Morgunblaðið - 13.11.1982, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982
13
Ritsafn Sverris
Kristjánssonar
HJÁ Máli og menningu er komið út
annað bindi Ritsafns Sverris Krist-
jánssonar, en fyrirhugað er að gefa
út úrval af verkum hans í.fjórum
bindum. Ritgerðirnar í þessu bindi
eru um íslenska sögu og félagsfræð-
ileg efni. Fyrstu ritgerðirnar fjalla
um sögu 19. aldar og Jón Sigurðs-
son, en meginefnið er um sögu þess-
arar aldar, menn og málefni, og ber
þar hæst greinar um verkalýðsmál
og samtök alþýðunnar.
Á bókarkápu segir m.a.: „Þessar
greinar eru flestar styttri en
greinarnar í fyrsta bindinu og þær
eru persónulegri, þar sem hann
fjallar um menn og málefni sem
hann þekkir af eigin raun, sem
hann hefur barist fyrir eða barist
á móti. Hér kynnumst við mati
hans á því sem gerist í íslensku
þjóðfélagi sem hefur hamskipti á
nokkrum áratugum, frá Benedikt
á Auðnum til Benna í leyniþjón-
ustunni, hugleiðingar um þjóðfé-
lagið og skáldið, en jafnframt um
söfnun og varðveislu íslenskra
söguheimilda. Hér er því litið um
öxl til Iiðinnar aldar, lifað með á
Sverrir Kristjánsson
líðandi stund og horft fram á veg
til komandi tíma.“
Aðalgeir Kristjánsson, Jón
Guðnason og Þorleifur Hauksson
sáu um útgáfu bókarinnar, sem er
287 bls., prentuð og bundin í Hól-
um.
Skátafélagið Kópar heldur hlutaveltu til styrktar félagsstarfsemi sinni
sunnudaginn 14. nóv. kl. 14.30 í Hamraborg 1, Kópavogi. Á hlutaveltunni
verður fjöldi vinninga, Ld. innanlandsferðir, reiðhjól, gastæki, ábreiður,
fatahreinsanir, klippingar, myndatökur o.fl. Engin núll. Einnig verður köku-
sala á staðnum.
AUKIN
TRYGGINGAVERND
BÆNBAÁN
IÐGIALDSHÆKKUNAR
RT'TFF! FHDTTJ?
EIN TRYGGING1STAÐ MARGRA
Samvinnutryggingar hafa nú aukið gildi Hey- og búfjár-
tryggingarinnar og bjóða nú nýja samsetta brunatryggingu fyrir
bændur í hefðbundnum búgreinum. Hún veitiraukna tryggingavernd
og tryggir nú allt í senn: búfé, fóður og tæki (ökutæki þó
undanskilin).
Kostirnir eru augljósirþví miklir fjármunir eru bundnir í tækjum
sem eru mjög oft ótryggð og fást því ekki bætt er tjón verður.
IÐGJALDSTAXTINN LÆKKAR
Um leið og gildi tryggingarupphæðarinnar eykst lækkar ið-
gjaldstaxtinn þannig að útgjaldaaukning verður engin fyrir bóndann.
KYNNIÐ YKKUR ÞESSA AUKNU TRYGGINGAVERND HJÁ
NÆSTA UMBOÐSMANNI.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA3 SÍMI81411
UMBOÐSMENN UM LANDALLT
3
3
VÉLASÝNING HJÁ ISELCO
hefur sýningu í húsakynnum sínum aö Skeifunni 11/D, 108, Reykjavík, laugardaginn 13. og sunnudaginn 14. nóvember kl. 1—5 e.h., og
áfram mánudaginn 15. — föstudagsins 19. nóvember á venjulegum opnunartíma kl. 9—12 f.h., og 1—5 e.h.
Á sýningunni verða sérstaklega kynntar trésmíðavélar frá LASM og GRIGGIO, Ítalíu. Einnig sýnum við loft- og rafmagnshandverkfæri frá
Desoutter, ELU o.fl.
Þetta er gott tækifæri til að kynnast góðum og hentugum vélum fyrir tréiönaöinn.