Morgunblaðið - 13.11.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.11.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982 í prófkjör „ÉG HEF í daj> lilkynnt kjörnefndinni að ég sé tilbúinn að gefa kost á mér I prófkjör Sjálfstæðnsmanna í Reykjavík,“ sagði Ellert B. Schram, ritstjóri DV, er Mbl. ræddi við hann í gær, en prófkjörsnefndin sendi honum og Gunnari Thoroddsen bréf, eftir að framboðsfrestur rann út, þar sem þeir eru beðnir að láta nefndina vita fyrir kl. 14 á laugardag hvort þeir hafi hug á þátttöku í prófkjörinu. Um ástæður þess að hann bauð sig ekki fram áður en umsóknar- fresturinn rann út sagði Ellert: „Ástæðurnar fyrir því að dráttur hefur orðið á þessari ákvörðun eru ýmsar. Ég hef þurft að gera upp stöðu mína að því er varðar núver- andi starf. Ég vildi sannfærast um stuðning er út í prófkjör væri komið og ég vildi skoða hug minn vel varðandi áframhaldandi af- skipti af stjórnmálum. Nú hef ég sem sagt tekið ákvörðun. Ég vil leggja Sjálfstæðisflokknum það lið sem ég má.“ Ellert sagði að lokum: „Ég sæk- ist eftir þingsæti og að endingu og af gefnu tilefni vil ég taka fram að ef það næst þá mun ég sitja í því sæti.“ Jónas Thoroddsen fyrr- verandi borgarfógeti látinn LATINN er í Keykjavík Jónas l>órður Thoroddsen, fyrrverandi borgarfógeti. Jónas var fæddur 18. nóvember árið 1908 og var hann því 73 ára að aldri er hann lést. Hann fæddist í Reykjavík, en foreldrar hans voru þau Sigurður Thoroddsen verkfræð- ingur og yfirkennari við Mennta- skólann í Reykjavík og María Krist- ín Claessen. Jónas lauk lagaprófi frá Háskóla íslands árið 1937. Hann var settur bæjarfógeti á Nes- kaupstað sama ár og skipaður til starfans árið 1941. Hann varð full- trúi hjá borgarfógetanum t Reykja- vík árið 1945 og settur borgarfógeti árið 1963 og skipaður í það embætti sama ár. Hann varð bæjarfógeti á Akranesi árið 1967 og starfaði þar til 1973. Fulltrúi hjá yfirborgarfóg- etanum í Reykjavík varð hann árið 1974. Jónas var kosinn bæjarfulltrúi á Neskaupstað árið 1942 og gegndi hann því starfi þar til hann lét af bæjarfógetaembætti. Hann var for- seti bæjarstjórnar, sat í barna- verndarnefnd og var formaður skólanefndar. Hann var einnig í fasteignanefnd, sjúkrahúsnefnd og vatnsveitunefnd. Hann var kosinn í stjórn Sparisjóðs Norðfjarðar árið 1943. Jónas gaf út kvæðabókina Vinjar árið 1932. Jónas kvæntist árið 1933 Björgu Magnúsdóttur Thoroddsen og lifir hún mann sinn. Séra Franz Ubaghs látinn FIMMTUDAGINN 11. nóvember sl. lést í llollandi séra Franz llbaghs smm, fyrrverandi sóknarprestur við Dómkirkju Krists konungs, Landa- koti. Hann fæddist í Maastricht í Hollandi 6. febrúar 1903. Ungur að árum gekk hann í reglu Montfort- feðra, og vann klausturheit sín 15. ágúst 1923. Prestsvígslu meðtók hann hinn 25. maí 1929. Um haustið 1929 kom hann til íslands. Lengst af starfaði hann sem prestur við Landakotskirkju, en einnig þjónaði hann um tíma hjá St. Franciskussystrum í Stykkishólmi. Hann var skólastjóri við Landakotsskólann frá 1949-1955. Vegna heilsubrests fór hann til Hollands í lok október 1981. Sungin verður sálumessa fyrir hann í Dómkirkju Krists konungs, Landakoti, næstkomandi fimmtu- dag 18. nóvember kl. 6 síðdegis. Ekið á stúlku á Nýbýlavegi EKIÐ var á 16 ára stúlku á Nýbýlavegi í Kópavogi laust eftir hádegi í gær og fótbrotnaði stúlkan og var hún flutt á slysadeild Borgarspítalns, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá lögreglunni I Kópavogi. Slysið varð við Birkigrund, en stúlkan var á leið norður yfir götuna, en bilnum var ekið austur Nýbýlaveg. Stúlkan fótbrotnaði eins og áður sagði, en er ekki talin alvarlega slösuð. 25—30% verö- lækkun á kindakjöti MIKIL lækkun hefur orðið á heims- markaðsverði kindakjöts að undan- förnu. Nemur verðlækkunin 25—30%. Nú er heimsmarkaðsverð- ið 1.700—1.800 dollarar tonnið, en þegar flutningskostnaður hefur ver- ið dreginn frá og verðið reiknað í íslenskar krónur, þá er kílóið á u.þ.b. 22 krónur. Til samanburðar má geta þess, að óniðurgreitt verð á kílói af lambakjöti er í dag 75,62 krónur og er heimsmarkaðsverð því að- eins um 29% af framleiðsluverð- inu eins og það er nú, eða rétt rúmlega sláturkostnaðurinn. Rétt er að taka fram að þetta er heims- markaðsverð en ekki endilega það verð sem við seljum kjötið á, því við höfum talið okkar kjöt betra en það kjöt sem heimsmarkaðs- verðið ræðst af. Þó er ljóst að um verulega verðlækkun er að ræða. Ekkki er enn búið að áætla hver útflutningsþörfin verður í ár, hún ræðst af slátruninni í haust og einnig af sölunni innanlands að undanförnu. Þó er vitað að mjög lítið hefur selst af kjöti af nýslátr- uðu, þar sem miklar birgðir voru til af kjötinu frá því í fyrra og selt var á gamla verðinu. Því er ljóst að útflutningsþörfin verður tals- verð, þó líklega verði hún minni en í fyrra. Þá var hún 3.500 tonn, en ekki er ólíklegt að út þurfi að flytja 3.000 tonn af framleiðslu haustsins. Samkvæmt upplýsingum Mbl. er sala nú talin tryggð á 650 tonn- um af dilkakjöti til Svíþjóðar og 700 tonnum til Færeyja. Þá hefur Ísland kvóta fyrir 600 tonn til Efnahagsbandalagsins. Einnig er nokkurn veginn öruggt, að 400 tonn af ærkjöti verði gefin til Póllands og Líbanons. Væru þá 2.350 tonn seld og síðan hefur ver- ið selt til Danmerkur, Luxemborg- ar og fleiri landa. Sjónvarpið: Bein útsending frá af- greiðslu vantrauststillögu STEFNT er að þvi að sjónvarpa beint frá atkvæðagreiðslu um van- trauststillögu á rikisstjórnina, en búist er við því að sú atkvæðagreiðsla fari fram þann 25. nóvember, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Markúsi Erni Antonssyni, fulltrúa í útvarpsráði. Þetta mál var rætt á fundi út- að opna verður sérstaklega fyrir varpsráðs í gær og samþykkt að stefna að fyrrgreindri sjón- varpsútsendingu í samráði við forseta Alþingis. 25. nóvember ber upp á fimmtudag, sem þýðir sjónvarpsútsendingar, en frétta- stjóri útvarpsins upplýsti á fundi útvarpsráðs að van- trauststillagan yrði afgreidd þann dag. V esturlandskjördæmi: Sjálfkjörið hjá Alþýðuflokki Borgarnesi, 12. nóvember. EKKERT verður af prófkjöri Al- þýðufiokksins i Vesturlandskjör- dæmi sem fyrirhugað var í lok þessa SASÍR OG SSH: Stefnt að sameiningu samtakanna um áramót SAMTÖK sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæöinu, SSH, og samtök sveitarfélaga í Reykjaneskjördæmi, SASÍR, stefna að því að sameinast í kringum næstu áramót, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Kichard Björgvinssyni bæjarfulltrúa í Kópavogi og formanni SSH. SSH rekur Skipulagsstofu höfuðborgar- svæðisins. Richard sagði að nokkur sveit- arfélög hefðu gengið úr SASÍR á undanförnum árum og væru til- tölulega fá sveitarfélög innan þeirra vébanda. SSH hefði síðan verið stofnað árið 1976, enda þörf á samstarfi vegna nábýlis sveitar- félaganna. SASÍR hefur fengið framlag úr jöfnunarsjóði eins og önnur landshlutasamtök, en þegar Samtök sveitarfélaga á Suðurnesj- um, SSS, voru stofnuð, var þessu framlagi skipt til helminga á milli SSS og SASÍR. Við sameiningu SSH og SASÍR yrðu aðeins ein landshlutasamtök á svæðinu og myndu þau samtök fá framiag úr jöfnunarsjóði og einnig frá Byggðasjóði, að því er Richard sagði. Þá gat Richard þess, að ríkið hefði miklar tekjur af skipulags- gjöldum frá svæðinu og fengjust þau gjöld endurgreidd að helm- ingi. Uppi væru tillögur hjá skipu- lagsstjórn ríkisins um svæða- skipulag á Eyjafjarðarsvæðinu, að skipulagsstjórn myndi greiða helminginn af því á móti sveitarf- élögunum. Því væri eðlilegt að sama gilti um samtökin sunnan- lands. Því væri um talsvert fé að ræða og myndi sameining geta létt á kostnaði við skipulagsvinnuna, en í dag greiddu íbúar sveitarfé- lagana allan kostnaðinn við skipu- lagsvinnu. Jafnt gegn Venezuela ÍSLAND og Venezuela gerðu jafntefli, 2:2, á Olympíuskákmótinu í Luz- ern í Sviss í gærkvöldi. Guðmundur Sigurjónsson tapaði fyrir Hernandes á 1. borði, Jón L. Árnason vann Palacios á 2. borði, Margeir Pétursson gerði jafntefli við Ostos á 3. borði og Jóhann Hjartarson gerði jafntefli við Guerra á 4. borði. Kvennasveitin tefldi við Frakkland og tapaði 0:3. Þær Ólöf, Sigurlaug og áSlaug tefldu. Sovézka karlasveitin stefndi í stórsigur gegn Rúmenum og hefur nú nær tryggt sér sigur á mótinu. Stórstjarnan Kasp- arov hefur vakið gífurlega at- hygli, en hann hefur hlotið 8 vinninga af 10 mögulegum. mánaðar, þar sem sjálfkjörið var í bæði sætin sem auglýst var eftir framboðum í. Eiður Guðnason alþingismaður bauð sig einn fram í 1. sætið og Gunnar Már Kristófersson, Hell- issandi, var einnig sá eini sem bauð sig fram í 2. sætið. Skipa þessir menn því tvö efstu sæti flokksins í kjördæminu í næstu al- þingiskosningum, en þeir skipuðu þau einnig við síðustu kosningar. hbj. Bæjarfógetinn í Siglufirði: Þrír sækja um embættið ÞRÍR sóttu um embætti bæjarfógeta í Siglufirði, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Baldri Möller, ráðu neytisstjóra í dómsmálaráðu- ncytinu, í gær. Þeir sem sóttu voru: Eggert Óskarsson, fulltrúi á Akureyri, Guðmundur Sigurjónsson, fulltrúi’ á ísafirði og Þorbjörn Árnason, fulltrúi á Sauðárkróki. Búist er við að embættið verði veitt í næstu viku. Ellert Schram

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.