Morgunblaðið - 10.09.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1982
51
fólk í
fréttum
Andrew prins fest-
ur á filmu faðmandi
stúlkur...
Andrcw prins var festur á filmu nú fyrir skömmu þar scm
hann var að faðma tvær yngismcyjar scm voru úr hópi
skcmmtikrafta scm sendir voru til að skemmta brcskum
mönnum í S-Atlantshafi og tóku þátt í Falklandseyja-
stríðinu.
Blaðið Sun í Bretlandi birti myndina ásamt frétt
þess eðlis að boðið fyrir hermennina hefði staðið til
klukkan þrjú um nóttina og hefðu allir skemmt sér
hið besta, en Andrew sem er átján ára að aldri hefði
þó verið áberandi upptekinn af stöllunum tveimur.
Buckingham-höll hefur sent frá sér tilkynningu þar
sem fram kemur að Elísabet drottning og eiginmaður
hennar Filip prins muni fara um borð í „Invincible"
þann sautjánda september þar sem það er í nánd við
Bretland og sigla það sem eftir er leiðarinnar með
skipinu til Bretlands ásamt syninum Andrew og öðr-
um áhafnarmeðlimum. Kannski þeim finnist ekki
vanþörf á að hafa auga með pilti ...
Andrew prins þykir þegar vera kominn með næmt
auga fyrir fögrum konum þó ekki sé aldur hans hár,
aðeins átján ár.
ANATOMIC
dömubindi
Nýja dömubindiö, sem tekur meiri raka til sín.
Bindiö sem þú finnur minna fyrir.
Bindiö sem sést minna.
Bindiö sem er algjörlega lagaö eftir líkamanum.
Anatomic dömubindiö er þykkast, þar sem þörfin er
mest.
Oscar Peterson til
Kaupmannahafnar
Danir hafa jafnan verið hinir mestu jassunnendur
og geta þeir nú sem oftar glaðst yfir góðum gest-
um á því sviði, því þangað er væntanlegur Oscar
Peterson 4. október næstkomandi. Þar mun hann
leika af fingrum fram ásamt Niels Henning
Orsted Pedersen á bassa, Martin Drew á trommur
og Joe Pass mun einnig leika með sem sérstakur
gestur.
hamingju
Karl Bretaprins og Díana prinsessa eru sivinsælt
myndaefni. í síðustu viku voru þau viðstödd brúð-
kaup nokkurt í Lundúnum þar sem gift var á braut
ein fyrrverandi sambýliskona Díönu, Carolyn
Pride, sem einnig er hennar besta vinkona.
Myndin sýnir hvar brúðurin fær koss frá Karli í
kaupbæti og Díana horfir hin glaðhlakkalegasta á
aðfarirnar.
Kyle og Clint Eastwood I mynd-
inni Honky Tonk Man.
Samvinna
föður
og sonar...
Clint Eastwood er um þessar
mundir að vinna að kvikmynd
ásamt syni sínum Kyle og minna
hugmyndir sem þessi óneitanlega á
mynd Ryan og Tatum O’Neal,
Pappírstungl, en þurfa ekkert að
vera lakari fyrir það.
Mynd þeirra feðga mun verða
frumsýnd um jólaleytið og bera
nafnið Honky Tonk Man. Þar er
fjallað um tónlistarmann sem
syngur sig inn í hug og hjörtu
manna, á ferð ásamt bróðursyni
sinum, en minna er um að þorp-
arar séu skotnir veg allrar ver-
aldar en í öðrum myndum
Eastwood, enda barn með í för-
inni ...
Bee Gees i
starfshlé
Hljómsveitin Bee Gees hefur tekið
sér starfshlé nú um nokkurra mánaða
skeið a.m.k., en það tilkynnti Barry
Gibb er hann flaug frá London til
Bandaríkjanna nú fyrir skömmu.
Bræðurnir ætla að reyna að halda sig
sem mest hver frá öðrum þennan tíma
og starfa sjálfstætt.
Mynd þessi sýnir hvar þau hjón
Barry og Linda bera börn sín Travis
sem er eins árs og Ashley sem er fimm
ára á handleggjum sér, en Stephan átta
ára að aldri stendur hjá.
COSPER
COSPER
Ef þetta er álverið og þetta er Garðabær, þá er Hafnarfjörður þar á milli.
Dað er ekki
spuming um hvar,
heldur
hvora þú kaupir
Caravell eða Philips
Báöar tegundir klæddar með áli.
Ljós í loki. Læsing á loki.
Sérstakt hraðfrystikerfi.
Viðvörunarljós fyrir rafmagn og kuldastig.
Körfur fylgja.
Það er ekki vandi að velja, það verður annað hvort
Caravell eða Philips.
Stórkostlegt úrval, allar stærðir.
Hagstætt verð. Góðir greiðsluskilmálar.
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 1 5655