Morgunblaðið - 13.11.1982, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 13.11.1982, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982 9 llátaMináf] Umsjónarmaöur Gísli Jónsson 171 Hann fær að hvíla í næstu tvær mínútur, sagði þulurinn í sjónvarpinu um brotlegan handknattieiksmann. Hvað fær hann að hvíla? Væntan- lega sjálfan sig. Til þess að tákna hvað menn gera við sjálfa sig er notuð í málinu svokölluð miðmynd sagna. Hún myndaðist að fornu með því að bæta afturbeygða fornnafninu sik við sögnina. Hann hvíldi sik. Þetta sik hefur nú breyst í sig, svo sem ok hefur breyst í og eða ek í ég. En afturbeygða fornafnið var ekki síður fast- tengt við sögnina. Þannig varð hvíla sik að hvílask og síðar hvílast. Og hér hefði þulurinn einmitt átt að nota þessa orð- mynd. Maðurinn fékk að hvíl- ast í tvær mínútur. Svipuð málvilla og í tali þul- arins er nú furðu algeng í sögninni að opna (st). Oft má sjá og heyra í auglýsingum: Húsið opnar klukkan þetta eða hitt. Hvað ætti húsið að opna? Sjálft sig auðvitað, og þá ætti að nota miðmynd, ef húsið væri fært um þann verknað. En nú getur húsið sjálft ekki opnað sig. Enda þótt miðmynd hafi mörgum sinnum þol- myndarmerkingu, færi betur á að segja þarna: Húsið verður opnað o.s.frv., heldur en húsið opnast. Líku máli gegnir um sagn- irnar að flytja (st) og dvelja (st). Menn geta að sjálfsögðu flutt eitthvað, og hægt er að dvelja einhvern eða eitthvað = tefja það. Eysteinn Ásgríms- son kveður í Lilju: Sá er ódinn skal vandan velja, velur svo mörg í kvæði aó selja hulin fornyrði, aó trautt má telja, tel ég aó slíkt má skilning dvelja. Þetta er svo að skilja, að vandvirk skáld hafi oft þvílík- an sæg torskilinna fornyrða í kvæðum sínum, að naumast verði talin. Telur skáldið (Eysteinn) slíkt geta tafið skilning manna eða hindrað hann. En þegar menn flytja sjálfa sig eða dvelja, þá fer best á að nota sögnina í mið- mynd. Dæmi: Þau fluttust (ekki fluttu) hingað fyrir tveimur árum og hafa dvalist (ekki dvalið) hér síðan. Sem sagt: Við flytjumst, dveljumst og hvílumst, og sýningin verð- ur opnuð (ekki opnar) á morg- un. Annars konar vanda ber okkur að höndum í sambandi við miðmyndarsögnina að finnast í merkingunni að þykja. Sú sögn er ópersónuleg. Mér finnst, þér finnst, honum finnst, okkur finnst o.s.frv. Eigum við nú að segja: Mér fundust berin góð eða mér fannst berin góð? Hvað fannst mér eða hvernig fundust mér berin? Ég er þess ekki um- kominn að leysa þennan vanda. Ég held að hvort tveggja geti staðist með viss- um skilyrðum. í þessu tiltekna dæmi þykir mér réttara að láta tölu frumlagsins (berin) ráða tölu sagnarinnar og segja: Mér fundust eða mér þóttu berin góð, fremur en mér fannst (eða mér þótti) berin góð. Hins vegar get ég hugsað mér setningar, þar sem eintal- an væri mér tamari. Dæmi: Mér fannst börnin ekki koma rétt fram gagnvart foreldrum sínum. Ég veit þetta er óljóst, og ég bið lesendur liðsinnis. Kannski geta þeir grafið upp einhverja góða og auðvelda reglu sem við mætti styðjast í vanda þessum, t.d. þá að láta tölu frumlagsins alltaf ráða tölu umsagnarinnar í setning- um sem þeim, er hér fóru á undan. Hvernig á að beygja sögnina að flá? Veikt^sterkt eða bland- að? Ég get svarað því, hvernig sögnin beygðist og hvernig hún „ætti“ að beygjast eftir hljóð- skiptaröð sinni. Hún beygðist nákvæmlega eins og slá, og þá þykir okkur vandinn ekki mik- ill. Eins og slá, sló, siógum, sleginn ætti hin að beygjast: flá, fló, flógum, fleginn. En margar sterkar sagnir hafa „veikst", og flá er ein af þeim. Ymsir segja flá, fláði, fláð, eða blanda jafnvel saman veikri og sterkri beygingu og segja flá, fláði, flegið, sbr. þvo, þvoði, þvegið. Mér finnst rétt að halda í gömlu beyginguna af flá, eins og hægt er. Hún er fallegri, þykir mér, en vera kann að við verðum að beyjga okkur fyrir „veikindum" hennar. Mér þyk- . þáttur ir trúlegt, að á sláturhúsum þætti það tilgerðarlegt að segja: Hvað flóstu marga skrokka? Þótt engum þætti tiltökumál að segja: Hvað dróstu marga fiska eða hvað slóstu mikið? Eitt er víst. Ekki þætti okkur björgulegt mál- far, ef sagt væri sláði í staðinn fyrir sló, dragði í staðinn fyrir dró eða láði í staðinn fyrir lá. Eina gamla sögn, sem beygðist eins og slá, langar mig til að nefna. Takið eftir hversu hún er myndarlegri en sú sem nú er notuð í hennar stað. Þetta er sögnin að klá = klóra. Hún beygðist klá, kló, klógum, kleginn. Það er munur eða flatneskjan klóra, klóraði, klórað. Guðmundur byskup Arason fótbrotnaði unglingur, og sótti löngum dofi og kláði á fót honum upp þaðan. I sögu hans segir, að þar sem hann kom í hvíldarstað, þótti hon- um gott að fá einhvern til að klá sér fótinn og þótti honum þá stundum linlega klegið. Nútíð af sögninni að flá, meðan hún heldur sterkri beygingu sinni, er í 1. persónu ég flæ, í 2. pers. þú flærð, í 3. pers. hann flær. Þegar Jón Thoroddsen var sýslumaður á Leirá í Borgar- firði, þótti sumum sem skáldið í honum væri ríkara en emb- ættismaðurinn. Nú kemur að Leirá kona nokkur heldur þungstíg og þó gustmikil. Ger- ir hún boð fyrir sýslumann og þurði síðan að honum til stofu, þar sem hann sat við íþrótt sína og reykti pípu gólfsíða. Konan ber upp erindið og kær- ir nágranna sinn fyrir níðvísu svohljóðandi: Krisiín heitir kona flá, kjafta beitir nöörum, sker og reytir mest sem má mannorós feiti af öórum. Jón sýslumaður og skáld hugsaði sig um, og þó litla hríð, uns hann sagði: Állvel er kveðið, en betur þætti mér þó fara á því að segja flær og reyt- ir heldur en sker og reytir. Fór nú konan með þennan úr- skurð: Kristín heitir kona flá, kjafta beitir nöórum, flær og reytir mest sem má mannords feiti af öórum. Opið í dag kl. 1—4. Til sölu eftirtalin fyrirtæki: Kjöt og nýlenduverslun. Verslunin verslar meö kjöt, mjólk og nýlenduvörur. Er á góöum staö í vestur- borginni. Góð tæki. Góð velta. Langur leigusamning- ur á húsnæði. Til afhendingar strax. Kjöt og nýtenduvöruverslun. Góö matvöruverslun i austurborginni meö kvöldsöluleyfi Til afhendingar strax. Matvöruverslun í austurborginni. Góö matvöruversl- un í austurborginni, sem verslar með brauð, mjólk og nýlenduvörur. Til afhendingar strax. Sérverslun í Hafnarfirói. Góö sérverslun með ört vaxandi veltu í verslunarsamstæðu. Góður sölutími framundan. Til afhendingar strax. Húsgagnaverslun í Reykjavík. Húsgagnaverslun i verslunarsamstæöu á góðum stað í borginni. Versl- unin er i björtu og góðu leiguhúsnæöi ca. 420 fm. Góður lager. Mjög hagstæð kjör. Til afhendingar strax. TEMPLARASUNDI 3 (EFRI HÆÐ) (Gegnt Dómkirkjunni) SÍMAR: 25722 & 15522 Sólum.: Svahberg Guðmundsson & Magnús Hilmarsson Óskar Mikaelsson, lóggiltur fasteignasali OPIÐ KL. 9-6 VIRKA DAGA TEMPLARASUNDI 3 (EFRI HÆÐ), (Gegnt Dómkirkjunni) SiMAR: 25722 & 15522 Sólum : Svanberg Guðmundsson & Magnús Hilmarsson Óskar Mikaelsson, löggiltur fasteignasali OPIÐ KL. 9-6 VIRKA DAGA Til sölu eldra einbylishus á tveimur hæöum. Lítur vel út. Verö 450 þús. Upplýsingar í síma 92-6940 Höfnum. Opið í dag og sunnudag frá 1—4. Hraunbær 2ja herb. 40 fm íbúð á jarðhæð. Laus 1. janúar. Ákveðin sala. Vesturberg 2ja herb. 65 fm íbúð á 5. hæð í lyftublokk. Þvottaherb. á hæð- inni. Gott útsýni yfir borgina. Verð 750 þús. Laugarnesvegur 3ja herb. 100 fm íbúð á 4. hæð. Ákveðin sala. Verð 950 þús. Þangbakki 3ja herb. 87 fm ibúð á 3. hæð i lyftuhúsi. Fallegar innréttingar. Þvottahús á hæðinni. Stórar suður svalir. Verð 950 þús. Suðurgata Hf. 90 fm íbúð á 1. hæð í nýlegu steinhúsi. Vandaðar innrétt- ingar. Þvottahús innaf eldhúsi. Bein sala eða skipti á 2ja herb. íbúð. Verðtryggö kjör koma einnig til greina. Laufvangur Á 3. hæð 110 fm íbúð. Flísalagt bað. Þvottaherb. innaf eldhúsi. Suður svalir. Ákveöin sala. Verð 1.250 þús. Sæviðarsund 4ra herb. 100 fm íbúð á 1. hæð í fjórbýli. íbúöin er tvö herbergi, stofa, borðstofa, eldhús og w.c. j kjallara er geymsla og sameig- inlegt þvottahús. Sameign er öll til fyrirmyndar. Vel hirt lóö. Verö 1.400—1.450 þús. Höfum kaupanda aö 2ja herb. íbúð í Hafnarfiröi, að 2ja herb. íbúð í Reykjavík, aö eign með tveimur íbúðum, að 3ja til 4ra herb. íbúð í Hraunbæ, aö raöhúsi í Hraunbæ. Fjöldi annarra eigna á sölu- skrá. Jóhann Davíðsson. simt 34619, Agúst Guðmundsson. sími 41102 Helgi H. Jonsson. viöskiptafræðmgur. SIMAR 21150-21370 S0LUSTJ LARUS Þ VALOIMARS L0GM J0H Þ0ROARS0N H0L Til sölu og sýnis auk annarra eigna: Nýlegt steinhús í Garðabæ Einbýlishús, ein hæð 144 fm við Þrastarlund meö 4 svefnherb., fjöl- skylduherb., tvöföldum bilskúr, 60 fm. Lóð frágengin. Útsýni. Skipti möguleg á 4ra herb. nýlegri íbúö í Garðabæ. Nýlegt steinhús við Lyngheiði í Kóp. á einni hæð um 140 fm. Bilskúr um 30 fm. Ræktuö lóö. Mikiö útsýni. Teikn. á skrifstofunni. Glæsileg eign í austurbænum í Kóp. Parhús á tveimur hæðum 106x2. Aðeins 7 ára. Innréttingar og allur frágangur mjög vandaóur. Bílskúr fylgir Teikn. á skrifstofunni. Á vinsælum staö í vesturbænum í Kóp. Parhús á tveim hæðum viö Skólagerði, samtals um 170 fm. Á efri hæð 4 góð svefnherb., stórt baö, skáli og rúmgóöar sólsvalir. Á neðri hæö er tvöföld stofa, skáli, snyrting, eldhús með borðkrók, þvottahús og geymsla. Stór bilskúr. Ræktuð lóð. Þetta er vel byggð og vel með farin eign. Mjög gott verö. 4ra herb. íbúðir viö: Álfheima, 4. hæð, 118 fm. Stór og góð. Ágæt sameign. Útsýni. Holtsgötu, 4. hæð, 100 fm. Fjórbýli. Endurnýjuö. Sér hitaveita. Gott verð. Vesturberg, 3. hæð 105 fm. Sér þvottaaðstaða. Danfosskerti. Utsýni. Verð aöeins 1,1 millj. Nökkvavogur um 110 fm reisulegt steinhús. Þríbýli. Sér hitaveita. Nýtt gler. Stór, nýr bilskúr. (Verkstæði). Á góðu veröi viö Vesturberg 3ja herb. íbúð á 5. hæö um 75 fm. Góö sameign. Laus strax. Frábært útsýni. Verö aöeins 900 þús. Hveragerði — Reykjavík — nágrenni Til sölu nýtt einbýlishús í Hverageröi ein hæö um 130 fm. Steinhús. Næstum fullgert. l’búöarhæft. Teikning og myndir á skrifstofunni. Fjórbýlishús í Seljahverfi 3ja herb. úrvals ibuö, óvenju stór, um 108 fm. Fullbúin undir tréverk nú þegar. Allt sér. (Inng.. þvottahús, hitastilling, lóö, sólverönd) Fullgerð sameign. ibuöin er á neöri hæð. Byggjandi Húni sf. Hagstæðir greiöslu- skilmálar. Þurfum að útvega m.a.: Sér íbúö meö bílskúr í vesturborginni eöa á Nesinu. Einbýlishús eða raöhús i vesturborginni eöa á Nesinu Má vera i smíö- um. Fjársterkur kaupandi. 4ra til 5 herb. hæö i Hliöunum meö bilskúr eöa bílskúrsrétti. Raöhús eöa einbýlishús 120 til 150 fm. t.d. viö Sæviöarsund, í Fossvogi eöa Smáíbúðahverfi. Skipti möguleg á góöu einbýlishúsi í Stekkjahverti. ( Kópavogi óskast einbýlishús, raöhús eöa sér hæö af stæröinni 120—140 tm. Ýmis konar eignaskipti. í framanrituöum tilfellum margs konar eignaskipti eöa bein sala. Opiö í dag laugardag, kl. 1—5. Lokað á morgun, sunnudag. ALMENNA FASTEIGNtSALAN LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.