Morgunblaðið - 27.10.1982, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1982
63
zahon: Ekki lengur einungis við-
skipti, heldur gagnkvæm kynni
Fyrir skömmu voru staddir hér á
landi þrír ítalir á vogum Ferðaskrif-
stofunnar IlLsýnar. Einn þeirra var
Vittorio Zanon, en hann er forseti
Ferðamálaráðs Lignano Sabiadoro.
Morgunblaðið hitti hann að máli og
spurði hann um ástæðuna fyrir veru
hans hér.
„Ástæðan fyrir veru minni hér
á landi er að Islendingar eru mik-
ilvægur hópur ferðamanna, sem
eyða frítíma sínum á Lignano
„gullnu ströndinni". Við á Italíu
höfum kynnst því, að Islendingar
eru jákvætt fólk, frá svæði þar
sem ríkir kalt loftslag, en það hef-
ur þó ekki gert þá kaldlynda. Með
góðri skipulagningu Útsýnar og
dugnaði Ingólfs Guðbrandssonar
hafa tengslin orðið sífellt mikil-
vægari, svo að ég ákvað, þegar
tækifæri bauðst, að heimsækja ís-
land, til að kynnast því betur og
ekki aðeins af frásögn annarra.
Ég hef kynnt mér skipulag og
starfsemi Ferðaskrifstofunnar
Utsýnar og get hiklaust hrósað
henni. Mér er óhætt að segja, að
ísland hefur komið mér þægilega
ítalirnir þrír. Taldir frá vinstri: Bruno Da Fre, Antonio Renosto og Vittorio Zanon.
á óvart, ekki aðeins vegna nátt-
úrufegurðarinnar, sem er marg-
breytileg, heldur einnig og ekki
síður fyrir fólkið, sem hefur verið
mjög viðmótshlýtt og létt yfir því.
Á Italíu, þegar það er þar í
sumarleyfi gæti maður freistast
til að halda að það væri vegna
þess að það er í sumarleyfi, en ég
komst að raun um að svo er ekki.
Við reynum sífellt að freista fleiri
og fleiri íslendinga að koma til
okkar á Lignano.
Á þessu augnabliki get ég sagt
það við íslendinga að ef þeir kjósa
að eyða sumarleyfi sínu á Lignano
í framtíðinni þá eiga þeir vin í
Ferðamálaráði Lignao, þar sem ég
er, ef ég má orða það svo. Þar sem
Ítalía er geta Islendingar fundið
annað vinalegt land. Nú er ekki
lengur einungis um formleg við-
skipti að ræða, heldur gagnkvæm
kynni.
íslendingar hafa nú í bráðum 10
ár komið til Lignano til að eyða
þar sumarleyfi sínu, eitthvað ná-
lægt 1.500 á hverju ári, þannig
það fer að nálgst að vera 15 þús-
und íslendingar sem heimsótt
hafa Lignano frá upphafi. Það er
stór partur af ekki nema 230 þús-
und manna þjóð, sem mér skilst
að þið séuð og margt af þessu
fólki er sama fólkið sem kemur
aftur og aftur og það mundi ekki
vera þannig, ef fólki likaði ekki að
koma til okkar," sagði Vittorio
Zanon að lokum.
Sænsk myndlist-
arsýning 1 Nor-
ræna húsinu
TVEIR sænskir listamenn, Krland
Cullberg og Peter Tillberg, sýna í
sýningarsölum Norræna hússins frá
26. okt. til 7. nóv nk. Á sýningunni
eru 17 oliumálverk eftir Erland
Cullberg og 22 kolateikningar eftir
Peter Tillberg.
Listamennirnir koma og setja
sýninguna upp og verða viðstaddir
opnunina þriðjudaginn 26. okt. kl.
18:00.
Erland Cullberg er fæddur 1931.
Listnám stundaði hann við lista-
akademíuna i Stokkhólmi og við
Valands-listaskólann í Gautaborg.
Hann hefur haldið margar einka-
sýningar í Svíþjóð og tekið þátt í
samsýningum.
Peter Tillberg er fæddur 1946.
Hann nam við listaakademíuna í
Stokkhólmi. Hann hefur haldið
margar einkasýningar og tekið
þátt i samsýningum á Norðurlönd-
um og víða.
Sýningin, sem þeir nefna Snjó-
göngur, hefur farið víða um Sví-
þjóð. Héðan fer hún til hinna
Norðurlandanna.
Listamennirnir hafa fengið
styrk úr norræna menningar-
málasjóðnum til íslandsferðarinn-
ar.
esió
reglulega
öllum
öl
fjöldanum!
JHÖi
afmælisfundur S.Á.Á.
haldinn í Háskólabíói
laugardaginn 30. okt. 1982 kl. 14.00
SIGFÚS
SNÆBJ0RG
BRYNDlS
H0RNAFL0KKUR KÓPAV0GS
leikur létt lög frá kl. 13.30.
• Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra; ávarp.
. • Signý Scemundsdóttir: syngur við undirleik Guðríðar Steinunnar
Sigurðardóttur.
• Björgólfur Guðmundsson: rekursögu S.Á.Á.
• ÓmarRagnarsson: skemmtir
• Pjetur Þ. Maack: hugleiðing
• Ullen dullen doff: fer með gamanmál
• Joseph Pirro: ávarp
• Biskup ísiands, hr. Pétur Sigurgeirsson: ávarp
• Kynnir: Bryndís Schram.
EFTIR FUNDINN: AFMÆLISKAFFI HÖTEL SÖGU
spilað undir borðum — Sigfús Halldórsson og l ■ jPid(ö f*
Snœbjörg Snæbjarnardóttir. — Graham Smith.
H0RNAFL0KKUR KÚPAV0GS
ViMitniz
mmm