Morgunblaðið - 27.10.1982, Side 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1982
Japönsk framsýni -
íslensk skammsýni
eftir Baldur
Pétursson
FYRRI GREIN
Verðbólga hefur hrjáð flestar
þjóðir seinustu árin, mismunandi
mikið þó.
Verðbólga til lengri tíma hefur
mjög alvarleg stöðnunaráhrif á
allt atvinnulíf. Kostnaður hjá
fyrirtaekjum vex meira en tekjur
og þau verða brátt ósamkeppnis-
hæf við erlend fyrirtæki og missa
markaðshlutdeild. Þjóðarfram-
leiðsla og hagvöxtur minnka og
kaupmáttur launafólks fer minnk-
andi vegna minnkandi verðmæta-
sköpunar.
Forráðamenn fyrirtækja reyna
stöðugt að minnka kostnað og
auka framleiðni (framleiðsluverð-
mæti pr. unninn tíma) og arðsemi
til að geta haldið þeim gangandi.
Eru slíkar ráðstafanir oft í formi
uppsagnar starfsfólks.
Helstu orsakir þessarar verð-
bólguöldu (1970—82) voru olíu-
verðshækkanirnar tvær, 1974 og
1979.
Fyrri olíuverðshækkunin hefði
átt að kenna stjórnendum (fyrir-
tækja og þjóðfélaga) að einhverju
leyti hvernig ætti að bregðast við
slíkri verðbólgu. Seinni olíu-
verðshækkunin gaf þeim síðan
tækifærið á að sanna mátt þess-
ara aðgerða sinna og árangurinn
kom síðan í ljós í alm. verðlagi,
(verðbólgu).
Af meðfylgjandi línuritum sést
þróun í iðnaði (aukning eða
minnkun framieiðni, atvinnu og
alm. verðlags frá 1979—82 í
nokkrum lönum en því miður ekki
frá íslandi nema frá 1978—81, þar
sem upplýsingar frá Þjóðhags-
stofnun eru ekki tilbúnar. Mætti
ætla að svipuð þróun sé í öðrum
atvinnugreinum.
Hvernig hefur síðan þróun alm.
verðlags verið í þessum löndum?
Alm. verðlag hefur hækkað
minnst í Japan um 17% frá
1979—82 (verðbóiga nú um 2%
frá ári til árs), í USA um 40%, í
Frakklandi um 43%, í V-Þýska-
landi um 18% á tímabilinu
1978—82. Alm. verðlag hefur
hinsvegar hækkað um 224% á Is-
landi á tímabilinu 1978—81.
Flest löndin hafa aukið fram-
leiðni á kostnað atvinnu.
Japan er þó í algjörri sérstöðu
þar sem framleiðni hefur aukist
um 22% 1979—82 og fer stöðugt
vaxandi. Á sama tíma hafa þeir
getað aukið atvinnu um 2%.
Önnur lönd hafa aðallega getað
aukið framleiðni á kostnað at-
vinnu og þannig m.a. haldið verð-
bólgunni í skefjum.
Island er þó undantekning þar
sem atvinna hefur aukist meira en
framleiðni. Árangurinn er á sama
hátt óðaverðbólga. Iðnaður á ís-
landi og í Japan skiptir mismun-
andi miklu máli í þjóðarbúskapn-
um, en þar sem fiskistofnar hér
eru fullnýttir, verður aukin verð-
mætasköpun að koma frá iðnaðin-
Baldur Pétursson
um í framtíðinni og gerir það
hann því mikilvægari hér en áður.
Árangur Japana er augljóslega
langmestur, þar sem verðalg
hækkar langminnst á þessu tíma-
bili ásamt aukinni atvinnu og stór-
lcga aukinni framleiðni, sem aftur
er ein af forsendum aukins kaup-
máttar launafólks.
Hvernig fara þeir að þessu er
stór spurning og athyglisvert væri
að fá upplýsingar um, til að þjóðir
eins og íslendingar geti hagnýtt
sér eitthvað af vinnuaðferðum
þeirra, til að vinna bug á þeirri
óðaverðbólgu sem hér ríkir og
skapa auknar forsendur fyrir
auknum kaupmætti launafólks.
Ekki er ætlunin að fara út í
efnahagsaðgeðrir ríkisstjórna
þessara landa hér. Geta má þess
að í Japan er frjálst markaðskerfi
og hefur verið um margra ára
skeið og þeir flytja inn alla sína
olíu og gas og um 90% af öllum
sínum hráefnum.
Eitt af því fyrsta sem Japanir
gerðu sér grein fyrir við fyrri olíu-
verðshækkunina var að allur iðnað-
ur varð aö vera hagkvæmari og full-
komnari bæði að því er varðar sam-
setningu hlutanna og einnig aö því
er varðar efnasamsetningu hráefn-
anna.
Svarið var í stuttu máli tæknivæð-
ing á öllum sviðum atvinnulífsins,
ásamt þeim efnahagsaðgerðuim sem
gerðu fyrirtækjum þetta mögulegt.
Fyrirtæki eyddu síðan gífurlegum
fjárhæðum i rannsóknar-, þróunar-
og skiplagsstarfsemi sem síðan hef-
ur skilað sér með þessum mikla
árangri.
Hér á landi eru menn aftur á
móti önnum kafnir við að bjarga
fyrirtækjum (og þjóðfélaginu yfir-
leitt) fyrir horn frá degi til dags,
og mega ekki vera að því að hugsa
lengra fram í tímann, og bæta þau
atriði sem raunverulega skipta
máli til lengri tíma litið. Einnig
skortir fjármagn til rannsóknar-
og þróunarstarfsemi hér á landi.
Menn ættu að beina augunum í
auknum mæli til þeirra staða þar
sem tekist hefur að ráða niðurlög-
um verðbólgu og skapa auknar
forsendur fyrir auknum kaup-
mætti launafólks frekar en að
endurtaka alltaf sömu gagnslausu
aðferðirnar.
/ Iðnaður i /
150
145 1 Vísitölur / framleiðni,
140. / atvinnu og / alm. verðlags
135-
130. / ÍSLAND
125 j
120, /k I alm. verðlag
115,
110. Atvinna
105. Framleiðni
100 H
95. F
90. 78 79 80 81
85.
Ringulreið og óvissa í Bonn
Bonn, 25. oklóber. Al*.
RINGlILREIf), sem á sér naumast
nokkra hliðstæðu, rikir í vestur-
þýzkum stjórnmálum i kjölfar stjórn-
arskiptanna í Bonn í þessum mánuði.
flelmut Kohl kanzlari lofaði því
þegar hann tók við af Helmut
Schmidt að kosningar yrðu haldnar 6.
marz. Hann lofaði líka nýrri efna-
hagsstefnu og nýju andrúmslofti í
samsteypustjórninni með frjálsum
demókrötum, sem sneru baki við
Schmidt. En enginn veit hvort nokk-
uð af þessu verður að veruleika.
í dag vissi enginn hvort Schmidt
yrði leiðtogi sósíaldemókrata í
næstu kosningum. Blaðafréttir
hermdu að Schmidt mundi senni-
lega tilkynna samstarfsmönnum
sínum ákvörðun sína seinna í dag
og segja þingmönnum frá henni á
morgun.
Talsmaður sósíaldemókrata,
Jurgen Itzfeld , kallaði þessar
fréttir „hreinar vangaveltur".
Hann kvað fráleitt að Schmidt
segði fjölmiðlum frá ákvörðun
sínni áður en hann tilkynnti
flokknum hana og sagði að hann
hefði frest til að taka ákvörðun til
18. nóvember, þegar þing flokksins
kemur saman.
Framtíð Frjálsa demókratafl-
okksins (FDP) og leiðtoga hans,
Hans-Dietrich Genschers utanrík-
isráðherra, er í algerri óvissu. Sú
ákvörðun hans að snúa baki við
Schmidt hefur valdið miklum
klofningi í flokknum og á þingi
flokksins í Vestur-Berlín í næsta
mánuði fer fram mikilvæg kosning
um stöðu flokksleiðtoga.
Kosning fulltrúa á þingið fór
fram um helgina og úrslitin benda
til þess að Genscher verði endur-
kjörinn. En flestir fréttaskýrendur
efast um að Genscher geti samein-
að flokkinn nógu vel til þess að
hann vinni aftur hylli meðal kjós-
enda og fái meira en 5% lág-
marksfylgi í marz til að halda
þingsætum sínum.
Eina stjórnskipulega leiðin fyrir
Kohl til þess að efna til kosninga
áður en yfirstandandi kjörtímabili
lýkur 1984 er að stjórnin bíði ósig-
ur í atkvæðagreiðslu um vantraust
á ríkisstjórnina og að Karl Carst-
ens forseti samþykki að rjúfa þing.
Ólíklegt er talið að slík klækja-
brögð falli kjósendum vel í geð.
Tillögur hafa komið fram um
breytingu á stjórnarskránni til að
auðvelda þinginu að ákveða þing-
rof, en erfitt yrði að koma slíku til
leiðar. I sjónvarpsumræðum í síð-
ustu viku voru 82% þátttakenda
andvígir breytingum á stjórnar-
skránni.
Litlar breytingar hafa orðið á
efnahagsstefnunni. Tillaga um
lækkun ellilífeyris reyndist
óframkvæmanleg vegna stjórn-
skipunarreglna. Erlendar lántökur,
sem hafa verið miklar, munu jafn-
vel enn aukast undir stjórn Kohls
að sögn Gerhard Stoltenbergs fjár-
málaráðherra.