Morgunblaðið - 13.11.1982, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 13.11.1982, Blaðsíða 48
^^^skriftar- siminn er 830 33 ^^uglýsinga- síminn er 2 24 80 LAUGARDAGUR 13. NOVEMBER 1982 Kjartan Jóhannsson, formaður Alþýðuflokksins: Forsætisráð- herra hefur slit- ið viðræðunum „EG lagdi áhorslu á þaó í gær að þessi ákvörðun þingflokks- ins um að flytja vantraust á ríkisstjórnina fæli meðal annars í sér kröfu um tafarlaus og skýr svör frá ríkisstjórninni við skilyrðum Alþýðuflokksins. Forsætisráðherra sagði í fjölmiðl- um í dag, að hann vildi ræða þessi skilyrði í næstu viku. I»essi skilyrði hafa aldrei verið til umræðu og þessi viðbrögð forsæt- isráðherra og svör eru sama og að hafna frekari viðræðum við Alþýðuflokkinn og það er tilgangslaust fyrir hann að að boða mig á frekari fundi,“ sagði Kjartan Jóhannsson, formaður Alþýðuflokksins í samtali við Morgunblaðið í gær. Kjartan var spurður álits á ummælum forsætisráð- herra; að verði vantrauststil- laga Alþýðuflokksins felld, fæli það í sér traustsyfirlýs- ingu á ríkisstjórnina. „Ég tel að forsætisráðherra hafi með þessum svörum sínum slitið viðræðunum og það er tilgangslaust að boða mig til frekari funda. Það er auðvelt fyrir forsætisráðherra að ástunda útúrsnúninga, það liggur skýrt fyrir að van- trauststillagan er til þess að það komi vel fram hverjir eru stuðningsmenn ríkis- Tékkar hafa keypt 80 tonn af smur- osti á árinu UM ÞESSAR mundir er ver- ið að afgreiða 80 tonn af smurosti, sem seldur hefur verið til Tékkóslóvakíu. Tékkar hafa undanfarin ár keypt hér 20—30 tonn á ári af þessum osti en núna keyptu þeir miklu meira eða 80 tonn eins og áður segir. Að sögn Óskars Gunn- arssonar forstjóra Osta- og smjörsölunnar er hér um að ræða smurosta í 250 gramma dósum, aðallega rækju-, papriku- og sveppaosta. Verðið sem fæst fyrir vöruna sagði Óskar að væri mjög þokka- legt miðað við markaðsverð í dag. Breyting á reglugerð um stúdentspróf: Sá sem fær 0,0 í einhverri grein er fallinn Menntamálaráðuneytið hefur tilkynnt í Stjórnartíðindum breyt- ingu á reglugerð nr. 270/1974 um menntaskóia. Við reglugerðina bætist eftir- farandi: Nemandi sem hlotið hefur einkunnina 0,0 í einhverri grein telst ekki hafa lokið stúd- entsprófi. Undir tilkynninguna rita Ingvar Gíslason og Birgir Thorlacius. stjórnarinnar og hverjir ekki og við höfum ekkert traust á þessari ríkisstjórn og höfum aldrei haft og teljum að það hafi sannast að hún sé gjör- samlega vanhæf til þess að stjórna landinu. Það hefur sannast enn betur á síðustu vikum á því hvernig hún hef- ur haldið á viðræðum við stjórnarandstöðuna," sagði Kjartan. „Það er auðvitað útúr- snúningur hjá forsætisráð- herra, að í hugsanlegri at- kvæðagreiðslu um vantraust á ríkisstjórnina, felist ein- hvers konar traust á hana. Þessi svör forsætisráðherra í dag bundu endahnútinn á viðræður okkar við ríkis- stjórnina," sagði Kjartan Jó- hannsson, formaður Alþýðu- flokksins. Ljósmynd Jón Páll Kolmunnanum dælt úr trollinu Kolmunnaveiðar Edlborgarinnar eru nú komnar á góðan skrið eftir smávægilega byrjunarörðugleika. Afli Eldborgarinnar nemur nú um 63 lestum af flök- uðum og frystum kolmunna eftir tæplega þriggja vikna útiveru. Aflinn er nú um 35 lestir að jafnaði á sólarhring, en aðeins er togað á daginn meðan bjart er. Uppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir: Um 1.100 kr. á hvert mannsbarn á næsta ári „Á NÆSTA ári er ráögert að verja 263 milljónum króna til uppbóta á verð útfluttra land- búnaðarafurða, einkum kinda- kjöts. Þessi fjárhæð samsvarar 1.100 krónum á hvert manns- barn í landinu. Hún sýnir hversu nauðsynlegt það er, að landbúnaðarframleiðslan sé í samræmi við innlenda neyzlu,“ segir m.a. í ályktun sem sam- þykkt var í framkvæmdastjórn Verzlunarráðs íslands í vik- unni. I ályktuninni segir, að ýmsar umbætur megi hins vegar gera á markaðssetningu kindakjöts hér og erlendis. Ennfremur vekur Verzlunarráð íslands at- hygli á þeirri nær stöðugu lækkun, sem orðið hefur á þóknun til söluaðila fyrir að dreifa landbúnaðarvörum. „Þessi mikla lækkun hefur dregið verulega úr áhuga sölu- aðila á að dreifa landbúnaðar- afurðum og hefur reyndar gengið svo langt, að þessar vör- ur standa ekki undir eigin dreifingarkostnaði. Sú skammsýni er óverjandi að grafa þannig undan sölu land- búnaðarafurða innanlands, en greiða í stað þess háar fjárhæð- ir með sölu þeirra erlendis," segir ennfremur í ályktun framkvæmdastjórnar Verzlun- arráðs íslands. Fiskiþing: Þorskafli miðaður næsta árs við 400.000 verði lestir Leyft verði að veiða allt að 50.000 lestir af loðnu til manneldis FISKINNGI lauk í gær. A þinginu var ilyktað um fjölda mála og var mest fjallað um gæðamál, stjórnun fiskveiða og starfsskilyrði sjávarút- vegsins. Pingið ályktaði meðal ann- ars, að heildar þorskafli næsta árs miðist við 400 þúsund lestir í stað 450 þúsunda á síðasta ári. Ennfremur beindi þingið þeim tilmælum til sjáv- arútvegsráðherra að þegar verði ákveðið að leyfa veiðar á 30 til 50 þúsund lestum af loðnu í vetur. Hvað varðaði stjórnun fiskveiða taldi þingið rétt að fyrirkomulag fiskveiða á næsta ári verði með svipuðum hætti og á þessu. Heildar þorskafli verði þó lækkaður úr 450 í 400 þúsund lestir með tilliti til þess, að árgangurinn frá 1976 hefur ekki reynzt eins stór og gert var ráð fyrir. Komi hins vegar hið gagnstæða í ljós, hækki leyfilegt aflamagn í 450 þúsund lestir. Þá telur þingið rétt, að þorskveiðibann togara verði í 110 daga í stað 150 á þessu ári. Verði togari frá veiðum af óviðráðanlegum orsökum í meira en 15 daga umfram áskilda skrapdaga, skal það bætt með fjölgun þorskveiðidaga á næsta ári. Þá var lagt til að gerðar verði ráð- stafanir til þess að grálúða verði ekki veidd á þeim árstíma, sem hún er óhæf til vinnslu. Ennfremur að breytt verði reglum til að auðvelda fulla nýtingu kolastofna við landið. Hvað varðar loðnuveiðar var því beint til sjávarútvegsráðherra, að þegar yrði ákveðið að í vetur mætti veiða 30 til 50 þúsund lestir af loðnu til frystingar og hrognatöku. Bendi niðurstöður rannsókna í jan- úar til stærri hrygningastofns en nú er talið, verði veiðiheimildir auknar með hliðsjón af markaðsað- stæðum. Þá samþykkti þingið að beina þeim tilmælum til ríkisstjórnar- innar, að hún kynni ítarlega á er- lendum vettvangi þá þýðingu, sem hvalveiðar hafa fyrir efnahagslíf okkar. Jafnframt verði það kannað hvort iíkur séu á því, að við verðum beittir efnahagslegum þvingunum ef við mótmælum hvalveiðibanni. Benzín hækkar væntanlega um 15% á mánudag: Helmingur hækkunarinnar rennur beint til ríkisins VERÐLAGSRÁÐ kemur saman til fundar á mánudag, þar sem væntan- lega verður tekin ákvörðun um hækk- un benzíns, olíu og farmgjalda skipa- félaga, en olíufélögin hafa þegar lagt fram beiðni um 18% hækkun á benz- íni. Samkvæmt upplýsingum Mbl. er gert ráð fyrir, að ráðið heimili 14—15% hækkun, þannig að hver lítri fari í um 14 krónur. Inni í framangreindri hækkun er hækkun sú sem fjármálaráðuneytið hefur ákveðið á vegaskatti. Fjár- málaráðuneytið hefur ákveðið, að vegaskattur hækki úr 2,33 krónum í 3,06 krónur, eða um 31,3%. Ofan á hækkunina, sem er 73 aurar, leggst síðan söluskattur, þannig að hækk- unin verður liðlega 92 aurar. Benz- ínlítrinn kostar eins og kunnugt er 12,20 krónur og 92 aura hækkun er því um 7,54% hækkun. Helmingur væntanlegrar benz- ínhækkunar rennur því beint til ríkisins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.