Morgunblaðið - 10.09.1982, Qupperneq 4
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1982
Litið inn hjá
Sævari Karli og Erlu
Við fengum að líta inn hjá þeim hjónum Sævari Karli Ólasyni klæðskera og
Erlu Þórarinsdóttur í Brekkubæ 44. Á upphaflegu teikningunni var gert ráð
fyrir bæði borðstofu og eldhúskrók, en þau völdu þann kostinn í samráði við
Finn Fróðason innanhússarkitekt að sameina þetta tvennt og fá þannig meira
rými. Eldhúsið er óvenjustórt og rúmgott og vinnuaðstaða mjög góð, eins og
sjá má af myndunum.
Fyrir ofan bakarofninn er skápur
fyrir bökunarplötur, skúffur og fi.
þ.h.
Hór sér yfir eldhúsiö og
borökrókinn. Húsiö er 70 fm aö
grunnfleti, tv»r hæöir og kjallari
og sagði Erla aö þau heföu
ákveöið aö hafa bara einn
borðkrók á hæöinni, þ.e. sameina
eldhúskrók og boröstofu. „Þegar
viö erum með stærri matarboö
höfum viö komið okkur upp aó-
stöðu til aö boröa í kjallaranum."
í eldhúsi þessu er mjög gott
borópláss, þaö er óvenjustórt
miöaö vió íslensk eldhús og
vinnuaóstaða er góö. ísskápurinn
er staósettur lengst til vinstri á
myndinni, en þar vió hliöina er
bakarofninn, eldhúshellurnar eru
fyrir miðju, uppþvottavélin í
borðinu andspænis og vaskurinn
undir glugganum. Vinnuljós eru
undir efri skápunum.
(Ljósmyndir Kristján Einareson.)
Það er ekki laust við að þeir séu glæsilegir og
tilkomumiklir kjólarnir sem hinir stóru í tískuheim-
inum senda frá sér um þessar mundir. Háir hælar,
hanskar, efnismiklir kjólar, gjarnan úr flaueli og
satíni setja svip sinn á það sem koma skal. Við
birtum nokkrar myndir af samkvæmistískunni í ár
eöa eins og Saint Laurent, Dior, Ungaro, Chanel og
Givency koma fram með. Kjólarnir eru mikið í
svörtum, rauðum og fjólubláum litum.