Morgunblaðið - 13.11.1982, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 13.11.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982 21 Halldór Blöndal „í fylgiskjölum ríkis- bókhaldsins árin 1980 og 1981 er hvorugt þetta nafn aö finna, en á hinn bóginn fjölmargar greiöslubeiðnir vegna lögmannsstarfa og kostnaðar Arnmundar Bachmann hdl., svo að ætla verður að ávísanir ríkisféhirðis hafi verið gefnar út á hans nafn, svo og launamiðar ráðu- neytisins.“ málaráðuneytinu án þess að hún nyti forgangs og hefði fengið úr- skurð viðkomandi fógeta eða sýslumanns?" Nei, það get ég ekki, enda hef ég aldrei haldið því fram. Á hinn bóginn vil ég ítreka hér þau sjón- ræðir í 1. mgr. þessarar greinar, tekur ábyrgðin til alls nauðsyn- legs kostnaðar, sem honum er skylt að greiða í því sambandi." Um þessar breytingar segir svo í greinargerð lagafrumvarpsins frá 1979: „Auk þess er ríkis- ábyrgðin látin ná til þess kostnað- ar, sem á launþega kann að hafa fallið vegna innheimtuaðgerða hans á hendur launagreiðandan- um. Gildandi lög heimila hins veg- ar aðeins greiðslu kostnaðar við að krefjast gjaldþrotaskipta. Má ætla, að sú regla kunni að hafa dregið úr viðleitni launþega til að innheimta sjálfur kröfur sínar hjá kaupgreiðanda, ef vitað var að hann stóð höllum fæti„vegna þess kostnaðar sem fallið gat á laun- þegann sjálfan við slíkar aðgerðir. Þykir rétt að létta þeirri áhættu af launþegum, enda mun slíkt væntanlega stuðla að öruggari innheimtu vinnulauna í framtíð- inni og draga um leið úr þeim skuldbindingum, sem á ríkissjóð falla.“ Lagaákvæðin eru ekki nógu skýr, en ég tel að tilgangur þeirra eins og honum er lýst í greinar- gerð taki af allan vafa um það, að lögum samkvæmt takmarkast ríkisábyrgð lögmannskostnaðar við innheimtuaðgerðir og kostnað þeirra vegna, áður en til gjaid- þrots kemur. Þá kemur skýrt fram að á bak við lagabreytinguna er viðleitni til sparnaðar en ekki hið gagnstæða. Eg hef undir höndum fjölmörg mál, þar sem innheimtutilraunir hafa byrjað áður en til gjaldþrots kom. Skiptaráðandi hefur fjallað um launakröfuna og viðurkennt hana sem forgangskröfu með vöxtum og málskostnaði í sam- ræmi við gjaldskrá Lögmannafé- lags íslands. Hér er sýnishorn með að vísu lægstu launakröfu, sem ég hef fundið: „Skiptafundur hefur tekið endanlega afstöðu til hinnar lýstu kröfu og er krafan viðurkennd sem forgangskrafa að armið, sem ég setti fram á Alþingi varðandi greiðslu lögmannskostn- aðar, í málum sem varða ríkis- ábvrgð á launum við gjaldþrot: „í lögum er skilið á um það í hvaða tilvikum lögmannskostnað- ur skuli vera forgangskrafa. Ég tel, að löggjafinn hafi markað lín- una með því og að ríkissjóður hafi átt að binda sig við að greiða full- an lögmannskostnað einungis þeg- ar um það var að ræða að krafan var sett fram áður en til gjald- þrotaskipta kom. En á hinn bóg- inn hafi ráðuneytið ekki haft heimild til þess að greiða lög- mannskostnað nema krafan hafi gengið inn í forgangskröfu við- komandi aðila.“ Lög um ríkisábyrgð á launum við gjaldþrot eru frá 21. marz 1974. Með þeim ábyrgðist ríkið greiðslu á launakröfum á hendur vinnuveitanda, sem úrskurðaður hafði verið gjaldþrota, eftir ákveðnum reglum. Ef launþegi hafði krafist gjaldþrotaskipta, tók ábyrgðin til alls nauðsynlegs kostnaðar, sem honum var skylt að greiða í því sambandi. Þessi regla um greiðslu lögmannskostn- aðar þótti of þröng og var hún víkkuð út með lögum frá 5. marz 1979 og hljóðar nú svo: „Hafi laun- þegi krafizt gjaldþrotaskipta eða hafið innheimtuaðgerðir vegna vanskila á greiðslum þeim sem um - ;.j I V i bbií '.j. 6í-:ív i'a,i; fjárhæð kr. 643,17 miðað við upp- hafsdag skiptameðferðar og sund- urliðast þannig: Höfuðstóll kr. 61,62 Vextir til 13.10.1980 kr: 9,55 Málskostnaður kr. 572,00 Samtals kr. 643,17“ Samkvæmt ákvörðun ráðuneyt- isins hækkaði vaxtagreiðslan í kr. 21 og málskostnaðurinn í kr. 1.142, eða tvöfaldaðist. Skakkar að vísu tveimur krónum. Ég lít því svo á, að úrskurður skiptaráðanda í dæminu hér að ofan hafi átt að standa, en að óheimilt hafi verið af félagsmála- ráðuneytinu að inna af hendi hærri greiðslur í málskostnað, enda skorti beina lagaheimild til þess. I lögunum er auk heldur kveðið á um það, að ráðuneytið geti leitað úrskurðar skiptaréttar, ef vafi leikur á réttmæti kröfu, eða um það hvort krafa fellur inn- an ríkisábyrgðar. Þetta hlýtur að eiga við kröfur um greiðslu máls- kostnaðar sem aðrar kröfur. Mér hefur verið bent á, að laga- nefnd Lögmannafélags ísiands hafi skilað álitsgerð um þetta álitamál, þar sem hún kemst að þeirri niðurstöðu, að „orðalagið „til alls nauðsynlegs kostnaðar" í 2. mgr. 1. gr. 1. nr. 8/1979, sbr. 1. nr. 31/1974, þykir eiga að skilja svo, að það taki til þess kostnaðar, ií,q fcbnel. 1 biiwdíasas sem launþegi hefur haft af aðgerð- um til innheimtu kröfu, sem ríkis- ábyrgðin nær til fyrir gjaldþrot launagreiðanda, svo sem inn- heimtuþóknun lögmanns og málskostnaðar auk kostnaðar við kröfulýsingu og mót“. Á hinn bóg- inn kemur fram í álitsgerðinni „að ríkisábyrgðin nái ekki til þess inn- heimtukostnaðar, sem krafist er eftir að gjaldþrot eru orðin. Laun- þegi þarf að hafa hafist handa með innheimtuaðgerðir fyrir gjaldþrot." Það sem ber á milli skilnings míns og laganefndar Lögmannafé- lagsins er það, að ég tel, að úr- skurður skiptaréttar varðandi greiðslu málskostnaðar sé afger- andi enda miðast viðurkenning forgangskröfunnar við hann. Mér þykir sjálfsagt, að á þetta verði látið reyna fyrir skiptarétti, eins og lögin heimila félagsmálaráðu- neytinu að gera, þá fæst úr þessu skorið. Greiðsla launakrafna skv. lög- um um ríkisábyrgð á launum við gjaldþrot nam nýkr. 314.218 árið 1980 og kr. 1.365.000 árið 1981, þar af í lögmannskostnað nýkr. 8.858 og kr. 128.012. Endurgreiðsla í rík- issjóð frá þrotabúinu var engin ár- ið 1980 og kr. 40.543 árið 1981. Þessar staðreyndir sýna glögglega hvernig staða launþega hefur gjörbreytzt eftir að ríkisábyrgðin kom til. Og lögmenn þurfa ekki að hafa áhyggjur af greiðslu inn- heimtukostnaðar eftir lagabreyt- inguna 1979 heldur fá hann að fullu greiddan. Það er ólík starfs- aðstaða frá því sem áður var, þótt félagsmálaráðuneytið haldi sig við úrskurðaðan málskostnað. En eðlilegt hlýtur jafnan að vera, að lagaheimildir varðandi ríkis- ábyrgðir séu túlkaðar þröngt af gæzlúmönnum ríkissjóðs. Arnmundur Bachmann spyr: „Getur Halldór Blöndal nefnt eitt einasta dæmi þess að viðskipti lögfræðiskrifstofu Arnmundar Bachmann við félagsmálaráðu- neytið séu aðfinnsluverð?" Já. Aðstoðarmaður ráðherra hefur ekki heimild til málflutn- ingsstarfa. Meðan Arnmundur Bachmann gegndi því starfi komu fjölmörg mál inn á borð í félags- málaráðuneytinu frá skrifstofu hans. Það sýnir, að það er að- finnsluvert, þegar maður í opin- beru starfi rekur samtímis um- svifamikla málflutningsstofu. Og ég spyr. Er ekki aðfinnslu- vert, að félagsmálaráðherra skuli lýsa því yfir á Alþingi, að tiltekn- ar greiðslur hafi runnið til nafngreindra einstaklinga, þegar skjöl ríkisbókhaldsins bera það með sér, að þær runnu til aðstoð- armanns ráðherrans sjálfs? Og er ekki sömuleiðis aðfinnsluver-t, að félagsmálaráðherra skuli leyfa að- stoðarmanni sínum að reka mál- flutningsstofu og annast mál- flutning, þegar skýrar reglur eru um það, að honum sé það óheim- ilt? Halldór Blöndal P.s. Eftir að ég hafði gengið frá þessari grein, þar sem ég útskýrði þau viðhorf, sem ég lagði til grundvallar málflutningi mínum á Alþingi, barst mér áskorun frá tveim héraðsdómslögmönnum, Arnmundi Bachmann og Erni Höskuldssyni. Hinn síðarnefndi var ekki starfsmaður félagsmála- ráðuneytisins á umræddu tímabili og kemur ekki við þessa sögu. KJÖTMIÐSTÖPIN Laugalaek 1. s. 86511 Okkar Leyft verð verö Kjúklingar 10 stk. kassa 79,80 123,00 Unghænur 10 stk. kassa 38,00 64,00 Nautahakk 10 kíló kassi 79,00 133,00 Kindahakk 38,50 82,00 Nýtt hvalkjöt 27,00 42.00 Gamla verðiö Nýja verðið Lambaskrokkar 41,75 57,30 Úrvals nautaschnitzel 185,00 257,00 Nautagulash 148,00 198,00 Nautafillet 215,00 277,00 Nautagrillsteik 64,00 83,00 Nautabógsteik 64,00 83,00 Nautahamborgari 8,00 12,20 Bacon á hálfviröi 98,00 215,00 Eggin aöeins 46,00 62,00 Vz svínaskrokkar 87,00 i TILBÚIÐ Vat nautaskrokkar 72,00 J í 1/2 folaldaskrokkar 48,00 ] FRYSTINN Folaldabuff (nýslátraö) 155,00 Folaldagulash (nýslátraö) 145,00 Folaldahangikjöt 48,00 Kindaschnitzel (nýslátraö) 129,00 Lambagulash (nýslátraö) 119,00 Opið til kl. 4 á laugardag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.