Morgunblaðið - 27.10.1982, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1982 37
Þjóðhagsáætlun fyrir árið 1983:
Eaupmáttur minni á
næsta ári en þessu
„BRÝNASTA VERKEFNIfí í peningamálum er aft koma aflur á jafnvægi í
peningakerfínu, bæði meö því aö draga úr aukningu útlána og meö því aö
laöa stærri hluta af sparnaði landsmanna til ávöxtunar í bönkum og spari-
sjóöum, án þess þó aö það valdi síðan útlánaþenslu á ný,“ segir m.a. í
kaflanum um peninga- og lánamál í þjóöhagsáætlun fyrir áriö 1983, sem
forsætisráöherra lagði fram á Alþingi í gær.
Hér þyrfti aö taka til hendi.
argjöf auk þess sem trén ná betri
rótfestu síðar.
Almennar reglur um grisjun og
hirðingu runna er ómögulegt að
gefa í stuttu máli. Þar hæfir sinn
mátinn hverri tegund. Suma
runna þarf lítið að hugsa um eða
gera við nema að hleypa þeim ekki
út fyrir ákveðin mörk. Aðra þarf
að stýfa árlega og marga þarf að
þynna við og við. Suma þarf að
endurnýja á fleiri eða fárra ára
fresti. T.d. eru gamlir ribsrunnar
víða í görðum orðnir -til óþrifa.
Þeir leggjast út af, gisna og safna
í sig rusli, sem erfitt er að ná til.
Vilji menn rækta ribs vegna
berjatöku verður að endurnýja
runnana á 15—20 ára fresti, henda
þeim gömlu og setja nýjar plöntur
í staðinn. Grisjun runna læra
flestir af reynslu, en í garðyrkju-
ritum má lesa sitthvað um þetta,
og ekki er úr vegi að leita til garð-
yrkjumanna.
Þar segir áfram: „Þetta er ekki
síst mikilvægt í því skyni að auka
innlenda fjármögnun atvinnuvega
og opinberra framkvæmda og
draga þannig úr erlendum lántök-
um eins og kostur er. Þetta er for-
senda þess, að sá árangur náist að
eyða viðskiptahallanum á næstu
tveimur árum. Stjórn peninga-
mála verður að miðast við þetta
fyrst og fremst. Þar þarf að
tryggja viðunandi ávöxtunarkjör
sparifjár í formi verðtryggingar
og vaxta og koma á sem mestu
samræmi milli vaxta og verð-
tryggingarkjara á útlánum. Þetta
felur í sér breytingu á vöxtum
óverðtryggðra inn- og útlána við
núverandi aðstæður. Einnig er
nauðsynlegt að gera breytingar á
reglum og kjörum viðskipta inn-
lánsstofnana við Seðlabankann til
þess að herða aðhald að útlánum
innlánsstofnana. Með hinum nýju
reglum verður að gera kröfu til
innlánsstofnana um aðlögun til
jafnvægis í rekstri þeirra."
Verðlag og tekjur
I kafla með þeirri fyrirsögn seg-
ir: „I upphafi þessa árs var árs-
hraði verðbreytinga rétt um 40%.
Verðbólguhraðinn hefur hins veg-
ar farið vaxandi eftir því sem á
árið hefur liðið. Gætir þar meðal
annars áhrifa þeirra kjarasamn-
inga, sem gerðir voru í lok ársins
1981 og á fyrstu mánuðum þessa
árs. Raunar má segja, að áhrifa
kjarasamninga á verðbólgu hafi
gætt nær samfellt allt þetta ár,
þar sem ný kjarasamningalota
hefur 'staðið yfir nær allt árið.
Vísitala framfærslukostnaðar í
ágústbyrjun reyndist 11,8% hærri
en i maí og 49,5% hærri en í ágúst
1981. Breytingin frá maí til ágúst
svarar til 56% árshækkunar og
frá febrúar til ágúst hefur vísital-
an hækkað sem svarar til 54%
árshækkunar. Allt eru þetta tölu-
vert meiri breytingar en fram
hafa komið fyrr á þessu ári. Nú er
talið, að frá upphafi til loka ársins
muni vísitalan hækka um
60—61%. Samkvæmt fyrirliggj-
andi verðlagsspám er ennfremur
gert ráð fyrir að árið allt verði
vísitalan að meðaltali 50% hærri
en í fyrra. Verðlag einkaneyslu er
hins vegar talið hækka meira en
framfærsluvísitalan á þessu ári
vegna mismikilla áhrifa niður-
greiðslna og innflutningsverðs á
þessa mælikvarða. Er munurinn
talinn geta reynst um 2%. Loks
má nefna, að áætlað er, að meðal-
hækkun byggingarvísitölu verði
um 55% á þessu ári.“
Tekjur, verðlag, kaup-
máttur 1975—1982,
í framhaldi af umfjöllun um
tekjur og yfirlýsingar um að
skattbyrði sé þyngri á þessu ári en
í fyrra, segir: „Er gert ráð fyrir að
ráðstöfunartekjur á mann aukist
um 51% á móti 53% áætlaðri
verðbreytingu einkaneyslu. Kaup-
máttur ráðstöfunartekna, miðað
við verðlag einkaneyslu, gæti því
dregist saman um 1% á mann á
þessu ári. Þetta er sem fyrr segir
mjög óviss áætlun vegna lítillar
vitneskju um áhrif framleiðslu-
samdráttarins á vinnutíma, at-
vinnu og tekjur á þessu ári.“ Síðar
í þjóðhagsáætluninni, undir kafl-
anum „Verðlag og tekjur", segir:
„Aætlað er, að kaupmáttur kaup-
taxta miðað við framfærsluvísi-
tölu, verði að meðaltali á þessu ári
svipaður og í fyrra. Kaupmáttur-
inn verður þó mun minni á síðari
hluta ársins. Samkvæmt ofan-
greindum framreikningi á víxl-
gangi verðlags og launa yrði kaup-
máttur taxta um 6% minni að
meðaltali á næsta ári en á þessu
ári.“
Kíkisfjármál og poningamál
Um áhrif verðbólgunnar á pen-
ingamál segir: „Vöxtur verðbólg-
unnar að undanförnu hefur því
valdið því, að raunvextir óverð-
tryggðra skuldbindinga hafa orðið
æ neikvæðari og við aukna verð-
tryggingu hefur misræmi á kjör-
um verðtryggðra og óverðtryggðra
skuldbindinga aukist mjög. Þann-
ig má nefna, að ætla má að raun-
vextir af almennum sparisjóðs-
bókum séu nú neikvæðir um 16%,
raunvextir endurseldra lána séu
neikvæðir um 17% og almennra
skuldabréfalána um 10%. Ætla
má, að þessi öfugþróun hafi átt
drjúgan þátt í þeirri miklu láns-
fjáreftirspurn, einkum eftir
óverðtryggðum lánum, sem gætt
hefur á þessu ári.“
° f.
Utsýnar-
Rvöld
BK'OAÐWAT
Feröaskrifstofan Útsýn, Portúgalska
flugfélagiö og
feröamálaráöuneyti Portúgals bjóöa á
PORTÚGALSKA HÁTÍÐ
meö
brasilísku
ívafi
föstudaginn 29. október.
Skemmtiskrá:
Kl. 19.00 húsið opnað og gesti boönir velkomnir með portú-
gölskum veigum.
Gjafahappdrætti frá Portúgal með veglegum vinningum.
Falleg kynningarkvikmynd frá hinni rómuðu baöströnd Al-
garve.
Kl. 20.00 hefst portúgalskur hátíðarkvöldverður undir umsjón
portúgalska matreiðslumeistarans Antonio Cerqueira, sem
kemur sórstaklega frá Portúgal.
Verð aöeins 230,- (2 réttir).
Galdrakarlar leika Ijúfa dinnermúsík.
Heiöursgestir:
Mr. R. Eastaugh — Air Portugal
Mr. Enrique Moser — Portugal tourist board
Ms. Russel — Air Portugal.
Mr. Albano — Air Portugal
Snyrtifræðingur
frá
Revlon
kynnir
snyrtivörur.
Gestir
fá að
bragöa á
úrvalssælgæti
frá
Marebou
GLÆSILEG
DANSSÝNING
Broadway Ballet
hefur göngu sýna undir
stjórn Steve Fant.
Feguröarsamkeppni
Ungfrú Otsýn
og
Herra Utsyn
__ forkeppni, enda
tullt af
glæsilegu fólki a
Utsýnarkvöldum.
L»vfléll gstraun
veg/egur feröav/nr
Glæsilegir
feröavinningar,
m.a. 19. daga jóla-
og áramótaferö
til Ríó.
Model
samtökin
sýna föt frá
Blondie,
Bikarnum
og
Herragarðinum
einnig pelsa
frá
Eggerti
Jóhannssyni,
feldskera.
Ath
Dansinn dunar til kl. 03 eftir miðnætti — Galdrakarlar og Villi í diskótekinu.
Þetta verður skemmtun helgarinnar opin öllu skemmtilegu ffólkí,
sem kemur í sparifötunum og góða skapinu
— en nú er vissara aö
tryggja sór borö í tíma.
Kynningin veröur endurtekin i
SJALLANUM AKUREYRI,
laugardag 30. október í tilefni af opnun nýrrar skrifstofu Útsýnar
aö Hafnarstræti 98, Akureyri.
miu
r\
Feröaskrifstofan
ÚTSÝN
Miöar afhentir í
Broadway frá kl. 1—6
e.h. í dag og næstu
daga meðan pláss
leyfir.