Morgunblaðið - 13.11.1982, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
254. tbl. 69. árg.
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982
Prentsmidja Morgunblaðsins
Lík Leonid I. Brezhnevs, fyrrum forseta Sovétríkjanna, hvíldi í gær á viðhafnarhörum í húsi sovésku verkalýðssamtakanna í Moskvu. Núverandi ráðamenn,
með Andropov í broddi fylkingar, vottuðu honum þar sína hinstu virðingu en útförin mun fara fram á mánudag. ~ ap.
„Aðeins máttur Rauða
hersins tryggir friðinn“
— sagði Yuri Andropov þegar hann hafði verið kjörinn aðalritari kommúnistaflokksins
Moskvu, 12. nóvember, AP.
YURI V. Andropov, fyrrverandi yfirmaður KGB, rússnesku öryggislög-
reglunnar, var í dag, aðeins rúmum sólarhring eftir að skýrt hafði verið
frá láti Leonid I. Brezhnevs, kjörinn aðalritari kommúnistaflokksins og
mestur valdamaður í Sovétríkjunum.
Kennedy
kominn í
leitirnar
Aþenu, 12. nóvember. AP.
EDWARD M. Kennedy, öldunga-
deildarþingmaður, sem verið hefur i
skemmtisiglingu á Eyjahafi, kom í
dag til Mykonos-eyjar en ekkert
hafði frést af honum og förunautum
hans í tvo daga.
„Öldungadeildarþingmaðurinn
og samferðamenn hans komu til
hafnar seint í gær og eyddu kvöld-
inu á lítilli hafnarkrá," sagði
borgarstjórinn í Aþenu, Matthew
Apostolou, í dag. Kennedy lagði úr
höfn á eyjunni Ios í versta veðri sl.
miðvikudag en í stað þess að halda
til Santorini-eyjar eins og fyrir-
hugað var, var stefnan tekin á
Mykonos í Hringeyjunum.
Kennedy, sem er í Grikklandi í
boði skipakóngsins Yannis Latsis,
hefur á prjónunum að eiga fund
með fulltrúum grísku sósíalista-
stjórnarinnar, að því er grísku
blöðin sögðu í dag.
Minnsta verð-
bólga í tíu ár
London, 12. nóvember. AP.
VERÐBÓLGAN í Bretlandi er á
hröðu undanhaldi og fer minnkandi
með hverjum mánuði sem líður, að
því er tilkynnt var í London í dag. í
síðasta mánuði var hún 6,8%, sú
minnsta í rúm tíu ár, og ber öllum
saman um, að i þessum efnum hafi
rikisstjórn Margaret Thatchers náð
umtalsverðum árangri.
Síðustu fimm mánuðina hefur
verðbólgan í Bretlandi minnkað
stöðugt og komu fréttirnar í dag á
hæla annarra góðra tíðinda fyrir
breskan almenning. Byggingarfyr-
irtæki og bankar ákváðu í dag að
lækka vexti á lánum húsbyggj-
enda um tvö prósentustig, úr 12%
í 10%. Örkumálaráðherrann
breski tilkynnti svo í dag, að engar
hækkanir yrðu á rafmagnsverði á
næsta ári. Ríkisstjórnin spáir því,
að verðbólgan verði komin niður í
6% fyrir árslok og 5% í vor.
Norman Tebbit, atvinnumála-
ráðherra, sagði í dag, að minni
verðbólga muni óhjákvæmilega
koma til með að draga úr atvinnu-
leysinu í Bretlandi, sem nú er
13,8%, þegar fram í sækir. Hann
sagði þó, að skilyrðið fyrir því
væri, að þjóðin sneri sér að því að
efla samkeppnishæfni sína og
hætti að berjast innbyrðis.
í ræðu, sem Andropov hélt eftir
að miðstjórnin hafði einróma val-
ið hann aðalritara, kvaðst hann í
störfum sínum mundu hafa stefnu
Brezhnevs að leiðarljósi og sagði,
að „heimsvaldasinnar munu aldrei
verða við óskum okkar um frið.
Friðurinn í heiminum verður að-
eins tryggður með ósigrandi
mætti Rauða hersins". Talið er, að
sá óvenjulegi flýtir, sem hafður
var á kjöri Andropovs, sé fyrst og
fremst til að fullvissa Sovétmenn
og umheiminn um að stöðugleiki
og eining ríki meðal Kremlverja.
Á miðstjórnarfundinum í morg-
un var það Konstantin Chernenko,
sem talinn hefur verið helsti
keppinautur Andropovs um völd-
in, sem bar upp tillöguna um að
Andropov yrði kjörinn aðalritari
og er getum að því leitt, að sjálfur
stefni hann að því að verða forseti
en því embætti gegndi Brezhnev
einnig. Úr því verður skorið á
fundi æðstaráðsins, sem fyrir-
Yuri Andropov, aöalritari sovéska
kommúnistaflokksins. ap
hugaður var 23. þ.m. en jafnvel er
talið að hann verði um helgina.
Þótt Andropov héti því í ræðu
sinni í dag að vinna í anda
Brezhnevs heitins vakti það at-
hygli erlendra fréttamanna, að
hann minntist hvorki á slökun
spennu né afvopnunarmál, sem
voru meginstefin í málflutningi
Brezhnevs um utanríkismál. Ræða
hans var í raun aðeins upprifjun á
æviferli Brezhnevs og kom þar
ekkert fram, sem benti til neinna
breytinga í bráð.
Útför Brezhnevs mun fara fram
nk. mánudag en þangað til mun
fólki gefast kostur á því að votta
honum hinstu virðingu þar sem
hann hvílir á viðhafnarbörum í
húsi sovésku verkalýðsfélaganna í
Moskvu. Fram eftir degi máttu
hermenn og lögreglumenn heita
einir í miðborg Moskvu og fékk
enginn að nálgast húsið nema
gegn framvísun passa. Ekkja
Brezhnevs, Viktoria, grét hljóð-
lega þegar forystumenn kommún-
istaflokksins gengu hjá kistunni,
svartklæddir og með armbindi í
svörtu og rauðu.
Viðbrögðin við láti Brezhnev3
eru með ýmsum hætti en aliir eru
sammála um, að einn af mestu
valdamönnum heimsins sé geng-
inn. í Austur-Evrópu og öðrum
kommúnistaríkjum er hann
tregaður sárt í opinberum fjöl-
miðlum sem mikill baráttumaður
fyrir „hinum háleitu hugsjónum
kommúnismans" en annars staðar
er bent á, að hann hafi ekki verið
neinn tímamótamaður í sovéskum
stjórnmálum.
Margt stórmenna mun verða við
útför Brezhnevs. Æðstu menn
kommúnistaríkjanna munu verða
þar samankomnir en Reagan,
Bandaríkjaforseti, hefur ákveðið
að senda George Bush, varafor-
seta. Af öðrum vestrænum ráða-
mönnum lííá nefna Francis Pym,
breska utanríkisráðherrann,
Hans-Dietrich Genscher, vestur-
þýskan starfsbróður hans, Pierre
Mauroy, forsætisráðherra Frakka,
og Trudeau, forsætisráðherra
Kanada.
Sjá bls. 24, „Skipaói andófs-
mönnum á bekk með glæpa-
mönnum."
Lech Walesa laus úr haldi
Varsjá, 12. nóvember. Al*.
LECII Walesa, leiðtogi Samstöðu, hefur verið leystur úr haldi að því er
pólska sjónvarpið skýrði frá í kvöld. Fyrr i dag hafði innanríkisráðherr-
ann pólski tilkynnt, að tilskipunin um varðhald Walesa hefði verið numin
úr gildi en vildi þá ekki segja hvenær Walesa fengi að fara heim til sín.
Formaður pólsku sendinefndarinnar á Öryggisráðstefnunni í Madrid
sagði i dag, að herlögunum yrði aflétt fyrir jól.
Wlodzimierz Konarski, sendi-
herra og formaður pólsku sendi-
nefndarinnar á Öryggisráðstefn-
unni í Madrid, sagði í dag í við-
tali, sem fréttamaður belgíska
útvarpsins átti við hann, að her-
lögunum í Póllandi yrði aflétt
fyrir jól enda myndi þá verða
komin á full kyrrð í landinu.
Hann sagði ennfremur, að Wal-
esa myndi eiga fund með Jaruz-
elski hershöfðingja strax þegar
hann hefði verið látinn laus.
Innanríkisráðherra Póllands
tilkynnti í dag, að tilskipunin um
fangelsun Walesa hefði verið
afturkölluð en embættismenn
vildu þó ekki segja frá því á
þeirri stundu hvenær Walesa
fengi að fara frá Arlamow, við
sovésku landamærin, þar sem
hann hefur verið hafður í haldi
að undanförnu. Seinna í kvöld
sagði svo í pólska sjónvarpinu,
að Walesa væri laus úr haldi en
þess þó ekki getið hvort hann
væri kominn heim til sín í
Gdansk.
Walesa skrifaði fyrir nokkru
bréf til Jaruzelskis hershöfð-
ingja þar sem hann bauðst til að
taka upp viðræður við stjórnvöld
og vilja sumir rekja ákvörðunina
um að leysa hann úr haldi til
þessa bréfs. Aðrir segja þetta
fremur benda til að stjórnvöld
séu nú nokkuð örugg um sinn
hag og telji sig hafa í fullu tré
við Samstöðu. Til þess bendir
einnig ákvörðun þeirra á dögun-
um um að leyfa páfa að koma til
föðurlands síns á næsta sumri.