Morgunblaðið - 13.11.1982, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 13.11.1982, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982 Fræðsluþættir frá Geðhjálp Hugleiðingar um neyðarþjónustu Nú eru í uppsiglingu nýjar þingsályktunartillögur í sam- bandi við meðferð geðsjúkra og hlýtur þar m.a. að vera gert ráð fyrir neyðarþjónustu. Enda er hún ein af brýnustu málefnum þessa sjúklingahóps sem hefur orðið svo út undan í heilbrigðis- kerfi okkar að hann yrði þar með seinastur allra til að fá svo sjálfsagða þjónustu. Ekki ber að vanþakka það sem vel er gert og víst hefur ýmislegt gott gerst í málum geðsjúkra á allra síðustu árum eins og t.d. opnun nýju geðdeildarinnar á Landspítalanum. Ég vil strax taka það fram að ég veit harla lítið um þessar nýju þingsálykt- unartillögur en kæmi ekki á óvart þótt væntanleg neyðar- þjónusta sé eingöngu miðuð við sjúkrahús og innlagnir. Og ekki ætla ég að deila á það með þess- um pistli mínum, síður en svo. Öllum þeim sem einhvern tíma hafa þurft á þeirri þjónustu að halda hlýtur aðeins að vera þakklæti í huga, því skortur á neyðarþjónustu hefur einmitt verið sú martröð sem helst fælir aðstendendur frá því að hafa geðsjúklinga til lengdar á heim- ilum sínum. Reynt að foröa innlögn Samt langar mig af þessu til- efni að benda á aðra tegund neyðarþjónustu sem tíðkast hef- ur á Norðurlöndum jafnframt hinni. Er hún fólgin í því að fylgst er með sjúklingum eftir útskrift af sjúkrahúsum og þeir t.d. heimsóttir ef þeir mæta ekki samkvæmt umtali á göngudeild- ir. Einnig geta þeir sem hafa slíka sjúklinga á heimilum sín- um hringt og fengið fólk heim þegar ljóst er að sjúklingur er hættur að taka nauðsynleg lyf og dregur þessi þjónusta að sjálf- sögðu mjög úr innlagningartíðni. Ef geðsjúklingur ákveður að hætta að taka lyfin sín er að- standandi oftast síðasti aðilinn sem getur talið honum hughvarf, enda sjúklingnum þá svo er komið oftast meinilla við alla ættingja með tölu. Liggur í aug- um uppi að þetta er nöturlegt ástand fyrir aðstandandann. Hann veit mæta vel að hverju dregur en getur samt enga hjálp fengið fyrr en sjúklingurinn er sannanlega orðinn „snargalinn" og þar af leiðandi hæfur spítala- matur. Víst er hægt að panta tíma hjá lækni þegar svona stendur á en meira en lítið vafa- samt að sjúklingurinn fáist til að mæta. Að sjálfsögðu f á þeir sjúklingar sem búa einir út í bæ að verða „snargalnir" í friði. Ég held að enginn nema sá sem reynt hefur geti ímyndað sér hversu ömurlegt það er að horfa upp á ástfólgna mannveru hverfa meira og meira á vit ranghugmyndaheims síns án þess að fá nokkuð að gert. Að vita að nú hefst píslarganga hennar upp á nýtt, inn á spítala, í endurhæfingu, þ.e.a.s. ef hún stendur til boða, missa vinnuna eina ferðina enn, ef sjúklingur- inn er yfirleitt svo heppinn að hafa vinnu. Að vita að í mörgum tilfellum hefði mátt forða þessu ef sjúklingurinn hefði fengist til að taka lyfin sín eða fara tafar- laust til læknis. Ég veit um ein- staka tilfelli þar sem nætur- læknar hafa gefið sér tíma til að telja geðsjúkling á lyfjatöku undir svona kringumstæðum og þar með forðað innlögn. En það er ekki í þeirra verkahring, enda gefa annasamar bæjarvaktir þeim lítinn tíma til slíks. Kannski þarf ekki sérfræöinga til Þar sem ég veit um svona þjónustu starfar að henni hópur sérfræðinga og því auðvelt að segja að við höfum ekki ráð á henni hér. Sannast þar best hið gamla viðkvæði að það er dýrt að vera fátækur, þar sem það hlýt- ur að vera mun ódýrara að koma í veg fyrir innlögn en borga dýrt sjúkrarými um lengri tíma. en satt að segja dreg ég í efa að það þurfi endilega sérfræðinga til. Natið fólk með einlægan vilja til að hjálpa, nokkurn þroska og vænan skammt af myndugleika dygði sennilega vel. Við í Geðhjálp höfum áhuga á að koma á fót símaþjónustu fyrir aðstandendur geðsjúklinga. Við teljum að við getum miðlað öðrum til góðs af eigin reynslu af svona málum. Þó ekki sé nema þeirri litlu huggun að við erum mörg á sama báti. Auðvitað nær slík hjálp skammt miðað við þá raunhæfu hjálp sem fengist við að forða sjúklingi frá innlögn. En við erum fámennt félag og höfum því engin tök á að víkka svo út þjónustuna hjálparlaust. Við það bætist líka að við erum áreiðanlega mjög misjafnlega til þess starfs fallin. Víst er alltaf mun auðveldara fyrir leikmann að koma með alls kyns allsherjarlausnir á erfiðum vandamálum en þeim sem vit hefur á. Og ekki ætla ég mér heldur þá dul að koma með neina. En oft hefur mér dottið í hug hvort ekki mætti fá þá há- skólanema til að sinn svona þjónustu í einhverri mynd, sem síðar hljota að mæta svona vandamálum í starfi sínu. eins og t.d. læknanema, sálfræði- nema, hjúkrunarfræðinema, guðfræðinema og félagsfræði-' nema. Eða gera jafnvel slíkt að valnámskeiði í þessum greinum sem hlýtur að gefa nemendum mun raunhæfari mynd af þess- um málum en bókarlærdómur. En hvað sem líður heppi- legustu lausninni á fyrirkomu- lagi slíkrar þjónustu hljotum við að stefna að því að henni verði komið á fót. Ekki bara af því, að þegar til lengdar lætur hlýtur slíkt að vera ódýrara fyrir þjóð- félagið, heldur líka vegna allra þeirra sjúklinga sem eiga enn verra með að ná fótfestu í heimi heilbrigðra eftir hverja innlögn. Einstaklinga sem gætu með réttri hjálp séð nokkurn veginn fyrir sér og lifað mannsæmandi lífi í stað þess að enda sem ósjálfbjarga öryrkjar, einangr- aðir frá öllu því sem við er heil- brigð teljumst álítum undirstöðu þess að lífið sé yfirleitt þess virði að lifa því. 'geðhjálp Steinar J. Lúðvíksson er tveggja bóka maður. Önnur er 14nda bindið af Þrautgóðir á raunastund og hin þriðja árbók Steinars. Stcindór Steindórsson frá Hlöðum hefur skrifað sjálfsævisögu sína og nefnir hana Sól ég sá. Níunda skáldsaga Snjólaugar Braga- dóttur frá Skáldalæk kemur nú út. Áslaug Ragnars sendir nú frá sér aðra skáldsögu sína. Árni Johnsen hefur tekið fjölda við- tala á sínum blaðamannsferli. Kvist- ir í lífstrénu nefnist bók með göml- um og nýjum viðtölum hans. Guðmundur Sæmundsson hefur skrifað bók um kvennaframboðin 1982, en enn er eftir að velja bók- inni endanlegt nafn. Orn og Orlygur hf. gefur út 40 bækur BOKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur hf. hefur sent Morgunblaðinu frétta- tilkynningu um útgáfu sína á þessu hausti, en forlagið gefur út rétt tæplega 40 bækur og er helmingur þeirra eftir íslenzka höfunda. Morgunblaðið hefur sagt sér- staklega frá útkomu sex bóka forlagsins; tveggja binda rit- verks dr. Haralds Matthíasson- ar, Landið og Landnáma, þriðja bindið af Landið þitt ísland eftir Þorstein Jósepsson og Steindór Steindórsson með sérstökum Reykjavíkurkafla eftir Pál Lín- dal, HM á Spáni, og sögu heims- meistarakeppninnar í knatt- spyrnu eftir Sigmund Ó. Stein- arsson, Ágrips af jarðfræði ís- lands eftir Ara Trausta Guð- mundsson og Allt um potta- plöntur, sem Fríða Björnsdóttir þýddi. Saga og minningar Örn og Örlygur gefa út tvær bækur eftir Steinar J. Lúðvíks- son; 14nda bindi bókaflokksins Þrautgóðir á raunastund, sem nær yfir tímabilið 1959—1961 og Árbók Islands, Hvað gerðist á ís- landi 1981, sem er þriðja árbók- in, sem Steinar J. Lúðvíksson er höfundur að. Sól ég sá nefnist sjálfsævisaga Steindórs Sieindórssonar frá Hlöðum og Sjómannsævi er ann- að bindi endurminninga Karvels Ögmundssonar, skipstjóra, sem hann skráir sjálfur. Fjórða bindi bókaflokksins Forn frægðarsetur eftir séra Ágúst Sigurðsson á Mælifelli kemur nú út. Dömur, draugar og dáindis- menn nefnast æviminningar Sigfúsar Kristinssonar, sem Vil- hjálmur Einarsson skólameist- ari á Egilsstöðum skráði. Þá kemur út lokabindið af Bændur og bæjarmenn, minn- ingaþáttur Jóns Bjarnasonar frá Garðsvík. Um Kvennaframboðin 1982 fjallar bók eftir Guðmund Sæ- mundsson, sem Örn og Örlygur gefur út, en í tilkynningu útgáf- unnar segir að bókinni hafi ekki verið gefið endanlegt nafn. Éyjar gegnum aldirnar nefnist bók, sem Guðlaugur Gíslason, fyrrum alþingismaður, hefur tekið saman um sögu Vest- mannaeyja. Kvistir í lífstrénu er bók eftir Árna Johnsen með viðtölum hans „við fólk á förnum vegi". Sum hafa birzt áður en önnur eru ný af nálinni, segir m.a. í tilkynningu útgáfunnar. Tröllasögur og teikningar er bók um íslenzka þjóðsagnaver- öld sem Haukur Halldórsson hefur safnað og samið efni í og myndskreytt og er bókin gefin út bæði á íslenzku og ensku. Fjórar skáldsögur Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. gefur út fjórar íslenzkar skáldsögur; Leiksoppur fortíðar- innar er eftir Snjólaugu Braga- dóttur frá Skáldalæk og hennar níunda bók. Sylvía heitir önnur skáldsaga Áslaugar Ragnars. Bræður munu berjast er fyrsta skáldsaga Rónalds Símonarson- ar og Heitur snjór er skáldsaga eftir Viktor Arnar Ingólfsson. Spilabækur og fleira Spilabækur Arnar og Örlygs nefnist nýr bókaflokkur og koma nú út tvær bækur; Hvernig á að leggja kapal og Tveggja manna spil. Trausti Björnsson þýddi bækurnar úr dönsku og staðfærði efnið. Tvær nýjar bækur bætast í hóp Litlu matreiðslubókanna, sem eru eftir Lotte Havemann, en Ib Wessman þýðir. Þessar bækur eru um Nautakjöt og Sal- öt. Barnabækur Stærsta barnabókin, sem Örn og Örlygur gefur nú út, er Það er gaman að fóndra eftir Richard Scarry í þýðingu Andrésar Indr- iðasonar. Fjórar bækur um Rasmus Klump koma út og aðrar fjórar Allt í lagi bækur í þýðingu Ándr- ésar Indriðasonar. Þá gefur forlagið út þrjár hreyfimyndabækur; ein er um Mjallhvít og dvergana og hinar tvær um Liti og Lögun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.