Morgunblaðið - 27.10.1982, Síða 7

Morgunblaðið - 27.10.1982, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐYIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1982 39 Lionsklúbbur Borgarness 25 ára: Gefur Dvalarheimili aldraðra 200 þúsund I tilefni afmælisins Borgarnesi, 14. október. í TILEFNI af 25 ára afmæli Lionsklúbbs Borgarness hefur klúbburinn ákvediö að gefa Dvalar- heimili aldraöra í Borgarnesi 200 þúsund krónur. Fjárhæöinni skal variö til byggingar sundlaugar og baöaðstööu, ásamt gróöurskála við Dvalarheimiliö. í 25 ára afmælishófi klúbbsins, sem haldin var nýlega, afhenti Haukur Gíslason, fráfarandi formaöur klúbbsins, Húnboga Þorsteinssyni, formanni stjórnar Dvalarheimilisins, gjafabréf þessu til staöfestingar. Jafnframt afhenti hann 50 þúsund í peningum til aö hægt sé að hefjast handa um hönnum byggingarinnar. Þaö sem eftir er, 150 þúsund krónur, verður afhent þegar verklegar framkvæmd- ir hefjast. Lionsklúbbur Borgarness var stofnaður 2. apríl 1957. Aðalhvata- maður klúbbstofnunarinnar var Sigurður Gíslason og var hann jafnframt kosinn fyrsti formaður hans. Á þessum 25 ára starfsferli hafa klúbbfélagar unnið af mikl- um krafti í anda hugsjóna Lions að margháttuðum líknar- og menningarmálum í heimabyggð- inni og víðar. Klúbbfélagar hafa „MIKLAR umræöur hafa átt sér staö um fjölmiðla og ekki síst myndbanda- væöingu þá, sem náð hefur fótfestu hér á landi. Ekki þarf að fjölyrða um áhrif sjónvarps, sem er máttugasti fjölmiöill okkar i dag, og gefur auga leiö aö börn eru viðkvæmust fyrir þcssum áhrifum," segir í fréttatil- kynningu frá Fóstrufélagi íslands sem Morgunblaöinu hefur borizt. „Myndbandavæðing ógnar börn- um þjóðarinnar. Sá tími, sem börn notuðu til heilbrigðra starfa og leikja, fer nú í sjónvarpsgláp og getur gengið svo langt að þau njóti vart nægilegrar hvíldar. Ógnvæn- legast er þó að efnið, sem boðið er upp á, er misjafnt að gæðum og sjaldnast við hæfi barna. Börn eru óvarðasti neytendahópurinn í okkar samfélagi og heimilin eru misvel í stakk búin til að stýra sjónvarps- notkuninni. Fóstrur hvetja foreldra til að vernda börnin sín og gera þá kröfu til ráðamanna þjóðarinnar, að hagsmunir barna sitji í fyrir- rúmi fremur en gróðasjónarmið fárra manna." Tvær bækur frá Æskunni /ESKAN, bókaútgáfa, hefur gefið út tvær bækur; Neyðaróp hjá stálsmiðj- unni, barna- og unglingabók eftir Kagnar Þorsteinsson og Ævintýri æskunnar í þýðingu Rúnu Gísladótt- ur. Neyðaróp hjá stálsmiðjunni er tí- unda bók Ragnars Þorsteinssonar. Aðalsögupersónurnar eru Þorlákur Vilmundarson, verkamaður og sjó- maður í Reykjavík, og tveir drengir, en það er einmitt neyðaróp annars þeirra, sem er upphafið að kynnum þeirra. Þorlákur fær svo drengina til liðs við sig við sjómennsku frá höfuðborginni til Breiðafjarðar- eyja. Ævintýri Æskunnar eru 29 tals- ins frá 17 löndum, en í fréttatil- kynningu útgefanda segir, að bókin, sem er myndskreytt, hafi verið ófáanleg í nokkur ár. notið mikils velvilja hjá samborg- urum sínum við fjáraflanir svo og önnur verkefni sem hefur gert þeim mögulegt að verða verulega að liði þar sem þörf hefur verið hverju sinni. Á síðasta starfsári var unnið að ýmsum líknarverkefnum auk stór- gjafarinnar til Dvalarheimilis aldraðra. Félagsstarf var einnig blómlegt en umdæmisþing Lions á íslandi, sem Lionsklúbbur Borg- arness sá um í vor, bar þó hæst í félagsstarfinu. Við þetta þinghald, sem þótti takast mjög vel, sýndu klúbbfélagar mjög mikla sam- stöðu og góðan félagsanda. Starfsemi Liönsklúbbs Borgar- ness í haust hófst með 25 ára af- mælishófi, perusölu til fjáröflunar og móttöku fyrir Borgnesinga 67 ára og eldri. Þessi fyrstu verkefni vetrarins sýna starfsemi klúbbs- ins í hnotskurn sem og reyndar allra Lionsklúbba. Formaður Lionsklúbbs Borgarness á nýbyrj- uðu starfsári er Birgir Guð- mundsson. Jón fsberg, Blönduósi, umdæmisstjóri B-umdæmis, ásamt eiginkonu sinn. í miöiö meö Birgi Guömundssyni, formanni Lionsklúbbs Rorgarness, og frú. -4 Eyvindur Ásmundsson syngur einsöng. Nokkrir at stotnfelögum Lionsklúbbs Borgarness I 25 ára afmælishófinu. Frá vinstri; Jóhann Kr. Jóhannesson, Eyvindur Ásmundsson, Jón Kr. Guðmunds- son, Baldur Bjarnason, Siguröur Gíslason, fyrsti formaður klúbbsins, Þorkell Magnússon, Jón Einarsson og Guðmundur Ingimundarson. J' Fóstrufélag Islands: „Myndbandavæðing ógnar börnum þjóðarinnar“ I u Það kostar Md að borða í London 02 það er ótrúlegaódýrt að fljúga þangað! Helgarfargjald kr. 4.405.- Sumir hlutir breytast aldrei. Þann- ig er því varið með ensku bjórstof- urnar, pöbbana vinsælu. Það er varla hægt að segja að þeir hafi breyst nokkuð í áratugi. íslendingar, sem hafa ferðast til London hafa kunnað að meta bjór- stofurnar og hið sérkennilega and- rúmsloft þeirra. Margur ferðalangur- inn hefur notfært sér staðgóðan og ódýran mat, sem fæst á hverri bjórstofu í hádeginu. Pub lunch getur verið allt frá ítölskum kjúklinga- rétti til enskrar pylsu og bakaðra bauna - auðvitað með tilheyrandi bjórkollu. Verðið er nánast hlægi- legt, - tvö sterlingspund er algengt verð. Helgarfargjöld Flugleiða til áfangastaða vestan hafs og austan veita fólki óendanlega möguleika til stuttra skemmtiferða í skammdeg- inu fyrir lágt verð. Flugleiðir og ferðaskrifstofurnar veita alla fyrir- greiðslu við útvegun hótelgistingar og bílaleigubíla. Þannig kostar 5 nátta helgarferð til London með gistingu á Hótel Y t.d. aðeins 5.840 kr. og 3ja nátta ferð með gistingu á úrvalshótelinu London Penta að- eins 5.581 kr. Miðað við gistingu í 2ja manna herbergi. Bílaleigubílar eru líka ótrúlega ódýrir, t.d. má fá bíl í 3 daga með ótakmörkuðum akstri, VAT-skatt- inum og tryggingum fyrir aðeins 1.300 krónur. Það gerir 325 kall á mann ef 4 eru um bílinn! Kannaðu málið fyrir næstu helgi. FLUGLEIDIR Gott fólk hjá traustu félagi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.