Morgunblaðið - 10.09.1982, Side 1
Föstudagur 10. september — Bls. 33-56
Hattar
og steinar
Nú stendur yfir ár aldraöra eins og flestum er kunnugt. í blaðinu segir
frá þrem einstaklingum sem komnir eru á níræðisaldur, en það er þó
ekki frekar vegna aldurs þeirra en áhugamála sem viö ræöum viö þá. I
Kópavoginum býr einn af eldri steinasöfnurum landsins, 85 ára gamall,
og fór sína síöustu söfnunarferö nú í sumar. Viö fengum aö skoöa hluta
af þeim steinum sem hann hefur safnaö á undanförnum 30 árum, en
hann hefur látið Kópavogsbæ fá stærstan hluta safnsins. — í borginni
starfa enn tvær hattasaumakonur sem komnar eru á níræðisaldur, en
alls eru þrjár hattasaumakonur starfandi í borginni. Viö hittum þær aö
máli, en tvær þær fyrrnefndu hafa rekiö hattaverslanir í borginni í um
50 ára skeiö. Hattasaumur var hér áöur virt og vandasöm iöngrein, og
___I dag veröur fjallað um skipulag
eldhússins, en það er einn aðal-
vinnustaður heimilisins og því mik-
ilvægt að það sé hannaö með tilliti
til þess. Við ræðum um helstu atriói
sem huga þarf að, svo sem stað-
setningu heimilistækja, fyrirkomu-
lag skápa, æskilega borðhæð, hvar
best er að staösetja hina ýmsu hluti
loftljós og vinnuljós undir efri skáp-
um. Þá fengum við að líta inn í
þægilegt vinnueldhús í Árbænum,
sem teiknaó var af Finni Fróöasyni
innanhússarkitekt.
Daglegt líf 34 Hvað er að gerast 43 Myndasögur og Fólk 50/51
Tíska 36 SJónvarp næstu viku 44/45 Bíó og dans 52/53
Alþýðuvísindi 42 Útvarp næstu viku 46 Velvakandi 54/55