Morgunblaðið - 13.11.1982, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 13.11.1982, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982 ff Ég atUa ab fá einn kcxPPi Og Vioarbrau^ mgð." 3-^ 16^0 ... að hlusta saman á illviðrið úti. TM Reg U S. P«t Off.-MI rights resefved » 1979 Los Angetes Times Syndícate Ég get notad sömu gínuna og í gamla daga! Með morgiinkaffinu Vona aö sumarfríið verði skemmti- legt! Úr kvikmyndinni „Okkar á milli... í hita og þunga dagsins". „Okkar á milli.. Verður til skammar og smánar hversu víða sem hún nær Vistgjöld á elliheimilum: Uppbót Trygginga- stofnunar minni hafi vistmaður einhverjar tekjur Margrét Thoroddsen skrifar f.h. Tryggingastofnunar ríkis- ins: „Vegna fyrirspurnar vist- manns á Hrafnistu í Hafnar- firði í Velvakanda 3. nóvember sl. vil ég taka fram eftirfar- andi: Sé ellilífeyrisþegi vistaður á eilliheimili, heldur hann trygg- ingabótum sínum, sem renna uppí vistgjaldið. Hafi hann engar aðrar tekjur, greiðir Tryggingastofnunin það, sem á vantar, í formi uppbótar, en greiðir auk þess lífeyrisþegan- um vasapeninga, sem eru nú 742 krónur á mánuði. Ef vist- maður er aftur á móti með eft- irlaun úr lífeyrissjóði eða ein- hverjar aðrar tekjur, verður uppbótin úr Trygginga- stofnuninni minni eða jafnvel engin, ef eftirlaunin og ellilíf- eyririnn nægja fyrir vistgjald- inu. Þó á vistmaður í þeim til- fellum ætíð að halda eftir að minnsta kosti 1.440 krónum á mánuði. Þetta eru þær almennu regl- ur, sem Tryggingastofnunin fer eftir. Um þetta sérstaka mál fyrirspyrjanda get ég því mið- ur ekki tjáð mig, þar sem hann skrifar ekki undir nafni. Trú- legt finnst mér, að hér sé um einhverja skuld frá fyrri mán- uðum að ræða. Gallinn er nefnilega sá, að hækkun vist- gjalda er yfirleitt ekki ákveðin fyrr en í lok hvers mánaðar, sem þær eiga að gilda fyrir. Þarf þá í næsta mánuði að greiða viðbót við það, sem búið er að greiða mánuðinn á undan. Er ofur eðlilegt, að gamalt fólk eigi erfitt með að átta sig á þessu greiðslufyrirkomulagi. Annars vil ég benda fyrir- spyrjanda á að leita upplýsinga á skrifstofu Hrafnistu um þetta mál og er ég viss um, að starfsmenn þar munu leitast við að skýra málið fyrir hon- um.“ Anna Þórhallsdóttir skrifar 4. nóv.: „Sú frétt barst þann 2. nóv. sl. frá Helga Péturssyni, fréttamanni útvarpsins í Washington, Banda- ríkjunum, að hin margumtalaða kvikmynd Hrafns Gunnlaugsson- ar, „Okkar á milli ... í hita og þunga dagsins", verði tekin til sýningar á „Scandinavia Today", norrænu menningarkynningunni, nánar tiltekið 10. þ.m. Hún mun verða meðal annarra norrænna kvikmynda sem sýna á víðsvegar um Bandaríkin. Forráðamönnum menntamála á Islandi hefur verið kunnugt um að senda átti kvik- myndina til útbreiðslu á menn- ingu þjóðarinnar. Hið ósmekklega efnisval myndarinnar er og verður til skammar og smánar hversu víða sem hún nær. Ég leyfi mér að vísa í tvær Morgunblaðsgreinar mínar þann 15. sept. og 27. okt. sl. Sú ánægjulega fregn hefir nú borist, að forsætisráðherra mun beita sér fyrir sefningu laga- ákvæða um þjóösönginn. Eftir það verður vonandi ekki hægt fyrir neinn að gera þau skemmdarverk sem sjá má og heyra í nefndri kvikmynd og hljómplötu. I til- kynningu frá forsætisráðuneytinu segir, að vegna þess úlfaþyts sem orðið hefir út af þjóðsöngnum, verði lögin sett en engar hömlur verða settar á kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar! Ekki eru allir jafn ánægðir með þessa stjórnsýslu. Menn spyrja: Hvar er hundurinn grafinn? Hver opnar fyrir gáttir ómenningar á þessa frægu sýningu? Frændkonu okkar frá Svíþjóð, sem er að sögn allsráðandi um val á norðurlanda kvikmyndum, hafa bersýnilega orðið á mistök. Hvað er nú til ráða? Úr því að íslenskir aðilar aðhafast ekkert væri kannski ráð að snúa sér til sænska sendiherrans, fyrst það var samlandi hans, sem valdi myndina til sýningar og fá hann til að grennslast eftir, hvort ekki sé hægt að stöðva útbreiðslu henn- ar, þar sem hún inniheldur niður- rif helgitákna þjóðarinnar, gefur ranga mynd af islensku þjóðlífi og inniheldur gróft klám, svo nokkuð sé nefnt. ' Þetta er lokaábending mín og sjái nú aðrir um að því verði fram- fylgt að kvikmyndinni verði skilað til háttvirts Alþingis, til eyðilegg- ingar þar.“ HÖGNI HREKKVÍSI Þessir hringdu . . . Skynjum kraft í tvennum skilningi Svanhildur Sigurjónsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að koma á framfæri innilegu þakklæti til sjónvarpsins og Ómars Ragnars- sonar fyrir þáttinn úr óbyggðum. Hann fór í bókstaflegri merkingu með okkur upp á hálendið og skýrði allt svo vel fyrir okkur. Það er gaman þegar $vona margir fá hlutdeild í þeim fjársjóði sem há- lendi landsins okkar er. Það minn- ir okkur á tign öræfanna og við skynjum kraft í tvennum skiln- ingi, frá rótum landsins á háhita- svæðunum og frá almættinu. I fyrra sýndi sjónvarpið annan þátt, sem Ömar hafði unnið, um akstur i snjó. Ég held að fá heimili séu ósnortin af þeim ósköpum sem hafa gengið á hjá okkur í umferð- inni að undanförnu, með stórum fórnum mannslífa í umferðarslys- um á vegunum. Nú fer vetur í hönd. Væri ekki ráð, að þessi þátt- ur Ómars yrði endurcekinn okkur öllum til fróðleiks og áminningar? Háar fjársektir komi í staö ökuleyfis- sviptingar V.E. hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Mér finnst það þjóna ákaf- lega takmörkuðum tilgangi að vera að svipta menn ökuréttindum fyrir að aka undir áhrifum áfeng- is, enda hefur það sýnt sig, að fyrirbyggjandi áhrif þessarar að- gerðar eru sáralítil. Þar að auki aka þessir menn eins og þeim sýn- ist, þó að búið sé að svipta þá skírteininu. Ef sú breyting ætti sér hins vegar stað, að viðurlög við þessu umferðarbroti yrðu fjár- hagsleg og beitt yrði háum fjár- sektum, stighækkandi við hvert brot, t.d. byrjað með 20—30 þús- und króna sekt við fyrsta brot, held ég að fólk neyddist til að hugsa sig um tvisvar, áður en það settist undir stýri með Bakkus sem fylginaut. Ég tala nú ekki um, ef aðeins væri um það að ræða að spara sér leigubílinn úr sam- kvæminu. Kunningi minn lenti í að brjóta af sér á þessu sviði, er hann bjó í Bandaríkjunum. Hon- um var ekki sleppt út fyrr en 500 dollara sektin hafði verið greidd, eða sett trygging fyrir henni, og siðan var honum gert að sitja sex vikna námskeið í umferðarfræð- um. Undan því þýddi heldur ekki að víkjast. „Neria“ ætti ekki að vera á „barna- heimilum“ Klómakona hringdi og hafði eft- irfarandi að segja: — Stundum er verið að tala um

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.