Morgunblaðið - 10.09.1982, Qupperneq 12
MORGUNtíLAliít), KOSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1982
\
MUG»RD4GUR
11. september
17.00 íþróttir. Umsjónarmaður:
Bjarni Felixson.
19.15 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veóur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Löóur.
70. þáttur. Bandarískur gaman-
myndaflokkur.
Þýóandi. Ellert Sigurbjörnsson.
21.05 Stillti Smith.
(Whispering Smith).
Bandarískur vestri frá 1948.
Leikstjóri: Leslie Fenton.
Aóalhlutverk: Alan Ladd,
Robert Preston og Brenda
Marshall.
Þaó færist í aukana aó lestir á
ferö í „villta vestrinu" fari út af
sporinu og farmur skemmist.
Löggæslumanni járnbrautafé-
lagsins, Luke Smith, er falið aö
rannsaka málió.
Þýðandi: Björn Baldursson.
22.30 Kaktusblómið.
Endursýning —
(Cactus Flower)
Bandarísk gamanmynd frá ár-
inu 1969. Leikstjóri: Gene Saks.
Aóalhlutverk: Ingrid Bergman,
Walter Matthau og Goldie
Hawn.
Julian tannlæknir er pipar-
sveinn og unir því vel. Hann á
ser unga og fagra ástkonu, sem
veit ekki betur en hann sé haró-
giftur og margra barna faðir, og
á tannlæknastofunni hefur
hann hina fullkomnu aöstoó-
arstúlku.
Þýöandi: Dóra Hafsteinsdóttir.
Myndin var áöur sýnd í sjón-
varpinu í október 1978.
00.15 Dagskrárlok.
SUNNUD4GUR
12. september
18.10 Sunnudagshugvekja.
Örn Báröur Jónsson, djákni viö
Grensáskirkju, flytur.
18.00 Hetjudáö hvutta.
Bandarísk teiknimynd um Pésa
hvolp í nýjum ævintýrum.
Þýðandi: Guöni Kolbeinsson.
18.35 Náttúran er eins og ævin-
týri. Fimmti og síðasti þáttur.
Haustið. Þýðandi: Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
Þulur: Katrín Árnadóttir.
(Nordvision — Norska sjón-
varpiö)
19.00 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veóur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Sjónvarp næstu viku.
20.55 Jóhann Kristófer.
6. hluti.
Efni 5. hluta: Jóhann Kristófer
kynnist Oliver, bróóur Anton-
ettu sem er látin. Þeir taka íbúð
á leigu saman og Jóhann Krist-
ófer gefur sig aftur að tónsmíó-
um. Honum sinnast við aðals-
mann og þeir heyja einvígi.
Deilurnar magnast með Frökk-
um og Þjóóverjum og þær valda
því aö vinir Jóhanns Kristófers
snúa vió honum bakinu.
Þýðandi: Sigfús Daðason.
21.50 Kvikmyndagerðarmaöurinn
Carl Dreyer.
Síðari hluti.
Rakinn er starfsferill Dreyers
og brugðið upp sviprayndum úr
verkum sem flest endurspegla
lífsreynslu hans.
Þýðandi og þulur: Hallmar Sig-
urðsson.
(Nordvision — Danska sjón-
varpið)
22.45 Dagskrárlok.
Dallas aö byrja:
Þjóöhetja á elnni nóttu
Á mánudagskvöld sýnir sjónvarpið leikna breska sjónvarpsmynd, Verkfallið (Strike), sem fjallar um
atburðina í Póllandi í ágúst 1980, þegar verkfall í skipasmíðastöðvum í Gdansk varð kveikjan að stofnun
óháðu verkalýðssamtakanna Einingar (Solidarnosc) og Lech Walesa varð þjóðhetja á einni nóttu. Leikstjóri
er Leslie Woodhead, en lan Holm leikur Lech Walesa.
AIMUD4GUR
13. september
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Tommi og Jenni.
20.45 íþróttir.
Umsjónarmaður: Steingrímur
Sigfússon.
21.15 Fuglinn í fjörunni.
Sigríður Ella Magnúsdóttir
syngur íslensk lög. Undirleikari
Jónas Ingimundarson. Stjórn
upptöku Tage Ammendrup.
21.35 Verkfallið.
(Strike)
Leikin bresk sjónvarpsmynd,
um atburðina í Póllandi í ágúst
1980, þegar verkfall í skipa-
smíðastöðvum í Gdansk varð
kveikjan að óháðu verkalýðs-
samtökunum Einingu, (Solid-
arnosc) og Lech Wales varð
þjóðhetja á einni nóttu.
Leikstjóri er Leslie Woodhead
en lan Holm leikur Lech Wal-
esa.
Þýðandi Jón Ó. Edwald.
23.15 Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
14. september
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Bangsinn Paddington.
Teiknimynd ætluð börnum.
Þýðandi Þrándur Thoroddsen.
Sögumaður Margrét Helga Jó-
hannsdóttir.
20.40 Saga ritlistarinnar.
Annar þáttur fjallar um heiras-
málið latínu og fall Rómaríkis,
fjaðrapenna og miðaldahandrit
Þýðandi og þulur Þorsteinn
Helgason.
21.15 Derrick.
Þriðja fórnarlambið.
Derrick hefur baldið til fjalla
sér til hvíldar og hressingar, en
friðurinn er úti þegar morð er
framið í gistihúsinu.
Þýðandi Veturliði Guðnason.
22.10 Stöðvast fiskiskipaflotinn?
Umræðuþáttur í beinni útsend-
ingu, sem Sigrún Stefánsdóttir
fréttamaður stjórnar.
23.00 Dagskrárlok.
Saga þriggja kynslóða
Á mióvikudagskvöldið veröur sýndur fyrsti hluti nýs bandarísks fram-
haldsmyndaflokks, Austan Eden, sem geröur er fyrir sjónvarp eftir
sögu John Steinbecks, East of Eden. Leikstjóri er Harvey Hart en í
aðalhlutverkum: Timothy Bottoms, Jane Seymour, Bruce Boxleitner,
Lloyd Bridges og Warren Oates. — Myndin er saga þriggja kynslóöa
Trask-fjölskyIdunnar. Hún hefst meö því aö Cyrus Trask kemur heim
úr borgarastríðinu 1865 og hefur kona hans þá aliö son, sem gefiö er
nafnið Adam. Hann og Charles, hálfbróöir hans, eru söguhetjur fyrsta
hluta, ásamt hinni fögru en viðsjárverðu Cathy, sem gefur þeim báöum
undir fótinn.
Píanó handa Ester
Á dagskrá sjónvarpsins á föstudagskvöldið kemur er ný bandarísk
sjónvarpskvikmynd, Píanó handa Ester (A Piano for Mrs. Cimino), er
fjallar um sorgir og gleði efri áranna. Leikstjóri er George Schaefer, en
í aöalhlutverkum: Bette Davis, Penny Fuller, Alexa Kenin og Keenan
Wynn. — Ester Cimino er 73 ára gömul ekkja sem þjáist af sljóleika og
þunglyndi eftir fráfall eiginmannsins. Synir hennar senda hana á
sjúkraheimili fyrir aldraða og láta svipta hana fjárræöi. En þetta veröur
til þess að lífslöngun og baráttuvilji glæðist meö gömlu konunni á
nýjan leik.
GUÐAÐ A SKJÁINN
SJÓNVARP
DAGANA
11,-17.
/9
25. þætti lýkur meö tilræði við J.R.
A1IÐMIKUDAGUR
15. september
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Hátíðadagskrá í Minneapol-
is.
Fréttamynd frá norrænu menn-
ingarkynningunni í Bandaríkj-
unum.
20.55 Austan Eden.
Fyrsti hluti.
Ný bandarísk framhaldsraynd
gerð fyrir sjónvarp eftir sögu
John Steinbecks, East of Eden.
Leikstjóri Harvey Hart.
Aðalhlutverk: Timothy Bottoms,
Jane Seymour, Bruce Boxleitn-
er, Lloyd Bridges og Warren
Oates.
Þýðandi Kristmann Eiösson.
23.20 Dagskrárlok.
Adam
átti
syni
fjóra
Á dagskrá sjónvarps á laug-
ardagskvöldið í nssstu viku er
bandarísk bíómynd, Adam átti
syni fjóra (Adam Had Four
Sons), frá árinu 1941. Leik-
stjóri er Gregory Ratoff, en í
aöalhlutverkum Ingrid Berg-
man, Warner Baxter og Susan
Hayward. — Ung kennslukona
fær þaó erfiða hlutverk aö
ganga fjórum stálpuóum
strákum í móöurstaó. —
Kvikmyndahandbókin: Ein
stjarna (Horfóu ef þú hefur
ekkert þarfara viö tímann aö
gera.)
FÖSTUDAGUR
17. september
19.45 Fréttságrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Prúðuleikararnir.
Gestur þáttarins er rokksöng-
konan Debbie Harry.
Þýðandi Þrándur Thoroddsen.
21.05 Á döfinni.
Þáttur um listir og menningar-
viðburði. Umsjónarmaður Karl
Sigtryggsson.
21.10 Harörninn.
Fögur bresk náttúrulífsmynd
um haforninn, sem dó út í
Skotlandi fyrir 65 árum, og
hvernig reynt er að endurvekja
stofninn meö örnum frá Noregi.
Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson.
21.40 Píanó handa Ester.
(A Piano for Mrs. Cimino)
Ný bandarísk sjónvarpskvik-
mynd um sorgir og gleði efri
áranna með Bette Davis í aðal-
hlutverki ásamt Penny Fuller,
Alexa Kenin og Keenan Wynn.
Leikstjóri er George Schaefer.
23.20 Dagskrárlok.
Dallas-myndarööin, sem
sjónvarpiö hefur nú fest kaup
á og mun hefja sýningar á
innan skamms, er samtals
tuttugu og fimm þættir. Eins
og þeir þættir er þegar hafa
veriö sýndir hér, er um
sjálfstæöa þætti aö ræöa, en
þó skiptir nokkru máli fyrir
áhorfendur að hafa séö flesta
þættina ef fylgjast á meö, þar
sem stundum er vitnað til
fyrri þátta og byggt á því sem
áöur hefur gerst.
Meöal þess sem fyrir ber í
næstu Dallas-þáttunum, er aö Val-
ene Ewing, móöir Lucyar, kemur
heim á búgaröinn til aö reyna aö
koma á einhverju sambandi viö
dóttur sína. í Ijós kemur að faðir
Pamelu Ewing, Digger Barnes, hef-
ur hættulegan erföagalla, sem
hugsanlega hefur erfst til barna
hans, og þaö mál veröur enn erfið-
ara er í Ijós kemur að Pamela er
með barni. Frú Ellie þarf aö ganga
undir erfiöan uppskurö, Sue Ellen
lítur kúreka nokkurn hýrari auga
J.R. SKOTINN
Tilræði þetta hefur vakið gífurlega
athygli um víöa veröld, og þaö
þótti til dæmis ekki nema sjálfsagt
aö sýna tilræöið í fréttatíma BBC,
eftir að það hafði verið sýnt þar i
landi. — Tilræði við þjóðhöfðingja
heföi varla fengiö meiri athygli.
en sæmilegt getur talist, og maöur
hennar er einnig aö svipast um í
kringum sig, og staðnæmast augu
hans meöal annars á systur Sue
Ellen. Lucy finnur sér mann er hún
vill ganga aö eiga, ekki síst vegna
þess aö hann hefur staöiö upp í
hárinu á frænda hennar, J.R. J.R.
lendir í miklum erfiöleikum meö
olíufyrirtækiö og hann ákveöur aö
taka Bobby inn í fyrirtækiö. Þar
kemur þó aö Bobby og Pamelu
finnst svo sviviröilegt hvernig J.R.
rekur fyrirtækiö, aö þau ákveöa aö
flytjast brott frá Southfork.
Þar kemur aö andúöin á J.R.
magnast og magnast, uns ekki
viröist ólíklegt aö fjöldi manns
gæti hugsaö sér aö drepa hann
meö köldu blóöi, og þá er þaö ein-
mitt að hann veröur fyrir skoti.
Hver skaut er hins vegar mikiö
leyndarmál, en ólíklegt er annað
en aö sjónvarpiö muni leyfa islend-
ingum aö komast aö hinu sanna,
en tilræðiö við J.R. er í 25. og síö-
asta þætti myndraðarinnar. Trú-
lega á því enn ein röö af Dallas
eftir aö koma, hiö minnsta!
Valene Ewing, móöir Lucyar, og Bobby Ewing ræöa málin er hún kemur
til aö ná sambandi viö dóttur sina.