjóm Alþýðuflokksins:
Ríkísstjórninni
ber að segja af sér
— Reynst óhæf til að taka á vandamálum íslensks efnahagslífs
kjaraskerðingu og 13% gengisfell-
ingu, eru nánast þær sömu og rík-
isstjórn Geirs Hallgrímssonar
greip til í febrúar og maí 1978. í
þeim felst ekki lausn efnahags-
vandans. Atvinnuöryggi og
atvinnulíf stendur eftir sem áður
höllum fæti og innan fáeinna
mánaða bendir allt til að enn á ný
verði gripið til sams konar að-
gerða.
Alþýðuflokkkurinn hefur marg-
sinnis á undanförnum árum varað
við afleiðingum þessarar stefnu og
vinnubragða. Hann rauf ríkis-
stjórnarsamstarf í október 1979
vegna þess að jafnvægisstefna
hans náði ekki fram að ganga og
benti á að með óbreyttum vinnu-
brögðum ríkisstjórnarinnar næð-
ist enginn varanlegur árangur.
Það hefur nú áþreifanlega sann-
ast.
Ríkisstjórnin hefur reynst óhæf
til þess að taka á vandamálum ís-
lensks efnahagslífs. Hún hefur nú
ennfremur misst þingstyrk til
þess að fá mál sín samþykkt á Al-
þingi. Henni ber því að segja af
sér.“
KLOKKSSTJÓRN Alþýðuflokksins samþykkti í fundi sínum 1. september
sl. ályktun í tilefni af hinu alvarlega efnahagsástandi, eins og þar segir. Fer
ályktunin hér á eftir:
„Flokksstjórn Alþýðuflokksins
bendir á að hið alvarlega efna-
hagsástand er að mestu afleiðing
rangrar og hættulegrar stjórn-
arstefnu og skipulagsleysis í fjár-
festingarmálum. Svonefndar efna-
hagsráðstafanir ríkisstjórnarinn-
ar, sem fela í sér mjög verulega
Pálmi Ólafs-
son jarðsettur
á Akureyri
Akureyri, 2. september.
PÁLMI Ólafsson, Þórunn-
arstræti 89, Akureyri, andað-
ist að heimili sínu 23. ágúst sl.
Pálmi var kunnur borgari Ak-
ureyrarbæjar, rak t.d. blaða-
vagninn á Ráðhústorgi í tæp
20 ár. Hann verður jarðsung-
inn frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 3. september.
Fréttaritari.
5
Opið til
kl. 8
í kvöld
og kl. 10—2
á morgun
laugardag
ST0R-
útsölumarkaóurinn
sem allir hafa beðið
eftir er í húsnæði
Húsgagnahallarinnar
(áöur sýningarhöllin Bíldshöföa)
VÖRUÚRVAL
FatnaÖur á dömur — herra —
unglinga — börn og ungabörn.
Hljómplötur — kassettur. Efni í
stórkostlegu úrvali. Gardínuefni
—stórísar — sængurfatnaður —
handklæöi — sportvörur alls kon-
ar — íþróttaskór — o.fl. o.fl.
Karnabær
Belgjageröln — Steinar
Hummel umboöiö — Nylon Plast
Z-brautlr — Gluggatjöld hf.