Morgunblaðið - 10.09.1982, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1982
43
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA?
Haukur og Hörð-
ur sýna í Gallerí
Lækjartorgi
Nú stendur yfir sýning þeirra
Hauks og Haröar í Gallerí Lækjar-
torgi. Þar sýna þeir bræöur
„mikrorelief“ þrykk og skúlþtúra. Á
morgun veröur önnur oþnun sýn-
ingarinnar, en þá sýna Haukur og
Höröur verk sín samansett. Áður
höföu þeir einungis sýnt þau í hlut-
um.
Sýningin sem stendur yfir til 19.
september er opin alla daga frá kl.
14—22 nema laugardaga frá
kl.14—18.
Ljósmynda-
sýning í
Listmunahúsinu
Ljósmyndasýning svissneska
Ijósmyndarans Max Schmidts
stendur nú yfir í Listmunahúsinu,
Lækjargötu 2 í Reykjavík. Á sýn-
ingunni, sem ber heitiö Annaö
sjónarhorn, eru 74 myndir sem
flestar eru frá jslandi. Max
Schmidt hefur feröast og tekiö
myndir víöa um heim. Síöan 1968
hefur hann a.m.k. einu sinni á ári
komiö hingað til lands. Schmidt
hefur hatdiö nokkrar sýningar síö-
ustu árin í Sviss og Þýskalandi.
Sýning Schmidts er opin alla
daga frá kl. 10—18 nema laugar-
daga frá kl. 14—18. Þá er lokað á
mánudögum.
Gestaleikur í
Þjóöleikhúsinu:
Jón Laxdal
með leikrit sitt
Der Weltsánger
Tækifæri gefst til aö sjá Jón
Laxdal leikara á íslensku leiksviöi
sunnudaginn 12. september nk. en
þá um kvöldið kl. 20.00 — og aö-
eins þetta eina sinn — leikur hann
gestaleik á sviöi Þjóöleikhússins.
Jón er hingaö kominn með sitt eig-
iö leikrit, Der Weltsánger, sem
hann frumsýndi í Þýskalandi í árs-
lok 1979 og hefur síöan leikiö mjög
víöa í þýskumælandi löndum svo
sem kunnugt er af fréttum. i þessu
leikriti Jóns er aðeins eitt hlutverk,
hlutverk heimssöngvarans Val-
gardo Herrlico sem Jón túlkar.
Söngvarinn hefst viö í gamalli og
gleymdri skonsu uppi á háalofti
Ríkisóperunnar í smábæ einum.
Neöan úr leikhúsinu berst ómurinn
af Wagner-óperum, en Valgardo
rifjar upp söngferil sinn og ber
fram umkvartanir sínar. Hann
harmar gáfna- og hæfileikaskort
nútímans og furöar sig á því hvers
vegna hann varö ekki eins frægur
og Caruso, Gigli og allir þeir. Hann
heföi líklegast átt aö veröa skáld,
þaö sé þó einhvers viröi. Þannig
kynnumst viö heimssöngvaranum
sem er uppurinn og búiö er aö
leggja til hliðar.
Sýning í
Nýlistasafninu
Föstudaginn, 10. september nk.
kl. 20 veröur opnuö í Nýlistasafn-
inu, Vatnsstíg 3b, Reykjavík, sýn-
ing á verkum Kees Visser og Rúnu
Þorkelsdóttur.
Kees Visser er Hollendingur
sem hér hefur dvalist af og til síöan
1976 og unniö aö list sinni. Hann
sýnir verk unnin meö blandaöri
tækni, skapalónþrykk og þríövíöar
veggmyndir unnar úr pappír.
Rúna Þorkelsdóttir sýnir verk
sem samanstanda af teikningum
og texta auk þrívíddarverks unniö
í pappír.
Verk þeirra beggja eru unnin á
síðastliönu ári.
Árin 1976—79 ráku þau Gallerie
Lóa í Haarlem og siöar í Amster-
dam, ásamt fleiri islendingum.
Starfsemi gallerisins vakti verö-
skuldaöa athygli í Hollandi fyrir
framsýni og dirfsku og opnaði
ýmsum ungum myndlistarmönnum
frekari möguleika á kynningu.
Kees Visser hefur haldiö einka-
sýningar hér á landi og í Hollandi
og auk þess tekiö þátt í fjölda
samsýninga, t.d. í gallerí SÚM,
Kjarvalsstööum, Rauöa húsinu á
Akureyri og víöa erlendis. Verk eft-
ir hann á söfnum eru í Stedelijk-
safninu í Amsterdam, Frans Háls í
Haarlem, Listasafni islands, Lista-
safni ASÍ og Nýlistasafninu.
Rúna Þorkelsdóttir stundaöi
nám viö MHÍ 1971—76, auk fram-
haldsnáms i Svíþjóö og Hollandi.
Hún var meö einkasýningu í Suö-
urgötu 7, 1979 og í Rauöa húsinu á
Akureyri 1981 og 1982. Hún hefur
tekið þátt í fjölda samsýninga
heima og erlendis og er nú ein af
fulltrúum islands á sýningunni
Scandinavia Today, sem opnar nú
um miöjan mánuö í Bandaríkjun-
um. Verk eftir hana eru á Konst-
sljödmuseet í Gautaborg, Nýlista-
safninu og einkasöfnum bæði hér
og í Hollandi.
Sýningin í Nýlistasafninu er opin
daglega frá kl. 16—22, nema um
helgar þá frá kl. 14—22. Hún
stendur til mánudagsins 19. sept-
ember nk.
Vefnaðarsýning
á Kjarvalsstöðum
Vefnaöarsýning veröur á Kjar-
valsstööum 11,—26. september.
Þar veröa m.a. sýnd gluggatjöld,
áklæöi og væröarvoö.
Tónleikar í
Vestmannaeyjum
Guöný Guömundsdóttir fiölu-
leikari og Philip Jenkins píanóleik-
ari munu halda tónleika laugar-
daginn 11. sept. kl. 17.00 í Bæjar-
leikhúsinu i Vestmannaeyjum.
Á efnisskránni veröa sónötur
eftir breska tónskáldiö William
Walton, sem varö áttræöur á
þessu ári, pólska tónskáldiö Karol
Szymanowski og Gabriel Fauré.
Sýning í
Skruggubúð
Laugardaginn 11. september kl.
15.00 opnar í Skruggubúö, Suöur-
götu 3a, sýning á 20 klippimyndum
eftir arabísku konuna Haifa Zang-
ana. Haifa hefur tekiö þátt í starf-
semi arabísku súrrealistahreyf-
ingarinnar og enska hópsins
Melmoth en hún ritstýrir nú tímariti
þeirra. Hún hefur veriö búsett í
London undanfarin ár.
Sýningin verður opin kl. 15—21
um helgar en kl. 17—21 virka
daga.
Aörar sýningar sem eru í bígerö
í Skruggubúö fram að áramótum
eru á verkum John W. Welson,
Sjón og Ladislav Guderna.
Medúsa.
Norræna húsið:
Leikþátturinn
„Le Voyageur“
fluttur á
sunnudaginn
Ungur þýskur leikari, Harald
Brandt, flytur leikþátt í Norræna
húsinu á sunnudaginn kemur kl. 5.
Leikurinn nefnist „Le Voyageur",
eöa Feröalangurinn og er byggöur
á sögnum um ferðir gríska stjörnu-
spekingsins og landkönnuöarins
Pytheasar, sem var uppi á fjóröu
öld f. Krist, fór í langferöir og
sagöist m.a. hafa fundiö eyland i
norðurhöfum þar sem væru bæöi
eldur og ís og kallaði hann landiö
Thule. Eru því sumir þeirrar skoö-
unar aö Pytheas hafi fundiö island
fyrstur manna. Harald Brandt
semur textann sjálfur en byggir á
fornum heimildum og er þetta verk
lokaverkefni hans viö leiklistar-
deild háskólans í Provence í
S-Frakklandi.
Brandt hefur undanfariö veriö á
feröalagi um N-Afríku og Evrópu
og er leikritið samræöa milli grísku
gyöjunnar Artemisar, en hún var
verndargyöja Marseille-borgar,
þaöan sem Pytheas lagöi upp í
ferðina, og sögumanns, sem er
feröalangur á tuttugustu öld.
Aögangur aö sýningunni kostar
70 krónur.
Helgarferðir FÍ
í kvöld veröa farnar tvær helgar-
feröir á vegum Feröafélags islands
og er brottför kl. 20.00, þ.e. Land-
mannalaugar — Rauófossafjöll,
og er gist í sæluhúsi FÍ í Land-
mannalaugum, en á laugardag ek-
iö um Dómadal og í áttina aö
Rauöfossafjöllum og þar verður
gengiö.
Álftavatn — Torfatindar —
Torfahlaup. Gist er í sæluhúsi Ff
viö Álftavatn, gengiö á Torfatinda
og aö Torfahlaupi, sem er viö
Markarfljót undir Stóra Græna-
fjalli, en þar fellur Markarfljót í
mjög þröngu gljúfri.
í fyrramálið kl. 08.00 verður far-
iö í þriöju helgarferöina og er sú
ferö í Þórsmörk. Þar er líka gist í
sæluhúsi Fí og farnar gönguferöir
um Mörkina.
Dagsferðir sunnudaginn 12. sept.
veröa þrjár: 1. kl. 09.00 Presta-
hnúkur — Þórisdalur. Ekiö um
Þingvelli og Kaldadal, en ökuslóö
liggur frá Kaldadalsvegi aö Presta-
hnúk (1223 m), síöan veröur geng-
iö í Þórisdal, sem er rómaöur fyrir
náttúrufegurð. 2. kl. 09.00 Þjórs-
árdalur — Háifoss — Stöng. Ekiö
veröur um Þjórsárdal aö Stöng,
síöan línuveginn hjá Hólaskógi, yfir
Fossá og Stóru-Laxá aö Jaðri og
þaöan niöur meö Hvítá og yfir
hana hjá Brúarhlööum og sem leiö
liggur til Reykjavíkur. Þaö veröur
frekar lítiö gengiö í þessari feröa.
3. kl. 13.00: Mosfellsheiði — Borg-
arhólar. Gengiö veröur aö Borg-
arhólum (410 m) og niður meö
Grimmansfelli.
Torfærukeppni
við Grindavík
Björgunarsveitin Stakkur í
Keflavík heldur torfærukeþpni sem
haldin er árlega viö Grindavík nk.
sunnudag kl. 14.00.
Veröur keppnin meö svipuöu
sniöi og undanfarin 10 ár. Ein nýj-
ung er þó í ár og er sú aö mörg
umboö fyrir jeppabifreiðir munu
hafa bíla til sýnis og sölu á staön-
um.
Helgarferðir
Útivistar
Helgarferö veröur farin kl. 8 á
laugardagsmorguninn 11 sept. hjá
Útivist. Fariö veröur um noröur-
hlíöar Eyjafjalla og skoöuö þar gil
og gljúfur, sem mörg hver eru
sjaldan skoöuö. Um nóttina veröur
gist í Útivistarskálanum í Básum. Á
heimleið á sunnudag veröur ekiö
um Fljótshlíö og Bleiksárgljúfur
skoöað. Farmiöar fást á skrifstof-
unni Lækargötu 6a.
Á sunnudag veröur dagsferö í
Brennisteinsfjöll kl. 10.30. Gengiö
veröur um Grindaskörö aö gígnum
í Kistufelli og fariö í gömlu Brenni-
steinsnámurnar. Kl. 13 veröur farln
ferö í Húshólma, en þar eru rústir
Gömlu-Krísuvíkur. Þær fóru undir
hraun er Ögmundarhraun brann,
líklega á fyrri hluta 11. aldar.
Brottför í feröirnar er frá Umferð-
armiöstööinni, aö vestanveröu.
VORUMARKADURINN
ÁRMÚLAIA
Okkar verð
pr. kg.
Leyft verð
Nautahakk 110 kg
Nautahakk í 5 kg
Nautahakk vigtaö
Reyktur búðingur
Kjötbúöingur
Hádegispylsa
Kindakæfa
Lamgaskinka
Kindabjúgu
kr. 79,00
kr. 85,00
kr. 99,50
kr. 60,50
kr. 60,90
kr. 55,30
kr. 66,00
kr. 208,00
kr. 51,00
133,00
133,00
133,00
133,00
133,00
133,00
133,00
133,00
133,00
Strasykur 9,65 pr. kg
Egg 28,00 pr. kg
Opið til kl. 20 í dag
Opiö 9—12 laugardag
✓/
VORUMARKADURINN
ÁRMÚLAIA