Morgunblaðið - 13.11.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.11.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982 23 Var hafið samsæri gegn Brezhnev er hann lést? Iiondon, 12. nóvember. AP. BRESKA dagblaðið Daily Express heldur því fram í dag, að ráðagerð- ir hafi verið uppi um það að koma Leonid I. Brezhnev frá völdum er hann lést. Haft er eftir vestrænum stjórnarerindrekum, sem ekki vilja láta nafns síns getið að þeir hafi að undanlornu beðið eftir fregnum þess eðlis, að Brezhnev yrði komið frá völdum i Kreml og mun þeim því hafa brugðið í brún þegar fregnir bárust um að hann væri látinn. Einnig er gefið í skyn í fregn- um þeim er Daily Express hefur eftir sérlegum fréttamanni sín- um í Moskvu, Michael Evans, að ekki séu allir sáttir við tilkynn- ingu sovésku fréttastofunnar Tass um banamein Brezhnevs og séu nú margir að velta því fyrir sér hvert það raunverulega hafi verið. Dagblaðið Daily Mail heldur því fram í dag, að banamein hans hafi ekki verið hjartaslag eins og í hinni opinberu tilkynn- ingu hafi staðið, heldur hafi hann látist úr heilablæðingu, sem hafi hafist nokkrum klukku- stundum eftir að hann var viðstaddur hátíðahöld vegna byltingarafmælisins á Rauða torginu síðastliðinn sunnudag. Honum hafi síðan verið haldið á lífi með aðstoð véla og lyfja í tvo daga, en látist árla á miðviku- dagsmorgun. Ferð Kólumbíu um geim- inn gengur vonum framar ('anaveral-höfóa, Klórida, 12. nóvember. AP. GEIMFARAR geimferjunnar Kólumbíu breyttu sporbaugsstefnu hennar í dag, í þeim tilgangi að koma síðari fjarskiptahnettinum á sinn stað, í um 36.000 kílómetra hæð. Þegar því verki lýkur er fyrsta raunverulega verkefni hennar lokið, þ.e. að koma tveimur fjarskiptahnöttum út í geiminn. Fyrri fjarskiptahnötturinn var settur á sinn stað í gær og tókst það verk vonum framar og geimfararnir fengu þessi skila- boð frá stjórnendum ferðarinnar á jörðu niðri: „Það verður erfitt verk fyrir ykkur að láta þetta ganga betur í dag, heldur en í gær.“ Geimfararnir eru hins vegar staðráðnir í því að láta allt ganga að óskum, og bandaríska geim- ferðastofnunin NASA hefur þá trú að ef þessi ferð gangi að óskum, séu þeir komnir fram úr evrópskum geimferðastofnunum og öðrum, sem keppa við þá um ferðir sem þessa, þar sem um er að ræða viðskiptaferð út í geim- inn með farma. Eftir að Kólumbía hafði farið í fjórar reynsluferðir, sem allar gengu að óskum, á síðastliðnum 19 mánuðum, hafa stöðugt fleiri viðskiptavinir undirritað samn- ing þess eðlis að geimferjan flytji fjarskiptahnetti og aðra farma fyrir þá út í geiminn, og munu nú 150 fyrirtæki vera á skrá þar til árið 1987. Veður víöa um heim Akureyri Amsterdam Aþena Beirút Berlin Brussel Chicago Dyflinni Feneyjar Frankfurt Genf Helsinki Hong Kong Jerúsalem Jóhannesarborg Kairó Kaupmannahöfn Lissabon London Los Angeles Madrid Malaga Mallorca Mexíkóborg Miami Moskva Mýja Delhí New York Osló París Reykjavík Rómaborg San Francisco Síngapore Stokkhólmur Tel Aviv Vancouver Vinarborg Þórshöfn +5j léttskýjað 12 skýjaö 19 heióskirt 18 heióskírt 18 heiöskirt 13 rigning 15 rigning 14 rigning 16 þokumóöa 13 skýjaö 12 skýjaö 10 heióskirt 23 heíöskirt 15 rigning 27 skýjaö 22 heiðskírt 13 skýjaö 18 heiöskirt 12 rigning 17 heiðskirt 15 heióskírt 19 lóttskýjaö 21 léttskýjaó 25 heiöskirt 25 skýjaö 7 heióskírt 27 heióskirt 14 skýjaó 11 skýjað 14 rigning +2 léttskýjaó 20 helðskirt 13 skýjaö 33 rigning 11 skýjaó 20 rigning -4 heiðskírt 11 skýjað 9 skýjaö Þrír meðlimir IRA skotn- ir til bana Belfasl, 12. nóvember. AP. ÞRÍR meðlimir írska lýðveldishers- ins, IRA, voru í gær skotnir til bana þegar þeir reyndu að flýja framhjá vegatálmunum lögreglunnar i nánd við Lurgan, sem u.þ.b. 32 kílómetra suð-vestur af Belfast, samkvæmt heimildum lögreglunnar. Talsmaður lögreglunnar sagði að tveir mannanna hefðu verið eftirlýstir vegna morðtilraunar og að hafa í fórum sínum ólögleg vopn. Mennirnir munu hafa verið í bifreið við vegatála lögreglunnar, er þeir reyndu skyndilega að keyra niður lögreglumann til að komast hjá yfirheyrslum. Lögreglan tók þá til þess bragðs að skjóta á bif- reiðina og munu mennirnir þrír hafa látist samstundis. Sprengdu Sal- ang-göngin Islamahad, 12. nóvember. AP. Skæruliðahreyfíng Múhameðstrú- armanna í Afghanistan hefur lýst ábyrgð á hendur sér vegna spreng- ingar þeirrar, sem varð í jarðgöngum i Salang-skarði í Afghanistan fyrr í þessum mánuði, þar sem mörg hundruð, ef ekki fleiri þúsund, manns misstu lífíð. Það var talsmaður skæruliða- hreyfingar þeirra, sem gengur undir nafninu Hazbi, er skýrði frá því í dag, að hún bæri ábyrgð á þvi, sem gerðist í göngunum. — Við komum fyrir allmörgum sprengjum inni í og við jarðgöng- in, var haft eftir talsmanninum í dag. — Við drápum 600—700 Rússa. Aðrir skæruliðahópar í Afghan- istan hafa ekkert látið hafa eftir sér varðandi atburð þennan. ■ OPIÐIDAG i./ Bflasöludeildin / er opin í dag / frá kl. 2—6 / Nýir og notaðir bílar til sýnis og sölu. Komiö ræðiö málin og þiggiö veitingar. Munið að varahlutaþjónusta okkar er í sérflokki. Lada Safir kr. 105.000.- Lada Station kr. 118.000. Lada Canada kr. 124.000 Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf Suðurlandsbraut 14 - Sími 38 600

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.